Morgunblaðið - 10.09.1992, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.09.1992, Blaðsíða 22
22 MÖRGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992 Varað við ólgu í sam- veldinu KONRAD Porzner, yfirmaður þýsku leyniþjónustunnar, segir í viðtali við Kölnarblaðið Ex- press, að hætta sé á efnahags- legri og stjórnmálalegri upp- lausn í Samveldisríkjunum, sem haft geti miklu alvarlegri af- leiðingar en ástandið í Júgó- slavíu nú. Þá telur hann ástæðu til að óttast, að ágreiningur milli þjóðarbrota og landa- mæradeilur geti leitt til nýs einræðis í Rússlandi. Minnir hann á, að vopnabirgðir í Sam- veldisríkjunum séu miklu meiri en júgóslavnesku lýðveldunum. Seðlar í sal- ernispappír RÚMENAR hafa fengið sinn versta grun staðfestan. Gengis- fall gjaldmiðilsins, leisins, er svo mikið, að peningaseðlarnir eru ekki brúklegir í annað en klósettpappír. Blaðinu Eveni- mentul Zilei hefur verið sendur klósettpappír þar sem finna má brot úr 100-leia-seðlum og talsmaður seðlabankans hefur staðfest, að vikulega séu allt að sex tonn af sundurtættum seðlum send til endurvinnslu. Seðlarnir þykja svo óvandaðir, að varla er hægt að lesa á þá og þar fyrir utan eru þeir sagð- ir svo skítugir, að fólk verði að þvo sér um hendur eftir að hafa handfjatlað þá. Herferð gegn heimalöndum AFRÍSKA þjóðarráðið ætlar að halda áfram herferð sinni gegn heimalöndum svertingja, sem það segir vera afsprengi að- skilnaðarstefnunnar, en margir óttast, að hún geti leitt til mik- illa átaka milli blökkumanna. Allt að 28 menn voru felldir og 200 særðust á mánudag þegar hermenn í einu heima- Iandanna, Ciskei, skutu á stuðningsmenn Þjóðarráðsins, en í gær átti að efna til mótmæ- lagöngu í Owa-Owa, sem er minnst heimalandanna 10. Málssókn gegn forseta hraðað ÞINGIÐ í Brazilíu hefur ákveð- ið að hraða málssókn á hendur Femando Collor de Mello for- seta og hefur honum verið skip- að að hafa málsvörnina tilbúna eftir viku. Er honum gefin að sök spilling og misferli með opinbert fé. Er búist við, að formleg ákvörðun um málssókn verði tekin á þingi 26. þ.m. en hún krefst samþykkis tveggja þriðju hluta þingmanna. Ibsen Pinheiro, forseti neðri deildar þingsins, hefur ákveðið, að at- kvæðagreiðslan verði opinber, ekki leynileg eins og oft er, og er það talið auka líkur á, að málshöfðunin verði samþykkt. Sver fyrir íslamskt ríki NÝR leiðtogi í Tadzhíkístan, Akbarsho Iskandarov, vísaði í gær á bug ótta sumra við, að nýtt öfgatrúarríki væri að fæð- ast á rústum kommúnismans. „Það má ekki verða og mun ekki verða,“ sagði Iskandarov en hann hefur tekið við forseta- embættinu eftir að kommún- istaleiðtoginn Rakhmon Nabíjev var neyddur til að segja af sér. í Tadzhíkístan búa rúm- lega fimm milljónir manna og eru flestir múslimar. Breska útvarpið Sovésk tækni gegn truflun- um Kínverja London. Reuter. BRESKA útvarpið, BBC, hyggst notfæra sér sendistöðvar á Kyrrahafsvæðum Rússlands til að koma fréttaútsendingum heimsþjónustunnar, BBC World Service, betur á framfæri við Kínverja. Kíriverska stjórnin truflar sendingar erlendra stöðva sem eiga að ná eyrum almennings en talið er að hægt sé að snúa. Útvarpsstöðin sendir nú þegar til Kína frá stöðvum í Hong Kong og Singapore. Talsmenn BBC segja að sendingarnar hafi verið truflaðar síðan herlið var látið bijóta á bak aftur mótmæli stúd- enta á Torgi hins himneska friðar í Peking árið 1989. Sovétríkin tru- fluðu útsendingar stöðvarinnar til ársins 1987. Samningurinn um afnot af sendistöðvunum í Rússlandi var gerður við sameiginlega yfirstjórn útvarpsmála i Moskvu. Samkvæmt honum mun BBC einnig fá afnot af sendistöð í Tashkent, höfuðborg Úzbekístans, og hyggst nota hana til að útvarpa til Indlandsskaga. Sígaunar velja sér konung Ion Cioaba nýkrýndur konungur sígauna meðal stuðningsmanna eftir krýningarathöfn í bænum Bistrita í Rúmen- íu. Cioaba sagðist nú konungur (Bulibasha) allra sígauna en talið er að þeir séu um þrjár milljónir talsins í Rúmeníu einni. Ríkisstjórn Þýskalands vill samstöðu um sex liða þjóðarsátt Kohl viðurkennir að mistök voru gerð við sameininguna Bonn. Reuter. HELMUT Kohl, kanslari Þýskalands, vísaði í gær á bug ásökunum um, að stjórnarforysta hans væri veik og fálmkennd. Hann varði gerðir sínar vegna sameiningarinnar 1990 og lagði til, að allir stjórn- málaflokkar landsins stæðu að neyðaráætlun til að reisa við austur- hluta landsins. Kohl viðurkenndi í fjárlagaum- ræðum á þinginu í Bonn, að honum hefðu orðið á mistök fyrir og eftir sameininguna og skoraði á forystu Jafnaðarmannaflokksins að taka þátt í neyðarumræðum með stjórn- arflokkunum um sex liða „þjóðar- sátt“. Hann sagði, að þingið yrði að leggja austurhlutanum til 150 millj- arða marka á ári „í langan tíma“, en lét hjá líða að minnast á það sem harðast hefur verið deilt um síðast- liðna tíu daga, það er hvar taka ætti þessa ijármuni. Kohl, sem varð kanslari í október 1982, leit til baka og sagði: „Þau eru orðin tíu árin, og sérstaklega á síðustu tveimur árum hefur okkur tekist að koma miklu í verk, þó að sumt yrði út undan, og við gerðum margt rétt, þó að í sumU tækist ekki eins vel til.“ Björn Engholm, leiðtogi jafnað- armanna, sagði við umræðurnar: „Ræða, sem byggist á einkunnar- orðunum „trú, von og kærleikur" nægir ekki til að lægja kvíðann í bijósti fólks og uppfýlla þarfir þess.“ Bæði Engholm og Kohl lögðu áherslu á, að þeir hefðu ekki áhuga á „stórri samsteypustjórn", en fréttaskýrendur hafa margir getið sér þess til undanfarna daga, að sá kostur kynni að verða ofan á. Kaupmáttur Kúbumanna hefur minnkað um 70% á þremur árum Sykurinn nægir ekki fyrir olíu Ilavana. Reuter. KÚBA á við gífurlegar efnahagsþrengingar að stríða, meiri en nokkru sinni, en eftir sem áður er það sykurinn sem landsmenn verða að byggja afkomu sína svo til eingöngu á. „Nú verðum við jafnvel að knýja farartæki okkar með sykri,“ sagði Fidel Kastró leiðtogi í ræðu á sunnudag, þar sem hann gerði opinskátt grein fyrir efnahagsörðugleikum þjóðar sinnar. Frá því að slitnaði upp úr íviln- unar-viðskiptum Kúbu við fyrr- verandi kommúnistaríki í Austur- Evrópu og Sovétríkin fyrrverandi, hafa Kúbveijar fengið miklu minna fyrir sykurútflutning sinn. Það hefur aftur haft í för með sér, að minni fjárráð hafa verið til kaupa á olíu, tækjum, áburði og illgresiseyði, að ekki sé talað um matvöru. Og þegar minna er um eldsneyti, áburð og varahluti, skapast hætta á, að sykurupp- skeran, sem verið hefur meginstoð efnahagslífsins um árabil, dragist saman. Kastró upplýsti, að sykurupp- skeran 1991-92 yrði sjö milljónir tonna, sem væri betra en búist hefði verið við, en minna en nokkru sinni í meira en áratug. Hann sagði, að við núverandi við- skiptakjör og olíuverð væri ekki meira en svo, að þjóðin skrimti. „Sykurinn sem við flytjum út nægir ekki fyrir olíunotkun okkar eins og hún er nú,“ sagði hann. Eyjarskeggjar leitast nú við að láta sex milljónir tonna af olíu duga yfir árið, en fluttu inn 13 milljónir tonna, meðan samning- arnir við Sovétríkin fyrrverandi voru í gildi. Þetta hefur meðal annars leitt til rafmagnsskömmt- unar, samdráttar í samgöngum og lokunar iðnfyrirtækja. Og uxar hafa tekið við hlutverki dráttar- véla. Þá hafa framkvæmdir við fyrsta og eina kjarnorkuverið á Kúbu stöðvast, þar sem ekki eru efni til að ljúka við það. Tilboð Rússa í lokaáfangann þótti óað- gengilegt. Kúbveijar verða því að reiða sig á olíuna áfram. Erfitt að halda í horfinu Kastró kvartaði um verðþróun á olíu í samanburði við sykurverð og kvað land sitt hafa glatað 70% af kaupmætti sínum á síðastliðn- um þrerriur árum. „Það er ekkert smáræðisáfall fyrir efnahagslíf- ið,“ sagði hann. Hann sagði, að til að auka enn á vandræði landsmanna hertu Bandaríkjamenn æ meir á 30 ára gömlu viðskiptabanni sínu. „Þeir gera allt sem þeir geta til að koma í veg fyrir að við fáum olíu og leggja kapp á að hindra að okkur áskotnist peningar til að greiða fyrir þá Iitlu olíu sem við fáum.“ Enda þótt Kúbverjar hafi dijúg- ar gjaldeyristekjur af útflutningi á nikkel, sjávarvörum, tóbaki og lyfjum, er sykurinn enn sú megin- undirstaða, sem efnahagur þeirra hvílir á. Þess vegna er mikið í húfi fyrir þá, að sykuruppskeran 1992-93 bregðist ekki. En neikvæðu áhrifín, sem skortur á áburði og illgresiseyði getur haft fram að uppskerutím- anum, kunna að gera það erfiðara en nokkru sinni fyrr að halda í horfmu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.