Morgunblaðið - 10.09.1992, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 10.09.1992, Blaðsíða 48
Jfr MORGVNBLAÐID, AÐALSTRÆT! 6, 101 REYKJA VÍK SÍMBRÉF SlMI 691100, Sli :F 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992 VERÐ I LAUSASOLU 110 KR. Fyrsti fundur Norður-Atlantshafs sjávarspendýraráðsins Islendingar vilja að ráð- ið sljórni hrefnuveiðum Þórshöfn í Færeyjum. Frá Guðmundi Sv. Hermannssyni, blaðamanni Morgunblaösins. Á FYRSTA formlega fundi Norður-Atlantshafs sjávarspendýraráðs- ins, NAMMCO, sem hefst í Þórshöfn í Færeyjum i dag, munu Islend- ingar kanna hvort grundvöllur sé fyrir því að ráðið hefji strax undir- búning að veiðisljórnun á hrefnu í Norður-Atlantshafi. Veiðar á hrefnu falla undir Alþjóða hvalveiðiráðið og í stofnsamningi NAMMCO, sem samþykktur var í vor, er gert ráð fyrir að fyrst um sinn verði þar fjallað um seli sem ekki heyra undir hvalveiðiráðið. Guðmundur Eiríksson þjóðréttar- fræðingur og formaður íslensku sendinefndarinnar í Þórshöfn sagði við Morgunblaðið að þegar skrifað var undir stofnsamning NAMMCO hefði verið nokkurn veginn ákveðið hvað ráðið myndi fjalla um fyrst um sinn. En síðan hefði margt gerst, til dæmis hefðu íslendingar gengið úr Alþjóða hvalveiðiráðinu og Norðmenn ákveðið að hefja hrefnuveiðar á næsta ári. „Það eru raddir um það á íslandi að við eig- um að hefja hrefnuveiðar sem fyrst og það ýtir á eftir ákvaðanatöku. Og ef til vill eru hinir tilbúnir til- að fara hraðar en áætlað var í upp- hafi,“ sagði Guðmundur. Hann sagði að það yrði að koma í ljós á fundinum hvaða afstöðu Fjárlagafrumvarpið Ekki gert ráð fyrir ^fjármagnstelguskatti RÍKISSTJÓRN og þingflokkar sljórnarinnar hafa fjallað um hug- myndir um að lækka virðisaukaskattsprósentuna úr 24,5% í 22% en á móti verði tekinn upp 14% virðisaukaskattur á stóra flokka vöru og þjónustu sem nú eru undanþegnir virðisaukaskatti í tengslum við fjárlagagerð næsta árs. Davíð Oddsson forsætisráðherra staðfesti að þessar hugmyndir hefðu verið til umræðu en sagði að engin ákvörðun hefði verið tekin. „Megin hugmyndin er sú að til þess að hægt sé að lækka virðisaukaskattsprósentuna þurfi aðrar undanþág- ur að hverfa," sagði hann. Davíð sagði að ekki væri gert ráð fyrir fjármagnstekjuskatti á næsta ári í frumvarpinu en ræddar hefðu verið hugmyndir um breikkun eign- arskattsstofnsins, þannig að hægt jrði að lækka eignaskatt af almenn- um eignum en á móti kæmi að greiddur yrði skattur af fleiri eign- um en nú er gert. Engin ákvörðun hefði þó verið tekin um það. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins kæmi 14% virðisauka- skattur meðal annars á fólksflutn- inga, hótelgistingu, íslenskar bæk- ur, blöð og tímarit, afnotagjöld út- varps og sjónvarps og ákveðna þætti menningarstarfsemi og íþrótta sem undanþegnar eru virðis- aukaskattheimtu. Davíð sagði að ýmsir hefðu ekki áttað sig á því að þótt þeir yrðu að formi til látnir bera virðisaukaskatt væru reglur um greiðslur á inn- og útskatti þannig að þeir gætu verið álíka eða jafnvel betur settir eftir breyting- una. Davíð sagði að um væri að ræða kerfisbreytingu sem gerði skatt- kerfið skilvirkara en fæli ekki í sér skattahækkanir. Hins vegar væri gert ráð fyrir að slík breyting yrði til þess fallin að undanskot frá skatti myndu minnka. aðrar aðildarþjóðir NAMMCO hafa til þessa, en þær eru Norðmenn, Færeyingar og Grænlendingar auk íslendinga. í samtali við Morgun- blaðið sagði Stein Ove,, sem á sæti í norsku sendinefndinni í Þórshöfn, að á þessum fundi væri aðallega ætlunin að koma sér saman um ytra form ráðsins og það yrði síðan að koma í ljós hvort fjallað yrði um ákveðnar dýrategundir. Hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig um af- stöðu Norðmanna til þessa. Talið er að Grænlendingar vilji síður stuðla að því að NAMMCO fari inn á verksvið Alþjóða hval- veiðiráðsins með því að setja hrefnu á verkefnalista sinn að svo stöddu. Grænlendingar fá árlega svonefnda frumbyggjakvóta hjá hvalveiðiráð- inu og óttast að hrefnuveiðar í Norður-Atlantshafi gegn vilja hval- veiðiráðsins gætu breytt því. I greinargerð sem Guðmundur Eiríksson hefur samið um lagalega stöðu NAMMCO er engin vafi talinn leika á lagarétti Islendinga og Norð- manna til að úthluta hvalveiðikvót- um innan efnahagslögsögu sinnar. íslendingar séu ekki háðir hvalveiði- banni Alþjóða hvalveiðiráðsins þar sem þeir séu ekki aðilar að ráðinu og Norðmenn séu ekki bundnir af hvalveiðibanninu þar sem þeir hafi mótmælt því formlega þegar það var sett á. Þess vegna geti Norð- menn tekið ákvarðanir um hvalveiðikvóta á grundvelli tillagna stjórnunamefnda innan NAMMCO. Grænlendingar og Færeyingar séu hins vegar bundnir af hvalveiði- banni Alþjóða hvalveiðiráðsins. Þeim sé hins vegar frjálst að fjalla um veiðikvóta til íslendinga og Norðmanna innan stjórnunar- nefnda NAMMCO. Morgunblaðið/RAX Fjársafn Hrunamanna af fjalli Fjallmenn úr Hrunamannahreppi komu síðdegis í gær með fjársafnið í Hrunarétt. Þeir fóru í göngur á fimmtudag og föstudag í síðustu viku og að sögn Lofts Þorsteinssonar oddvita gekk smölunin áfalla- laust. Fjallmenn fengu frekar slæmt veður. Venjan er að sofa í tjöld- um í tvær nætur en nú var ekki hægt að tjalda vegna hvassviðris og urðu menn að leita skjóls í kofum. Myndin var tekin þegar féð, alls 7-8 þúsund fjár, nálgaðist Hrunarétt og þar stóð þessi tilvon- andi fjallmaður fyrir fénu. Réttað er í Hrunarétt í dag. Veitufyrirtæki Selfoss, Eyrar- bakka og Stokkseyrar sameinuð Heita vatnið á Eyrarbakka og Stokkseyri lækkar um fimmtung Selfossi. SAMNINGUR um byggðasamlag foss í gær. Hið nýja veitufyrirtæki fær nafnið Selfossveitur bs. og kemur í stað Selfossveitna, Hita- veitu Eyra, Rafveitu Stokkseyrar og Rafveitu Eyrarbakka. Samn- um samrekstur veitufyrirtækja Selfosskaupstaðar, Eyrarbakka- og Stokkseyrarhrepps, var stað- festur á fundi bæjarstjórnar Sel- Opinberri heimsókn norsku konungshjónanna lokið Heimsóttu Þingeyinga og Akureyringa Þriggja daga opinberri heimsókn norsku konungs- hjónanna hingað til lands er lokið. í gær fóru þau um Suður-Þingeyjarsýslu og heimsóttu Akureyri. Undir kvöld stigu þau upp í flugvél SAS-flugfé- lagsins á Akureyrarflugvelli og flugu með henni heim til Noregs. Myndin var tekin á flugvellinum þegar Sonja drottning og Haraldur konungur kvöddu Vigdísi Finnbogadóttur forseta íslands. Sjá einnig frétt á bls. 20-21. Morgunblaðið/Rúnar Þór ingurinn tekur gildi 1. október en hreppsnefndir Eyrarbakka og Stokkseyrar eiga eftir að fjalla formlega um samninginn. Viðræður um sameiningu veitufyr- irtækjanna hafa staðið undanfama mánuði. Forsenda sameiningarinnar er að ríkissjóður yfirtaki áhvílandi erlend lán Hitaveitu Eyra sem hafa verið veitunni óhagstæð og haldið uppi háu vatnsverði. Heimild er á fjárlögum til þessarar yfirtöku. Við gildistöku samningsins lækkar verð á heitu vatni á Eyrarbakka og Stokkseyri um fímmtung eða til jafns við niðurgreiddan daghitunartaxta Rafmagnsveitna ríkisins. íbúar greiða þó áfram hærra verð fyrir heitt vatn en Selfossbúar en vonast er til að með hagræðingu i rekstri verði unnt að lækka verðið á nokkr- um árum þannig að orkuverð verði það sama á öllu svæðinu. Við sameininguna eykst umfang Selfossveitna um fjórðung. Það er mat forsvarsmanna veitnanna að fjárhagsstaða þeirra styrkist við sameininguna og um leið möguleikar þeirra til frekari orkuöflunar. „Ég fagna því að samkomulag virðist ætla að takast um þennan rekstur. Við teljum að þetta fyrir- tæki gefí góða möguleika á hagræð- ingu og trúum því að fyrirtækið verði sterkara og þjóni íbúunum betur, meðal ánnars með hagkvæmara orkuverði, en ef fyrirtækin væru fjögur eins og nú er fyrir gildistöku samningsins," sagði Karl Björnsson bæjarstjóri á Seifossi. Eftir staðfestingu samningsins hjá sveitarfélögunum verður kosin ný stjórn Selfossveitna bs. Samkvæmt samningum mun bæjarstjórn Selfoss skipa þijá stjórnarmenn og ákveða formann stjórnar. Hreppsnefndir Eyrarbakka og Stokkseyrar munu skipa sinn fulltrúann hvor. Eignarhlutur sveitarfélaganna í hinu nýja byggðarsamlagi er, sam- kvæmt bráðabirgðamati, sá að Sel- fossbær á 78%, Eyrarbakki 11% og Stokkseyri 11%. Sig. Jóns.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.