Morgunblaðið - 10.09.1992, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 10.09.1992, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992 ^ AMM. International Prentvétar, plötugeröartækl, setningartæki og fielri tæki fyrir prentiðnað. CMfHppMB Varityper OTTO B. ARNAR HF. Skipholti 33-105 Reykjavlk Símar 624631 / 624699 Endurklœbum húsgögn. Gott úrval áklœba. Fagmenn vinna verkib. BólstranÁsgríms, Bergstaðastræti 2, sími 16807. BÍLALEIGA Úrval 4x4 fólksbfla og station bfla. Pajero jeppar o.fl. teg. Pickup-bílar með einf. og tvöf. húsi. Minibussar og 12 sæta Van bílar. Farsímar, kerrur f. búslóðir og farangur og hestakerrur. Reykjavík 686915 iníerRent Europcar BÍLALEIGA AKUREYRAR Fáðu gott tilboð! HelenaRubinstein í dag fró kl. 14-18. 10% af slóttur meðan á kynningunni stendur. Haustlitirnir komnir. Miðbæ, Háaleitisbraut. Áskriftcirsiminn er 83033 Sigrún I. Ingimars- dóttir handavinnu- kennari - Minning Fædd 19. nóvember 1907 Dáin 2. september 1992 Mig langar til að minnast vin- konu minnar, Sigrúnar Ingimars- dóttur, í örfáum orðum. Sigrún hefur verið mér nákomin um rúm- lega þriggja ára skeið. Að vísu þekktumst við frá Akranesi, þar kenndi hún dætrum mínum handa- vinnu, er hún var þar kennari áður fyrr, og þær minntust hennar ætíð með hlýju og virðingu. Það var glaður hópur fólks, sex- tíu ára og eldri, sem var samankom- inn í morgunkaffi í Hótel Sögu í júlí 1989 í boði Ármannsfells hf., rúmlega áttatíu manns. Tilefnið var að afhenda okkur lykla að íbúðum okkar er biðu tilbúnar. Samtök aldr- aðra höfðu látið byggja háhýsi með 61 íbúð við Aflagranda í Reykjavík. Við vorum full eftirvæntingar, en jafnframt hálf kvíðin. Hvernig skyldi það verða að búa í svona stórri blokk, með ókunnugu fólki og heíja ný kynni á gamals aldri? Nú höfum við búið hér í rúm þijú ár og höfum komist að raun um, að hér er mjög gott að vera. Hér í húsi er alveg sérstakt samfé- lag. Fullt af góðvild, hlýju og tillits- semi við nágrannana og eiga þau hjónin Sigrún og maður hennar, Hans Jörgensen, ríkan þátt í því og ekki síst þakkir fyrir það. Hans var í mörg ár formaður Samtaka aldraðra, sem hefur fyrst félaga ráðist í að byggja eignaríbúðir fyrir aldraða. Sigrún stóð sem klettur við hlið manns síns í því sem og öllu öðru starfi, og er vart hægt að hugsa sér samhentari hjón en Sigrúnu og Hans. Sigrúnar er sárt saknað af okkur öllum hér í húsinu. Hún beitti sér fyrir því er betur mátti fara og var alla tíð mjög fýlgin sínu máli og var það vel. Nokkrir þeirra er fluttu hér inn í fyrstu eru dánir, þannig er víst hinn eðlilegi gangur lífsins. Við söknum alls þessa góða fólks. Við höfum öll fylgst með hinni hörðu baráttu Sigrúnar í erfiðu veikindastríði hennar og í eigingirni okkar beðið þess að hún sigraði, svo við mættum hafa hana lengur okkar á meðal. En líklega er þetta besta lausnin úr því sem komið var. Mikil raun hefði það líf orðið Sigrúnu að lifa ef hún hefði ekki getað verið virk í leik og starfi. Við íbúar í Aflagranda 40 þökk- um af hjarta allar samverustundim- ar með Sigrúnu og minnumst henn- ar með virðingu og þökk. Innileg samúð til ykkar elsku Bryndís, Snorri og Ingimar og til allra barnabamanna, sem henni vom svo kær. Kæri Hans, ég veit að erfítt er nú, en ég vona að end- urskin minninganna frá samveru- A HOTEL ISLANDI DAGANA . 11., 12. OG 18., 19, SEPT. 1992 BORÐAPANTANIR I S: 687111 * HÓTELfALMÍ stundum ykkar lýsi þér áfram veg- inn. Guð styrki ykkur öll. Blessuð veri minning Sigrúnar Ingimars- dóttur. Ásgerður Gisladóttir. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. (Kahlil Gibran) Mér er einkar ljúft að minnast móður minnar og góðrar vinkonu, Sigrúnar Ingibjargar Ingimarsdótt- ur. Hún var fædd á Litla-Hóli i Hrafnagilshreppi í Eyjafirði. Foreldrar hennar voru Ingimar Hallgrímsson bóndi þar og kona hans Sigurbjörg Jónsdóttir. Hall- grímur, faðir Ingimars, var sonur Tómasar Ásmundssonar bónda á Steinsstöðum í Öxnadal og Rann- veigar systur Jónasar Hallgríms- sonar skálds. Móðir hennar var ættuð frá Steinkirkju í Fnjóskadal. Hún átti þijú alsystkin: Júlíus, Birnu og Helgu, tvær hálfsystur, Margréti og Hrefnu, og eina stjúp- systur, Jóninnu Jónsdóttur. Öll eru þau látin nema Birna og Helga. Samheldinn systkinahópur ólst upp á mannmörgu, gestkvæmu heimili, þar sem félagsandinn og sönggleðin ríkti. Bókasafn hrepps- ins var þar til húsa og hreppsnefnd- arfundir haldnir. Auk heimilisfólks- ins átti margt gamalt fólk þar at- hvarf, sem þurfti að taka tillit til og sýna hlýju og alúð, sem var endurgoldin í ríkum mæli. Móðir mín minntist oft þessa fólks sem börnin áttu visst athvarf hjá í ann- ríki dagsins. Á þeim tímum tíðkaðist ekki að ungar stúlkur stunduðu langskóla- nám, en hins vegar þótti mikilvægt að þær væru vel að sér í öllum störfum sem tilheyrðu heimilis- haldi, því þeirra staður var heimilið. Snemma beindist hugur móður minnar sérstaklega að hannyrðum. Hún lærði kvenfatasaum hjá Guð- rúnu Heiðberg í Reykjavík og út- saum og hannyrðir hjá Valgerði Nikulásson á Akureyri. Móðir mín var tvígift. Fyrri mað- ur hennar var Steinþór Jóhannsson, kennari við Barnaskóla Akureyrar. Þeim varð þriggja barna auðið. Elst er Bryndís, hússtjórnarkenn- ari, sem greinina ritar, næst var Valborg, sem lést á fyrsta ári og yngstur Örn. Þótt leiðir foreldra minna skildu þegar ég var á ferm- ingaraldri voru þau ætíð samhent um velferð okkar bamanna og að styðja okkur til mennta. Örn bróðir minn lærði prentiðn og starfaði við hana á Akureyri. Hann lést langt um aldur fram. Hann var kvæntur Helgu Magnús- dóttur, útgerðarmanns í Ólafsfirði. Börn þeirra eru fjögur: Guðfmna Ásdís, fóstra, Sigrún Ingibjörg, sjúkraliði og handavinnukennari, Ema Sigurbjörg, hárgreiðslumeist- ari, og Magnús Þór, vélfræðinemi. Barnabörn þeirra eru átta. Síðari maður móður minnar er Hans Jörgensen, fyrrverandi skóla- stjóri við Vesturbæjarskólann í Reykjavík. Áttu þau 50 ára hjú- skaparafmæli 15. ágúst sl. í fyrstu bjuggu þau á Hvanneyri, síðan á Akranesi en lengst af hér í Reykja- vík. Synir þeirra eru Jörgen Ingimar, verkfræðingur, kvæntur Guðrúnu Eyjólfsdóttur, þau eiga fjögur börn og eitt barnabarn, og Snorri, raf- eindavirki, kvæntur Sigrúnu Jó- steinsdóttur, þau eiga fimm börn. Börn Ingimars og Guðrúnar eru: Sigrún, kennari, búsett í Dan- mörku, Björgvin, rafeindavirki, og Dóra og María, sem enn eru við nám. Börn Snorra og Sigrúnar eru: Jósteinn, bifreiðastjóri, Hans Rún- ar, Heimir, Erla og Snorri, sem öll eru við nám. Nám móður minnar í fatasaumi og hannyrðum kom að góðum not- um þegar hún hóf handavinnu- kennslu við Gagnfræðaskólann á Akranesi og kenndi þar á ámnum 1943-1958. Starf hennar ein- kenndist ætíð af áhuga, þrautseigju og samviskusemi og fann hún allt- af einhver úrræði til að ná þeim árangri sem hún keppti að. Þrátt fyrir takmarkaðan tækjakost og lítið efnisval til kennslunnar fyrstu kennsluárin bætti hún oft úr því með því að vefa efni heima, og lit- aði hún þá gjarnan band til að fá fjölbreyttara litaúrval, til að kennslan gæti gengið eðlilega og' nemendur unnið eigulega muni. Móðir mín var mjög sjálfstæð í hugsun og um margt á undan sinni samtíð, sem sést best á því að á árunum eftir seinni heimsstyijöld unnu bæði hjónin úti og heimilis- bragur var um margt líkur því sem nú tíðkast. Hjónin unnu saman og tóku þátt í störfum hvors annars. Pjölskyldan hjálpaðist að við heimilisstörfin þótt megin störfin hvíldu á húsmóðurinni. Það sést einnig á því að hún stefndi sífellt að aukinni menntun og réttinda- námi. Árið 1953 fór hún í námsferð til Norðurlanda og lauk síðar handavinnukennaraprófi frá Hánd- arbejdes Fremmes Skole í Kaup- mannahöfn vorið 1957 og var þá komin um fimmtugt. Eftir það kenndi hún við Vogaskóla í Reykja- vík á árunum 1958-1976 að und- anskildum tveimur árum sem hún veitti forstöðu saumastofu Þjóðleik- hússins og kenndi í forföllum við handavinnukennaradeild Kennara- skóla Islands. Jafnframt kennslu var hún prófdómari í handavinnu um árabil við skóla Reykjavíkur. Starfsferlinum lauk hún með stundakennslu við Vesturbæjar- skólann í Reykjavík á árunum 1976-1980. Henni þótti vænt um starfið sitt og minntist jafnan nem- enda sinna og samkennara með hlýhug og þakklæti. Þrátt fyrir erilsaman vinnudag var nægur tími til að sinna fjöl- skyldu og ættingjum. Alltaf var indælt að koma heim og eiga góða stund þar sem hlýr heimilisbragur ríkti. Ennfremur gafst henni tími til að taka þátt í félagsstörfum með manni sínum, einkum í samtökum skólastjóra, skátafélagsskap og í þágu aldraðra. Síðustu árin hafa móðir mín og Hans búið á Aflagranda 40. Þar gafst þeim tími, fremur en áður, til að njóta samvista á hlýlegu heimili sínu, eftir erilsaman dag og nutu því meira líðandi stundar, án þess að hafa áhyggjur af morg- undeginum. Félagsstörfín áttu eftir sem áður hug þeirra. Þau héldu tryggð við gamla skátahópinn, fé- lag kennara á eftirlaunum og ekki síst vini sína úr skólastjóra- og kennarahópnum, að ógleymdri fjöl- skyldu, ættingjum og gömlum, góð- um vinum. Gestrisnin og gleðin ríkti á heimilinu og nýir vinir bætt- ust í hópinn úr húsinu og í félags- störfum aldraðra. Á síðastliðnu vori dró skyndilega ský fyrir sólu og erfið veikindi tóku við. Þá sýndi það sig, sem svo oft áður, hvað trúarstyrkurinn og lífs- viljinn var ótrúlegur. Móðir mín lést að völdum þess- ara veikinda á Landspítalanum 2. september sl. Hún ætlaði sér að ná heilsu, en eins og einn læknir spítalans orðaði það: „Viljann vant- aði ekki, en líkaminn gaf sig.“ Og því var allt svo hljótt við helfregn þína sem hefði klökkur gígjustrengur brostið. Og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið, sem hugsar til þín alla daga sína. En meðan árin þreyta hjörtu hinna, sem horfðu eftir þér í sárum trega, þá blómgast enn, og blómgast ævinlega, þitt bjarta vor í hugum vina þinna. (Tómas Guðmundsson). Hópurinn hennar, stórir og smá- ir, kveðja hana og biðja henni guðs- blessunar á ókunnum stigum. Far þú í friði, friður pðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Bryndís Steinþórsdóttir. Eitt af því fáa sem við mennirn- ir vitum með fullri vissu er það að einhvern tíma á lífsleið okkar, fyrr eða síðar, ber dauðinn að dyrum. Og enginn kemst nokkru sinni und- an því að hlýða kalli hans. En þótt við vitum þetta kemur dauðinn okkur raunar alltaf á óvart. Við vitum að vísu að ekkert er eðlilegra en að hann drepi á dyr þegar langri og farsælli starfsævi er lokið og andlegir og líkamlegir kraftar eru senn að fullu þrotnir. Engu að síður kemur hann þá líka á óvart því að söknuður okkar eft- ir látinn ástvin, hvenær sem hann fer, er ætíð sár. Hins vegar er þá alltaf hugljúf huggun og sárabót ef hinn látni hafði notið þeirrar gæfu að lifa langan dag og skilað ættjörð sinni og afkomendum þörfu og heillaríku ævistarfi. Alveg sérstaklega kemur þó dauðinn okkur á óvart þegar hann drepur á dyr hinna ungu sem ýmist hafa ekki náð fullum þroska eða eru að búa sig undir mikilvægt og göfugt ævistarf - eða eru hreint og beint í blóma lífsins, á hátindi mannlegs þroska. Þá er söknuður okkar þyngri en orð fá lýst. Þessum sígildu sannindum brá fyrir í huga mér þegar ég.frétti miðvikudaginn 2. september sl., að ágæt vinkona mín og samstarfs- maður á annan áratug, frú Sigrún Ingibjörg Ingimarsdóttir kennari, eiginkona Hans Jörgenssonar, fv. skólastjóra, hefði látist þá um morguninn. Að þessu sinni kom dauðinn ekki mjög á óvart. Hann barði að dyrum aldraðrar konu sem lokið hafði, að allra dómi sem til þekktu, einkar farsælu ævistarfi sem móðir, hús- freyja og kennari og var orðin þrot- in að líkamsþreki eftir langa sjúkravist og marga uppskurði. Þrátt fyrir það hélt hún þó vöku sinni til hinstu stundar. Engu að síður munu ástvinir hennar, samstarfsmenn og vinir eiga erfítt með að sætta sig við að hún skuli vera farin, að þeir skuli ekki lengur geta hitt og deilt geði við þessa glaðlyndu, gáfuðu og ráðhollu konu. En þrátt fyrir það fer hún raunar aldrei frá okkur að fullu. Minningarnar mörgu og góðu um hana munu alltaf fylgja okkur meðan við erum á veginum Ferðamálaskóli íslands Höfðabakka 9, Reykjavík. Sími 671466. Starfsnóm fyrir þá, sem starfa vilja við ferðaþjónustu. Nám, sem er vióurkennt af Félagi ísl. ferðaskrifstofa. Alþjóðleg próf og réttindi (IATA). Innritun stendur yfir. Ath.: Fjöldi nemenda við skólann takmarkaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.