Morgunblaðið - 10.12.1992, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1992
21
i—
Loftur % Ml M
Jóhannesson,
flugmaður. LdCÍjfli
„f Maryland, skammt fyrir utan
Washington, á hann glæsilega villu
sem hann keypti nýverið af einum
erfingja Du Pont-veldisins. Segir
sagan að íslendingi sem starfaði þar
skammt frá, hafi verið falið að koma
pakka til Lofts. Hann fór eftir
leiðbeiningum sendandans og kom
þá að stóru og veglegu húsi. Þar
bankaði hann og kom þá maður einn
til dyra. Sá benti íslendingnum á að
hann hefði farið húsavillt, þetta væri
húsvarðarhúsið, hollin væri þar
skammt frá.“
Guðrún
Lárusdóttir,
útgerðarkona.
„... urðu þau Guðrún og Ágúst að
láta allt viðhald togarans Ýmis biða
fyrsta árið, eða þar til þau höfðu
greitt skipið upp. „Ýmir var miklu
ódýrari en flest önnur skip, sem
verið var að kaupa á þessum tíma,“
sagði Guðrún síðar um kaupin.
„Okkur var svo legið á hálsi fyrir að
vera með ljótasta skip flotans og
fyrir að hafa það ómálað. Ég benti
mönnum bara á að það fiskaðist
ekkert á málninguna.““
íslenskir auðmenn eiga það flestir sam-
eiginlegt að vera harðduglegir og bjartsýnir,
útsjónarsamir og staðfastir. Eins og sjá má á
þessum brotum úr bókinni íslenskir auð-
menn er hér á ferð alls konar fólk með
ólíkan bakgrunn og úr margvíslegum
atvinnugreinum.
Bókin segir á vandaðan og umfram allt
skemmtilegan hátt frá því hvernig 450 efnuð-
ustu íslendingamir byggðu uþp veldi sitt,
hvernig sumir byijuðu með tvær hendur
tómar og því hvemig aðrir fæddust með silf-
urskeið í munni - og héldu vel á spöðunum!
íslenskir auðmenn er í senn lærdómsrík fyrir
bjartsýnt fólk og skemmtileg aflestrar fyrir
alla þá sem vilja fræðast um það hvemig í
ósköpunum er hægt að verða ríkur á íslandi!
*
Islenskir auðmenn - verulega auðug bók!
Jóhannes k
Jónsson
í Bónus. \ í i M , ■
„Hvað getur 48 ára gamall maður
gert þegar honum er sagt upp eftir
25 ára starf hjá sama fyrirtæki? Jú,
hann getur stofnað verslun og orðið
„milljóner" á nokkrum árum. Það
gerði að minnsta kosti Jóhannes
Jónsson í Bónus."
ALMENNA BOKAFELAGIÐ HF
JSffHnfcn - góð bók um jólin!
Kristján
Jóhannsson,
stórsöngvarí. 'W H
„Nú fær Kristján himinháar upp-
hæðir í hvert skipti sem hann kemur
fram, og eru þar nefndar tölur frá 500
til 1200 þúsund fyrir kvöldið. Sjálfur
segir hann árstekjur sínar nærri ...“
frægu kúrekahetju, Roy Rogers.
SJAVARUTVEGUR ■ MATVÆLAIÐNAÐUR • HElLDSAU
• FJÖLMIþLAR • ERFINGJAR ■ VALF^LLSÆT
Geiri á
Guggunni, 1 ^ §
útgerðar-
maður. Hb_1_9Í
„Ásgeir Guðbjartsson þykir mjög
harðsækinn, svo að með fádæmum er.
Þótt hann afli vel, er hann laus við allt
sem heitir íburður. Til að mynda fer
hann flestar sínar ferðir innanbæjar á
reiðhjóli. Það gerir hann þótt hann
eigi nýlegan Toyota Landcruiser jeppa
og Mercedes-Benz, sem hann stað-
greiddi með peningaseðlum fyrir
allmörgum árum. Geiri er þekktur
fyrir að staðgreiða allt sem hann
kaupir og er því vinsæll meðal
sölumanna.“
Sigfús
heitinn
Bjarnason
í Heklu.
„Fóru þá Sigfús og hinn írski athafna-
maður að metast um eignir sínar og
ítök. Sigfús sagðist hafa einkaumboð
fyrir ákveðnar ljósaperur á íslandi,
en frinn lét sér fátt um finnast og
svaraði því til að hann ætti verk-
smiðjumar sem framleiddu þessar
ljósaperur. Sigfúsi brá hvergi, heldur
sagði: „Ég hef einkaumboð fyrir
Volkswagen á fslandi!" frinn yppti
öxlum og sagði að þetta væri nú
ekkert til að hreykja sér af enda væri
eitt fjölmargra fyrirtækja sinna
samsetningarverksmiðja fyrir
Volkswagen bifreiðar á írlandi.
Nú kom dálftið á Sigfús, en eftir
augnabliks umhugsun sagði hann
kokhraustur: „Ég á elsta klaustur á
íslandi!" Átti hann þar við Þingeyrar.
Nú missti hinn rammkaþólski íri
málið og krossaði sig.“
Þorsteinn
Vilhelmsson |
í Samherja. H^KHHI
„Ertu ekki ríkur, Steini?“ spyr
drukkinn sjómaður á Uppanum á
Akureyri. „Ríkur?... nei, ég er ekki
ríkur,“ svarar Þorsteinn Vilhelms-
son, skipstjóri á Akureyrinni og einn
þriggja aðaleigenda Samherja á
Akureyri. „Víst ertu ríkur,“ segir sá
fulli og gefur sig hvergi. „Nei, ég er
ekki ríkur. Ég er moldríkur!“ segir
Steini, og þar með er þeim sam-
ræðum lokið.“
Wathnesystur,
kaupsýslukonur.
„Vegna velgengninnar hafa þær
Þórunn, Bergljót og Soffía náð að
fjárfesta talsvert. Þær eiga stórt og
glæsilegt fjögurra hæða hús í Rye,
sem er eftirsótt úthverfi skammt frá
New York-borg. Þar búa þær ásamt
móður sinni og Gunnari Stefáni, syni
Þórunnar. Fyrir utan húsið stendur
jafnan glæsilegur eðalvagn, sem
hefur allt innanborðs, bar, sjónvarp,
myndbandstæki og allt annað sem
prýtt getur slíkar bifreiðar. Auk
þessa eiga þær nýlegan Mercedes
Benz og 47 feta skútu með öllum
útbúnaði.“
[f ! Éi A
HVlTA HÚSIÐ / SlA