Morgunblaðið - 10.07.1993, Síða 1

Morgunblaðið - 10.07.1993, Síða 1
64 SIÐUR LESBOK/C STOFNAÐ 1913 153. tbl. 81.árg. LAUGARDAGUR 10. JULI 1993 Prentsraiðja Morgunblaðsins Izetbegovic fellur frá sátt um þrískiptingu Vatn er á þrot- um í Sarajevo Sar^jevo, London. Reuter. ALIJA Izetbegovic, forseti Bosniu, sagði í gær að forsætisráð lands- ins hefði hafnað hugmyndum um að landinu yrði skipt í þrennt eft- ir þjóðernum. Hótanir Vesturlanda um að draga gæslulið burt frá Bosníu virtust hafa fengið hann til að íhuga alvarlega að sættast á þrískiptingu landsins. Ástandið í höfuðborginni Sarajevo er nú orðið hörmulegt, þar sem hvorki er rafmagn né gas að fá og vatnsbirgð- ir eru á þrotum. hersveitir múslima væru komnar að fótum fram. „Baráttunni er ekki lokið fyrr en maður gefst upp,“ sagði hann á fréttamannafundi. Hann sagði ennfremur að sjö af 10 meðlimum forsætisráðsins hefðu samþykkt einróma að hafna friðará- ætlun Serba og Króata. Níu meðlim- ir ráðsins myndu hittast í Zagreb í dag og greiða atkvæði um áætlun- ina, áður en þeir hittu sáttasemjara að máli. Atkvæðagreiðslan væri þó Izetbegovic sagði í fyrradag að ef til skiptingar kæmi þá yrði það skipting eftir þjóðernum. „Hinn kosturinn er endaiaust stríð. Það er illur kostur." Douglas Hurd, ut- anríkisráðherra Bretlands, sagði í fyrradag að gæslulið Sameinuðu þjóðanna yrði ef til vill að hverfa burt úr Bosníu, og þá hlytu stríðsað- ilar að berjast uns yfir lyki. Izetbegovic hafnaði því í gær að Falsaðir Ferrari Róm. The Daily Telegraph. FERRARI-bílaverksmiðjurnar ítölsku urðu fyrir nokkru áfalli þegar upp komst að verksmiðja steinsnar frá bílaverksmiðjunum sjálfum hafa verið að smíða og selja falsaða Ferrari-bíla. Lögregla í borginni Modena, fæð- ingarstað Enzo heitins Ferrari, sem hannaði bílinn fræga, komst á snoð- ir um starfsemi sem velti milljónum, innan við fimm kílómetra frá aðal- stöðvum Férrari. Átta manns eru sakaðir um að hafa falsað klassísk- ar árgerðir frá sjötta og sjöunda áratugnum, með því að nota bíl- parta frá eiginlegum framleiðanda til þess að „gera við skemmda bíla“. Þessi vafasama framleiðsla var síð- an seld til útlanda, aðallega til Bret- lands, Sviss og Bandaríkjanna. einungis formsatriði. Alþjóða heilbrigðismálastofnunin spáir því að yfir Sarajevo muni dynja slíkar hörmungar, að slíkt hafi ekki þekkst síðan verst lét í síðari heims- styrjöld. Eldsneyti fyrir vatnsdælur sé á þrotum og fólk í borginni hafi sumt gripið til þess ráðs að sjóða holræsavatn til neyslu. Hersveitir Serba hindruðu í gær flutning á olíu til borgarinnar, þrátt fyrir skriflegt loforð stjómmálaleiðtoga þeirra, Radovans Karadzic, um flutninginn. Draskovic látinn laus Reuter FORSETI Serbíu, Slobodan Milosevic, lét í gær lausan leiðtoga stjórnarandstöðunnar í landinu, Vuk Draskovic, og konu hans, Danicu. Skýrði serbneska ríkissjónvarpið frá þessu og hafði eftir Milosevic, að fangelsun hans hefði verið farin að gefa slæma mynd af landi og þjóð. Höfðu þjóðarleiðtogar á Vesturlöndum, í Frakklandi, Þýskalandi og Bandaríkjunum, krafist þess, að þeim hjónum yrði sleppt en þeim var báðum misþyrmt þegar þau stýrðu mótmælagöngu gegn stjórninni 2. júní sl. Eftir að Draskovic var látinn laus veifaði hann til stuðn- ingsmanna sinna úr glugga sjúkrahússins þar sem hann hefur dvalið, og var augljóslega mjög af honum dregið,. en fyrir rúmri viku hætti hann að neyta matar og drykkjar til að leggja áherslu á kröfu sína um frelsi. Rússlandsþíng lýsir yfír eign sinni á Sevastopol Bein íhlutun og jafnvel stríðsyfirlýsing segja Úkraínumenn Niðurstöður DNA-rannsókna Beinaleifar úr fjölskyldu Rússakeisara London. Reuter. BRESKIR vísindamenn skýrðu frá því í gær að þeir væru svo til sannfærðir um að beinaleifar, sem þeir hafa rannsakað og fundust i mýri skammt frá Katrínarborg í Rússlandi, séu úr Nikulási II Romanov, síðasta keisara Rússa. Kommúnistar myrtu keisarafjölskylduna þar í borg í júlí 1918 eftir að hafa rænt völdum í nóvember 1917. Vísindamennimir notuðu blóðsýni úr Filippusi drottningarmanni til samanburðar en amma hans, Viktoría, og Alexandra keisaraynja voru systur. „Við erum meira en 98,5% viss um að líkamsleifam- ar em úr Romanov-fjölskyldunni," sagði Peter Gill, er veitir forstöðu hóp sem stundar DNA-rannsóknir fyrir bresku réttarrannsóknaþjónustuna. Beinin voru grafin upp 1991 og Pavel Ivanov, yfirmaður DNA- rannsókna rússnesku vísindaakademíunnar, tók þau með sér til Bretlands sl. haust til að fá aðstoð við að _ , . . Reuter Bein keisara Pavel ívanov með eitt af beinum fjölskyldunnar. rannsaka þau. Beitt var nýrri tækni við samanburðinn og var notað blóð úr tveim ættingjum keisarans en 'nöfn þeirra hafa ekki verið látin uppi. Að sögn Gills er hægt að greina ákveðna hluta í genum sem börn erfa frá móður og eru ávallt óbreytt. Gill sagði að þessir genahlutar í keisaraynjunni og börnum hennar hefðu verið nákvæmlega eins og í Filippusi. Vegna óvenjulegra eiginleika gena keisarans látna, þau innihéldu tvær gerðir af DNA, var erfiðara að slá nokkru föstu um líkamsleifar hans. Gill sagði þó að önnur gerðin hefði reynst sú sama og í ættingj- unum, hin næstum því eins. Sjá frétt á bls. 21. Moskvu. Reuter. RÚSSNESKA þingið samþykkti í gær með miklum meirihluta að lýsa Sevastopol, helstu borg á Krímskaga pg aðsetur Svartahafsflotans, rússneska eign og skipaði jafnframt Úkraínusljórn að flytja herlið sitt frá borginni. Hún og skaginn allur hafa tilheyrt Úkraínu frá 1954. Utanríkisráðherra Ukraínu fordæmdi samþykktina sem beina íhlutun í úkraínsk innanríkismál og formaður utanríkismálanefndar úkraínska þingsins sagði, að hún væri líkust stríðsyfirlýsingu. Samþykkt rússneska þingsins mun ekki verða til að bæta sam- skipti Rússlands og Úkraínu, sem hafa verið stirð, meðal annars vegna kröfu Rússa um að fá Krímskaga aftur o g deilna um skiptingu Svarta- hafsflotans. Raunar er ekki ljóst hvernig þingið ætlar að fylgja sam- þykktinni eftir því að framkvæmda- valdið er að mestu í höndum Borísar Jeltsíns, forseta Rússlands, og hann mun áreiðanlega hundsa hana. Við- brögðin í Kíev, höfuðborg Úkraínu, voru hins vegar mjög hörð. Anatolí Zlenko, utanríkisráð- herra Úkraínu, sagði hana bein af- skipti af innanríkismáium landsins og Dmytro Pavlytsjhko, formaður utanríkismálanefndar Úkraínu- þings, tók enn dýpra í árinni. „Þetta líkist engu nema stríðsyfirlýsingu,“ sagði hann. „Við munum veijast með öllum tiltækum ráðum." Líklegt þykir, að samþykkt rúss- neska þingsins sannfæri Úkraínu- menn um, að Rússar vilji enn seil- ast til yfirráða í landinu og hugs- anlega kemur þetta mál í veg fyrir, að Úkraínustjórn afsali sér sovésku kj arnorkuflaugunum. Krímskagi tilheyrði Rússum áður, en 1954 færði Sovétstjórnin hann Úkraínu að gjöf i tilefni af því, að þá hafði landið lotið Rússum í 300 ár. Á þessum tíma hafði gjöf- in aðeins táknræna merkingu en á því hefur orðið breyting. í Sevastop- ol er meirihluti íbúanna rússneskur. Rússneska þingið skipaði einnig Úkraínustjórn að flytja burt herlið sitt frá borginni „til að koma í veg fyrir spennu“ og ákvað, að rúss- neski seðlabankinn annaðist fjár- hagslega fyrirgreiðslu við hana. Þá samþykkti þingið einnig 4,5 millj- arða rúblna framlög til Svartahafs- flotans og þykir þáð augljós tilraun til að komast yfir hann allan.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.