Morgunblaðið - 10.07.1993, Side 4

Morgunblaðið - 10.07.1993, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLl 1993 Vextir hækka hjá Lands- banka o g Islandsbanka Landsbanki hækkar raunvexti skuldabréfalána um 0,25% ÍSLANDSBANKI og Landsbanki koma til með að hækka vexti hinn 11. júlí nk. Landsbankinn hækkar vexti verðtryggðra skuldabréfalána um 0,25% og forvexti víxla um 1% og verða meðalforvextir þá 13%. Islandsbanki hækkar forvexti víxla um 2,5% og eru meðalforvextir víxla þá 15,3%. Gert er ráð fyrir að næstu vikur verði frekari breytingar á vöxtum hjá Islandsbanka. I frétt frá Islandsbanka segir að í kjölfar gengisbreytingarinnar á dögunum aukist verðbólga tíma- bundið á næstu vikum. Aætlað sé að næstu tvo mánuði geti hækkun lánskjaravísitölunnar samsvarað allt að 7% verðbólgu á ári. Eins mánaðar hækkun verði væntan- lega tölvuvert meiri. Búist er við að í októbermánuði hafi hækkun lánskjaravísitölunnar gengið yfir og mánaðarlegar breytingar á henni samsvari þá 1-2% verðbólgu á ári. Jaframt segir að þessi þróun valdi tímabundinni hækkun á óverðtryggðum vöxtum. Áætlað er að víxilvextir fari lækkandi á ný þegar kemur fram í september. Hækkanir á markaðnum í viðtali við Morgunblaðið sagði Brynjólfur Helgason aðstoðar- bankastjóri í Landsbankanum að samkvæmt spám væri framundan verðbólgukúfur sem kæmi á næstu 3 mánuðum. Hann sagði hækkun óverðtryggðu vaxtanna á víxlum vera í kjölfar hækkunar verðbólgu vegna gengislækkunar og hækkun verðtryggðra skuldabréfalána vera í samræmi við hækkanir sem verið hefðu á markaðnum að undan- förnu. Ávöxtunarkrafa húsbréfa fer lækkandi Kaupþing og Landsbréf lækk- uðu í gær ávöxtunarkröfu húsbréfa í 7,45% úr 7,48 en ávöxtunar- krafan hefur farið lækkandi und- anfama daga. Jón Kjartansson forstöðumaður verðbréfaviðskipta Kaupþings sagði nokkra þætti hafa leitt til lækkunarinnar nú og nefndi hann m.a. að krafan hefði hækkað óvenju hratt seinnihluta júnímán- aðar. „Mismunurinn á ávöxtun- arkröfu á húsbréfum og spariskír- teinum var orðinn óeðlilega hár. Síðan hefur það gerst að útgáfa húsbréfa hefur minnkað eitthvað. Við teljum líka að fólk hafi beðið með að selja þau þangað til krafan færi aftur lækkandi.“ VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG, 10. JULI YFIRLIT: Yfir Grænlandi er 1.033 mb hæðarhryggur sem teygir sig langt suður í haf. Við Hjaltland er 988 mb lægð sem hreyfist lítið. SPÁ: Noröanátt, yfirleitt kaldi eða stinningskaldi en víða allhvasst suð- austantil. Norðanlands verður skýjað að mestu en úrkomulítið vestantil en skúrir austantil. Um landið sunnanvert verður léttskýjað víðast hvar. Hlýjast verður um 15 stiga hiti um hádaginn sunnanlands en kaldast um 5 stig við norðurströndina. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNUDAG, MÁNUDAG OG ÞRIÐJUDAG:Norðan- og norð- vestanátt, nokkuð hvöss um austanvert landið á sunnudag og mánudag en hægari á þriðjudag. Bjart veður sunnanlands og vestan en skýjað norðaustantil á landinu og dálítil súld eða rigning öðru hverju. Kalt verö ur áfram norðanlands en 10-14 stiga híti um hádaginn sunnanlands. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22. 30. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. Q $k & & Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað r r r * r * r r * r r r r r * r Rigning Slydda * * * * * * * * Snjókoma Alskýjað V ^ V Skúrir Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaörimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. 10° Hitastig V Súld = Þoka i«g.. FÆRÐA VEGUM: (KI.17.301 gær) Greiðfært er um þjóðvegi landsins. Hálendisvegir eru óðum að opnast hver af öðrum og er t.d. orðið fært um Uxahryggi, í Eldgjá að sunnan, Veiðivötn, Jökulheima, Herðubreiðarlindir, KverkfjÖII og Lanumannalaug- ar um Sigöldu. Einnig er Kjalvegur orðinn fær stórum bilum. Viða er unnið við vegagerð og eru vegfarendur af gefnu tilefni beðnir að virða þær merkingar sem þar eru. UDplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og ígrænnilfnu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VIÐA UM HEII1 kl. 12.00 ígær að ísl. tírm hiti veður Akureyri 9 hálfskýjað Reykjavík 12 léttskýjað Bergen 11 skýjað Helslnki 16 skýjað Kaupmannahöfn 20 alskýjað Narssar8suaq 11 rigning Nuuk 7 skýjað Osló 18 hálfskýjað Stokkhólmur 18 rign. 6 síð.klst. Þórshöfn 8 rigning Algarve 24 1 1 Amsterdam 17 alskýjað Barcelona 26 iéttskýjað Berlín 26 léttskýjað Chicago 25 alskýjað Feneyjar 26 heiðskírt Frankfurt 27 hátfskýjeð Giasgow 14 skúrásíð.klst. Hamborg 23 skýjeð London 11 rigning Los Angeles 19 alskýjað Lúxemborg 24 iéttskýjað Madríd 32 aiskýjað Malaga 29 alskýjað Mallorca 33 léttskýjað Montreal 24 mistur New York 29 mistur Orlando 25 heiðskfrt Parfs 26 léttskýjað Madeira 22 hálfskýjað Róm 25 léttskýjað Vín 26 léttskýjað Washington 29 heiðskírt Winnipeg 13 léttskýjað IDAGkl. 12.00 Heimild: Veðurstofa (Byggt é veðurepá kl. 16.15 Morgunblaðið/Hólmfríður Jóhannsdóttir Vel varðir í varpinu í AKUREYJUM á Breiðafirði er mikið kríuvarp. Um þessar mundir eru ungarnir að koma úr eggjunum og það er eins gott að hafa góð höfuðföt ef menn hætta sér nálægt hreiðrunum. A myndinni sjást Birgir Þór Birgisson, Óskar Hjaltason og Jón Einar Jóhannsson heilsa upp á nýfædda kríuunga í Akureyjum. Forsvarsmenn skipafélaganna um gagnrýni Ekki hækkun um- fram áhrif geng- isfellingar innar ÓLAFUR Ólafsson, forsljóri Samskipa, segir fyrirtækið ekki hafa hækkað verðskrá sína um 7,5% eins og Guðmundur Gylfi Guðmunds- son hagfræðingur hjá ASÍ segir í Morgunblaðinu í gær, heldur sé hækkunin 4,1%. Þórður Sverrisson, framkvæmdastjóri flutningasviðs hjá Eimskip, segir enga hækkun hafa orðið á gjaldskrá Eimskips, en þar sem gjaldskráin sé I eriendri mynt þurfi þeir sem greiða flutn- ingsgjöld í íslenskum krónum að greiða hærri upphæð vegna gengis- fellingarinnar. menn eru ekki í aðstöðu til að lækka þau enn frekar," segir hann. Þórður Sverrisson segir að ekki sé um gjaldskrárhækkun hjá Eim- skip að ræða. „Stærstur hluti kostn- aðar af flutningastarfsemi okkar er í erlendri mynt og tekjur okkar sömuleiðis eins og hjá öðrum fyrir- tækjum í útflutningsstarfsemi. Af þeim sökum, á sama hátt og kostn- aðurinn er áfram óbreyttur, er gjaldskráin líka óbreytt. Það eina sem breytist er gengið," segir Þórð- ur. Hann segir gengisbreytinguna hafa neikvæð áhrif á afkomu Eim- skips á þessu ári og því sé unnið að því að finna leiðir til að vega á móti því. • Útsala á íbúðum í Setbergshlíð í Hafnarfirði Skrifstofan eins Ólafur Ólafsson segir 4,1% hækkun Samskipa vera í samræmi við kostnaðarsamsetningu skipafé- lagsins á olíum, skipum, gámum og öðrum þeim hlutum sem tengj- ast erlendum gjaldmiðlum. „Þjón- ustutengd gjöld og gjöld sem ekki eru umsamin í samningum okkar við fragtkaupendur hækka um 4,1% í samræmi við samsetningu okkar kostnaðar,“ segir Ólafur. „Uppistaðan af flutningum okkar í millilandasiglingum er skráð í er- lendum gjaldmiðlum og hen'ni höf- um við ekkert breytt. Eðlilega halda taxtarnir sama verðgildi þó krónan falli í verði. Samskip hefur á undan- förnum tveimur árum verið í farar- broddi með lækkun farmgjalda og og jámbrautarstöð „VIÐ höfum þegar fengið tilboð í eina íbúð og ég á von á öðru á næstu mínútum. Skrifstofan hefur verið eins og járnbrautarstöð undanfarna tvo daga út af þessu,“ sagði Magnús Axelsson á fasteigna- sölunni Laufási í samtali við Morgunblaðið, en fasteignasalan aug- lýsti á þriðjudaginn fjórar íbúðir í Setbergshlíð í Hafnarfirði til sölu með 25% afslætti. Seljandi íbúðanna er fjármögnunarfyrirtækið Veð hf. Magnús segir að viðbrögðin séu langt umfram það sem hann hafi þorað að vona eða búist við. „Þetta er að vísu nýjung á fasteignamark- aði en tilboð á þessum markaði er ekkert öðruvísi en tilboð í raftækja- verslun eða matvörubúð. Ákveðinn hluti af söluvörunni eru settur á kjarapall. Tilboðinu lýkur 19. júlí og þá verður varan tekin af kjara- pallinum og boðin á verðlistaverði aftur," segir Magnús. Ekki upphaf verðlækkunar Magnús segist eiga von á að aðrir byggingaframleiðendur muni skoða möguleika á slíkum við- skiptaháttum. „Ég mun skýra öðr- um framleiðendum frá reynslu okk- ar þótt það sé auðvitað þeirra ákvörðun hvort þeir geri svipaða hluti. Ég á von á að aðrir bygginga- framleiðendur muni skoða sinn gang,“ segir hann. Magnús segir þetta ekki vera upphaf þess að verð lækki á fast- eignamarkaðinum almennt. „Það er af og frá. Það er ekki hægt því að til þess að byggingastarfsemi geti haldið áfram til frambúðar verður að vera álagning. Tilboðin eru tilboð um sölu á vöru með mjög lítilli eða jafnvel engri álagningu en aðeins í ákveðinn tíma.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.