Morgunblaðið - 10.07.1993, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.07.1993, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JULI 1993 Rannsóknaráð- Rannsóknasjóður eftirPétur Stefánsson Frá upphafi iðnbyltingar hafa framfarir í vísindum og tækni verið meginuppspretta hagvaxtar í heim- inum. Enn í dag beita þróaðar þjóðir vísindum og tækni af alefli fyrir vagninn í sókninni til bættra lífs- kjara, þótt áherslur séu mjög tekn- ar að breytast frá nýtingu náttúru- auðlinda til sívaxandi þekkingariðn- aðar, viðskipta og þjónustu. Frá örófi hefur íslenskt efna- hagslíf einkum byggst á náttúru- auðlindum landsins. Með tilkomu tækninnar á fyrri hluta þessarar aldar hafa auðlindimar þrjár, land- ið, fiskimiðin og orkan megnað að skila okkur hagvexti og lífskjörum á við nágrannaþjóðir fram undir þennan dag. Sérstök rækt hefur verið lögð við menntun þjóðarinnar og vísindaleg þekking í miklum mæli verið sótt til ýmissa bestu menptastofnana heims. Þannig er til orðinn nýr auður í garði, sá auð- ur sem fólginn er í þekkingu og fæmi þjóðarinnar og stundum er nefndur mannauður hennar eða fjórða auðlindin. Ný viðhorf Rannsóknaráð ríkisins var síðast skipað snemma á árinu 1992. Þetta ráð tekur til starfa við allsérstakar aðstæður. Stöðnunar gætir í at- vinnulífi þjóðarinnar, og enginn hagvöxtur hefur verið á Islandi allt frá árinu 1987. Sóknin í náttúru- auðlindir landsins virðist komin að þolmörkum eða takmarkast af ytri markaðsaðstæðum. Við þessar aðstæður vaknar sú spuming, hvemig hin unga auðlind, þekking og fæmi þjóðarinnar nýtist í efnahagslífí þjóðarinnar. Vitað er að hagvöxtur þróaðra þjóða byggir í sívaxandi mæli á hugviti og þekk- ingu en minna mæli á nýtingu nátt- úruauðlinda. Jafnframt er vitað að fyrirtæki á íslandi veija hlutfalls- lega miklu minni fjármunum til rannsókna og þróunarstarfa en fyr- irtæki í nágrannalöndum. Rann- sóknarkraftar þjóðarinnar eru dreifðír og meir tengdir opinbemm stofnunum en fyrirtækjum í ís- lensku atvinnulífí. Þetta er því meira umhugsunarefni sem við stefnum hraðbyri inn í opin mark- aðssvæði þar sem fyrirtæki keppa um fmmkvæði með öflugum rann- sóknum, vömþróun og markaðs- starfí. Stefna Rannsóknaráðs Rannsóknaráð það sem skipað var á síðasta ári hefur markað sér stefnu til næstu ára með hliðsjón af þeim aðstæðum sem nú ríkja í efnahagslífí þjóðarinnar. Þannig hyggst ráðið m.a. beita sér fyrir því: * Að vísindi, tækni og nýsköpun verði samofín stjórn efnahags- mála og stefnu fyrirtækja á Is- landi. * Að virkja mannauð þjóðarinnar í sókn til bættra lífskjara. * Að auka hlut fyrirtækja í rann- sóknar- og þróunarstarfí. * Að nýta sóknarfærin sem gefast í alþjóðlegu samstarfi um rann- sóknir og tækniþróun. * Að rækta tengsl við íslendinga í störfum erlendis til framdráttar tækni og nýsköpun á íslandi. Ráðið hyggst halda áfram úttekt- um á einstökum atvinnugreinum og stofnunum í samvinnu við við- komandi hagsmunaaðila til þess að meta stöðu þeirra, þróunarmögu- leika og rannsóknaþörf. Ráðið vill fyrir sitt leyti stuðla að því að vís- indaleg þekking þjóðarinnar færist meir út í atvinnulífíð og að markað- urinn verði í vaxandi mæli leiðarljós hagnýtra rannsókna. Til þess hníga í senn efnahagsleg rök og sú al- menna reynsla að þar virðist jarð- vegurinn fyrir nýsköpun fijóastur þar sem náin samvinna tekst milli vísindamanna og þeirra sem starfa að framleiðslu og markaðsmálum. Með aðild íslands að evrópska efnáhagssvæðinu öðlast það að- gang að sameiginlegum rannsókn- aráætlunum efnahagsbandalagsins. Sú samvinna opnar íslendingum nýja möguleika til þátttöku í alþjóð- legu rannsóknar- og þróunarstarfi sem ástæða er til að ætla að geti reynst þjóðinni dýrmætt í framtíð- inni. Rannsóknaráð leggur þunga áherslu á að þessir nýju möguleikar verði nýttir til hagsbóta fyrir ís- lenskt atvinnulíf og að þau alþjóð- legu tengsl sem þannig myndast, deilist vítt um fyrirtæki og stofnan- ir. Lok er það nýmæli í stefnu ráðs- ins að taka upp samband við íslend- inga sem gegna lykilstöðum erlend- is. Ráðið telur að þekking þeirra og sambönd geti þrátt fyrir fjar- lægðina oft reynst dýrmæt fyrir íslenskt atvinnulíf. Rannsóknasjóður Sú skoðun er ríkjandi í nágranna- löndum að æskilegt sé að nokkur hluti opinbers rannsóknaijár fari um fijálsa sjóði, er deili því verk- efnabundið til atvinnulífs og stofn- ana. Þykir þetta fyrirkomulag í senn örvandi fyrir atvinnulífíð en jafnframt veita rannsóknarstofnun- um æskilegt aðhald í vinnubrögðum og verkefnavali. Upphafíð af Rannsóknasjóði má Eitt neyðamúmer fyrir landið allt eftir Svein Andra Sveinsson Nýverið var haldin ráðstefna á vegum Landssambands slökkviliðs- manna, þar sem fjallað var um sam- eiginlegt neyðarnúmer fyrir landið allt. Það er ánægjulegt að fagfélag slökkviliðsmanna sýni slíkt frum- kvæði, sem þeir hafa og gert í fjöl- mörgum málum er varða öryggis- mát og brunavamir. Með þessu sýna slökkviliðsmenn að þeir em meðvit- aðir um hlutverk sitt og hafa ýmis- legt til málanna að leggja varðandi stefnumótun í slysavömum og neyðarþjónstu. Á annað hundrað neyðarnúmer Þeir sem að þessum málum koma, em sammála um það að núverandi skipan mála er með öllu óviðunandi. Um er að ræða meira en 120 símanúmer á landinu þar sem unnt er að ná í neyðaraðstoð, lögreglu, slökkvilið eða sjúkrabif- reið. Þessu kraðaki fylgir mikið öryggisleysi, þar sem ókunnugt fók þarf að fletta upp í símaskrá vanti það neyðaraðstoð. Það er ekki nóg með að fletta þurfí upp í símaskrá, heldur getur neyðastoð verið að finna undir ýmsum heitum eftir umdæmum, sjúkrabifreið, heilsu- gæsla, sjúkrahús, læknir, björgun- arfélagið, brunaliðið, lögregla, sýslumaður, neyðaraðstoð o.s.frv. Þannig geta þeir aðilar sem búa við það lán í óláni að hafa, þegar þörf er á neyðaraðstoð, aðgang að síma og jafnvel símaskrá farið á mis við alla neyðaraðstoð, vegna tímafrekr- ar leitar að rétta númerinu. Með sameiginlegu neyðamúmeri er átt við að þeir sem þurfí á neyðar- aðstoð að halda geti hringt í sama númerið hvar sem þeir eru staddir á landinu. Við hringingu í neyðar- númer taki sérhæfður aðili er leið- beini viðkomandi, samhliða því að hann kalli út viðeigandi neyðarað- stoð eða gefí viðkomandi samband við rétta aðila. Umræða í áratugi í áratugi hafa þeir sem starfa að slysavörnum og neyðaraðstoð rætt um nauðsyn þess að koma á neyðamúmeri. Ályktað hefur verið í borgarráði Reykjavíkur um málið síðan 1986, án þess þó að mikið hafi gerst. Undanfarin misseri hef- ur þó verið að komast hreyfing á málið. Nefnd skipuð af Almanna- vamanefnd Reykjavíkur skilaði á árinu 1992 tillögum að sameigin- legu neyðamúmeri fyrir höfðuborg- arsvæðið og aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð- inu samþykkti ályktun um uppsetn- ingu sameiginlegs neyðamúmers fyrir landið allt á aðalfundi sínum haustið 1992 og fól stjóm að taka upp viðræður við önnur aðildar- sveitarfélög. Borgarstjórn sendi síð- an fyrr á þessu ári bréf til dóms- málaráðherra þar sem hann óskaði eftir viðræðum við ráðuneytið um stofnsetningu sameiginlegs neyðar- númers fyrir höfuðborgarsvæðið. Mál þetta hefur verið rækilega rætt á fundum formanna og fram- kvæmdastjóra landshlutasamtaka sveitarfélaga og var þar sú stefna mótuð að skynsamlegt væri að koma upp neyðarnúmeri á höfuð- borgarsvæðinu, þar sem tryggt væri að aðrir landshlutar gætu tengst því númeri. Dómsmálaráðu- neytið hefur síðan nýverið skipað stýrnefnd til þess að hefja viðræður við sveitarfélög og munu innan skamms hefjast viðræður milli nefndarinnar og fulltrúa sveitarfé- laga á höfuðborgarsvæðinu. Hvað felst í neyðarnúmeri? Segja má að hugmyndin um sam- eiginlegt neyðamúmer lúti að tveimur þáttum, annars vegar að símkerfinu sjálfu og hins vegar að þeirri þjónustu sem veitt er eftir að beiðni um neyðaraðstoð berst. Það munu ekki vera neinir tækni- legir örðugleikar í vegi þess að sett verði upp slíkt símanúmer fyrir landið allt í gegnum almenna sím- kerfíð, þó uppsetningin kosti um- talsverða fjármuni. Ekki er aðeins um að ræða símalínur og símtæki, heldur gríðarlega öflugt skiptiborð og samskiptanet, tölvukerfi til að Pétur Stefánsson „Loks er það nýmæli í stefnu ráðsins að taka upp samband við ís- lendinga sem gegna lykilstöðum erlendis. Ráðið telur að þekking þeirra og sambönd geti þrátt fyrir fjarlægðina oft reynst dýrmæt fyrir íslenskt atvinnulíf." rekja til sérstakrar ákvörðunar rík- isstjórnarinnar árið 1985, en það ár fékk Rannsóknaráð um 165 m.kr. að núvirði til að efla hagnýt- ar rannsóknir og þróunarstarf í landinu. Fjárframlög til sjóðsins hafa þó farið lækkandi og voru komin niður í 110 m.kr. á síðasta ári, er sú ríkisstjórn sem nú situr við völd setti sér það mark að hækka framlög til sjóðsins í 200 m.kr. á næstu tveimur árum. Rannsóknaráð hefur endurskoð- að starfsreglur Rannsóknasjóðs með hliðsjón af nýsamþykktri stefnu sinni og ríkjandi ástandi í efnahagsmálum þjóðarinnar. í þeim er því „siglt nær vindi“ en áður og þung áhersla lögð á árangur. Hinar Sveinn Andri Sveinsson !Ef rétt er á spilunum haldið, ætti að vera búið að seíja upp neyð- arnúmer fyrir höfuð- borgarsvæðið síðla á næsta ári.“ skrá inn upplýsingar varðandi neyð- araðstoð og upptökutæki til að varðveita öll samtöl. Það verður væntanlega eitt af fyrstu verkefn- um stýrinefndarinnar að velja aðila til að taka þátt í útboði á uppsetn- ingu símakerfisins. (Forvalsgögn unnin af Reykjavíkurborg liggja fyrir.) Skipulag viðbragða við innkomn- um beiðnum er aftur á móti mun viðameira verkefni, sem kallar á samvinnu og samræmd vinnubrögð ótal aðila um land allt, lögreglu, sjúkraþjónustu, slökkviliða, lækna, hjálparsveita o.fl. Eðli málsins sam- nýju reglur gera ráð fyrir því að um 20% af ráðstöfunarfé sjóðsins renni til uppbyggingar þekkingar og fæmi en um 80% til verkefna með skýr hagræn markmið. í reglunum er áhersla lögð á ís- lenskan raunvemleika, en þar segir m.a.: „Við úthlutun úr sjóðnum skal hafa hliðsjón af náttúruauð- lindum landsins og mikilvægi ein- stakra atvinnugreina í þjóðarbú- skapnum. Leggja skal áherslu á mikilvæg tæknisvið, en sérstaka áherslu á lofandi vaxtarbrodda at- vinnulífsins og þau svið þar sem ætla má að samkeppnisstyrkur okk- ar liggi í framtíðinni.“ Þá er lögð áhersla á að örva þátttöku fyrir- tækja í rannsókna- og þróunar- starfí og leita eftir samfjármögnun hagsmunaaðila til að auka og nýta rannsóknafé sem best. Styrkveitingar úr Rannsókna- sjóði árið 1993 voru kynntar ný- lega, en alls hafði Rannsóknaráð um 175 m.kr. til ráðstöfunar þessu sinni að meðtöldu framlagi til Evr- ópusamstarfsverkefna. Styrkveit- ingar þessar bera hinni nýju stefnu- mótun Rannsóknaráðs vissulega vitni. Þar kemur fram aukin áhersla á hlut fyrirtækja í rannsóknar- og þróunarstarfi og á verkefni sem lík- leg eru talin til að skila atvinnulíf- inu hagnýtum árangri á tiltölulega stuttum tíma. Þannig renna nú um 70% af ráðstöfunarfé sjóðsins til verkefna sem fyrirtæki eiga aðild að. Mest er aukningin í styrkveit- ingum á sviði fískvinnslu og þróun- ar sjávarafurða annars vegar en fiskvinnslutækni hins vegar. í stuttu máli má segja að styrk- veitingar Rannsóknasjóðs í ár end- urspegli einkum þijú meginsjón- armið. I fyrsta lagi eru fyrirtækin einn mikilvægasti vettvangur ný- sköpunar í atvinnulífí þróaðra þjóða, í öðru lagi verður hver og einn að leggja rækt við það sem hann kann eða hefur besta aðstöðu til í hinni óheftu samkeppni nútím- ans, í þriðja lagi verður hver fram- sækin þjóð sífellt að leita nýrrar þekkingar og nýrra leiða til að und- irbyggja hagsæld morgundagsins. Höfundur er formaður Rannsóknaráðs. kvæmt er neyðarþjónstua mjög misjafnlega langt á veg komin eftir landshlutum. Vegna landfræðilegra staðhátta og misjafns íbúafjölda er útilokað að hafa sama skipulag á viðbrögðum í öllum landshlutum. Móttaka og úrvinnsla neyðarbeiðna frá sameiginlegri neyðarmiðstöð hlýtur að taka mið af staðbundnum aðstæðum. Sumir landshlutar gætu valið þann kost að setja upp eigin miðstöð, þar sem allar hringingar í sameiginlega neyðarnúmer frá þeim landshluta færu inn á hina staðbundnu neyðarmiðstöð. Allir gætu hins vegar kosið að fara þá leið að tengjast neyðarmiðstöð á höfuðborgarsvæðinu, frá þeirri stöð væri kölluð út staðbundin neyðarað- stoð. Neyðarnúmer 1995 Um forgangsröðun verkefna stýrinefndar dómsmálaráðherra er það að segja að það hlýtur að vera skynsamlegast að setja fyrst upp neyðarnúmer á því svæði sem lengst er komið í skipulagi viðbragða við neyðarbeiðnum. Slík vinna ætti að reynast þarft vegnaesti fyrir stýri- nefndina að vinna úr þegar kemur að því að skipuleggja viðbragðs- þáttinn í öðrum landshlutum. Ef rétt er á spilunum haldið, ætti að vera búið að setja upp neyð- arnúmer fyrir höfuðborgarsvæðið síðla á næsta ári, en þann tíma tekur að klára tæknilegu hliðina á neyðarnúmerinu. Þann tíma mætti nota til að undirbúa tengingu ann- arra landshluta við neyðarnúmerið og viðbragðsþátt þeirra. Gangi sá undirbúningur hnökralaust fyrir sig gæti neyðarnúmer fyrir landið allt verið orðið að veruleika á árinu 1995. Höfundur er borgarfulltrúi og formaður Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.