Morgunblaðið - 10.07.1993, Page 26

Morgunblaðið - 10.07.1993, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1993 Tveir Jónar eftírBjörn Jakobsson Það að maður sýni hæfni í einu starfi stjórnsýslu, þarf ekki að þýða að hann sé hæfur í annað og ábyrgðarmeira starf á sama sviði, sem krefst allt annarra hæfileika og getu en fyrra starfið útheimti. í nýju hlutverki getur viðkomandi maður orðið gagnslítill, eða jafnvel skaðlegur. Fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sem vermt hefir þá stóla báða óslitið síðan 1987 og 1988, er dæmigert eintak um þessa niðurstöðu. — ■ Ráðherra þessi var búinn að ná því starfi sem hentaði ha?fileikum hans og menntun, sem var staða forstjóra Þjóðhagsstofnunar. Þar var hans starf að hafa yfirumsjón með þjóðhagsútreikningum, og út frá þeim, gera svokallaðar þjóð- hagsspár sem leiðbeinandi viðmið- anir fyrir ríkisstjómir á hveijum tíma. Þama virtist þessi maður vera á réttri hillu. Það var síðan háð ákvörðunum viðkomandi ráðherra og ríkisstjórnar hvað mikið tillit var tekið til útreikninga hans og ráð- legginga. Jón kippir í Jón Þá skeði hið óvænta - eða plan- ''ícigða í lífi þessa manns, sem hann hefur ef til vill dreymt um undir niðri. Nafni hans, sem orðinn var formaður Alþýðuflokksins, kippti honum skyndilega inn í íslenska pólitík, og lét honum eftir ömggt sæti á lista Alþýðuflokksins í Reykjavík. Því sæti fylgdi síðan umsvifalaust tvöfaldur ráðherra- stóll. Sumir vilja meina, að formaður Alþýðuflokksins, sem er maður úti- funda og upphrópana, en lítið gef- 'vinn fyrir að liggja yfir löngum og leiðinlegum skýrslugerðum, hafí beinlínis þurft á forstjóra Þjóðhags- stofnunar að halda inn í pólitíkina, til að gera sínar eigin hugmyndir trúverðugar með talnaútreikning- um sem hann nennti ekki sjálfur að útfæra. Það sem flokksformaðurinn var- aði sig ekki á var að fyrr en varði var hann sjálfur orðinn svo flæktur og ruglaður í talnaleik og útreikn- ingum nafna síns, að allár grund- vallarhugsjónir Alþýðuflokksins höfðu umtumast svo gjörsamlega, að flokkur sem byggði á fylgi laun- þega og verkafólks, var skyndilega kominn lengst til hægri, hægra megin við Sjálfstæðisflokkinn. Flokkur sem kennt hafði sig við jöfnuð og réttlæti, gat nú farið að kenna sig við ójöfnuð og óréttlæti. Trójuhestur fjármagnseigenda í íslenskum stjórnmálum Meðan á þessum kollsteypum stóð, hafði hinn óverðskuldaði póli- tíkus fundið hinu nýja hlutverki sínu tilgang. Hann tók að sér að gæta hagsmuna fjármagnseigenda sem hann gerði að grundvallaratriði í stefnu Alþýðuflokksins. í stuttu máli hefur þessi ráðherra viðskipta- og bankamála að öðru jöfnu staðið á móti og jafnvel kom- ið í veg fyrir vaxtalækkanir. Þegar stjórnvöld hefðu haft tök á að lækka vexti, hefur ráðherra kallað það handafl og ósæmilegt valdboð. Ef vextir hafa hinsvegar hækkað, hef- ur ráðherrann kallað það sjálfsagð- an hlut sem þjóni markaðnum. Hann hefur fram að þessu komið í veg fyrir að verðtrygging á fjár- magni væri afnumin. Hann hefur staðið á móti og komið í veg fýrir skattlagningu á fjármagnstekjur. Hann hefur með vaxtastefnu sinni stuðlað að gjaldþroti fjölda heimila og fyrirtækja, með þeim sorglegu afleiðingum sem af slíku leiðir. Sem iðnaðarráðherra hefur hann Björn Jakobsson „Sem iðnaðarráðherra hefur hann nánast skil- ið við íslenskan iðnað í rúst. Aðeins í þau tvö ár sem núverandi ríkis- stjórn hefur setið að völdum, hefur fækkað um 1.400 — eitt þúsund og fjögur hundruð störf í íslenskum iðnaði.“ nánast skilið við íslenskan iðnað í rúst. Aðeins í þau tvö ár sem núver- andi ríkisstjóm hefur setið að völd- um, hefur fækkað um 1.400 - eitt þúsund og fjögur^ hundruð störf í íslenskum iðnaði. í dag fara aðeins fimm til sex prósent framhalds- skólanema í verklegar greinar. Til viðmiðunar er talan í Þýskalandi 50 til 60 prósent. Meðlimur í Bilderberg-klúbbnum Ráðherra iðnaðar, viðskipta og bankamála hefur ekki farið var- hluta af ríkulegri umbun og viður- kenningu fyrir þjónustu sína. Nú síðast hefur hann verið útnefndur sem varamaður forsætisráðherra í Bilderberg-klúbbnum, og sat síð- asta fund klúbbsins. Bilderberg- klúbburinn er sem kunnugt er fé- lagsskapur auðjöfra og stjórnmála- manna af „sérgráðu". Klúbbur þessi var upphaflega stofnaður af Bern- hard prins, drottningarmanni í Hol- landi, sem uppvís varð að þiggja stórfelldar mútur frá Lockheed- flugvélaverksmiðjunum í sambandi við kaup Hollendinga á herflugvél- um. Áhrifamenn í klúbbnum nú eru m.a. Henry Kissinger, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Kissinger, sem var einn af aðal- postulum kalda stríðsins, stóð m.a. á bak við valdarán hersins í Chile, sem leiddi af sér morðið á löglegum forseta landsins, Salvatore Allende. Annar áhrifamaður í klúbbnum, og mikill vinur Kissingers, er aðaleig- andi og stjórnarformaður Fiat-verk- smiðjanna á Ítalíu, Giovanni Agn- elli, en forstjórar Fiat liggja nú undir ákærum, um hvers konar fjár- málaspillingu og mútugreiðslur. Sjálfur lýsti Agnelli því yfír nýlega, að ekki væri hægt að komast hjá því að múta stjórnmálamönnum, til þess að geta haft sín mál í lagi. Margir ítalskir stjórnmálamenn, meðlimir í Bilderberg klúbbnum, þar á meðal forystumenn krata á Italíu, eru nú ákærðir fyrir að þiggja mútur og draga sér fé úr opinberum sjóðum. Þetta er dágóð- ur félagsskapur fyrir íslenska stjórnmálamenn á heljarþröm. Því má ekki gleyma, að núverandi for- maður utanríkismálanefndar Al- þingis hefur í gegnum árin verið nokkurs konar prótókólstjóri þeirra íslensku stjórnmálamanna sem hafa orðið þess „heiðurs" aðnjótandi að verða meðlimir í Bilderberg. Eftir að kalda striðinu lauk og íslending- ar misstu kverkatökin á Bandaríkj- unum (sbr. ummæli Friðriks Sop- hussonar) hlýtur það að teljast bros- legt að sjá íslenska stjórnmálamenn í þessum hóp, þar sem aðgöngumið- inn er mikil völd og auðmágn. En hver veit nema fyrryerandi forseti Alþýðusambands íslands verði dubbaður upp í ítalskan alfatnað og boðin þátttaka i klúbbnum fyrir þátt sinn í að hanna forrit sem staðl- ar hluskipti laumþega og verkafólks í svokölluðum þjóðarsáttum. Seðlabanki og kratar Eftir því sem Jónarnir tveir, og þeir úr forystuliði Alþýðuflokksins, sem þeim hafa fylgt að málum, sjá hvert stefnir, reyna þeir nú hver um annan þveran að koma sér í björgunarbátana til Brussel og Genf, í Aðalverktakasendiráð og seðlabanka. Ráðherra viðskipta og banka- mála lét taka af sér mál og klæð- skerasauma nýtt frumvarp til laga um Seðlabanka íslands og átti klæðnaðurinn að vera tilbúinn fýrir hann sjálfan þegar hann óskaði. Eitthvað hefur það ennþá staðið í alþingismönnum að festa hnappana á hinn fyrirhugaða búning ráðherr- ans. Hér er í uppsiglingu eitt dæmi- gerðasta hneyksli í íslenskum stjórnmálum sem óhætt er að full- yrða að hvergi gæti gerst, þar sem pólitískt siðferði er einhvers metið - að ráðherra bankamála geti hag- rætt málum á þann veg, að hann nánast skipi sjálfan sig í embætti aðalbankastjóra Seðlabanka ís- lands. Áður en ráðherrann settist í Seðlbankann hefði e.t.v. verið ástæða til að fara ofan í saumana á því með hvað hætti hann afhenti Útvegsbanka íslands til hinna raun- verulegu umbjóðenda sinna, sem nú mynda íslandsbanka, sbr. um- mæli Sverris Hermennssonar bankastjóra í Morgunblaðinu 1. apríl sl. (grein: Að gefnu tilefni). Höfundur er fyrrverandi framkvæmdasijóri. Kjartan Jónsson skrifar frá Kenýu Hvar er brúðurin? Ljjósm.: Valdís Magnúsdóttir Brúðurin á nýja heimilinu ásamt brúðargjöfunum. Brúðhjónin. Brúðkaup markar nýtt upphaf. U03™- Kjartan Jónsson Ég var beðinn fyrir skömmu um að gefa saman hjón í presta- t kalli í hinum enda Pókothéraðs. Það tók mig fjóra tíma að komast þangað. Þetta passaði vel vegna þess að ég þurfti að fara á fund þar. Brúðkaupsdagurinn rann upp bjartur og fagur. Við, sem erum frá norðlægum slóðum, segjum oft okkar á milli: „Mikið erum við heppin með veðrið í dag. Það er sól einn daginn enn!“ Það brást ekki heldur að þessu sinni. Ann- ars finnst Afríkumönnum meiri blessun fólgin í því að fá hellirign- ingu. Ég kom tímanlega til kirkjunn- ar, en það var eitthvað, sem ekki var eins og það átti að vera. Fólk .< var dreift í smáhópum á svæðinu kringum kirkjuna .og talaði í hálf- um hljóðum. Samkvæmt áætlun átti brúðkaupið að hefjast kl. 11. f.h. Ég var nokkuð tímanlega, sérstaklega þegar það er haft í huga að ég var í afskekktri sveit í Afríku, þar sem fólk almennt átti ekki klukkur og enginn stress- ar sig yfir smáatriðum eins og nokkrum kortérum til eða frá. Ef allt hefði verið með felldu, hefðu konur verið önnum kafnar við að undirbúa veislumatinn. Það hefði rokið úr stórum pottum á hlóðum frá bráðabirgðaeldhúsinu, sem hróflað var upp vegna tilefn- isins. Fólk hefði átt að vera á þönum og vinir að bjarga ýmsu við á síðustu stundu, gestir að streyma til kirkjunnar, margir eftir tveggja daga göngu, og ungl- ingakórar að leggja síðustu hönd á framlög sín til athafnarinnar í rjóðrum í kring. En nú var allt hljótt. Fáir á ferli. Ekkert að ger- ast í bráðabirgðaeldhúsinu. Eng- inn gestastraumur. Engar redd- ingar á síðustu stundu. Samningaviðræður Þeir fyrstu, sem ég hitti, spurðu hvort presturinn yrði til næsta dags hjá þeim. Ég kvað já við því. Er ég spurði nánar út í hvað þeir ættu við, sögðu þeir mér að aðstandendur brúðarinnar hefðu snúið henni heim aftur. Þeir töldu mikinn vafa leika á því, að nokk- urt brúðkaup yrði þann daginn. Ég og viðmælendur mínir vorum að vonum mjög hissa vegna þess að búið var að ganga frá og greiða brúðarverðið. Fjölskylda brúðar- innar hafði komið með hana dag- inn áður, þannig að allt átti að vera klappað og klárt. Síðan kom skýringin. Aðstandendur brúðar- innar sögðu, að ein kýrin af þrem- ur, sem greitt var með, hafí verið blind á öðru auga. Samkvæmt sið Pókotmanna verða kýr, sem not- aðar eru sem brúðarverð að vera gallalausar^ Þeir voru óánægðir og vildu skipta henni og fá aðra. Þeir spurðu fjölskyldu brúðgu- mans, hvort þeim sýndist brúðurin vera eineygð. Ef svo væri ekki, þá vildu þeir ekki fá eineygða kú. Staðarpresturinn og leiðtogar kirkjunnar höfðu farið snemma um morguninn til að ræða við fjöl- skyldu brúðarinnar til að reyna að leysa vandann. Tíminn leið og ekkert gerðist. Um klukkan eitt e.h. komu samn- ingamennirnir til baka með bros á vör. Þeir höfðu gengið eina og hálfa klukkustund hvora leið. Vandinn var Ieystur, en það hafði ekki gerst átakalaust. Karlarnir í fjölskyldu brúðarinnar, sem ekki voru kristnir, gerðu sér grein fyr- ir, að þeir voru í sterkri samnings- aðstöðu, því að brúðuguminn, sem var búinn að kaupa mat fyrir mörg mánaðarlaun, vildi að sjálf- sögðu ekki að hann eyðilegðist. Þeir fúlsuðu við kú, sem þeim var boðin í skiptum fyrir hina, með gallaða augað. Málið leystist þó, er maður úr safnaðarstjórninni bauð væna kú, sem hann átti, í skiptum fyrir þá, sem ekki þótti nógu góð. Nú færðist líf yfir kirkjusvæðið. Reykur liðaðist upp frá eldhúsinu og gestir tóku að streyma til kirkj- unnar. Brúðkaup Brúðkaupið hófst síðan kl. 14. Kirkjan var full. Margir stóðu. Um 6-800 manns voru viðstödd þennan stórviðburð. Það var ekki á hveijum degi að ungur maður lagði út í stórkostnað við að halda brúðkaup og lýsa því yfir í viður- vist mörg hundruð kirkjugesta, að hann vildi vera konu sinni trúr allt til dauða. Á meðal Pókotmanna mega karlmenn taka sér eins margar konur og þeir vilja. Auk þess eru flestir þeirra fjöllyndir í þokkabót. Mikilvægur hluti af giftingarat- höfn þjóðflokksins er að flétta hring af blautri nautshúð um úlnl- ið konunnar. Þegar hann þornar, er næstum ógerningur að losa hann af. Hann er eins konar tákn fyrir fjötra konunnar á meðal Pókotmanna, en staða hennar er almennt bágborin í þessu samfé- lagi. Kristna fólkið samgladdist ungu brúðhjónunum. Margar ræður voru haldnar og þeim óskað blessunar og hamingju. Konur, sem tóku til máls, undirstrikuðu, hvað það væri merkilegt, að mað- urinn lofaði að elska konuna sína og vera henni trúr allt til dauða, svo að hún þyrfti ekki að deila honum með mörgum öðrum. Það er stórkostlegt að sjá breyt- inguna, sem orðið hefur í héraðinu umhverfis kirkjuna á aðeins tíu árum. Drykkjuböl hefur stórm- innkað og kristnir menn hafa allt aðra og jákvæðari afstöðu til eig- inkvenna sinna en flestir aðrir. Staða kristinna kvenna hefur stórbatnað á þessum stutta tíma. Þær eru þátttakendur í ýmiss konar framfarastarfi. Hinn kristni boðskapur færir blessun og hamingju hvarvetna þar sem hann er tekinn alvarlega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.