Morgunblaðið - 13.07.1993, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 13.07.1993, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1993 39^ SÍM/ 32075 goðsogniim Spennandi hroilvekja af bestu gerð. Mynd sem fór beint á toppinn í Englandi. Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Stranglega bönnuð innan 16 ára. LOFTSKEYTAMAÐURINN Meiriháttar gamanmynd eftir sögu Knuts Hamsun. Kosin vinsælasta myndin á Norrænu kvikmyndahátiðinni '93 í Reykjavík. ★ ★★GE-DV ★★★Mbl. Sýnd kl. 5,7,9og 11. SIÐLEYSI ★ ★★ /j MBL. ★ ★ ★ Pressan ★ ★ ★ Tíminn Aðalhlutverk: Jeremy Irons og Juliette Binoche. Sýnd kl. 5,7,9 09 11. Bönnuð innan 12 ára. Munið þriðjudagstilboð Regnbogans og Indverska veitingahússins. Kjötiðnaðarmenn fagna auknum áhuga á að auka virðingu verknáms MEISTARAFÉLAG kjötiðnarmanna, sem stofnað var 1990, samþykkti ályktun á aðalfundi sínum fyrir skömmu þar sem fagnað var þeim áhuga, „sem nú virðist vera á því að auka vegsemd og virðingu verknáms hér á landi. Sér- stakt fagnaðarefni er að í áfangaskýrslu Nefndar um mótun menntastefnu, skuli lögð áhersla á að brýna nauð- syn beri til að stórauka vægi iðnnáms og annars starfs- náms í skólakerfinu." í ályktuninni segir enn- fremur: „Margar áhugaverðar tillögur koma fram í áfanga- skýrslunni. Þannig er sérstök ástæða til að taka undir tillög- ur nefndarinnar um móður- skóla í iðngreinum. Minnt er á að full útfærðar tillögur um matvælaskóla hafa legið hjá menntamálayfirvöldum um langt árabil, án þess að nokk- uð bóli á framkvæmdum. Ástæða er því til að beina því til stjórnvalda, að eigi tillögur nefndarinnar ekki að verða orðin tóm, er nauðsynlegt að taka betur til hendinni en hingað til hefur verið gert i þessum efnum. Tillögur nefndarinnar um svokallað „styttra starfsnám“ eru einnig allrar athygli verð- ar. Meistarafélag kjötiðnaðar- manna vill leggja áherslu á að slíkt nám á þó fyrst og fremst rétt á sér utan sviðs hinna löggiltu iðngreina. Styrkur iðngreinanna og þar með hagsmunir neytenda eru besti tryggðir með því að leggja áherslu á aukna þekk- ingu og færni. í þjóðfélagi sem verður sífellt flóknara og krefst sífellt meiri hæfileika til aðlögunar ber að leggja áherslu á aukna menntun. Efling iðnmenntunar er best fallin til að ná þessu mark- miði. Þótt stutt starfsnám geti verið eftirsóknarvert á sumum sviðum má það ekki koma niður á sjálfu iðnnám- inu. Félagið varar við hug- myndum um stórfellda upp- byggingu stuttra námsbrauta og „eyðslu“ takmarkaðs fjár- magns í þær á sama tíma og mörg og mjög brýn úrlausnar- efni í iðnfræðslunni, sem beðið hafa óhóflega lengi, fá ekki lágmarks úrlausn. Meistarafélag kjötiðnaðar- manna útilokar ekki að ákveð- in svið geti fundist innan matvælaiðnaðarins, þar sem eðlilegt væri að skipuleggja styttra nám, sbr. tillögur fé- lagsins um slátraranám sem félagið hefur lagt til að viður- kennt verði til löggildingar á slátrun sem löggiltri iðngrein. Fleiri styttri námsbrautir gætu e.t.v. einnig komið til álita. Hins vegar er lögð þung áhersla á að í slíkum tilfellum er grundvallarskilyrði, að haft sé samráð við fagfélög iðn- greinamanna um allar hug- myndir er varða skilgreiningu námsins (eins og Nefnd um mótun menntastefnu leggur raunar áherslu á). Slíkt sam- ráð þarf að verða virkt í reynd og er nauðsynlegt að útfæra sérstakar leikreglur, sem farið yrði eftir í þessu sambandi. Þau vinnubrögð, sem nýlega voru viðhöfð af hálfu Iðn- fræðsluráðs við tillögugerð um skipulag náms í matvæla- greinum á framhaldsskóla- stigi eru dæmi um hvernig ekki ætti að vinna að málum af þessu tagi.“ Formaður Meistarafélags- ins er Björn Ingi Björnsson, Þríhyrningi hf. á Höfn, Sævar Hallgrímsson 'frá Bautabúrinu hf. á Akureyri er varaformað- ur, Leifur Þórisson frá SS gjaldkeri, Kristján Kristjáns- son frá Goða hf. ritari og meðstjórnandi er Bergsveinn Símonarson. Bíóborgin sýn- ir „Drekann“ BÍÓBORGÍN heldur í kvöld forsýningu á myndinni „Drekinn: Sagan af Bruce Lee“ (Dragon: The Bruce Lee Story). Mynd þessi er einstaklega vönduð frásögn af ævi Bruce Lee, meistara bardagalistarinnar og ein- hverar mestu goðsagnar- persónu seinni tíma. Þetta er saga manns sem háði þrotlausa baráttu fyrir bæði andlegri og líkamlegri fullkomnun, allt frá unga aldri, fram til dularfulls og skyndilegs dauða árið 1973. Bruce Lee fæddist í San Francisco 27. nóvember, sem bar upp á stund drekans á ári drekans. Hann var síðan alinn upp í Hong Kong og var gjarnan nefndur „Litli drek- inn“. 18 ára fluttist Lee aftur til Ameríku, eftir að hafa átt í talsverðum útistöðum við lögin vegna þátttöku sinnar í bardögum götuklíku. Frægðar- draumar urðu fyrst að veru- leika er hann kynntist Lindu Emery, sem síðar varð eigini- kona hans og móðir barna hans tveggja. Myndin er ekki síður um baráttu þeirra hjóna við fordóma- fullt umhverfi fyrir að mega njótast (hann hreinræktaður Asíubúi en hún hvít og ljós- hærð), eins og um fimi og bardagahæfni Bruce Lee á hvíta tjaldinu. Hér er því ekki einungis á ferðinni mynd hlaðin frábærlega útfærðum Kung-Fu atriðum, heldur er kafað mun dýpra: Hulunni er svipt af goðsögninni og sýnt er hvaða mann Bruee Lee hafði að geyma: sem maður, elskhugi og faðir. Drekinn: Sagan af Bruce Lee er tilvalin mynd fyrir alla þá sem unna örlagasögum . sem sannarlega eru þess virði að vera sagðar, segir í frétta- tilkynningu frá bíóinu. Með hlutverk Bruce Lee fer Jason Scott Lee en leikstjóri myndarinnar er Rob Cohen og byggir hann myndina á sögu Lindu Lee Cadwell, eig- inkonu Bruce Lee, „Bruce Lee: The Man Only I Knew.“ Atriði úr myndinni Bruce Lee. Drekinn: Sagan af Aðalhlutv.: William Baldwin, kyntákn Bandaríkjanna f dag, („Sliver", „Flatliners" og „Back- draft"), Kelly Lynch („Drugstore Cowboy") og Sherilyn Fenn („Twin Peaks“). ★ ★ ★ ★„Stórkostleg mynd.“ KFMB - TV San Diego Sýnd kl. 5,7,9 og 11.10. Bönnuð innan 12 ára. TVEIRÝKTIR1 „LOADED WEAPOIM 1 “ fór beint á toppinn í Bandaríkjun- um! Mynd, þar sem „Lethal Weapon“, „Basic Instinct1*, „Silence of the Lambs“ og „Wayne's World*1 eru teknar og hakkaðar í spað íýktu gríni. Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Frábær hasarmynd þar sem bardagaatriði og tæknibrellur ráða ríkjum. Ef þér líkaði „Total Recall" og „Terminator11, þá er þessi fyrir þigl Sýnd kl. 5,7,9 og 11 í A-sal. Stranglega bönnuð börnum innan 16 ára SÍMI: 19000 ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ Á ALLAR MYNDIR NEMA „ÞRÍHYRNINGINN" Umdeildasta mynd ársins 1993 ÞRÍHYRIM- IIMGURIIMIM SÍÐAN „AMERICAN GIGALO" HEFUR SVONA MYND EKKISÉST! Kráin tom þorói Krth w fc—fcwwrfl Láttu ekki misbjóða þér lengur. Stór 395 kr. litill og allar Höskur 295 kr. 12" pizzo 450 kr. RAUÐA UÓNIÐ Eiðistorgi - Kráin ykkar. VILLT ÁST Erótisk og ögrandi mynd um taumlausa ást og hvernig hún snýst upp í stjórn- laust hatur og ótryggð. Mynd sem lætur engan ósnortinn. Djörf og ógnvekjandi. Sýnd í B-sal kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 12 ára FEIL- SPOR ONE FALSE MOVE ★ ★*★ EMPIRE ★ ★★MBL. ★★★ V, DV Einstök sakamálamynd, sem hvarvetna hefur fengið dúnduraðsókn. Sýnd í C-sal kl. 5, 7, 9 og 11 Bönnuð innan 16 ára.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.