Morgunblaðið - 03.12.1993, Síða 37

Morgunblaðið - 03.12.1993, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1993 37 hans á myndlist en vafalaust hefur hann átt hæfileika á því sviði. Hann sótti listsýningar og hljómleika og mörgum sinnum þegar hann rakst á eitthvað í umhverfinu sem gladdi hann, þá staldraði hann við. Sér- staka ánægju hafði hann af að virða fyrir sér fagrar konur með stjörnur í augum, enda liðu þær seint úr hug hans. í leyfum hafði hann dvalist suður í Frakkiandi og eignast þar nokkra kunningja. Og ekki fór hjá því að hann tileinkaði sér menningu þarlendra, allt frá listum til mat- seðlafræði, bragðgóðra tegunda osta og ljúfs rauðvíns. Hann kunni vel með það að fara og lyfti glasi sínu með virðingu fyrir drykknum að frönskum sið. Tíminn leið og ævin á sín tak- mörk en seinni árin fór að bera á því að hann gekk ekki heill til skóg- ar. Stundum urðum við félagar hans varir við að honum leið illa en hann reyndi að láta ekki á neinu bera. Nokkrum sinnum þurfti hann líka að leggjast inn á sjúkrahús en reis upp aftur eins og ekkert væri. Við tókum líka eftir því að síðustu árin átti hann erfiðara með að fylgja okkur á sunnudagsgöngunum, vegalengdin var í það lengsta fyrir hann, þolið minna, skrefin urðu styttri og erfiðara varð að lyfta fótunúm. Hann hafði gengið sinn spöl á enda. Þótt heilsan væri ekki sem best síðustu árin, lagði hann ekki árar í bát. Sagðist vilja njóta þess sem kostur væri. Lagðist í heimsferðir í hópi góðra kunningja til að kynn- ast öðrum þjóðum. Þar var oft heitt í veðri en það beit ekki á hann og hann naut lystisemdanna eins og hann gat. Við vinir hans höfðum áhyggjur af því að hann tefidi of djarft en hann sneri ánægður heim úr ferðunum öllum nema þeirri síð- ustu, ferðinni til Kína en þaðan kom hann þrotinn kröftum. Nú í dag kveðjum við góðan vin og félaga sem við munum sakna úr okkar hópi. Við fylgjum honum að himinboganum sem nær til efri svala, veifum til hans í kveðjuskyni og þökkum honum hjaitanlega fyr- ir samveruna. Nú er hann laus við líkamann og stígur léttum skrefum upp bogann. í hendi sér ber hann skjóðu fulla af góðverkum og þá er ekki úr vegi að minna hann á að taka með sér vísukornið það arna, svo hann geti glatt þá okkar sem á undan eru gengnir. Ólafur Pálsson. í dag kveðjum við í hinzta sinn hann Þórarin, nágranna okkar, frænda og góðan vin. Þær eru margar ánægjustundirnar sem við höfum átt með honum í eldhúsinu heima á Móbergi. Þar höfum við heyrt hann lýsa námsárum sínum í Kaliforníu þar sem hann nam verk- fræði við Berkeley-háskóla, frá- , sagnir hans af ýmsum menningar- ' viðburðum sem voru ætíð ofarlega í huga hans, sem dæmi þegar París- j arballettinn heimsótti San-Frans- * isco meðan hann var við nám ytra. Oft sýndi hann okkur myndir frá j þeim viðburði og öðrum viðlíka sýn- ' ingum í stórborginni. Þórarinn var mjög víðlesinn og gátum við alltaf leitað til hans um vitneskju, hvort sem um var að ræða löngu liðna sögulega atburði, örnefni í okkar nágrenni eða ráð- leggingar í garðrækt. Ef hann hafði ekki svör á reiðum höndum var allt- af hægt að flétta upp í bókasafninu á heimilinu og grúska þar í bókum uns svörin lágu fyrir. Þórarinn var af þeirri kynslóð sem kynntist sveitastörfum á fyrri hluta aldarinnar og mundi vélvæð- inguna sem hófst með hestasláttu- vélum til þess að vinna flókin rann- sóknarstörf á þotueldsneyti háþró- I aðra orrustuflugvéla nútímans á Keflavíkurflugvelli. Við hjónin áttum þess kost að \ kynnast Þórarni við leik og störf, fyrst í fjölmörgum laxveiðiferðum þar sem hann var ætíð ómissandi ( félagi. Þá sýndi hann oft ótrúlega þrautseigju við að komast á erfiða veiðistaði og var honum sérstakt kappsmál að fylgja okkur yngra fólkinu, þrátt fyrir mikinn aldurs- mun. Einnig er gaman að minnast allra stundanna þegar veiðisögur voru sagðar að kvöldi dags í nota- legu veiðihúsi. Ferðalög hans hin síðustu ár um flestar álfur heims og sérstaklega Frakkland þar sem hann heimsótti vini og vinkonur sínar og nam af þeim matseld og hefðir sem urðu okkur oft að umtalsefni. Sjálfur var hann góður kokkur og reyndi ævin- lega ýmsa nýstárlega rétti sem hann hafði ánægju af að veita öðr- um. Nú í haust fór hann í ferð til Kína, svo að segja má að hann hafi fengið að njóta sín fram á síð- asta dag, sem var hans eigin ósk. Við þökkum ánægjulegrar sam- verustundar og óskum vini okkar alls hins besta í nýjum heimi. Jóhann og Herdís. .............'............................ J DLWwAiPIPjDRMiTíTíI KRABBAMEINSF VEITTU STUÐNIN ÍLAGSINS 1993 G-VERTU MEÐ! í þetta sinn voru miðar sendir konum, áþldri lum 23ja - 75 ára. Við þökkum öllum þeim sem þegar hafa borgað miðana og minnum hiná á góðan málstað og verðmæta vinninga. Greiða má í banka, sparisjóði eða póstafgrejðslu til hádegis á aðfangadag jóla. Vakin er athygli á þvi að hægt er aðborg Hringið þá í sit i með greiðslukorti (Visa, Eurocard). M) 621414. Hver keyptur miði eflir sókn og vörri gegn krabbameini!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.