Morgunblaðið - 14.12.1993, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 14.12.1993, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993 Ómar Ragnarsson á fullri ferð í salnum. Morgunbiaðið/Sigurður Jðnsson Lionsfélagar saman komnir uppi á sviði í lok litlu jólanna. Lionsklúbburinn Ægir hélt litlu jólin á Sólheimum Eínlægní og gleði skein úr hverju andlili Sólheimum. HELGI aðventunnar á Sólheimum í Grímsnesi og eftirvæntingin sem henni fylgir náði hámarki á sunnudag þegar félagar úr Lionsklúbbn- um Ægi í Reykjavík komu þangað og héldu hin árlegu litlu jól. Mikil stemmning ríkti á staðnum, allir í sínu besta pússi og hátíðar- skapi. Einlægni og gleði skein úr hverju andliti og það lögðu allir sitt af mörkum til þess að gera daginn eftirminnilegan. Lionsfélagar hafa staðið að litlu-jólaskemmtun frá árinu 1957. Hátíðin á sér því djúpar rætur og hún snertir hátíðarstrengi í hjarta hvers manns sem Horft yfir Sólheima í vetrar- og jólaskrúða. Lionsklúbburinn Ægir hefur unnið stórvirki með stuðningi sín- um við starfið á Sólheimum. Fé- lagarnir hafa lagt uppbygging- unni lið með stórum og smáum gjöfum og lóð á vogarskálamar við að stuðla að öflugri fjármögn- un þeirra miklu framfara sem þar hafa átt sér stað undanfarin ár.. Hús hafa risið á staðnum og starfsemin orðið öflugri og það sem mest er um vert á Sólheimum hefur þróast fagurt mannlíf sem ekki fer framhjá neinum sem þar kemur í heimsókn. Lionsmenn eni snillingar í því að snerta þennan mannlífsstreng í bijóstum heimil- isfólksins og starfsmanna, þannig að sálin ljómar. Það geislaði sann- arlega af hveijum manni á litlu jólunum á sunnudaginn. Eftirvænting og húrrahróp I anddyri staðarhússins beið eftirvæntingarfullur hópur heimamanna og horfði upp í brekkuna. Þegar rútan birtist kváðu við húrrahróp og klappað var fyrir komumönnum. Þegar Lionsmenn stigu út úr rútunni fékk hver þeirra innilegt klapp og var vel fagnað. Dagskráin hófst með borðhaldi og áður en matast var var kyrrðarstund og farið með fallega borðbæn, síðan var hangikjötinu gerð góð skil. Eftir matinn var dálítil stund þar sem gestir gátu gengið um staðarhlöðin til að skoða sig um. Þau Dísa Ragna Sigurðardóttir og Árni Alexandersson buðu í skoðunarferð í nýja húsið sem þau búa í að Undirhlíð 12. Það er raðhús með einstaklega smekk- legum íbúðum. „Já það er alveg satt hér er sko gott að búa og þetta er mjög fín íbúð,“ sögðu þau bæði. Gangstéttamar eru upphitaðar svo ekki festir snjó á þeim. Það er hugsað fyrir öllu og skammt frá húsunum er í bygg- ingu vinnustofa og þegar talið berst að henni á leið okkar til íþróttaleikhússins leggur Árni áherslu á hvað það sé gaman að smíða og vinna við verkefni í þeim dúr og hann hefur smíðað marga góða gripi. Hluti af viðameira starfi Hjá Lionsmönnum og heima- fólki á Sólheimum helst það í hendur að báðir telja niður dag- ana á milli litlu jólanna. „Við reynum að gera sem mest sjálfir, höfum ágæta skemmtikrafta í klúbbnum og svo höfum við stundum fengið með okkur góða gesti til að skemmta," sagði Svav- ar Gestsson. „Þetta sem við ger- um hér núna er hluti af viða- meira stárfi hér á Sólheimum. Við komum hér á hveiju vori til að gróðursetja og mönnum líður alltaf hálfilla ef þeir komast ekki hingað á jólunum. Þessu fylgir mikil helgi og gefur okkur mikið og einnig heimilisfólkinu hérna,“ sagði Svavar. Hann gat þess einn- ig að konum og börnum Ægis- manna þættu þeir félagar ekki komnir í jólaskap fyrr en þeir væru búnir að halda litlu jólin á Sólheimum. Krefjandi og þroskandi starf „Það er mjög gott að vinna hérna. Þetta er bæði krefjandi og gefandi starf og þess vegna mjög þroskandi," sagði Guðmundur Ingi Gestsson, starfsmaður á Sól- heimum. „Það er mjög gaman að gera eitthvað fyrir fólkið, það metur svo vel það sem gert er.“ Hulda Helgadóttir er nýbyijuð í starfi á Sólheimum. „Ég hafði aldrei unnið á svona stað áður en þetta er mjög spennandi og gef- andi starf. Fólkið er mjög indælt og maður starfar innan um það og tekur þátt í gleði þess og sorg- um og öllu sem upp kemur. Mér finnst ég hafa lært eitthvað nýtt á hveijum degi og á örugglega eftir að gera það áfram,“ sagði Hulda. Dúndrandi stemmning og fjör Á skemmtuninni í íþróttaleik- húsinu rakti hvert skemmtiatriðið annað og mikil gleði ríkti í hús- inu. Uppistaðan í skemmtiatriðun- um var söngur. Magnea Tómas- dóttir söng sálm í byijun en síðan byijaði fjörið. Spurningakeppni stjórnaði Svavar Gests, Baldvin Halldórsson las sögukvæði og danspör frá Danssmiðjunni sýndu dansa. Lionsfélagar sungu hvert lagið af öðru með ýmsum útúrdúr- um sem vöktu kátínu. Hápunktur skemmtunarinnar var þegar Omar Ragnarsson geystist um sviðið og allan sal í söng og leik. Fólkið veltist um af hlátri og kátínu og tók virkan þátt í því sem fram fór. Það kom greinilega fram að Ómar á hug og hjörtu fólksins. í lokin sungu svo allir viðstaddir Heims um ból. Hátíð- inni lauk síðan með því að allir fóru í kaffí eftir að hafa fengið jólapoka frá Ægismönnum. „Þetta skapar mikla eftirvænt- ingu hjá fólkinu okkar og er toppurinn á starfi okkar hérna á þessum tíma,“ sagði Halldór Júl- íusson, forstöðumaður Sólheima. Það voru greinilega orð að sönnu því það var ánægður og sáttur hópur sem yfirgaf íþrótta- leikhúsið eftir litlu jólin. Þennan dag var birtan og skýjafarið þann- ig að staðurinn var sveipaður ævintýraljóma. Veðrið var kyrrt og jólaljósin í gluggunum og skreytingar á húsunum lýstu upp. Þennan dag gerðist ævintýr í íþróttaleikhúsinu þar sem jólaljós- ið kom að innan og lýsti upp huga viðstaddra: Þetta var skemmtun sem enginn viðstaddra vildi vera án og ennþá fleiri hefðu átt erindi Dísa Ragna Sigurðardóttir og Árni Alexandersson í nýju íbúðinni í Undirhlið 12. Gullnáman gangsett GULLNÁMAN, happdrættisvél- ar Happdrættis Háskóla íslands, var gangsett á 26 stöðum á laug- ardag. Að sögn Ragnars Ingi- marssonar, forsljóra happ- drættisins, voru viðtökur góðar á fyrsta degi. Ragnar sagði að menn hefðu haft á orði að vélamar væru ekki þær vítisvélar sem talið var. Mörg- um hafí komið á óvart að um venju- legar happdrættisvélar væri að ræða. Sagði hann að aðsókn hefði verið misjöfrí eftir stöðum. Hæstu vinningar hafa til þessa verið um 20 til 30 þúsund krónur en lukku- pottarnir eru enn í vélunum og er annar rúm 200 þús. en hinn að nálgast þriðju milljónina. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Gullnáma háskólans RAGNAR Ingimarsson, forstjóri Happdrættis Háskóla Islands, gang- setti nýju happdrættisvélarnar. Olíulekinn á Siglufirði Lokið við að hreinsa alla svartolíuna upp VEL HEFUR gengið að hreinsa upp svartolíu sam lak úr tanki SR-mjöls á Siglufirði að næturlagi í síðustú’’viku, að sögn Sigurðar Hlöðverssonar bæjartæknifræðings. Um 14 þúsund lítrar af svart- olíu láku úr tanknum og rann hluti olíunnar um holræsakerfi bæjar- ins en um 8 þúsund lítrar sigu í snjó og jarðveg við tankinn. Olían hefur nú verið hreinsuð upp og fer til eyðingar hjá olíufélögunum. Tankurinn var eldri en svo að við hann væri þró eins og þær sem lög gera ráð fyrir að séu við nýrri olíutanka til að taka við leká. Sig- urður Hlöðversson sagðist ekki hafa heyrt um að fugl hefði lent í olíu í höfninni. Að sögn Þórðar Jónsson- ar, rekstrarstjóra SR-mjöls, er óljóst hver kostnaður við hreinsun- ina verður og hvort hann fellur á SR-mjöl. „Við eigum eftir að ræða þetta við olíufélögin og svo koma tryggingar inn í spilið,“ sagði hann. Olíufélögin eiga olíuna á tönkunum sem er notuð við kyndingu verk- smiðjunnar og á báta. Greitt er fyrir notkun eftir mæli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.