Morgunblaðið - 14.12.1993, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 14.12.1993, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993 43 Fornleifafundurinn í Yíðgelmi í Hallmundarhrauni Sörvisgerlur frá fyrstu öldum Islandsbyggðar TALIÐ ER líklegt að sörvisperlurnar sem fundust í hellinum Víðgelmi séu frá víkingaöld. Einhver eða einhveijir virðast hafa haft skamma dvöl í hellinum og týnt perlunum. Hjá eld- stæði í hellinum fundust einnig stórgripabein, pyngja og jaspis- brot. Beinin eða viðarkol úr eldstæðinu verða send úr landi til aldursgeiningar innan skamms. Að sögn Guðmundar Ólafssonar fornminjavarðar virðast perlurnar sem fundust í hellinum Víðgelmi vera frá víkingaöld og gætu verið frá fyrstu öldum íslandsbyggðar. Perlumar fundust hjá eldstæði á syllu spölkorn innan við hellismun- ann en hjá eldstæðinu fundust einnig bein og pyngja. Guðmundur sagði að fyrsta skrefið yrði að fá Sigurð Sigurðar- son dýralækni til að skera úr um af hvaða skepnu eða skepnum beinin væru. Viðarkol úr eldstæð- inu eða beinin yrðu síðan send úr landi til aldursgreiningar en hún tæki nokkurn tíma. Jaspisbrot Guðmundur sagði að þó hellir- inn Víðgelmir væri fjarri alfaraleið væri hann ekki mjög fjarri fornum leiðum. Hann taldi líklegt að sá eða þeir sem höfðu viðdvöl í hellin- um og töpuðu perlunum hafi leitað þar skjóls um skamman tíma og hugsanlega verið að fela sig. Hann sagði að eldstæðið benti ekki til langrar vistar og þama virtust ekki vera aðrar mannvistarleifar. Hann sagði að jaspisbrot, sem fundust við eldstæðið, hafi hugs- anlega verið notuð til að tendra eld. Verðmætar perlur Guðmundur sagði að hann teldi líklegast að sörvisperlurnar hafi týnst í myrkum hellinum. Svo virt- ist sem festin hefði slitnað og perl- urnar tvístrast, sumar lent í eldin- um en nokkrar í gjótu skammt frá. Hann sagði að perlur sem þessar hafí verið verðmætar á sinni tíð. Sörvi þýðir festi eða men og kemur fyrir í fomsögum. Perlur sem þessar hafa því verið nefndar sörvisperlur. Þörf á meiri rannsóknum Guðmundur sagði þörf á því að rannsaka Víðgelmi betur og leita þar með góðri lýsingu. Hann sagði að rafhlöðumar entust skammt við nákvæma leit og hefur hug á að rannsaka hellinn með betri búnaði í vor. Morgunblaðið/Þorkell Sörvisperlur og jaspisbrot SÖRVISPERLURNAR sem fundust í Víðgelmi eru sitt af hvoru tagi og engin þeirra eins. Guðmundur Ólafsson segir að allar séu úr gleri nema ein sem gæti verið úr öðru efni. Til vinstri á myndinni eru tvö jaspisbrot og brotin sölvisperla er við hliðina á peningnum. Sj ómannafélögin á Vest- fjörðum boða ekki verkfaU ÚTLIT er fyrir að vinnustöðvun verði eftir áramót hjá öllum fiskiskipa- flotanum nema á Vestfjörðum. Skipstjóra- og stýrimannafélagið Bylgj- an hefur fellt tillögu um verkfall með 30 atkvæðum gegn 12 og sjó- mannafélög á Vestfjörðum hafa enn ekki boðað verkfall. Að sögn Gísla Skarphéðinssonar, formanns Bylgjunnar, er megin- ástæða þess að verkfalli var hafnað sú að kvótabrask og framhjátaka er ekki eins áberandi á Vestfjörðum og t.d. á Suðurnesjum. Hann sagði að sjómannafélög á Vestfjörðum væru heldur ekki enn farin að hugsa sér til heyfíngs í málinu og hefði yfir- mönnum sjálfsagt þótt djarfur leikur að stuðla einir að allsheijarverkfalli. Gísli sagði að Bylgjan myndi sýna samstöðu við önnur sjómannafélög ef til verkfalls kæmi. Sjómannasamband íslands og Far- manna- og fískimannasamband Is- lands boðuðu á föstudag til verkfalls undir- og yfírmanna á fískiskipum frá og með miðnætti 1. janúar. Er krafíst samninga um 14 nýjar veiði- greinar, að þátttaka sjómanna í kvó- takaupum verði stöðvuð og að tryggð verði eðlileg viðskipti með sjávarafla, Auk þess er krafíst lagfæringa á kjarasamningum. AF INNLENDUM VETTVANGI ÓMAR FRIÐRIKSSON 10,6 niilljarða skattahækk- un seinustu ríkissljórnar MIKLAR umræður hafa átt sér stað um skattamál á Alþingi að undanförnu vegna þeirra tilfærslna og skattalagabreytinga sem ríkisstjórnin vinnur að. Athygli hafa vakið ummæli Friðriks Sop- hussonar fjármálaráðherra við umræður um bandormsfrumvarp- ið svokallaða, um breytingar í skattamálum, að síðasta ríkisstjórn hafi hækkað skatta að raungildi um rúmlega tíu milþ'arða króna á tímabilinu 1989-1991. Sljórnarandstæðingar hafa ekki mótmælt þessum útreikningum í umræðum á þingi en bent á að við saman- burð á skattastefnu fyrrverandi og núverandi ríkisstjómar verði að taka hækkun þjónustugjalda og sértekna með í reikninginn, sem hafi hækkað verulega á undanförnum ámm. Samkvæmt útreikningum fjár- málaráðuneytisins á áhrifum þeirra breytinga sem gerðar voru á skattalögum í tengslum við fjárlög áranna 1989-1991 kemur í ljós að framreiknað til verðlags árið 1994 hækkuðu skattarnir um 10.650 milljónir króna á þessu tímabili. Til samanburðar hafa breytingar á skattalöggjöf núverandi ríkis- stjómar á fjárlögum 1992, 1993 og skv. fjárlagaáætluninni eins og hún er nú fyrir 1994, leitt til 1.105 millj. raunhækkunar skatta á tíma- bilinu. Raunar gera seinustu breyt- ingar í skattamálum ráð fyrir að skattar ríkissjóðs lækki að raun- gildi um tæplega 1.600 millj. króna á næsta ári. Endanlega kemur þó ekki í ljós hver niðurstaðan verður fyrr en frumvörpin hafa hlotið af- greiðslu á Alþingi, væntanlega í þessari viku. Mesta hækkunin 1989 Samkvæmt yfirliti fjármálaráðu- neytisins yfír breytingar á skatta- lögum á tímabilinu 1989-1991 kemur í ljós að stærstu skrefin í hækkun skatta voru tekin á fjárlög- um ársins 1989, fyrstu fjárlögum ríkisstjórnar Seingríms Hemanns- sonar, eða um 7,6 milljarða kr. hækkun að raungildi. Þar vega þyngst hækkanir á tekjuskatti ein- staklinga, hækkun eignarskatta, bifreiðaskatta og breikkun á vöru- gjaldsstofni. Skattabreytingar á árinu 1991 voru hins vegar tiltölu- lega litlar eða um 550 miilj. kr. hækkun. Sérfræðingar fjármálaráðuneyt- isins benda á í skýringum með þessum útreikningum að yfírlitið sýni aðeins breytingar sem hafa orðið á sjálfri skattalöggjöfinni en þar er ekki tekið tillit til veltu- eða tekjuáhrifa á hefðbundna skatt- stofna. Sýnir það áætluð tekjuáhrif af einstökum breytingum sem ákveðnar voru miðað við heilt ár, en ekki hvernig þau falla til á hvert almanaksár. Þá er ekki tekið tillit til breytinga á þjónustugjöldum og sértekjum stofnana ríkissjóðs þar sem slíkar tekjur eru ekki flokkað- ar sem skattar. I þessu yfirliti er lækkun á barnabótum og vaxtabót- um talin sem hækkun á tekjuhlið þar sem þessar bætur eru ekki færðar á gjaldahlið samkvæmt núgildandi færsluaðferð fjárlaga heldur koma þær til frádráttar á tekjuhlið. Fjármálaráðuneytið bendir þó á að í alþjóðasamanburði eru þessar greiðslur færðar á SKATTABREYTINGAR Tekjuáhrif m.v. 19891111991 heilt ár í milij. kr. á verðiagi 1994 1. FJARLÖG 1084 að teknu ttlllti Ul breytinga á árinu 7.600 1. Hækkun á tekiuskatti einstaklinga um 2,3% o.fl., nettóáhrif 1.150 2. Hækkun á tekjuskatti fyrirtækja úr 48% 150% auk breikkunar á stofni 800 3. Hækkun á eignarsköttum einstaklinga og fyrirtækja 1.070 4. Hækkun á vörugjöldum, breikkun á stofni1) 1.550 5. Hækkun á jöfnunargjaldi úr 3% i 5% 450 6. Sérstók hækkun á bifreiðagjóldum (bensíngj., þungaskattur, innflutn.gjald) 1.680 7. Ýmsar sérstakar breytingar (erlendur lántökuskattur, ATVR o.fl.) 900 II. FJAHLÖG 1000 aA teknu tilllti til braytinga á árinu 2.500 1. Hækkun á tekjuskatti einstaklinga um 2,0% o.fl., nettóáhrif 1.700 2. Lækkun stóreignaskatts -150 3. Upptaka VSK o.fl., nettó 500 - Bnittóáhrif af upptöku VSK 1.250 - Niðurfellin VSK af íslenskum bókum o.fl. -750 4. Sérstök hækkun á bifreiðagjaldi 450 III. FJÁRLÖG 1001 a8 teknu tillltl til breytinga á árinu 550 1. Breytingar á tryggingagjaldi 1.000 2. Tekjutenging barnabóta 550 3. Lækkun á tekjuskatti fyrirtækja úr 50% 145% -550 4. Lækkun jöfnunangjalds -450 HEILDARÁHRIF 1989-1991 10.650 1) Teklð helur verið tHlit tll þees að falllð var frá hluta al bteikkun vöniaialdsstofnslns i fyrri hluta ðrs 1989. HemM: FJARMALARAÐUNEYTIÐ. Efnatugsskritstota gjaldahlið enda er hér um beinar geiðslur úr ríkissjóði að ræða og að strangt til tekið ætti því að líta fram hjá þessum breytingum í yfir- liti yfír skattabreytingar. Margrét Frímannsdóttir, tal- maður minnihluta § árlaganefndar, sagði við 2. umræðu um fjárlaga- frumvarpið að upplýsingar fjár- málaráðuneytisins um að síðasta ríkisstjórn hefði hækkað skatta um rúma 10 milljarða væru áreiðan- lega réttar, svo langt sem þær næðu. Hins vegar hélt hún því fram að sértekjur og þjónustugjöld hefðu hækkað stórlega á seinustu árum. Sagði Margrét að hlutur þjónustu- gjalda hefði vaxið um 175,8% í heilbrigðisgeiranum á síðustu 5 árum. Heildarsértekjur ríkisstofn- ana hefðu aukist um 32,9% frá 1988-1992 og tekjur af seldri vöru og þjónustu hækkuðu um 69% frá 1988. Dé Longhi djúpsteikingarpottarnir með snúningslcörfunni eru byltingarkennd tækninýjung Meö hallandi körfu sem snýst meðan á steikingunni stendur: • jafnari og fljótari steiking • notar aðeins 1,2 Itr. af olíu í stað 3ja Itr. [ öðrum. • mun styttri steikingartími • 50% olíu- og orkusparnaður ________________________n ' Potturinn er lokaður meðan á steikingu stendur. Fitu- og lyktareyöandi sfur tryggja fullkomið hreinlæti. Sumar gerðir með glugga svo fylgjast megi með steíkingunni, sjálf- hreinsandi húöun og tæm- ingarslöngu til að auðvelda oiíuskipti. Hitaval 140-190°C. 20 mín. ttmarofi með hljóðmerki. I DeLonghi i FALLEGUR, FLJÓTUR 0G FYRIRFERÐARLÍTILL Verð aðeins frá kr, 11.690 stgr. TILVALIN JÓLAGJÖF TIL SÆLKERA /FOnix HÁTÚNI4A SlMI (91)24420
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.