Morgunblaðið - 06.02.1994, Side 18

Morgunblaðið - 06.02.1994, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1994 Áhrif velferðarþjóðfélagsins á vinnulöngun og framleiðni Áhrifin virðast lítil en umhugsunarverð UNDANFARNA þrjá áratugi hafa skattar og skyldur, en um leið ýmiss konar félagslegar greiðslur, vaxið hröðum skrefum í Norður-Evrópu. Ekki er lengur barist fyrir að koma á velferðarþjóðféiagi á þessum slóð- um, heldur stendur baráttan um að haida í það og þá um hvað eigi að hafa forgang. í því sambandi skiptir máli að gera sér grein fyrir hver áhrif velferðarkerfið hefur haft á til dæmis vinnulöngun fóiks og hvort háir skattar og félagslegar greiðslur hafi dregið úr löngun fólks til að vinna. Nýlegar danskar rannsóknir í þessa veru sýna að í mjög afmörkuð- um tilvikum virðist veiferðarkerfið draga úr vinnulöngun fólks, en ann- ars virðist hún stjórnast af öðrum þáttum en sköttum og félagslegum greiðslum. VELFERÐARKERFINU hefur verið líkt við leka fötu, þar sem töluvert af því, sem ausið er í hana, fer til spiliis, eða með öðrum orðum að velferðarþjóðféiagið kosti meira en það aflar. Spurningin er hvort það dugi til iengdar að setja undir lekann, eða hvort þurfi að smíða nýja fötu. Teikning úr danska dagblaðinu Berl- ingske Tidende. Rannsóknarhópur sem starfar á vegum Rockwool-sjóðsins innan veggja dönsku hagstofunnar hefur einbeitt sér að rannsóknum á ofangreindu efni, með þátttöku fræðimanna frá Svíþjóð, Bretlandi og Þýskalandi og með efni þaðan. Rannsóknarhópurinn starfar undir forystu Gunnars Vibys Mogensens, en þessi rannsókn er gerð undir forystu A.B. Atkinsons prófessors við háskólann í Cambridge. Skattar — illnauðsynleg blessun Velferðarkerfínu hefur verið líkt við leka fötu, þar sem töluvert af því, sem ausið er í hana, fer til spillis, eða með öðrum orðum að velferðarþjóðfélagið kosti meira en það aflar. Niðurstöður rannsóknar- hóps Atkinsons benda til þess að í velferðarþjóð- félaginu séu þættir, sem dragi úr vinnu- afköstum. Þegar til lengdar lætur getur það haft áhrif á efnahagsleg áhrif velferðarkerfisins. En hópur- inn bendir einnig á að mælanleg áhrif skatta á vinnulöngun fólks í áðurnefndum fjórum löndum virð- ist almennt lítil, þannig að almennt virðist ekki vera að fólk myndi vinna meira, þó skattar væru lægri. Undantekning frá þessu er þó at- vinnuþátttaka kvenna, sem virðist nokkuð undir sköttum komin. Sænskar tölur gefa tilefni til að álíta að þar í landi myndi vinnutím- um kvenna fjölga um tíu prósent, ef nettólaun þeirra vegna lækkaðra skatta hækkuðu um tíu prósent. Þessi tilhneiging á við um konur, sem eiga maka eða með öðrum orðum þar sem konan er önnur af tveimur fyrirvinnum heimilisins. Þó háir skattar hafi ekki áber- andi aimenn áhrif á vinnulöngun, þá leiða þeir þó til þess að einstök verk falla alveg út, þegar þau eru sköttuð. Þetta á fyrst og fremst við um hvers kyns aukavinnu, sem ekki verður arðbær, sé hún skött- uð. Þar kemur þá að þeim geira í þjóðfélaginu, sem alltaf dregur að sér athyglina í sambandi við skatt- kerfisbreytingar, en það er neðan- jarðarhagkerfíð og umfang þess. En um leið er erfítt að meta ná- kvæmlega áhrif hárra skatta, því þó skattar lækki um nokkur pró- sent, þá er ekki þar með sagt að sú lækkun skili sér í að meira af þessari svörtu vinnu komi upp á yfírborðið. Þegar óframtalin vinna er orðin vani, þarf meira til en nokkurra prósenta skattalækkun til að hún skili sér. Meðan sá sem kaupir verkið fær enga umbun fyrir að gefa verkið upp, er sennilegt að hann sjái hag sinn í að fá verkið fyrir lægra verð óuppgefíð. I Dan- mörku hafa verið teknar upp greiðslur til dæmis til húseigenda fyrir viðgerðir og viðhald, til að hvetja þá til að gefa slíka vinnu upp. í Svíþjóð hefur verið farin sú leið, sem bæði virðist einfaldari og áhrifameiii, að boðið er upp á skatt- afrádrátt fyrir þann sem kaupir vinnuna. Annað atriði, sem getur ruglað umræðu um áhrif hárra skatta, er að gjarnan er bent á að í landi eins og Ítalíu, þar sem skattar eru aðeins milli tuttugu og þrjátíu prósent, sé mik- ið um skattsvik, svo þar hjálpi lág- ir skattar ekki. En þessi saman- burður við lönd eins og Danmörku eða Svíþjóð er skakkur, því afstað- an til ríkisvaldsins er svo allt önnur í þessum löndum. ítalir vantreysta ríkisvaldinu og skattsvik þar eru því til marks um andstöðu gegn því að láta það innheimta og deila út, meðan Danir og Svíar virðast almennt sáttir við þessa grundvall- arreglu velferðarþjóðfélagsins, þó þeir geti kvartað yfir sínum eigin sköttum. Áhrif millifærslutekna Vaxandi hluti af tekjum velferð- arþjóðfélagsins fer í að halda þegn- unum uppi að hluta eða öllu leyti. I landi eins og Danmörku, þar sem atvinnulausir eru um tólf prósent af vinnufæru fólki, eru álíka marg- ir á eftirlaunum fyrir aldur fram og nokkur prósent í viðbót eru í vinnu, sem að hluta eða öllu leyti er greidd af því opinbera með skatt- tekjum. Oft heyrist að beinar greiðslur dragi úr vinnulöngun og um leið úr afköstum, þar sem fólk sjái sér ekki hag í að vinna fyrir tekjum, sem það geti fengið frá hinu opinbera án vinnu. Rannsóknirnar benda til þess að höfuðmáli skipti, hvers konar greiðslur er um að ræða, hvort það eru barnabætur, sjúkradagpening- ar, húsaleiguaðstoð, atvinnuleysis- bætur eða greiðslur fyrir frekari menntun í tengslum við ákveðin störf. Á þessu sviði er nokkur munur hvemig löndin fjögur hátta þessum greiðslum. Til dæmis hafa Svíar og Danir farið gjörólíkar leið- ir varðandi atvinnuleysisaðstoð. Danir hafa greitt þær út sem bæt- ur til atvinnulausra. Svíar hafa hert mjög kröfur um að bætumar séu notaðar til að halda fólki í vinnu, þannig að fólk fær ekki að velja um að vinna eða vinna ekki, heldur verður að taka vinnu, sem er greidd með því að nota bætum- ar til að halda því í vinnu. Aukning atvinnulausra í Svíþjóð undanfarið stafar meðal annars af þvi að stjórnin hefur ákveðið að hætta að hluta að halda fólki í vinnu með styrkjum og bótum, en reyna þess í stað að styrkja at- vinnulífíð, svo hægt sé að ráða fólk með eðlilegum hætti. Sænsku hagfræðingamir í hópnum benda á að í stað þess að velja annaðhvort að greiða bætur eða nota þær til að halda fólki í vinnu, sé skynsam- legra að velja út þá hópa, sem tví- mælalaust borgi sig að halda í vinnu, eins og til dæmis ungt fólk, sem annars eigi á hættu að flosna upp og ná aldrei fótfestu í þjóðfé- laginu, eða innflytjendur, sem ella einangrast í eigin hópum, méðan bætur megi nota handa öðrum hóp- um, til dæmis eldra fólki, sem hef- ur haft vinnu frá því það var ungt. Þessar niðurstöður eru ekki síst athyglisverðar í Ijósi þess að sýnt þykir að félagsleg upplausn eigi meðal annars upptök í umhverfí, þar sem börn hafa alist upp með atvinnulausum foreldrum, sem varla hafa nokkum tímann haft fasta vinnu. Félagslegar greiðslur er snerta börn og bamafjölskyldur virðast almennt stuðla að minni atvinnu- þátttöku bæði kvenna og karla. Sænskar rannsóknir sýna að í Sví- þjóð, þar sem slíkar greiðslur eru háar, vinna konur með þriggja ára börn og yngri að jafnaði þrettán klukkustundum skemur en bam- lausar konur og feðumir sex stund- um skemur en bamslausir karl- menn. í Svíþjóð hafa einnig verið mjög ríflegir sjúkradagpeningar, sem sýnt þykir að dregið hafí úr vinnuafköstum, en þeim reglum er nú verið að breyta. Þó alls kyns félagslegar greiðsl- ur virðist að jafnaði ekki draga úr vinnuafköstum, þá eru þó afmark- aðir hópar í þjóðfélaginu sem greinilega missa vinnulöngum vegna þeirra og eins löngun til að vinna meira í von um að afla meira. Þetta eru hópar, sem vegna sam- spils félagslegra greiðslna af ýmsu tagi og skatta hafna í því sem kallað hefur verið „fátækragildr- an“. Hér má taka sem dæmi ein- stæða móður, sem vinnur við pen- ingakassa í stórmarkaði. Auk kaupsins fær hún kannski hú- sleigustyrk, sem er háður tekjum. Ef henni býðst að vinna meira, eða kaupið hækkar, getur hún átt á hættu að missa styrkinn og um leið lækka ráðstöfunartekjur henn- ar hugsanlega meir en kauphækk- uninni nemur. Mörg dæmi eru um hvernig þetta samspil styrkja- og skattakerfísins getur gert að verk- um að fólk er betur komið með styrkina og minni eða enga vinnu. Hins vegar er „fátækragildran" afmörkuð við fáa og tekjulága hópa, en því miður verður ekki á móti mælt að vegna þessa sam- spils skatta- og styrkjakerfísins eru þessir hópar læstir fastir og hafa engan efnahagslegan ávinning af vinnu. Niðurstaða hópsins er að varla sé ráðlegt að leggja niður velferðar- kerfið og þar með háa skatta, því jákvæð áhrif kerfísins séu ómót- mælanlega meiri og óvíst hver efnahagslegur ávinningur yrði af því. Atkinson bendir fremur á að vitneskjan sé ekki nóg, en um leið séu niðurstöðurnar ekki í samræmi við það sem oft sé haldið á lofti að velferðarkerfíð hafí dregið stór- felldlega úr vinnuafköstum. Gildi hagfræðilegra rannsókna liggur fremur í því að hvetja til varkárni vegna takmarkaðrar þekkingar, en í að fínna pólitískar lausnir. Af hveiju vinnur fólk? Rannsókn á vegum Rockwool- sjóðsins, gerð af Lisbeth Pedersen og Niels Ploug í Danmörku, bendir til þess að fólk vinni ekki aðeins vegna peninganna, heldur til að gefa lífi sínu tilgang og til að finna sér fótfestu í þjóðfélaginu. Rann- sóknin bendir einnig til þess að þó tilhneiging hafí verið til að sækjast fremur eftir fríum en launum, til dæmis fyrir aukavinnu, og þó vel- férðarþjóðfélagið hafí að einhveiju leyti dregið úr vinnulöngun fólks, þá hafí vaxandi atvinnuleysi skerpt hana. Það virðist vera meira metn- aðarmál að hafa vinnu nú en áður. Fólk leggur mikið upp úr því að vinnan sá áhugaverð og þroskandi, að vinnufélagamir séu geðfelldir og að tiygging felist í ráðningunni. Bæði karlmenn og kvenfólk meta launin mikils, karlar þó heldur meira en kvenfólk, sem leggur hins vegar meira upp úr umhverfí og anda á vinnustaðnum en karlmenn. En rannsóknimar sýna einnig að erfítt er að meta bein áhrif vel- ferðarkerfisins, meðal annars vegna þess að samanburðarrann- sóknir vanti frá því áður en það komst á legg. í umræðum innan EB um hvað sé til ráða til að efla atvinnulíf þar og um leið draga úr atvinnuleysi, hefur verið bent á að framleiðni og afköst í Evrópu séu of lág, miðað við aðra heimshluta. í þessu sambandi er eftirtektarvert að Evrópa er einmitt sá heims- hluti, þar sem velmegunin er einna mest og velferðarkerfið einna best. Enginn vafi er á að það hefur auk- ið hagsæld einstaklinganna, um leið og hagsæld þessara landa. Spurningin er hvort það dugi til lengdar að setja undir lekann, eða hvort þurfi að smíða nýja fötu ... BAKSVIÐ Sigrún Davídsdóttir skrifar frá Kaupmannahöfn ■ % *• s i s

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.