Morgunblaðið - 06.02.1994, Page 48

Morgunblaðið - 06.02.1994, Page 48
varða i Landsbanki íslands MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3010/ AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK. Á KYRRUM VETRARMORGNI Átök um skipun Steingríms Hermannssonar í stól Seðlabankastj óra Formaður bankaráðs seg- ir af sér verði sú niðurstaða PÓLITÍSK og fagleg átök eru hafin innan bankaráðs Seðlabanka íslands og utan þess um með hvaða hætti skipa eigi í tvær stöð- ur Seðlabankastjóra sem auglýstar hafa verið lausar til umsókn- ar, en umsóknarfrestur rennur út 4. mars næstkomandi. Sighvat- ur Björgvinsson viðskiptaráðherra er reiðubúinn að skipa Stein- grím Hermannsson, formann Framsóknarflokksins, í aðra stöðuna sæki hann um hana, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, svo fremi Steingrímur hljóti stuðning fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í bankaráðinu. Sveinbjörn Björnsson háskólarektor Hætta á að náms- menn flendist ytra Með þessu móti telur viðskipta- ráðherra að stjórnarflokkamir taki ákvörðun um skipun Stein- gríms í sameiningu jafnvel þótt Agúst Einarsson, formaður bankaráðsins og ftilltrúi Alþýðu- flokksins, sé staðráðinn í að segja af sér, verði Steingrímur skipað- ur. Bankaráðsmenn víkja sæti Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins hefur Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagt Steingrími að Sjálfstæðis- flokkurinn vilji styðja hann í seðla- bankastjórastöðu. Sjálfstæðis- flokkurinn á tvo fulltrúa í banka- ráðinu og er ekki víst að þeir muni styðja Steingrím. Allt eins má búast við að að minnsta kosti annar þeirra víki sæti og að vara- menn tækju afstöðu til umsóknar Steingríms. Steingrímur Hermannsson mun ekki sækja um stöðuna nema stað- fest sé að hann hljóti atkvæði sjálfstæðismanna í bankaráði Seðlabankans, samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins. Sjá bls. 16-17, „Suðupunktur í Seðlabanka . . .“ RÚV vill nýta mastur lóranstöðvarinnar að Gufuskálum ÍSLENSK stjórnvöld vörðu 5,4% af vergri landsframleiðslu til fræðslumála á árinu 1992 á sama tíma og Norðmenn og Danir vörðu 6,9% af vergri landsframleiðslu til sama mála- flokks. Til að jafna þennan mun þyrftu útgjöld hins opinbera til fræðslumála á íslandi að aukast um sex milljarða króna, úr rúmum 20 milljörðum. Þetta kom meðal annars fram í ræðu Sveinbjörns Björnssonar háskólarektors við brautskrán- ingu kandídata í gær, laugardag. Rektor rakti í ræðu sinni þær breytingar sem orðið hafa í ís- lensku efnahagslífí að undan- fömu. Verðbólga sé horfín og með henni mörg fyrirtæki sem ekki hafí reynst hagkvæm við breyttar aðstæður og samn- ingurinn um Evrópskt efna- hagssvæði muni hafa djúptæk áhrif á íslenskt þjóðfélag. Námsmenn hafí sótt menntun í marga bestu skóla erlendis. Þeir hafi flutt með sér heim nýja þekkingu og flestir hafí fundið störf við sitt hæfí. Nú séu teikn um að breyting sé í aðsigi. Erf- itt atvinnuástand hafa takmark- að tækifæri til að nýta þekkingu þeirra sem vilji koma heim til starfa og þar með sé þeirri hættu boðið heim, að þetta fólk ílendist í öðrum löndum, sem kunni betur að nýta sér þekk- ingu þess sér til framdráttar. „A það fyrir okkur að liggja að verða útkjálki Evrópu, sem sér henni fyrir ungu menntafólki, hráefni til matvælaiðnaðar og orku uni sæstrengi? Tii þess að svo fari ekki, verðum við að huga betur að menntamálurp okkar og þeim atvinnutækifær- um, sem við getum boðið vel menntuðu ungu fólki. Vandinn er í því fólginn að frumatvinnu- greinar okkar hafa mjög tak- markaða þörf fyrir háskóla- menntað fólk. Við verðum að fínna ný viðfangsefni, sem vissulega byggja á grunni eða hráefni frumatvinnuveganna, en skapa aukin verðmæti með nýrri þekkingu, hugviti og starfsfærni.“ Sjá bls. 39, „112 háskóla- kandídatar . . .“ Nýtíng mastíirsins gætí sparað hálfan milljarð Heimamenn ræda við ráðherra um nýtingu annarra eigna EF MASTUR lóranstöðvarinnar að Gufuskálum, sem verður lögð niður um næstu áramót, verður nýtt fyrir langbylgjusendingar Ríkisútvarpsins gæti stofnunin sparað hundruð milljóna, miðað við uppsetningu á nýju mastri. Kostnaður við að koma langbylgju- sendingum á frá Gufuskálum er áætlaður 365 milljónir króna, en árið 1991 var áætlað að nýtt mastur og sendir myndi kosta um 800 milljónir. Þá hafa heimamenn áhuga á að nýta húsakost stöðv- arinnar, en þar er m.a. að finna 22 íbúðir. Eyjólfur Valdimarsson, fram- kvæmdastjóri tæknideildar RÚV, segir að rætt hafi verið við mennta- málaráðherra um möguleika á fjár- mögnun, svo hefja megi langbylgju- sendingar frá Gufuskálum. „Fyrsta áætlun gerir ráð fyrir að stofn- kostnaður yrði 365 milljónir króna og rekstrarkostnaður 40 milljónir á ári,“ segir hann. „Þegar gerð var áætlun um að koma upp langbylgju- sendi og mastri í Flóa, eftir að mastur okkar á Vatnsendahæð eyðilagðist í óveðri fyrir þremur árum, nam sú áætlun 800 milljónum króna á verðlagi 1991. Við teljum því mjög vænlegan kost að nýta þetta mastur.“ Fleiri en RÚV hafa áhuga á að nýta þann búnað og húsakost sem tilheyrir nú lóranstöðinni. Auk 22 íbúða í blokkum og raðhúsum er að finna þar rafstöð, sendistöð og stjórnstöð, auk olíugeyma og fjög- urra stórra díselrafstöðva. Ef RÚV tæki við mastrinu þyrfti stofnunin aðeins á húsnæði sendistöðvarinnar að halda. Heimamenn á Snæfells- nesi hafa rætt möguleika um ein- hveija nýtingu annarra eigna við utanríkisráðherra, en Gunnar Már Kristófersson, sveitarstjóri Nes- hrepps utan Ennis, segir að hug- myndir þessar séu ekki fastmótað- ar. Þó hefur verið rætt um að dísel- rafstöðvamar gætu nýst sem vara- aflstöðvar fyrir utanvert Snæfells- nes. Gunnar Már sagði að honum hefði skilist á fundinum með utan- ríkisráðherra að þessar eignir ættu allar að hverfa. Sjá bls. 6, „Verður húsakost- ur...“ Varaaflstöð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.