Morgunblaðið - 20.04.1994, Side 56
ttrgtmÞIiiftffr
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJA VÍK
SlMl 091100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
Heiláhúfi
Sigrún Bára Eggertsdóttir með börnin í heimsókn hjá manni sínum Rúnari Gunnarssyni á Sjúkrahúsi Suðurlands í gærkvöldi. Frá
vinstri: Brynja Olafsdóttir átta ára Amór Ólafsson sex ára. Bjarki Rúnar, þriggja mánaða, er í fangi Rúnars föður síns.
*
Ibúar björguðust naumlega er Svínhagi á Rangárvöllum brann til ösku
„Eg hugsaði um það eitt að
komast út með drengina“
Selfossi.
„ÉG SA reykinn þegar Arnór sagði frá eldinum. Þá greip ég
þann litla í sænginni og hljóp af stað með Arnór með mér,“ sagði
Sigrún Bára Eggertsdóttir, Svínhaga á Rangárvöllum, sem bjarg-
aðist naumlega út úr brennandi húsi sínu ásamt tveimur sonum
sínum, Arnóri sex ára og Bjarka þriggja mánaða. Skömmu eftjr
að hún hljóp af stað með börnin út úr húsinu varð sprenging
fyrir aftan hana en hana sakaði ekki. Húsið brann til kaldra kola
á skömmum tíma en mjög hvasst var á Rangárvöllunum í gær.
Arnór, sonur Sigrúnar Báru, eftir herbergisganginum, framhjá
varð var við eldinn í andyri húss-
ins. Hann sagði móður sinni frá
honum en þau voru ein inni í
húsinu. Snör viðbrögð móðurinnar
komu í veg fyrir að þau lokuðust
inni. „Ég var inni í húsinu með
drengina að gefa þeim litla. Þá
kom Arnór og sagði að það væri
kviknað í. Ég hljóp með Arnóri
stofunni og þvert í gegnum húsið,
inn í eldhús. Þar opnaði ég
gluggann og kallaði á Rúnar.
Hann var þá að reyna að komast
inn um aðaldyrnar. Hann kom svo
og hjálpaði okkur út um
gluggann.
Þegar ég var komin inn í mitt
húsið varð sprenging fyrir aftan
mig og húsið varð alelda á
skömmum tíma. Ég hugsaði um
það eitt að komast út með dreng-
ina mína, hefði ég hugsað eitthvað
á leiðinni hefði ég sjálfsagt tekið
veskið með mér en í því voru 100
þúsund krónur. En það er fyrir
öllu að við sluppum út,“ sagði
Sigrún Bára Eggertsdóttir í Svín-
haga.
Rúnar Gunnarsson, maður Sig-
rúnar Báru, var útivið og sá reyk
koma með útihurðinni. „Ég opn-
aði hurðina og um leið og ég kom
inn varð dynkur og eldur allt í
kringum mig. Þegar ég svo heyrði
til hennar þá snéri ég við og hljóp
út aftur og að eldhúsglugganum
enda var alveg vonlaust að fara
inn en skömmu seinna heyrðist
annar dynkur," sagði Rúnar.
Hann sviðnaði á höfði en slapp
að öðru leyti ómeiddur. Þau hjón-
in fóru síðan beint út í bíl og óku
að Selsundi þaðan sem hringt var
á slökkvilið. Rúnar fór síðan á
Sjúkrahús Suðurlands þar sem
grunur lék á að hann hefði fengið
reykeitrun.
Dóttir Sigrúnar Báru, Brynja,
átta ára, var veðurteppt á næsta
bæ en mikið rok var á Rangárvöll-
unum í gær og mikill sandbylur.
Sandurinn rauk eins og um skaf-
renning væri að ræða.
Sig. Jóns.
Verkefna
leitað í
Víetnam
ÍSLENSKIR aðilar í samvinnu við
bandarískan og víetnamskan aðila
eru nú að leita fyrir sér með verk-
efni við uppbyggingu sem fyrir-
huguð er á ýmsum sviðum í Víet-
nam. Það eru Verkfræðistofan
Ferill, Almenna verkfræðistofan,
Islenskir aðalverktakar, Haukur
Harðarson arkitekt og bandarísk-
ur og víetnamskur arkitekt sem
að verkefnaleitinni standa. Að
sögn Gunnars Scheving Thor-
steinssonar verkfræðings hjá
Ferli er ýmsum erfiðleikum háð
að komast í verk í Víetnam.
„Við fórum þarna út til að reyna
fyrir okkur og leita að verkefnum,
en þetta er enn of skammt á veg
komið til þess að einhver afmörkuð
verkefni séu í sigtinu. Það hefur
verið Víetnami á okkar vegum þarna
úti frá því í desember og komist í
samband við ýmsar stofnanir, fyrir-
tæki og aðra aðila. Það var svo kom-
ið að við urðum að sýna að eitthvað
annað væri á bakvið en orðin tóm
og þess vegna fórum við út,“ sagði
Gunnar. Hann sagði að Víetnaminn
myndi nú leita að einhverjum af-
mörkuðum verkefnum og koma hing-
að í lok maí með afraksturinn.
„Okkur sýnist Víetnam áhugavert
land, en þarna á eftir að gera gífur-
lega mikið. Víetnamar eru þó klókir
í viðskiptum og ætla sér ekki að
gefa eitt eða neitt,“ sagði Gunnar.
---------♦ ♦ ♦---
Samið um
debetkort
BANKAR og sparisjóðir hafa náð
samningum við Kaupmannasam-
tökin og samstarfsaðila þeirra um
skiptingu kostnaðar við debet-
kortaviðskipti. Samkvæmt honum
verða þjónustugjöld 0,2%-0,8% af
debetkortaveltu í stað 0,3%-l,2%
eins og verið hefur.
Lágmarksgjald verður 6 kr. á
hverja færslu eins og áður en há-
marksgjald 110 kr. sem er lækkun
um 10 kr.. Leiga fyrir afnot beinlínu-
tengdra kortavéla lækkar úr 2.250
kr. í 1.750 kr. á mánuði.
Sjá bls. 23.
7 þúsund
án vinnu
ATVINNULEYSI í mars-
mánuði var 6,3% og jókst um
0,3 prósentustig miðað við
mánuðinn á undan. Þetta
jafngildir því að 7.870 manns
hafi að meðaltali verið án
vinnu í mánuðinum, 4.007
karlar og 3.863 konur.
Atvinnuleysi jókst á höfuð-
borgarsvæðinu og Vestfjörð-
um, en minnkaði umtalsvert á
Suðurnesjum og Austurlandi.
Vinnumálaskrifstofa félags-
málaráðuneytisins gerir ekki
ráð fyrir að mikið dragi úr at-
vinnuleysi í þessum mánuði og
spáir því að atvinnuleysi í mán-
uðinum verði 5,5-6% eða að
um sjö þúsund manns verði án
atvinnu í aprílmánuði.
Sjá nánar á bls. 18.
L
Sjóvá-Almennar á 1,6 milljarða króna í öðrum hlutafélögum
Raunávöxtun hlutabréfaeign-
ar neikvæð um 2,8% 1991-1993
HLUTABRÉFAEIGN Sjóvár-AImennra í öðrum félögum var í árslok
1992 sögð í ársreikningi vera 1,14 milljarða króna virði á bókfærðu
verði, en 1,48 milljarða á markaðsverði og 1,39 milljarða króna virði
á bókfærðu verði í árslok 1993, en 1,61 milljarðs króna virði á markaðs-
verði. Heildarraunávöxtun hlutafjáreignar árin 1991 til og með 1993
þjá Sjóvá-AImennum er neikvæð um 2,8% og meðalraunávöxtun hluta-
fjáreignarinnar er neikvæð um 0,9% á ári þessi þijú ár.
Raunávöxtun hluthafa Sjóvár-
Almennra á sl. ári var mjög góð, því
hún reyndist vera 69,5%, en árið
1992 var hún neikvæð um 14,7% og
árið 1991 var hún neikvæð um
14,6%. Meðalraunávöxtun hluthafa á
ári, frá 1.1. 1991 til ársloka 1993
er því jákvæð um 7,3%. Hreinar fjár-
munatekjur Sjóvár-Almennra námu
743 milljónum króna á liðnu ári, og
hækkuðu um 34% á milli ára.
Afkoma félagsins árið 1993 fyrir
fjármunatekjur og fjármagnsgjöld
versnaði um 231 milljón króna frá
árinu 1992 og reyndist vera neikvæð
um 449 milljónir króna, miðað við
-218 milljónir króna, árið 1992, fyrir
hreinar fjármunatekjur, sem voru
555 milljónir árið 1992.
Einar Sveinsson, framkvæmda-
stjóri Sjóvár-Almennra, sagði m.a. í
samtali við Morgunblaðið í gær: „Það
hefur verið tap á vátryggingarekstr-
inum sem slíkum, þ.e.a.s. þegar tjón
og umboðslaun eru jöfnuð út á móti
iðgjöldum. Rekstrarkostnaður hefur
verið borinn uppi af fjármunatekj-
um.“
Þar sem raunvextir hafa að und-
anförnu farið lækkandi og búast má
við frekari vaxtalækkunum, munu
tekjumöguleikar tryggingafélaga af
hreinum fjármunatekjum væntan-
lega minnka.
Ákveðnari afstaða
Um það segir Einar: „Til þess að
við getum mætt minni fjármunatekj-
um, þá þurfum við að draga úr kostn-
aði og það höfum við verið að gera.
Og það sem er enn mikilvægara, er
að við höfum verið að reyna að draga
úr tjónakostnaði. Það gerum við með
því að fara betur ofan í trygginga-
stofna félagsins og taka ákveðnari
afstöðu til þess, hvernig menn verð-
leggja einstakar tryggingar miðað
við áhættu og að hafna þeim áhættu-
þáttum sem eru slíkir, að þeir eru
ekki tækir í tryggingu."
Sjá ennfremur Af innlendum
vettvangi: „Allur hagnaður Sjó-
vár-Almennra af fjármunatekj-
um“ á miðopnu..