Morgunblaðið - 03.05.1994, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 03.05.1994, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAI 1994 43 Sigurður Valur Hall dórsson — Minning• Þó bijóstið hylji brostinn streng, bráðum minnkar tregi, þvi minningin um mætan dreng mun lifa þótt hann deyi. (H.H) Við, systkini Sigurðar Vals Hall- dórssonar, viljum með greinarkorni fá að þakka fyrir að hafa fengið að vera samferða honum í gegnum lífið. Siggi Valur, eins og við kölluð- um hann, hefur verið svo óaðskilj- anlegur þáttur í lífi okkar hinna fjögurra, að það er eins og að missa hluta af sjálfum sér, þegar hann nú hverfur, fyrstur okkar, á vit hins óþekkta. Við ætlum okkur ekki þá dul að geta fullkomlega skilið til- ganginn með brotthvarfi hans héð- an, en göngum áfram í fullvissu um að heimur hans nú er betri vegna komu hans þangað, en líf okkar hér verður fátæklegra en ella. Siggi bjó með foreldrum okkar alla tíð og var m.a. þeirra stoð og stytta, þegar þau fluttu til Brussel fyrir tveimur árum og bjuggu sér þar yndislegt heimili. Sú dvöl varð alltof stutt, þegar örlögin tóku í taumana og faðir okkar lést skyndi- lega í október í fyrra. Við vitum að það var móður okkar ómetanlegt að hafa Sigga hjá sér þá. Fyrir æðruleysi hans í þeirri miklu raun og stuðning hans í erfiðum veikind- um móður okkar, ber að þakka. Siggi var ókvæntur og barnlaus, en systkinabörn hans voru honum sem hans eigin. Við vitum einnig að Siggi var þeim annað og meira en bara frændi. Fögnuður hans yfir hverjum nýjum fjölskyldumeðlim var svo sannur, að betur gátum við ekki gert, foreldrar þeirra. Þó að fjölskyldan hafi verið horn- steinninn í lífi Sigga, var hann fé- lagslyndur og naut þess að vera að starfi og leik meðal félaga sinna í ÍR í körfuboltanum. í fótboltanum áttu Skagamenn stuðning hans all- an og hann fylgdi þeim í blíðu og stríðu. Siggi fylgdist einnig vel með þjóðmálum og var alla tíð maður frelsisins, einstaklingar skyldu hafa frelsi til athafna, en vera ábyrgir gerða sinna. Okkur systkinunum hafa verið Ijósir mannkostir Sigga alla tíð, en síðustu vikur lífs hans færðu okkur heim sanninn um hve mikið hann hefur gefið okkur og'hefði haldið áfram að gefa,. ef við hefðum feng- ið að njóta hans lengur. Æðruleysi hans í erfiðum veikinum hefur ver- ið aðdáunarvert og við vitum nú að hann hræddist ekki það ókomna, aðeins að baráttan drægist á lang- inn og hann þannig orðið öðrum til byrði. Fölskvalaus ást hans á fjöl- skyldu sinni var ómæld og nú von- um við að við höfum verið hennar verð og ef til vill endurgoldið að nokki'u. Sigrún Jóhann, Halldór og Valgerður. Mig langar í nokkrum orðum að minnast frænda míns, Sigurðar Vals Halldórssonar, sem lést að- faranótt 26. apríl, langt um aldur fram, aðeins fertugur að aldri, eftir snarpa baráttu við erfiðan sjúkdóm. Frá því að ég man eftir mér hef- ur Siggi Valur verið fastur hluti tilverunnar. Hann hefur ætíð verið til staðar. Allt frá því að hann pass- aði okkur systkinin í æsku og fram- undir andlátið var hægt að spjalla við Sigga um allt milli himins og jarðar. Oftar en ekki var þó aðal umræðuefnið íþróttir þegar við bræður hittum Sigga. í fótboltanum hefur ÍA ætíð verið okkar lið og missti Siggi varla af leik þegar Skaginn spilaði. Aðalíþrótt Sigga var þó körfuboltinn. Hann var alltaf ÍR-ingur, dæmdi lengi fyrir félagið, bæði innanlands og utan, studdi það með ráðum og dáð, og sjálfkrafa urðum við bræður einnig miklir ÍR-ingar. Það var ekki ónýtt fyrir strákgutta, sem þá sjálfur var byrj- aður að æfa körfubolta með yngri flokkum ÍR, að fá að fara með Sigga frænda á æfingu eða leik á gullald- arárum ÍR-liðsins í körfunni. Síðustu ár bjó Siggi með ömmu og afa í Brussel og ætluðu þau sér að dvelja þar í nokkur ár. En skjótt skipast veður í lofti. Hinn 27. októ- ber sl. dó Halldór afi og á þeim stutta tíma sem liðið hefur síðan hefur margt gerst. Amma og Siggi fluttu aftur heim, fyrst inn í Sól- heima, en frá áramótum bjuggu þau í Espigerði 4. Það er mikið verk að standa í búferlaflutningum milli landa og mæddi þar mest á Sigga, enda gengu flutningarnir vel. Það var mikið áfall fyrir fjöl- skyldu og vini þegar Siggi greindist með alvarlegan sjúkdóm sem á skömmum tíma dró hann til dauða. Mest er sorgin hjá ömmu, sem á einungis hálfu ári hefur misst bæði eiginmann og son. Elsku amma, mamma, Jói, Haddi og Vala. Við systkinin sendum ykk- ur okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Eftir lifir minningin um góðan frænda. Halldór V. Magnússon. Aðfaranótt þriðjudags 26. apríl sl. lést Sigurður Valur Halldórsson eftir stutt en erfið veikindi. Siggi Valur eins og við ÍR-ingar kölluðum hann oftast, var einn af okkar traustustu félögum, alltaf reiðubú- inn til að rétta hjálparhönd og allt- af vakandi yfir hagsmunum Körfu- knattleiksdeildar ÍR. Við áttum því láni að fagna að fá hann til starfa við dómgæslu fyrir ÍR og við teljum að við höllum ekki á nokkurn þó að við höldum því fram að hann hafi verið einn virtasti körfuknatt- leiksdómari landsins, á meðan hann starfaði sem slíkur, en það gerði hann um langt árabil eða þar til hann fluttist til Belgíu með foreldr- um sínum, þegar faðir hans var ráðinn til ábyrgðarstarfa þar. Siggi Valur fluttist með þeim út til að vera sjúkri móður sinni innan hand- ar, en án hans hjálpar hefði þeim hjónum verið illmögulegt að búa erlendis. Sá hörmulegi atburður gerðist að faðir Sigga lést. sviplega sl. haust og fluttist hann þá heim með móður sinni um sl. áramót. Við ÍR-ingar hugsuðum okkur gott til glóðarinar að heimta Sigga Val heim aftur og gerðum ráð fyrir að fá hann til starfa af fullum krafti á ný, enda kom það fljótlega á dag- inn að fullur vilji var hjá honum að hefjast handa á ný þar sem frá var horfið. En ekki átti það fyrir okkur að liggja að njóta samvista við Sigurð Val lengur að sinni, alla vega ekki í þessum heimi. Það var í febrúar- lok að þau válegu tíðindi bárust að Sigurður væri alvarlega veikur, hversu alvarlega vissum við ekki þá, en fljótlega varð okkur ljóst hvert stefndi. Ekki síst í Ijósi þess hversu sjúk- ur Sigurður var þótti okkur ákaf- lega vænt um að sjá hann á síðustu leikjum okkar í Seljaskóla, og þar fundum við hjá honum þann sanna keppnisanda og skildum betur þá staðreynd að leikurinn er ekki tap- aður fyrr en dómarinn flautar til leiksloka. Leiktími þinn er liðinn, Siggi Valur, og okkur ÍR-ingum finnst eins og leikurinn hafi verið flautað- ur af í hálfleik, en við dómarann deilum við ekki, allra síst þann er yfir okkur vakir og örlögum okkar ræður. Því lútum við höfði og sendum þér þakkir okkar og góðar óskir, um leið og við sendum eftirlifandi móður og systkinum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Far þú í friði. Körfuknattleiksdeild ÍR. Þau voru átta vorin sem við fögn- uðum saman í Langholtsskóla. Þeg- ar við komum nú aftur saman, ald- arfjórðungi eftir að við kvöddum skólann á holtinu, er höggvið skarð í hópinn. Siggi Valur sem lengst af gnæfði yfir okkur hin er horfinn á braut, langt um aldur fram. Heimarnir voru ungt hverfí þegar við settumst á skólabekk hjá Guð- finnu Kristjánsdóttur haustið 1961. Byggingarsvæði, skurðir og móar voru ónumin lönd fyrir smávaxna landnema. Mörg okkar voru lífleg í meira lagi, sumir hefðu sagt bald- in, en flest vorum við-ákveðin í að kanna hvaða leyndardóma lífið hafði að geyma með beinum tilraun- um ef fróðleiksfýsninni varð ekki svajað með öðrum hætti. Ágætir kennarar okkar reyndu að beina áhuga okkar að því sem uppbyggilegt mátti teljast. Það gekk misjafnlega enda var atorkan mikil og við sáumst ekki alltaf fyr- ir. En við vorum ung og grerum fljótt sára okkar. Langholtsskólinn var okkar Valhöll. Hver dagur var sem upphaf nýs lífs og ósigrar gærdagsins skiptu ekki máli. Það var sama hvort spilaður var fótbolti í forinni eða farið í víking' í Vatnagarða, Siggi fór þar fremst- ur í flokki. Uppátækin voru stund- um á mörkum hins leyfilega en þó græskulaus. Hann var haukur í homi þegar hjálpast var að með heimalærdóminn og vitjaði jafnan þeirra sem ekki komust í skólann vegna lasleika. Framkoma hans við okkur sem umgengumst hann mest einkenndist af sérstökum hlýleika og umhyggju. Siggi Valur kom víða við á þess- um árum. Hann barði húðir í skóla- lúðrasveitinni hjá Karli 0. og æfði körfu hjá Einari Ólafs. Hann hélt miklar ræður yfir okkur í smíðatím- um um landsins gagn og nauðsynj- ar og átti stóran þátt í að gefa út hið víðfræga bekkjarblað Surt. Bekkurinn okkar hélst lítið breyttur þessi átta ár á Langholt- inu. Við vissum varla hvað það var að sjá á eftir einhveijum úr hópnum því að þeir sem fluttust í önnur skólahverfi lögðu það margir hveij- ir á sig að vakna fyrr en ella á morgnana til að koma sér í gamla skólann. Siggi Valur var einn þeirra. Við horfumst nú í augu við það að bekkurinn á aldrei eftir að koma saman allur eins og hann var. Fyr- ir nokkru var ákveðið að við sem kvöddum Langholtsskólann vorið 1969 myndum hittast til að rilja upp gömul kynni. Þar verður skarð fyrir skildi því Sigurður Valur, með sína góðlátlegu glettni, mætir ekki. Leiðir hafa skilið með þeim hætti sem óhjákvæmilegt er því eitt sinn skal hver deyja. En minningin lifir og í henni verður bekkurinn okkar eilíflega óbreyttur. Við vottum móður Sigurðar og systkinum samúð okkar. Bekkjarsystkini úr Langholtsskóla. Vcnidciðcir i'itfann 'skrey 'tii igcu: Krctnscn: krosscn: /j /s ti/stei 'c ytingcn: Sími: 6812 22 t Móðir okkar og tengdamóðir, HELGA MARGRÉT MAGNÚSDÓTTIR frá Sigtúnum, Víðihlíð 4, Sauðárkróki, andaðist föstudaginn 29. apríl. Útförin ferframfrá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 6. maíkl. 14.00. Börn og tengdabörn. t Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA HJÁLMARSDÓTTIR GANDIL, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag, þriðjudag- inn 3. maí, kl. 13.30. Örn Helgason, Bjarney Kristjánsdóttir, Kristinn Sigurðsson, Hjálmar Kristinsson, ívar Örn Arnarson, Helgi Gunnar Kristinsson, Hörður Hinrik Arnarson, Jóhann Örn Kristinsson, Lúðvík Arnarson og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, GUÐRÚNARDAÐADÓTTUR Jónína Pétursdóttir, Björn E. Pétursson, Elísabet Sigurðardóttir, Valdimar M. Pétursson, Ásdís Kristjánsdóttir og barnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför eigin- konu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ELÍNAR ÞORKELSDÓTTUR, Suðurgötu 12, Keflavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Suðurnesja. Valtýr Guðjónsson, Emil Valtýsson, Gylfi ValtýssonÁslaug Bergsteinsdóttir, Guðrún Valtýsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför ÁGÚSTU GUÐLAUGSDÓTTUR, Sólvangi, Hafnarfirði, áðurtil heimilis á Frakkastíg 5, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á sjúkrahúsinu Sólvangi fyrir góða umönnun. Sveinn Bergsson, Randi Bergsson, Guðrún Guðlaugsdóttir, Þorbergur Guðlaugsson, Ólöf Guðmundsdóttir. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er auðsýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGMUNDAR KARLSSONAR, Vestmannaeyjum. Elín Sigmundsdóttir, Karl S. Sigmundsson, Ester Sigmundsdóttir, Ólafur Sigmundsson, Auður Konráðsdóttir, Svavar Sigmundsson, Heimir Konráðsson, Kristján Sigmundsson, Laufey Sigmundsdóttir, GunnarJóhannsson, Gerður Sigfúsdóttir, Jón Reynir Hilmarsson, Þórhildur Jónasdóttir, Sigurður Stefánsson, Elin Jóhannsdóttir, Eyrún Ingibjartsdóttir, Svana Ingólfsdóttir, Ólafur Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall eiginmanns míns, föð- ur okkar, tengdaföður, áfa og langafa, GUÐRÁÐS JÓHANNS GRÍMS SIGURÐSSONAR skipstjóra, Hrafnistu, Hafnarfirði. Rannveig Hjartardóttir, Ragnheiður Guðriður Guðráðsdóttir, Þorsteinn Laufkvist, Hulda Guðrún Guðráðsdóttir, Garðar Sigurðsson, Sigrún Gréta Guðráðsdóttir, Sigurjón Agústsson, Sigríður Erla Guðráðsdóttir, Jónas Blöndal, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.