Morgunblaðið - 04.05.1994, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.05.1994, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1994 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Af lifandi og lífvana orðum BOKMENNTIR Ljóðabók YRJA eftir Pétur Onund Andrésson. Skákprent, 1993 - 80 síður 1.500 kr. „HVAÐA orð eru lifandi,“ spurði Hannes Sigfússon í Vetrar- myndum úr lífi skálda og náði þar með að orða angist og spurn allra skálda. Líf skáldsins er leit að lif- andi orðum. Sum skáld þyrla upp feikn af þeim, önnur eru fámál og reyna að segja margt með fáum. Pétur Önundur Andrésson tekur síðari hópinn sér til fyrir- myndar. í ljóðinu Júnínótt reynir hann að mála orðfáa mynd af tö- frum júnínátta: Fjöll umvafin ljarlægð þöp fíðrildi í mýrarfláka ilmur úr ruðningi geislabrot í sefí. Hér er fímm mynd- brotum ætlað það hlutverk að raðast saman sem júnínótt í hugum lesenda. Að- ferðin er gamalkunn- ug, bæði hér á landi og útí hinum stóra heimi. Þannig yrkja til dæmis hækumeistarar allra tíma. Þetta er listin að draga upp stóran heim í fáum orðum. í ljóði Péturs eiga fjarlægðin í fjöll- unum, fiðrildið í mýr- arflákanum, ilmurinn úr ruðningi, geislabrot í sefinu og þögnin, að kalla fram kyrrð júnínátta í hugum lesenda. Gallinn er bara sá, að Pétur nefnir fyrirbærin of flötum nöfnum. Hann nær ekki að skapa stemmningu; orðin hans eru ekki lifandi. Það má að mörgu leyti gera Júnínótt að samnefnara þeira 42 ljóða sem eru í Yrju, fimmtu ljóðabók Péturs. Flest ljóðin eru knöpp, fáum orðum ætlað stórt hlutverk. En því miður veldur Pét- ur ekki þessu formi. Skýringin einfaldlega sú, að hann virðist ekki hafa nógu sterka tilfinningu fyrir orðunum. Mér þykir það til dæmis ekki djúpur skilningur, þegar Pétur hvað eftir annað velur orðið þögn til þess að lýsa þögninni. Eins og ekki þurfi annað en að skrifa þessa ijóra stafi, og þá rúmi pappírinn ómæli þagnarinnar. Þögn- inni er best lýst á óbeinan hátt; með því að draga upp mynd af fyrirbæri sem er þögn í sjálfu sér. En þar sem Pétur á erfitt með að ná sambandi við orðin, þá eru mynd- imar yfirleitt ómarkvissar í Yrju: „Hús í bláu myrkri/ dauðaþögn“; „í húsi/ hinnar dulúðugu borgar"; „laufvana tré/ bergmála orð þín“; „sviptu af þér slæðu/ hinna bitru drauma“. Svo er það annar hluti ljóðsins í dalnum. Þar eiga orðin fyrst að draga upp mynd af mik- illi ferð, síðan kyrrð, en sem oft áður er orðalagið of almennt, ekki nægilega hnitmiðað: „Bíll/ féð út og suður/ rykið hnígur/ þögn.“ Sem betur fer má fínna lifandi orð í Yiju: „lengra/ inn á snjó- breiðunni/ lifa enn nokkrar birtu- stundir/ þessa veiðidags." Eða: spegilslétt vatn brot við þyrstar varir Þetta eru ágætis myndir og gæti sú seinni hæglega staðið sem sjálfstætt ljóð. Eiginlega synd að Pétur skemmi hana með orðum eins og „Þögn“ og „geislabrot/ í sefi.“ En mig langar líka að birta hér seinna erindi ljóðsins Af brún- inni. Fyrsta línan er að vísu stirð en annars þessi fína hækustemmn- ing: hátt í fjalli horfír ferðalangur fram veginn reimar skóna hverfur í þokuna. Eins og síðustu þijú dæmin sýna, þá lumar Pétur Önundur á lifandi orðum. Það er hins vegar nokkuð djúpt á þeim og því er full mikið um lífvana skáldskap í Yrju. Of mikið, verður maður að segja, ef haft er í huga að hér er um fímmtu ljóðabók Péturs að ræða. Jón Stefánsson Pétur Önundur Andrésson Listaklúbbur Leikhúskjallarans Skemmti- dagskrá fyrir eldri borgara SKEMMTIDAGSKRÁ fyrir eldri borgara með mat, ljóðalestri, söng og dansi verður í Leikhúskjallaran- um á miðvikudögum í maí. I maí mun Listaklúbbur Leik- húskjallarans standa fýrir skemmtidagskrá á miðvikudags- kvöldum sem sérstaklega verður tileinkuð eldri borgurum, en allir eru velkomnir. Dagskrá þessi hef- ur fengið nafnið Já, gott áttu, veröld... Dagskráin hefst kl. 19. Herdís Þorvaldsdóttir leikkona býður gesti velkomna og les vorljóð og sögubrot að eigin vali. Að því búnu hefst borðhald. Þegar gestir hafa lokið við aðalréttinn munu Berg- þór Pálsson og Signý Sæmunds- dóttir syngja létt lög við undirleik Þóru Fríðu Sæmundsdóttur. Að borðhaldi loknu leika tveir félagar úr Félagi harmóníkuunnenda fyrir dansi. Verðið er 1.500 kr. en fyrir fé- laga í Listaklúbbi Leikhúskjallar- ans 1.300 kr. Nýjar bækur Rödd í speglunum ÚT ER komin ný ljóðabók „Rödd í speglunum" eftir Jó- hann Hjálmarsson. Þetta er fjórtánda ljóðabók skáldsins. í kynningu frá út- gefanda segir: „í bók- inni hljóma þær raddir sem menn komast ekki hjá að heyra og taka afstöðu til: rödd upprunans sem um leið er rödd ljóðsins, áleitnar raddir um- hveifis skáldsins og umheims. í flokki lausamálsljóða um Reykjavík speglast bernska og æska og hvernig hið liðna og nútíminn skipta sköpum. Þetta eru eins konar minningar í frálslegu formi, í senn glataður tími og fundinn.“ í kynningu útgefandans segir einnig að Jóhann Hjálmarsson sé löngu þekktur fyrir að fara ekki troðnar slóðir í skáldskap sínum. Sem dæmi um það megi nefna bækurnar „Myndina af langafa“ og „Frá Umsvölum“, sem markað hafí tíma- mót í þeim efnum og vakið mikla athygli þegar þær komu út. Þá hefur Jóhann sent frá sér ljóðaþýðingar og skrifað um bók- menntir, listir og menningarmál. Hann hefur verið bók- menntagagnrýnandi Morgun- blaðsins frá 1966. „Rödd í speglunum" er 59 blaðsíð- ur. Útgefandi er Hörpuútgáfan. Prentvinnslu annaðist Oddi hf. Bókin kostar 1.482 krónur. Jóhann Hjálmarsson Sinfóníuhljómsveitin annað kvöld Verk Mozarts og Brahms á sömu tónleikum Brahms EINUNGIS tvö verk verða á efnisskrá tón- leika Sinfóníuhljóm- sveitar íslands annað kvöld, 5. maí nk., þ.e. sinfónía nr. 40 í g-moll eftir Wolfgang Amad- eus Mozart og sinfónía nr. 2 eftir Johannes Brahms. Til stóð að þessum tónleikum stjómaði hinn þekkti rússneski hljómsveitar- stjóri Evgeny Svetlanov en sökum veikinda hans getur ekki orðið af því í þetta sinn. í hans stað kemur Valery Polyan- sky sem einnig er Rússi. Polyansky stundaði nám í Tónlistarháskól- anum í Moskvu m.a. undir hand- leiðslu Rozhdestvensky. Að námi loknu gerðist hann hljómsveitar- stjóri við Bolshoj-leikhúsið auk þess að stjórna helstu hljómsveit- um Rússlands og kenna við Tón- listarháskólann í Moskvu. Hin síð- ari ár hafa kraftar hans aðallega tengst „The Russian State Symph- onic Capella“ þar sem hann er nú aðalstjórnandi. í „The Russian State Symphonic Capella“ sam- eina krafta sína 60 manna Kamm- erkór rússneska ríkisins og 90 manna Sinfóníuhljómsveit menn- ingarmálaráðuneytis Rússlands, en þennan hóp stofnaði kennari og fyrirrennari Polyanskys í starfi, Gennady Rozhdestvensky, árið 1991. Polyansky er í fremstu röð rúss- neskra hljómsveitarstjóra en þá röð hafa hingað til ekki skipað neinir aukvisar. Fáar sinfóníur hafa náð eins miklum vinsældum og 40. sinfónía Mozarts. Mozart skrifaði þijár síð- ustu sinfóníur sínar sumarið 1788. Talið er að Mozart hafi þetta sumarátt í miklum fjárhagserfíð- leikum og hafí hann hugsað sér að efna til tónleika í ábataskyni þar sem þessar þijár sinfóníur væru fluttar á einum tónleikum, en þær eru mjög ólíkar að gerð, sú fertugasta tilfinningarík og allt aðþvírómantísk. ÞaðtókBrahms 5 ár að semja fyrstu sinfóníu sína en við þær góðu undirtektir sem sú sinfónía hlaut efldist honum sjálfstraust og liðu ekki nema 13 mánuðir frá því að sú fyrsta var frumflutt þar til önnur sinfónía hans leit.dagsins ljós en hún var frumflutt í árslok 1877. Sinfónían var samin á fögrum sumarleyfis- stað við Wörthersee í Ölpunum og það lýsingarorð sem hæfír henni kannske best er „sólrík". Tónleikar þessir eru síðustu tón- leikar í Gulri áskriftarröð á þessu starfsári. Hallveig Thorlacius, Þórhallur Sigurðsson, Helga Steffensen og Bryndis Gunnarsdóttir. Búkolla í Gávle BARNALEIKHÚSHÁTÍÐ var haldin í Gávle í Svíþjóð í sjöunda sinn, dagana 25.-28. apríl sl. Þar hittist leikhúsfólk frá Norður- löndunum og auk þess frá Eyst- landi og Rússlandi. Um 3.000 böm komu á sýning- amar og gátu valið milli 20 sýn- inga. Leikbrúðuland sýndi þama „Tröllaleiki“ en þar er Búkolla, Flumbra og Risinn draumlyndi. Hlaut sýningin góða dóma og þótti nýstárleg. „Það var eins og norðurljósin ljómuðu yfír Gávle sterk og lit- skrúðug," sagði gagnrýnandi Gávle-dagblaðsins um sýning- una. Lífiö er lestur ANDSPYRNUHREYFING gegn ólæsi og bóksasöfnin fagna vorkomunni með fyrir- lestrum á morgun, fímmtudag- inn 5. maí. Steinn Kárason gefur ráð um tijáklippingar, lífrænar vamir gegn meindýrum og fleiri vor- verk í Bústaðasafni, Bústaða- kirkju, kl. 20.30 og Ari Trausti Guðmundsson spjallar um land- ið, ferðalög og fleira í Bóka- safni Kópavogs, Fannborg 3-4 kl. 19.30. Aðgangur er ókeypis. Minningum ítölsku borgina HALLDÓRA Arnar listfræðing- ur mun flytja fyrirlestur á Kjar- valsstöðum sem hún nefnir „Minning um ítölsku borgina", annað kvöld kl. 20.15. Efni fyrirlestursins tengist doktorsverkefni hennar í lista- sögu við Bartlett School of Arch- itecture and Planning í London þar sem viðfangsefnið er menn- ingarsaga Ítalíu eftir seinni heimsstyijöldina með hliðsjón af staðbundnum aðstæðum og við- horfi til arkitektúrs og skipulags í tilteknum borgum, þ. á m. Mílanó, Bologna og Vicenza. I fyrirlestrinum mun Halldóra m.a. gera grein fyrir hugmynd- um sínum um ítölsku borgina og hvað það er sem gerir hana svo sérstaka og áhrifamikla í hugum fólks. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Tónlistarskólinn í Reykjavík Vortónleikar ÁRLEGIR vortónleikar nem- enda Tónlistarskóla Reykjavíkur verða í Norræna húsinu mið- vikudaginn 4. maí og hefjast kl. 20.30. Efnisskrá er fjölbreytt og verða flutt verk eftir Eugene Bozza, J.S. Bach, Ibert, Haydn, Sjostakovitsj, Copin, Kabal- cvsky, Prokofíeff, Brahms, Jón Nordal, Hafliða Hallgrímsson og Hróðmar Inga Sigurbjömsson. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.