Morgunblaðið - 31.05.1994, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 31.05.1994, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1994 15 Morgunblaðið/Björn Björnsson Guðmundur Jónbjörnsson og Eydís Armannsdóttir í hinu nýja húsnæði Pollans á Aðal- götu 15 á Sauðárkróki. Selja pizz- ur og fleira í Pollanum Sauðárkróki - Þau eru bæði tutt- ugu og tveggja ára, Eydís Ár- mannsdóttir og Guðmundur Jón- björnsson, sem nýlega keyptu Aðal- götu 15 á Sauðárkróki þar sem áður var veitingahúsið Pálmalund- ur, og fluttu þangað starfsemi Poll- ans, lítils veitingastaðar sem þau hafa rekið við Sauðárkrókshöfn í rúmt eitt og hálft ár. í Pollanum við höfnina seldu Eydís og Guðmundur pizzur og kaffi og byggðust viðskiptin mjög á heimsendingarþjónustu. Guð- mundur segist hafa unnið um nokk- urt skeið í Keflavík þar sem hann hafi lært handtökin við að búa til góða pizzu, og þar sem hér á Sauð- árkróki hefði enginn sérstakur pizzastaður verið hafi þau Eydís ákveðið að kanna hvort ekki væru líkur á að slíkur staður gæti gengið hér eins og annars staðar. Þjónusta við ferðamenn „Á gamla Pollanum byggðum við nánast eingöngu á heimsendingar- þjónustu en hérna er þetta öðru- vísi. Hér koma menn og borða sína pizzu og hér getum við einnig boð- ið upp á bjór þannig að aðsóknin er bæði öðruvísi og miklu rneiri," sagði Guðmundur. „Við stefnum einnig á það og væntanlega áður en aðalferðamannatíminn byijar í sumar að bjóða upp á pastarétti og aðra smárétti sem algengir eru á skyndibitastöðum og þannig ætlum við að auka fjölbreytnina." Eydís og Guðmundur segja að húsið bjóði upp á mikla möguleika og þau séu með margt á pijónunum sem of snemmt sé að ræða en lif- andi tónlist og uppákomur komi vel til greina. P€I lím og fúguefni T J T J' ■ ■ p xt ■! nninr nn ÍJLL'U I □ □ nz L±j □ j Stórhöfða 17, við GulUnbrú, sími 67 48 44 Húseigendur ath! MIXOLITH einangrunarmúrinn er ódýr og varanleg utanhússklæðning, t.d. á steypuskemmdir. Litaúrval Simar 91-870102/985-31560. Fax 91-870110. LANDIÐ Samlag 7 hreppa um sorphirðu Hellu - Opnuð hefur verið sorpstöð að Strönd í Rangárvallahreppi en það mun vera fyrsta stöðin á Suður- landi sem hefur starfsleyfi sam- kvæmt ákvæðum mengunarvarna- reglugerðar, ef frá er talin Sorpa. Starfsleyfi til stöðvarinnar var gefið út í ágúst 1991 en að byggða- samlaginu standa sjö hreppar, A- Landeyjahreppur, V-Landeyja- hreppur, Hvolhreppur, Rangár- vallahreppur, Djúpárhreppur, Holta- og Landsveit og Ásahrepp- ur. Á Strönd verður rekinn mót- töku-, flokkunar- og urðunarstaður fyrir allt sorp annað en heimilis- sorp. Brotajárn, spilliefni, rafgeym- ar o.þ.h. verður flutt burt til viðeig- andi eyðingar en annað sorp verður urðað á Strönd, þ. á m. framleiðslu-' úrgangur frá sláturhúsum og kjöt- vinnslum. Þá verður hægt að fá að geyma á svæðinu gömul tæki og bílflök sem ekki á að henda strax en öllum núverandi haugasvæðum verður lokað. Heímilissorpi verður áfram ekið að Kirkjufeijuhjáleigu og urðað hjá Sorpstöð Suðurlands bs. Starfssvæði sorpstöðvarinnar er um einn hektari að stærð og er stækkanlegt í fjóra hektara en upp- bygging svæðisins var í höndum Guðjóns Jónssonar verktaka á Hvolsvelli. Gerður hefur verið samningur til fímm ára við Gáma- stöðina hf. um allan rekstur sorp- hirðunnar og sorpförgun á svæði byggðasamlagsins. Morgunblaðið/Sigrún Sveinbjörnsdóttir FORSTÖÐUMENN almenningsbókasafna fyrir utan Hótel Höfn. Samræmd gjaldskrá rædd á bókasafnsfundi Höfn - Fundur forstöðumanna almenningsbókasafna á landinu var haldinn á Höfn dagana 18.-20. maí sl. á Hótel Höfn. Fundinn stóttu 25 manns víða að af landinu. Margt bar á góma svo sem siðfræði í almenningsbóka- söfnum sem Sigrún Hannesdóttir frá Háskóla Islands flutti og far- ið var út í lestraráhuga barna og hvernig bókasöfn geta örvað hann og höfðu Gísli Sverrir Árnason, Höfn, og Sigríður Matt- híasdóttir, Selfossi, tekið saman greinargerð um það. Einnig var rætt um í ættfræðiáhuga og hlut- verk bókasafna í þeim efnum. Til umræðu kom samræmd gjald- skrá um allt landið en ekki var tekin endanleg ákvörðun um það efni. Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson Aukin tengsl Færey- inga og Austfirðinga FLUTNINGASKIP Faroe Line, Blikur, kom til Seyðisfjarðar nýlega með saltfarm. Samstarf er nú með Samskipum hf. og Faroe Line um vikulegar ferðir flutningaskipa milli Færeyja og Austfjarðahafna. Umboðsaðili hér fyrir Faroe Line og Sam- skip er Austfar hf.; sama fyrirtæki og annast afgreiðslu farþega- feijunnar Norröna sem kemur vikulega á sumrin. Umsóknarfrestur er til 10. júní nk. Skólinn kennir til eftirtalinna skipstjórnarréttinda: 1. stig Skipstjóri á fiskiskip og önnur skip 200 rúmlestir og minni. 2. stig 1. Skipstjóri á fiskiskip af hvaða stærð sem er. 2. Skipstjóri á farskip og önnur skip, 400 rúml. og minni. 3. Stýrimaður á farskip og sérhæfð skip af hvaða stærð sem erl 3 stig Skipstjóri á farskip af hvaða stærð sem er. 4 stig Skipherra á varðskip. Réttur til inngöngu í Tækniskóla samhliða stúdentum. Kennsla í siglinga- og fiskveiðihermum, ARPA. Siglinga-, fiskileitar- og fjarskiptatæki (GMDSS, GPS, ASDIC). Námskeið í meðferð hættulegra efna (IMDG). Upplýsingar í síma 13194 og 13046.1 SKÓLAMEISTARI 81!» mtÐ BORGAR SIG AÐ TALA OPID IHADEGINU iiwwnf Vissir ... að verd á varahlutum í LADA og HYUNDAI bifreiðar er í langflestum tilfellum lægst hjá okkur? • að við eigum líka til varahluti sem henta í aðrar bílategundir? • að við reynum alltafað ná eins hagstæðum samningum og kostur er við kaup á varahlutum erlendis? • að verð á varahlutum hefur mikið að segja um upphæð viðgerðarreiknings á verkstæði? Notar verkstæðið sem þú skiptir við varahluti frá okkur? Kannaðu málið - það gæti lækkað viðgerðarkostnaðinn! JÍHMÍÍái' BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR HF. 5UÐURLANDSBRAUT 14. SfMI: 68 12 00 BBINN SfMI: 3 92 30 Vertu á varðbergi!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.