Morgunblaðið - 29.06.1994, Síða 42

Morgunblaðið - 29.06.1994, Síða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Utgáfutónleikar Nýttfrá 1000 andlit- umog Kombóinu HUÓMSVEITIN 1000 andlit hélt útgáfutónleika á nýrri plötu á Gauki á Stöng í síðustu viku. Um er að ræða fyrstu plötu hljómsveitarinnar og hefur hún að geyma tíu lög, sem sum hver hafa komið áður út á safnplötum. í kjölfarið mun hljómsveitin leggja upp í tónleikaferðalag um landið næstu mánuði. Sigrún Eva Ármannsdóttir er söngkona hljómsveitarinnar en aðrir með- limir eru Cecilía Magnúsdóttir, Birgir Jóhann Birgisson, Eiður Amarsson, Ari Einarsson og Jó- hann Hjörleifsson. Sama kvöld hélt Kombóið út- gáfutónleika á Tunglinu. Söng- kona hljómsveitarinnar er Ellen Kristjánsdóttir og aðrir meðlimir eru Birkir Baldursson, Þórður Högnason og Eðvar Lárusson. Kombóið mun leikar víðs vegar í sumar og kynna plötuna sem inniheldur níu frumsamin lög ásamt einu lagi eftir Tom Waits. Er ný mynd um James Bond tímaskekkja? Veröld Waynes 2 -----------------IH Á ÚTGÁFUTÓNLEIKUM 1000 andlita voru þau Valgeir Vil- hjálmsson, Hafþór Sveinjónsson, Glódís Gunnarsdóttir og Höskuldur „í Spor“. SIGRÚN Eva, Halla Birgisdóttir, Birgir Jónann Birgisson og Berglind Þorfinnsdóttir. Morgublaðið/Jón Svavarsson Á ÚTGÁFUTÓNLEIKUM Ellenar Kristjánsdóttur voru þau Inga Birna Magnadóttir, Steinunn Jónsdóttir, Sigríður Árna- dóttir, Sunna Björk Þórarinsdóttir og Ólafur Páll Gunnarsson. GUÐRÚN Valsdóttir, Þórgunna Þórarinsdóttir, Þórunn Þór- arinsdóttir og Ellen Kristjánsdóttir. ►MARGIR hafa velt því fyrir sér hvernig viðtökur næsta James Bond-myndin, Gullna augað, muni hljóta, nú þegar dagar kalda stríðsins eru liðnir. Myndin virðist þó hafa hljómgrunn meðal fólks og hefur þeg- ar vakið mikið umtal, þó að handritið að myndinni sé ekki einu sinni fullskrifað. Ekki eru allir á sama máli um valið á Pierce Brosnan í hlutverk Bonds, en íslendingar þekkja hann kannski helst sem montið kyntröll úr kvikmyndinni „Mrs. Doubtfire". Heyrst hafa raddir um að hann sé of gamall fyrir hlutverk- ið. Fleiri hafa orðið til að benda á að engin leið sé að finna jafn reyndan leikara og þó tiltölulega óþekkt- an eins og Brosnan, en hann lék svipað hlutverk í þáttunum Remington Steele. Gaith elskar Björk, segir að hún sé ekki mann- leg, annaðhvort sé hún geimvera eða dúkka sem Jim Henson (Prúðuleikararnir) hafi búið til. ► JIM Carrey sló alls óvænt í gegn með leik sínum í kvikmyndinni Ace Ventura. Hann segir þó að það hafi tekið sig langan tíma að ná athygli í Hollywood. „Eg hef verið viðloð- andi Los Angeles í tólf ár og á þeim tíma spurði fólk aftur og aft- ur hvenær ég ætlaði að sanna mig. Þegar ég var átján ára gam- all tróð ég upp á sviði í Toronto í Kanada og þá var því spáð að ég yrði jafn vinsæll og Johnny Carson og Richard Pryor innan sex mánaða. Fólk beið með öndina í hálsinum en þegar ekkert gerðist sögðu allir að ég hefði klúðrað mínu síðasta tæki- færi.“ Þannig hefur ferillinn geng- ið upp og niður hjá Carrey þar til á síðasta ári. Hann segist vera feginn því að hafa fengið svona langan aðlögunartíma: „Fyrir tíu árum hefði ég aldrei getað staðið undir því álagi sem er á mér núna.“ Jim Carrey búinn að ná fótfestu í Hollywood

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.