Morgunblaðið - 20.11.1994, Side 22
22 SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/SAMBÍÓIN hafa tekið til sýningar myndina The Specialist, Sér-
fræöinginn. í aðalhlutverkum eru Sylvester Stallone og Sharon Stone ásamt
James Woods, Rod Steiger og Eric Roberts.
Tvær stjöraur og
þrír stórleikarar
STALLONE og Stone eru stjörnur The Specialist.
SÉRFRÆÐINGURINN er
mynd um hefnd, morð,
svik, ástir tveggja stærstu
kvikmyndastjama nútím-
ans og gríðarlegar sprengingar
sem þeim fylgja. Ray Quick (Stall-
one) og Ned Trent (Woods) voru
félagar og samstarfsmenn; ein-
hvers konar sprengjusérfræðingar
hjá CIA sem voru sendir hingað
og þangað til að ráða illmenni af
dögum. En þeim lenti saman og
eru nú svamir óvinir. Síðan era
liðin 10 ár. Ray býr nú í Miami
og er hættur hjá CIA en er ennþá
í sprengjubransanum; hann er
nokkurs konar málaliði sem aug-
lýsir þjónustu sína á tölvunetinu
en tekur ekki að sér að vinna verk
af þessu tagi nema þegar nauðsyn
krefur til að hann nái endum sam-
an og aðeins ef málstaðurinn er
góður. May Munro (Sharon Stone)
vill ráða Ray Quick í þjónustu sína
til þess að hefna fýrir dauða for-
eldra sinna sem kúbverskir mafíós-
ar myrtu fyrir framan augun á
henni þegar hún var lítil.
í fyrstu vill Ray ekkert hafa með
málið að gera og því tekur May
málið í eigin hendur og fer að gera
sér dælt við mafíósana, foringjann
Joe Leon (Rod Steiger) en þó eink-
um son hans og erfingja Tomas
(Eric Roberts). Hún heldur hins
vegar sambandi gegnum síma og
smám saman dregst Ray að at-
burðarásinni og May. En það er
óvænt ljón í veginum, því á launa-
skrá mafíósanna er enginn annar
en höfuðandstæðingur Rays, gamli
félaginn Ned Trent. Hinir svömu
andstæðingar ætla nú að gera út
um gamlar sakir um leið og þeir
vinna verkin sem þeir hafa tekið
að sér og sprengjurnar taka að
springa og bófamir að falla.
The Specialist var frumsýnd fyr-
ir nokkrum vikum vestanhafs og
hlaut í mikla aðsókn og var á
toppnum yfir mest sóttu myndirnar
þar í nokkrar vikur. Hjá flestum
gagnrýnendum vestanhafs hlaut
hún rúmlega miðlungsdóma en
nokkrir voru afar hrifnir.
Helsti kostur myndarinnar var
talinn sá að
hún var í anda
stórsljömu-
mynda fjórða
og fimmta ára-
tugarins byggð
upp alfarið í
kringum það
aðdráttarafl
sem ímynd
stjamanna
tveggja, Stall-
one og Stone,
hefur. Hvað
sem mönnum
kann að fínnast
um leikhæfí-
leika Stallone
og Stone þá eru
þau réttnefnd-
ar kvikmynda-
stjömur og
áhorfendur
flykkjast á
myndir þeirra
— varla þó til
að sjá leiktil-
þrif heldur til
að sjá Stallone hegða sér eins og
Stallone og Stone hegða sér eins
og Stone. Aðdráttarafl The Spec-
ialist felst því í því að sjá Stallone
og Stone vera þau sjálf hvort með
öðm.
Þess vegna lögðu aðstandendur
myndarinnar, framleiðandinn Jerry
Weintraub, handritshöfundurinn
Alexandra Seros og perúski leik-
stjórinn Luis Llosa, allt í sölurnar
til þess að halda í og undirstrika
í myndinni þá ímynd sem stjömum-
ar höfðu þegar skapað sér.
ímynd Sharon Stone er sú sem
hún skóp í hlutverk lífshættulegu
léttúðardrósarinnar í myndinni
Basic Instinct og til þeirrar ímynd-
ar er höfðað um leið og henni
bregður fyrir á tjaldinu í The Spec-
ialist, reykjandi sígarettu og klædd
í níðþröngt mini-pils.
Sylvester Stallone er hins vegar
holdgervingur hasarhetjunnar sem
berst ekki aðeins ótrauður fyrir
réttlæti hvar og hvenær sem er,
hversu mikið sem ofureflið kann
að virðast, heldur lætur sér einnig
annt um þá sem em minnimáttar
og eiga undir högg að sækja. Hetj-
an góða, sem sprengir aðeins upp
illmenni, hatar Ned Trent fyrir að
láta sér standa á sama þótt einn
og einn saklaus falli í valinn með.
Hetjan er sannur séntilmaður
heima fyrir, tekur að sér flækings-
ketti og tekur í lurginn á óknytta-
strákum sem ekki standa upp fyrir
ófrískum konum í strætó.
Aðstandendur The Specialist
leyfa hvorri stórstjörnunni að
sveima í eigin ímynd framan af
myndinni án þess að annað varpi
skugga á hitt. Þau Stallone og
Stone deila því ekki atriði í mynd-
inni fyrr en nokkuð er á liðið en
þá hefur verið byggð upp spenna
milli þeirra með nokkmm tælandi
símtölum þeirra á milli sem gera
að verkum að um leið og þau birt-
ast saman á tjaldinu liggur ástar-
samband í loftinu. Það samband
gefur svo af sér umtalaðasta ástar-
atriði ársins í Hollywood; atriði sem
sumir gagnrýnendur hafa haft á
orði að sé þó meiri vitnisburður um
ROD Steiger leikur illmennið sem hér hefur læst klónum
í Sharon Stone með aðstoð James Woods.
STALLONE önnum kafinn við að útbúa sprengju.
aðdáunarvert líkamsástand og
vöðvabyggingu stjarnanna en leik-
hæfileika þeirra.
En þrátt fyrir að myndin skarti
tveimur að stærstu Hollywood-
stjörnum samtímans og sé byggð
upp í kringum þær eru flestir sem
um myndina hafa fjallað á því að
það sé ekki frammmistaða þeirra
sem sé eftirminnilegust. Aukaleik-
ararnir James Woods, Rod Steiger
og Eric Roberts, fari heim með
gull, silfur og brons. Samtals hafa
þessir gæðaleikarar hlotið sex ósk-
arsverðlaunatilnefningar. Steiger
var ein af stjörnum sjöunda áratug-
arins þegar hann hlaut óskarsverð-
laun besta karlleikara fyrir' hlut-
verk lögreglustjórans í In The Heat
of The Night, og þykir standa sig
afbragðs vel í hlutverki kúbversks
Don Corleone.
Eric Roberts, bróðir Júlíu, er
eftirminnilegur úr Star 80,
Runaway Train og Coca Cola Kid,
og þykir hér ná sér upp úr lægð
sem eiturlyf og andleg vandamál
hafa valdið honum undanfarin ár.
James Woods þykir hér sýna
einhvern besta leik á sínum brokk-
genga feríi og virðast flestir á einu
máli um að slíkur sprengikraftur
einkenni leik hans hér að í hvert
skipti sem hann birtist á tjaldinu
varpi hann skugga á stjömumar
sem honum er ætlað að styðja.
Eitt besta illmennið
íbransanum
JAMES Woods fer á kostum sem illmennið, erkióvinur Stallone.
UNDANFARIN misseri
hafa verið James Wo-
ods erfið. Ekki nóg
með að hann ætti erf-
itt með að fá almennileg hlut-
verk heldur hefur hann stöðugt
verið á milli tannanna á slúður-
pressunni vestanhafs
í kjölfar hatramms
hjónaskilnaðar.
Woods hefur undir
rós í tímaritsviðtali
sakað fyrrum konu
sína að fara með hat,-
ursherferð á hendur
honum, Ijúga upp á
hann fáránlegum sökum og selja
lygina tímaritum sem ekki eru
vönd að virðingu sinni. Á þeim
vettvangi mátti fyrir rúmu ári
m.a. lesa hryllingssögur um
hvernig leikarinn hefði gert sér
Ieik að því að gera erfiða bana-
legu tengdamóður sinnar enn
erfiðari með því að ganga um
og skella hurðum og framleiða
hvers kyns hávaða sem mest
hann mátti einmitt þegar dauð-
veik manneskjan þurfti mest á
ró og næði að halda.
Allt er þetta auðvitað argasti
rógur og lygi, segir Woods og
þótt hann taki sér ekki nafn fyrr-
um konu sinnar, Sarah Owen, í
munn dylst engum að við hana
er átt þegar James Wo-
ods segist nýlega hafa
uppgötvað að hann hafi
talið sig þekkja mann-
eskju sem hafi reynst svo
gjörspillt og vond að
hann hefði að óreyndu
aldrei trúað að slík illska
væri til í heiminum. Fyr-
irlitlegast sé að undirrót óhróð-
ursherferðarinnar sé einhver
lægsta hvöt mannlegs eðlis:
græðgi. „En þessu er lokið og
ég hef þurrkað viðkomandi út
úr mínu lífi eins og skítinn und-
an skósólanum," segir Woods.
Erfiðleikarnir virðast vissulega
að baki, lof hefur verið borið á
frammistöðu hans í The Special-
ist og næstu verkefni eru í mynd
Martins Scorseses, Casino, og í
mynd Olivers Stones, Killer.
James Woods er liðlega fer-
tugur og fæddur í Utah-fylki í
Bandaríkjunum. Faðir hans var
hermaður að atvinnu og strákur-
inn ólst upp á herstöðvum víðs
vegar um landið og á eyjunni
Guam. Þetta var greindarpiltur
og stundaði nám við einhveijar
bestu menntastofnanir Banda-
ríkjanna, MIT og Harvard.
Þar hófst leikferillinn og á
skólaárunum tróð Woods upp í
36 leikritum með skólfélögunum
og einnig með leikfélagi í Bos-
ton. Þaðan hélt hann til New
York þar sem leiðin inn í leikhús-
in við Broadway var greið og
fljótlega hafði hann hlotið Obie-
verðlaun, Óskarsverðlaun sviðs-
leikara þar í borg.
Frumraunina á hvíta tjaldinu
þreytti hann undir stjórn Elia
Kazan í The Visitors, en vakti
fyrst athygli fyrir leik á móti
John Savage í The Onion Field.
Framan af hlaut hann gjaman
hlutverk manna sem börðust
gegn ofurefli fyrir réttlæti, svo
sem aðalhlutverkið í Salvador
eftir Oliver Stone, en það hlut-
verk færði honum Óskarsverð-
launatilnefningu. Undanfarin ár
hefur hann þó verið við það að
festast í hlutverkum illmenna og
um tima mátti halda að hann
hefði einkarétt á hlutverkum
leigumorðingja.
Einn hápunkturinn er á ferli
Wodds er á hinn bóginn frammi-
staða hans í titilhlutverki hinnar
margverðlaunuðu sjónvarps-
myndar, Citizen Cohn, þar sem
hann lék smásálarlega og hroka-
fulla hægri hönd McCarthy’s,
bandaríska öldungadeildarþing-
mannsins, sem stóð fyrir ofsókn-
um á hendur meintum vinstri
mönnum í Bandaríkjunum á
sjötta áratugnum.
Aðrar heistu myndir James
Woods eru: Bestseller, endurgerð
The Getaway, The Way We Were,
The Hard Way, Straight Talk,
Immediate Family, Diggstown,
True Believer, The Boost, Jos-
hua, Then and Now, The Cho-
irboys, Cop, Eyewitness, Against
All Ödds, Videodrome, Ónce
Upon a Time in America, Night
Moves og síðast kvikmynd eftir
leikriti Sams Shepards, Curse of
The Starving Class, þar sem hann
lék á móti Kathy Bates.
Einkarétt
á leigu-
morðingjum