Morgunblaðið - 20.11.1994, Síða 44
44 SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Andrúmsloftið einkennist af miklum ríg milli Barcelona og Real Madrid
KIMATTSPYRIMA Á SPÁIMI
Stoichkov frábær í vetur
HRISTO Stoichkow, Búlgarlnn snjalll hjá Barcelona, hefur lelklð frábærlega í vetur. Johann Cruyff, þjálfari Barcelona, segir, að ef
einhver sanngirni sé í kosningu besta knattspyrnumanns Evrópu, hljóti Stoichkov að verða fyrlr valinu þegar útnefningin fer fram í ár.
„Stríðið“ sjaldan
verið grimmilegra
SPÆNSK knattspyma á góða
daga um þessar mundir. Allir
leikvangar eru fullir helgi eftir helgi,
gengi spænsku iið-
Þorsteinn anna í Evrópu-
Stephensen keppninni hefur ver-
vígi í undankeppni Evrópumótsins,
spænska deildin er full af stjörnum
frá síðustu heimsmeistarakeppni og
stríðið milli Barcelona og Real
Madrid hefur sjaldan verið grimmi-
legra.
Heitasta fréttin í spænskum
íþróttafjölmiðlum upp á síðkastið
hefur verið hugsanlegur samningur
Emilio Butragueno, helstu stjömu
Real Madrid og spænskrar knatt-
spymu síðasta áratug, við erkiíjend-
urna í Barcelona. „E1 buitre" eins
og áhangendur Madrid nefndu hann
hefur mátt sætta sig við að sitja á
varamannabekknum í flestum leikj-
um liðsins á þessu keppnistímabili.
„Gammurinn" er því hlutskipti ekki
vanur og kann því frekar illa en
hefur þó borið sig mannalega
lengstum og sagt að sinn dagur
muni koma. Það kom síðan eins og
köld vatnsgusa yfir hann og áhang-
endur liðsins þegar ljóst var að fyrr-
um félagi Butraguenos úr framlínu
Madridliðsins og núverandi þjálfari
þess, Argentínumaðurinn Jorge
Valdano, hafði ákveðið að taka
Buitre úr leikmannahópi sínum fyrir
leikinn við nágrannana í Atletico
de Madrid um fyrri helgi.
Það er öðm fremur góður leikur
sautján ára pilts sem gerir það að
verkum að ekki er lengur pláss fyr-
ir Butragueno í liðinu. Drengurinn
sá heitir Raúl og í fyrsta leik sínum
fyrir Madrid á heimavelli iiðsins,
Santiago Bernabeu, lagði hann upp
fyrstu tvö mörk liðsins gegn erkió-
vininum Atletico og skoraði síðan
sjálfur stórglæsilegt mark við mik-
inn fögnuð áhorfenda sem allir vom
áhangendur Madrid (fylgismenn
Atletico fara helst aldrei á Bemabeu
því þeir vilja ekki setja aura í vasa
óvinarins).
Fjölmiðlar keppast við að hlaða
Raúl þennan lofi og segja hann
ýmist nýjan Roberto Baggio eða
Butragueno. Þjálfarar og stjórnar-
menn Barcelona láta sér hins vegar
fátt um finnast og Johann Cruyff
þjálfari Barcelona-liðsins sagði að
sér þætti furðulegt ef í Madrid væm
menn orðnir bjartsýnir á að vinna
meistaratitilinn af þeirri ástæðu
einni að sautján ára drengur hafi
skorað eitt mark gegn Atletico de
Madrid sem eins og stendur er í
næstneðsta sæti deildarinnar.
Tákn madridismans
Hinsvegar sagði Cruyff að ef
Madridarmenn hefðu ekki pláss fyr-
ir Emilio Butragueno þá væri hann
velkominn á Camp Nou þar sem
hann ætti góða möguleika á að vera
fastamaður í rauðbláa liðinu.
Um allan Spán btjóta menn nú
heilann um hvað þetta framferði
Barcelonamanna eigi að þýða. Nu-
nes forseti Barcelona og Cmyff
þykja báðir snjallir í að beita fyrir
sig fjölmiðlum í sálfræðistríðinu sem
ævinlega stendur yfír á milli þess-
ara tveggja risa í spænskri knatt-
spyrnu, Real Madrid og Barcelona.
Með því að lýsa yfír áhuga á
Butragueno setja þeir pressu á
Valdano sem þarf að svara til saka
fyrir framan áhangendur Madridar-
liðsins sem varla geta hugsað sér
neitt hræðilegra en að Emilio
Butragueno klæðist litum BarceÞ
ona.
Butragueno er Madridingum
meira en bara frábær knattspyrnu-
maður, hann er tákn madridismans,
snyrtilegur, háttvís og vel stæður
(mjög vel stæður). „E1 buitre" er
átrúnaðargoð, hann er Real Madrid.
í Madridarborg einni eru til dæmis
fjórir barir sem bera nafn hans.
Butragueno sjálfur hefur sagt að
reyndar sjái hann sig illa fyrir sér
leika fyrir annað félag á Spáni en
Real Madrid og að ef hann ætti að
yfírgefa liðið væri það til að leika
erlendis um stund. Hins vegar við-
urkennir hann að allt sé mögulegt
í knattspyrnu og að Cmyff hafí
verið hans fyrirmynd í æsku og það
gæti verið fróðlegt að vinna með
honum. Sem sagt allt getur gerst
og Jorge Valdano virðist vera kom-
inn í nokkuð þrönga klípu.
í öllu því fréttaflóði sem fylgt
hefur þessari síðustu rimmu Madrid
og Barcelona hefur komið fram að
fyrir fímm árum gerði Barcelona
Butragueno tilboð sem hann reynd-
ar hafnaði rétt eins og fjöldamörg-
um öðrum tilboðum, meðal annars
frá Ítalíu. Frétt þessi hefur hleypt
illu blóði í ýmsa Madridinga, reynd-
ar að ástæðulausu því samningur
Butraguenos var laus á þessum tíma
og því hverjum sem er fijálst að
bjóða honum samning.
Rígur
Þessi afstaða Madridinga segir
hinsvegar heilmikið um andrúms-
loftið sem ríkir í spænsku knatt-
spymunni. Rígurinn á milli liðanna
tveggja er slíkur að það er með öllu
ómögulegt að ímynda sér hann.
Þegar menn upplifa þennan ríg, sem
kannski væri réttara að kalla hatur,
í fyrsta skipti, hvarflar sú hugsun
að manni að þarna hljóti að vera á
ferðinni ágreiningur sem eigi sér
dýpri rætur en knattspymu einá
saman. Real Madrid var á sjötta
áratugnum sigursælasta knatt-
spyrnulið Evrópu og er sennilega
sigursælasta knattspyrnulið heims.
Real Madrid var á þessum árum
eitt helsta stolt generalissimo
Franco og allar götur síðan hefur
nafn Real Madrid verið tengt
francoismanum og það á sér þar
af leiðandi bæði aðdáendur og hat-
ursmenn um allan Spán.
Barcelona hinsvegar er stolt rík-
asta héraðs Spánar, Katalóníu. Ka-
talóníumenn em langt komnir með
að stinga af önnur héruð á Spáni
hvað varðar ríkidæmi og almenna
velferð. Katalóníumenn tala einnig
fjálglega um aðskilnað frá Spáni og
að þeir séu orðnir leiðir á að styrkja
gatnagerð og skólahald í fátækari
héruðum Spánar. Þessi afstaða ka-
talóníumanna fer fyrir bijóstið á
mörgum Spánveijum og kannski
sérstaklega Madridingum sem
fínnst að sér og höfuðborginni veg-
ið. Gorgeirinn í Barcelonamönnum
hefur líka magnast með sigurgöngu
liðsins en Barcelona hefur nú unnið
spænska meistaratitilinn fjögur ár í
röð.
Valdano þarf ekki að örvænta
Valdano þjálfari Real Madrid þarf
þó varla að örvænta um sinn hag
því þrátt fyrir vandræðin með
Butragueno eru áhangendur liðsins
ánægðir með störf hans. Real
Madrid hefur leikið vægast sagt vel
það sem af er keppnistímabilinu og
madridistar verða kokhraustari með
hveijum sigrinum. Margir vilja þó
þakka Dananum Michael Laudrup
velgengnina engu síður en Valdano.
Laudrup hefur leikið frábærlega frá
því hann flutti til höfuðborgarinnar
eftir að hafa fengið nóg af Cruyff
og herforingjaaðferðum hans.
Laudrup hefur ekki einasta leikið
eins og sannkölluð stjarna heldur
þykir hann líka vera mikill séntil-
maður og leiðtogi utan vallar. Chile-
búinn Ivan Zamorano hefur skorað
mikið af mörkum, mörg eftir send-
ingar frá Michael sem hefur verið
í miklu stuði, Argentínumaðurinn
Fernando Redondo er óðum að ná
sér eftir meiðsli og virðist ætla að
eiga gott tímabil og svo er alltaf
Raúl.
Barcelona hefur hinsvegar átt
aðeins erfiðara uppdráttar og í
Madrid þykjast menn sjá merki
hnignunar á Camp Nou. Staðreynd-
imar tala hinsvegar sínu máli og
þær segjá okkur að Barcelona er
efst í sínum riðli í Evrópukeppninni
og hefur þrátt fyrir allt hlotið jafn
mörg stig í deildinni og Madrid.
Cmyff hefur átt við tvennskonar
vandamál að stríða, í fyrsta lagi
hefur vöminni ekki gengið vel að
koma í veg fyrir að andstæðingarn-
ir skori mörk. Cruyff keypti eina
af HM stjörnum Spánveija, Abel-
ardo, til að styrkja vömina en það
dugði ekki til og Ronald Koeman,
sem aðeins er tekinn að eldast, virð-
ist vera liðinu algerlega ómissandi.
Hitt vandamál þjálfarans er að hin-
ir þrír útlendingarnir Romario, Sto-
ichkov og Hagi, sem keppa um þær
tvær útlendingastöður sem eftir eru
í liðinu, eru allir soddan prímadonn-
ur að það er ekki nokkur leið að fá
þá til að sitja á varamannabekknum
með bros á vör. Rúmeninn Gica
Hagi er sá sem mest hefur mátt
sitja við hliðarlínuna á Camp Nou.
Hagi unir því illa og hefur verið
með yfirlýsingar um það í blöðum
að þetta sé óþolandi ástand. Cruyff
svarar því til að það sé einmitt
meiningin með því að hafa fjóra
útlendinga, Hagi eigi bara að leggja
meira á sig til að sanna sig, hann
sé einfaldlega alltof góðu vanur hjá
rúmenska landsliðinu.
Cmyff svarar öllum gagnrýnis-
röddum með að benda á góða stöðu
liðsins í Evrópukeppninni og í deild-
inni en það fer þó ekki á milli mála
að fram til þessa hefur iiðið ekki
leikið eins vel og það gerði síðastlið-
inn vetur. Margir leikir hafa unnist
með mörkum frá Koeman og Stoic-
hkov beint úr aukaspyrnum og
heppnisbragur hefur verið yfir
mörgum sigrum liðsins. Undanfam-
ar vikur hefur liðið þó sýnt bata-
merki. Brasilíumaðurinn Romario
er aftur farinn að skora og Jordi
Cruyff sonur þjálfarans, sem aðeins
er nitján ára, hefur leikið vel en það
er þó fyrst og fremst Búigarinn
Hristo Stoichkov sem hefur leikið
aldeilis frábærlega. Sígauninn eins
og fylgismenn Real Madrid kalla
hann virðist hafa endalausan orkuf-
orða og ómælda leikgleði og það
ásamt hraða hans og tækni gerir
það að verkum að sparkfræðingar
á Spáni segja hann koma sterklega
til greina sem næsta handhafa gull-
boltans sem veittur er besta knatt-
spymumanninum í Evrópu og Jo-
hann Cmyff segir að ef einhver
sanngirni sé í þessum kosningum
verði Stoiehkov útnefndur besti
knattspyrnumaður Evrópu.
Aukið sjálfstraust
Stórsigur Barcelona gegn Man-
chester United í Evrópukeppninni
hefur veitt þeim aukið sjálfstraust
og sú staðreynd að liðið er svo til
ömggt með að komast áfram í Evr-
ópukeppninni og eins vissan um að
geta lagt sterkustu lið Evrópu að
velli á jafn sannfærandi hátt og
þeir gerðu gegn Manchester gerir
það að verkum að Barcelona hlýtur
að koma sterklega til greina sem
fimmfaldur Spánarmeistari að vori
og slakt gengi stóra frænda í Mílanó
gefur Barcelonamönnum aukna
möguleika á að vinna einnig Evr-
ópubikarinn.
Einvígi Barcelona og Madrid á
knattspyrnuvellinum hefur nú staðið
áratugum saman og engin önnur lið
virðast geta blandað sér í baráttuna
nema í mesta lagi í tvö til þijú ár
í senn. Deportivo frá Coruna er það
lið í dag sem mesta möguleika hef-
ur á að stela titlinum af risunum
tveimur. Undanfama tvo vetur hef-
ur Deportivo blandað sér í baráttuna
af miklum krafti og síðastliðið vor •
missti liðið af spænska meistaratitl-
inum þegar stundarfjórðungur var
eftir af mótinu. í ár hefur Deportivo
leikið mjög sannfærandi og hefur
forystu í deildinni þegar þetta er
skrifað. Brasilíumaðurinn Bebeto
heur verið í miklu stuði eftir að
hann kom til Spánar úr framlengdu
sumarfríi í Rio de Janeiro. En Be-
beto er ekki einn á ferð og félagi
hans úr framlínunni Kostadinov
leikur vel ásamt Donato og miðverð-
inum Djukic og svo bíða menn að
sjálsögðu eftir því að Mauro Silva,
enn einn af brasilísku heimsmeistur-
unum, sem spilar í spænsku deild-
inni, nái sér af meiðslum og þá verða
ekki margir til að taka stig af Depor-
tivo de la Coruna.
Þrátt fyrir að spænska deildin
virðist ætla að verða einvígi Madrid
og Barcelona þetta árið sem endra-
nær er víst að allt getur gerst og
enn er aðeins búinn fjórðungur
leikja á tímabilinu. Það verður mik-
ið hlaupið, sparkað, samið en
kannski umfram allt rifíst næstu
mánuðina í þessari einni af bestu
knattspyrnudeildum heims.