Morgunblaðið - 22.03.1995, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.03.1995, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Forystusveit Alþýðuflokksins kynnir áherslur flokksins fyrir komandi kosningar Tökum afstöðu til málanna Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðu- flokksins, segir kosningabaráttuna einkenn- ast af endalausu miðjumoði en Alþýðuflokk- urinn hafí hins vegar sérstöðu þar sem hann taki afstöðu til mikilvægra málaflokka. Morgunblaðið/Kristinn OSSUR Skarphéðinsson, Jón Baldvin Hannibalsson og Rannveig Guðmundsdóttir kynntu kosninga- áherslur Alþýðuflokksins á fundi með fréttamönnum í gær. FORYSTA Alþýðuflokksins kynnti í gær kosningaá- herslur flokksins fyrir komandi alþingiskosning- ar. í þeim er meðal annars lögð áhersla á þá stefnu flokksins að íslendingar sæki um aðild að Evr- ópusambandinu á næsta kjörtíma- bili og áhersla er lögð á sameign þjóðarinnar á auðlindum sjávar og að sú sameign verði varin með því að binda hana í stjórnarskrá. Jón Baldvin Hannibalsson, for- maður Alþýðuflokksins, segir miðjumoð einkenna kosningabar- áttuna, en áherslur Alþýðuflokksins í sjávarútvegsmálum, landbúnaðar- málum og Evrópusambandsmálum einkenni sérstöðu flokksins, og kjósendur geti fengið skýr svör varðandi þessi mál hjá flokknum. Hann segist telja kosningarnar fyrst og fremst snúast um leiðir til þess að tryggja fulla atvinnu og bæta lífskjör á næsta kjörtímabili. Stjórnarmyndunarviðræður gætu dregist á langinn Jón Baldvin segir að Alþýðu- flokkurinn gangi óbundinn til kosn- inganna og hann eigi von á því að stjómarmyndunarviðræður geti dregist á langinn þar sem mörg mál verði undir í stjórnarmyndunar- viðræðum. Þar á meðal verði spurn- ingamar um breytingar á sjávarút- vegsstefnu og landbúnaðarstefnu og spurningar um ákvörðun tolla í framhaldi af þeim skuldbindingum sem Islendingar hafi gagnvart GATT. „I stjórnarmyndunarviðræðum hlýtur að verða mikið rætt um utan- ríkisviðskiptamál og afstöðuna til Evrópusambandsins, og fiokkarnir hafa uppi núna, flestir ef ekki allir, einhver orð um það að þeir vilji nýta efnahagsbatann að hluta til þess að gera átak varðandi skóla- og menntamál. Þannig að ég á von á því að stjórnarmyndunarviðræður taki nokkum tíma og spanni býsna vítt svið,“ sagði hann. Brýnast að varðveita stöðugleikann í áherslum flokksins er bent á að brýnasta verkefnið framundan sé að varðveita stöðugleika í efna- hagsmálum og byggja á honum nýtt framfaraskeið, og efnahags- batann beri að nýta til að jafna kjörin í landinu. Flokkurinn vill að framfærslu- kostnaður verði lækkaður með lækkun á opinberri þjónustu, m.a. þjónustu bankanna, Pósts og síma og á fleiri sviðum þar sem fákeppni og einokun ríki. Þá eigi að beita skattakerfinu á markvissan hátt til kjarajöfnunar, og markmiðið sé að tekjur til grunnframfærslu einstakl- inga og fjölskyldna séu í raun tekju- skattsfrjálsar. Þá beri að fram- lengja hátekjuskattinn og taka upp fjármagnstekjuskatt eins' fljótt og auðið sé. Hræðsluáróður um ESB Alþýðuflokkurinn vill að ísland sæki um aðild að Evrópusamband- inu eins fljótt og auðið er, en í samn- ingaviðræðum' verði að tryggja áframhaldandi forræði þjóðarinnar yfir auðlindum sjávar innan ís- lenskrar efnahagslögsögu. „Við leggjum áherslu á að það að sækja um aðild er eitt og það að samþykkja aðild að lokum er annað. Með því að sækja um setjum við af stað ferli og ef við tökum upp samninga þurfum við að leggja samningsniðurstöðurnar fyrir þjóð- ina og gefa okkur tíma til að kynna þær. Síðan verður þjóðaratkvæða- greiðsla að skera úr vegna þess að þetta mál er svo stórt að það getur enginn annar en íslenska þjóðin að lokum tekið um það ákvörðun. Við teljum okkur vera að gegna skyldu okkar með því að segja þjóð- inni fyrir þessar kosningar hver okkar stefna er. Við undrumst það að aðrir stjórnmálaflokkar láta sér nægja að hafa uppi hræðsluáróður í þessu máli. Hræðsluáróður um það að með þessari stefnu sé Alþýðu- flokkurinn að afsala þjóðinni for- ræði yfir auðlindunum, sem er ósannur, eða hræðsluáróður um að þetta mál sé ekkert á dagskrá," sagði Jón Baldvin. Veiðileyfagjald í áföngum í kosningaáherslunum segir að reynslan sýni að sameign þjóðarinn- ar á auðlindum sjávar verði ekki tryggð til frambúðar án þess að hún verði bundin í stjórnarskrá. Stjórn- arskrárbundin sameign á fiskistofn- um geri einnig öll samskipti við Evrópusambandið auðveldari og tryggi til frambúðar yfirráð þjóðar- innar yfir auðlindum sínum. I kafla um sjávarútvegsstefnu segir að koma verði í veg fyrir það með lög- gjöf að kvóti safnist á fáar hendur, og Alþýðuflokkurinn vilji að veiði- leyfagjaldi verði komið á í áföngum. Össur Skarphéðinsson sagði að gjörbreyta þyrfti kvótakerfinu sem væri meingallað. Það hafi upphaf- lega verið sett á til að ná fram ákveðnum markmiðum, en aldrei hafi verið stefnt að því að kvóta- kerfið ætti að verða til þess að færa nánast allar veiðiheimildir landsmanna yfir á hendur örfá- menns hóps, sægreifanna. Það hefði hins vegar gerst og þróunin á síð- ustu árum hefði nánast öll verið í þá veru að styrkja það að kvótinn sé séreign þeirra. „Til þess að þjóðin geti notið teknanna af fiskimiðunum með réttu þá höfum við sagt að hér ætti að setja upp veiðigjöld, og þau ætti að nota í fyrstu til þess að styrkja innviði sjávarútvegsins," sagði hann. Afnema kvóta í landbúnaði Jón Baldvin sagði að Alþýðu- flokkurinn teldi núverandi fram- leiðslustýringu í landbúnaði hafa gengið sér til húðar og hana beri að afnema. „Það er ekki hægt að ætlast til þess að bændur eigi að mæta samkeppni um vöruverð og gæði með báðar hendur bundnar fyrir aftan bak í kvótakerfinu," sagði hann. Alþýðuflokkurinn telur að sá stuðningur sem ákveðið verði að halda uppi í formi greiðslna til bænda eigi ekki að vera fram- leiðslutengdur, og það sé forsenda fyrir því að hægt sé að losa um kvótann. Mörkuð verði fjölskyldustefna í áherslum flokksins kemur fram að Alþýðuflokkurinn vill að ríkis- valdið marki sérstaka fjölskyldu- stefnu til að stuðla að betri hag fjölskyldunnar í landinu. Rannveig Guðmundsdóttir sagði ljóst að á liðnum árum hefði þurft að grípa til aðgerða í hinum ýmsu ráðuneyt- um án þess að full yfirsýn væri yfir hvaða áhrif þær aðgerðir í heild hefðu á fjölskyldurnar. „Mörg önnur lönd hafa komið sér upp fjölskylduráðuneyti, og það að setja sér stefnu og setja á laggir svokallað ijölskylduráð gæti verið fyrsta skrefið í að móta slíka yfir- sýn,“ sagði hún. Utankjörstaðakosning hjá öllum sýslumönnum og hreppsljórum Kjósendur hafi skilríki með sér KOSNING utan kjörstaðar er nú hafin um allt land og erlendis. UTANKJÖRSTAÐAATKVÆÐA- GREIÐSLA fer nú fram hjá sýslu- mönnum og hreppstjórum um allt land og einnig í öllum sendiráðum Islands erlendis og hjá nokkrum ræðismönnum eftir nánari ákvörðun utanríkisráðuneytisins. Fjöldi þeirra sem kýs utan kjörstaða eykst sífellt og því hefur viljað verða örtröð síð- ustu dagana fyrir kjördag, og þess vegna eru þeir sem sjá fram á að vera ekki heima á kjördag hvattir ti! þess að kjósa sem fyrst. Er fólk sérstaklega minnt á að hafa með sér skilríki þegar það fer að kjósa. í Reykjavík fer utankjörstaða- kosning fram hjá sýslumanni að Engjateigi 5, en þar er opið alla daga frá kl. 10-12, 14-18 og 20-22. Þeir sem eru á kjörskrá í Reykjavík og kjósa í utankjörstaðaatkvæða- greiðslu setja atkvæði sitt í kjörkassa hjá sýslumanni, en þeir sem eru á kjörskrá annars staðar verða að taka atkvæði sitt og koma því til skila í viðkomandi kjördæmi fyrir lokun kjörstaða á kjördegi. Miðað við lögheimili 18. mars Kjörskrá er miðuð við lögheimili þrem vikum fyrir kjördag, þ.e. 18. mars, og er hver á kjörskrá þar sem hann hefur átt lögheimili þá. Kjör- skrá liggur frammi til kjördags og er hægt að gera athugasemdir við hana til viðkomandi sveitarstjórnar fram að þeim tíma ef einhver mistök hafa átt sér stað. íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aidri og hafa átt lögheim- ili hér á landi eiga kosningarétt í átta ár frá því þeir hafa flutt lög- heimili af landinu. Er þá miðað við 1. desember fyrir kjördag, eða 1. desember 1986 í þessu tilfelli. Að- standendur námsfólks erlendis eru sérstaklega hvattir til að minna við- komandi á kosningarnar og hvar og hvenær er kosið. Kjörstjóri innanlands getur heim- ilað kjósanda sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar að greiða atkvæði í heimahúsi. Ósk um slíkt þarf að vera skrifieg og studd læknis- vottorði, og þarf hún að hafa borist hlutaðeigandi kjörstjóra eigi síðar en kl. 12 á hádegi þann dag þegar ein vika er til kjördags, eða 1. apríl næstkomándi. Listi Þjóðvaka í Suðurlands- kjördæmi FRAMBOÐSLISTA Þjóðvaka í Suðurlandskjördæmi við kosning- ar til Alþingis 8. apríl nk. skipa eftirfarandi: 1. Þorsteinn Hjartarson, skóla- stjóri, Skeiðahreppi, 2. Ragnheið- ur Jónasdóttir, verkamaður, Hvolsvelli, 3. Hreiðar Hermanns- son, byggingarmeistari, Selfossi, 4. Soffía Ellertsdóttir, bóndi, Hrunamannahreppi, 5. Sigurður Örn Kristjánsson, sjómaður, Vest- mannaeyjum, 6. Kristín Erna Arn- ardóttir, kvikmyndagerðarmaður, A-Eyjafjallahreppi, 7. Páll M. Skúlason, garðyrkjubóndi og kennari, Biskupstungum, 8. Ber- grós Gísladóttir, húsmóðir, Þor- lákshöfn, 9. Hermann Hreiðars- son, verkamaður, Vestmanneyj- um, 10. Elín Magnúsdóttir, sjúkr- aliði, Stokkseyri, 11. Maggý Hrönn Hermannsdóttir, kennari, Hvolsvelli, 12. Magnús Finnboga- son, bóndi, A-Landeyjum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.