Morgunblaðið - 13.04.1995, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 13.04.1995, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ af að sjá alla þessa menningu Spán- vetja. Við heimsóttum fjölmargar frægar borgir og enduðum í Barcel- ona. Á þessum tíma var Benidorm alveg nýr staður, þar voru þá að- eins til tvö góð hótel.“ Það eru sem sagt liðin allmörg ár síðan íslendingar voru fyrst á rölti á suðrænni strönd, léttklæddir og lausgyrtir og alsendis undrandi á hinu milda veðurfari. „Þetta var sannarlega mikil tilbreyting fyrir íslendinga þá og nýmæli, þótt það sé það ekki í dag,“ segir Ingólfur. Um fimmtíu manns voru með Ing- ólfi í þessari fyrstu Spánarferð hans, „eins margir og komust í þessa DC6 flugvél. Meðal farþega var margt af frammáfólki hins ís- lenska samfélags. Þessi ferð er fyrir margra hluta sakir afar eftir- minnileg. Svo þróaðist þetta stig af stigi. Þegar þotuöldin hófst, árið 1969, þá fór ég að leigja flugvélar og fljúga með fólk beint til Spánar og seinna til Ítalíu.“ Ferðir Ingólfs Guðbrandssonar nutu frá upphafi vinsælda. „Það voru auðvitað til einstaka aftur- haldsseggir sem fannst það fásinna að eyða peningum í að fara til út- landa að þarflausu, töldu það sóun á verðmætum, en það sýnir best hve fráleitur sá hugsunarháttur er að ferðaþjónustan er orðin ein aðal- atvinnugreinin í heiminum," segir Ingólfur. „En þeir voru fáir sem þannig hugsuðu, fólk var almennt allshugar fegíð að fá tækifæri til að komast á framandi slóðir. Þetta þóttu langferðir þá þótt þær þyki það ekki í dag,“ bætir hann við. En var ekki mikið mál að skipu- leggja þessar ferðir allar? „Eg hef alltaf náð góðum samn- ingum, þeir samningar urðu grund- völlur þess að ferðalög urðu í fyrsta skipti almenningseign. Fólk flykkt- ist suður á strendur Miðjarðarhafs- ins. Fyrst til Spánar, síðan til ítal- íu, Júgóslavíu og þar á eftir til Grikklands og í lokin til Portúgals. Þetta var blómaskeið sólarlanda- ferðanna. Ferðir sem þessar hafa hins vegar dregist mjög mikið sam- an.“ Hvers vegna skyldi þessi breyt- ing hafa orðið? „Þeir staðir sem sköruðu fram úr sem hvíldar- og skemmtistaðir í Suður-Evrópu fyrir 20 til 30 árum hafa flestir mjög dalað og fólk fínn- ur ekki í dag þá „stemmningu“ sem ríkti þar þá,“ segir Ingólfur. „Það er sorglegt hvað margir þessir stað- ir eru orðnir ofurseldir sölu- mennsku hvers konar og einkenn- ast af lélegri þjónustu og lágmenn- ingu. Það er ekki sama ævintýrið að koma til þessara landa og var fyrir tveimur áratugum, ýmsir þessir staðir eru nú eins og skuggi af sjálfum sér.“ Góðir samningar grundvöllurinn Góðir samningar eru grundvöllur þess að ferðalög urðu möguleg fyr- ir íslenskan almenning, er niður- staða Ingólfs Guðbrandssonar. Hvernig skyldi hans samninga- tækni vera? „Mín viðskipti hafa alltaf byggst á persónulegum tengslum við fólk,“ segir hann. „Mín sambönd út um allan heim byggjast enn á þessari reglu. Ég á hlaða af bókum með heimilisföngum fólks sem ég hef samskipti, kunningsskap ogjafnvel nánin vináttutengsl við. Þetta er úrvals fagfólk út um allan heim. Þeir sem kynnast mér vel átta sig á að ég er mjög næm persóna. Ég finn marga hluti á mér, það eru ýmsir slíkir hæfileikar sem nýtast mér mjög vel, almennt, í samskipt- um við fólk og viðskiptum, kannski má kalla þetta innsæi. Annað mál er það að ég stofna ekki til neinna samninga án þess að hafa kynnt mér sjálfur hvað í boði er. Ég kanna sjálfur allt og vel úr, það er meginregla. Sem dæmi get ég sagt frá ferð minni um slóðir við Karíbahafið fyrir nokkru. Ég fór með ungum ferða- skrifstofumanni til þess að skoða hótel. Hann leit á mig undrandi þegar ég sagði að ég þyrfti ekki „Ég hef alltaf náð góðum samningum, þeir samningar urðu grundvöllur þess að ferðalög urðu í fyrsta skipti almenn- ingseign. Fólk flykktist suður á strendur Miðjarðar- hafsins." nema fimm mínútur til þess að átta mig á hvort ég vildi tiltekið hótel eða ekki. Ég þarf oft ekki nema koma inn í anddyrið til þess að finná andrúmsloftið og sjá bún- aðinn, ég hef orðið það mikla reynslu á þessu sviði að ég sé fljótt ýmsa hluti sem aðrir veita kannski ekki athygli." Talið snýst á ný um innsæi, hef- ur það nokkurn tíma nýst Ingólfi sem viðvörun? „Ég hef verið ákaflega heppinn á mínum ferli. Ég hef aðeins einu sinni lent í slysi í mínum ferðalög- um. En þá var eins og ég fyndi á mér hvað var í aðsigi áður en ferða- lagið hófst. Það var bílferð sem stóð í tvo daga og lauk hársbreidd frá dauðanum, ég gat ekkert gert, var aðeins fórnarlamb glæfraháttar annarra. Forboðinn var samt ekki nægilega sterkur til að hindra mig í að fara. Ég er trúaður maður og hef hugsað mikið um rök og gang til- verunnar, en þessi innsæistilfínning tengist því samt ekki nema óbein- línis, líklega stafar þetta fremur af því að skynjun mín er á ýmsum SJÁ NÆSTU SÍÐU FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995 31 Fullhomlega frjáls! M eð Freeway 4sa frá simdnsen LólastóT vasatatstaT og bWas\m\ ty'w \s\ensW.a tatsimaV.e'rttó iHWÁ 4001 S\e\Vu(,\feYw< oq m\bQ meótæ\Wegu\ Ua\Q\\ 'pasgWeQW e\a\o\eto\ Ho\sV,\\ó\\ou\\ 09 óapóosV. ijæba \\am\e\ós\a K'jtuWuþfet Wostma Síöumúla 37-108 Reykjavík S. 91-687570 - Fax.91-687447 i-ermmgartUDoo z HLJÓMTÆK|ASAMSIÆÐA Þessi fullkomna hljómtækjasamstæba, Goldstar FFH-333 er hlabin tæknibúnabi - ú góbu verbi! • ÞriggjQ ljósráka geislospilari met 32 laga minni • 64 W magnari með innb. forstilltum tónjafnara • Ultra Bass Booster, sem gefur enn meiri bassa • Fjarstýiftur styrkstillir • Tengi fyrir sjónvarp eba myndbandstæki • Allar abgerbir birtast ó fljótandi kristalsskjó • Klukka og tímarofl Útvarp meb FM, MW og LW-bylgjum 30 stöbva minni Tvöfalt Dolby kassettutækí m.a. meö: Sjálfvirkri spiiun beggja hliöa og hmbupptöku Fullkomin fjarstýring Tveir vandabir hátalarar meb loftun f/ bassa Stærb: Br.: 27 cm, hæb: 33,3 an, dýpt: 43,7 cm Verb ábur: kr. Verb nú: 49.900,- kr. eöa HLJÓMTÆKJASAMSIÆÐA Þessi frábæra hljómtækjasamstæba, Goldstar F-272L 3CD er nú á sérstöku fermingartilbobi, á meban birgbir endast! friggja diska geislaspilari meb 20 laga minni 32 W magnari meb innb. forstilltum tónjafnara Tengi fyrir hljóönema (Karaoke) Tengi fyrir sjónvarp eba myndbandstæki Allar abgerbir birtast á fljótandi kristalsskjá Útvarp meö FM, MW og LW-bylgjum 20stöbvammni Tvöfalt kassettutæki m.a. meb: Síspilun og hraöupptöku Fullkomin flarstýring Tveir vandabir hátaíarar meb loftun f/ bassa Stærb: Br.: 27 an, hæb: 31 cm, dýpt: 33 cm "■SB* stgr. ...og þetta er abeins brot af úrvalinu! Verb áörxr: Verö nú: 44.900, eba. kr. lcr. EUROCARD raðgreiðslur VISA RAÐGREIÐSLUR TIL ALLT AÐ 36 MANAÐA TIL ALLT AÐ 24 MANAÐA SKIPHOLTI 19 SIMI 91-29800
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.