Morgunblaðið - 13.04.1995, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 13.04.1995, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Umskipan sjúkrahús- mála í dreifbýli II. hluti („GULA skýrslan" er skýrsla sem gerð var að frumkvæði Sig- hvats Björgvinssonar heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra sem hinn 30. apríl 1992 skipaði vinnu- hóp um málefni sjúkrahúsa. Til- lögur skýrslunnar gengu út á það að skera niður fjárframlög til dreifbýlissjúkrahúsa um 800 millj- ónir króna og leggja niður skurð- lækningar á 5 þeirra.) Nokkur orð um starf- semina á Húsavík Við erum með 58 rúm og u.þ.b. 18.000 legudaga á ári. Fjögur af þessum rúmum eru á fæðingar- deild. Megnið og uppistaðan í starfseminni sem þama fer fram er hjúkrun. Ellihjúkrun, langtíma- hjúkrun en einnig hjúkrun ly- flæknis og handlæknissjúklinga. Eg vil gjarna orða það svo að í skjóli þess að fram fer elli- og langtímahjúkrun er hægt að koma við lyflækningum og skurðlækn- ingum á hagkvæman hátt. Árlega eru gerðar 268 skurðaðgerðir á inniliggjandi sjúklingum og 568 á göngusjúklingum. (Meðaltal 5 ára 1988-1992). Fæðingar 55 á ári. I gulu skýrsiunni bls. VII stendur að kostnaður við rekstur litlu Fylgstu meb í Kaupmannahöfn Morgunblabib fæst á Kastrupflugvelli og Rábhústorginu ptorgasttMafrffe -kjarni málsins! sjúkrahúsanna sé hár miðað við þá þjónustu sem þau veita, ein af mörgum staðhæfing- um sem ekki eru rök- studdar frekar eða settar í samhengi við tölulegar upplýsingar. Ég vil enn minna á það að raunar er ekki hægt að segja hvaða þjónusta (og þá tala ég um hjúkrun og aðra þjónustu eins og af- urðir sem eru mælan- legar) kemur út úr þessum né öðrum sjúkrahúsum fyrr en hjúkrunar- þyngd hefir verið mæld og skráð með stöðluðum aðferðum og borin saman um allt landið í skilgreindan tíma. Þangað til eru allar tilraunir til að mæla afurðir eða starfsemi eða afköst þessara stofnana dæmdar til ómarks vegna gífur- legrar skekkju sem þessi upplýs- ingaskortur veldur. (Má ég vitna í kaflann hér að framan um galla gulu skýrslunnar.) Hvað kosta skurðlækningar á Húsavík í dag? I gulu skýrslunni eru uppi til- burðir til að greina þetta og ekki með beysnum árangri sem ekki er von. Það tók færustú menn Bandaríkjanna 15 ár að læra að sundurliða og bera saman kostnað á sjúkrastofnunum og útúr því kom DRG-kerfíð sem höfundar gulu skýrslunnar hampa. Ég kann því miður ekki að gera grein fyrir DRG-kerfinu og viðurkenni það hreinskilnislega. Hinsvegar fann ég mína eigin aðferð til að reikna út hvað skurðlækningar á sjúkra- húsinu á Húsavík kosta, aðferð sem er bæði einföld og örugg. Aðferðin er svona: Ég spyr hveijum er hægt að segja upp störfum ef við hættum skurðlækn- isþjónustu á Húsavík. Ég ráðfæri mig um þetta við kollega, hjúkrun- arforstjóra, deildarstjóra og fram- kvæmdastjóra. Þegar fyrir liggur hveijum hægt væri að segja upp er ekkert annað en að fara í árs- reikninga og sjá hver launakostn- aður þessa fólks er á ársgrund- velli. Með þessu fæst megnið af kostnaðinum. Auðvelt á að vera að sjá kostn- að við efniskaup og tæki. Ársreikningar SH 1993 voru uppá 253 milljónir og með ofan- greindri aðferð fæst að kostnaður við skurðlækningar er undir 15 milljónum króna á ári eðá 6% af veltunni. Ég hefí ekki tök á að skoða hin sjúkra- húsin en kostnaður við skurðlækningar á þeim öllum er greinilega langt in'n- an við 100 milljónir kr. eða 2-3%o af heildarútgjöldum til heilbrigðis- mála. Með öðrum orðum skurðlækn- ingar á Húsavík kosta nánast ekki neitt ef miðað er við heildarútgjöld til heilbrigðsmála. Og hvað fæst þá fyrir þetta ekki neitt? U.þ.b. 900 aðgerðir á ári stórar og smá- ar, u.þ.b. 900 skráð viðtöl og á að giska 1.500 önnur erindi, sem ekki eru skráð sérstaklega. Ef skurðlækningar á Húsavík yrðu lagðar niður þyrfti eftir sem áðúr að reka þessi 3.300 erindi og ólík- legt að það yrði gert betur eða ódýrar með öðrum hætti og örugg- lega yrðu stóraukin útgjöld al- mennings (aukinn ferða- og dval- arkostnaður). Auðvitað er ekki hægt að skilja endanlega við kostnaðarmatið á þennan hátt. Það sem samfélagið hefír áhuga á að vita er það hvort t.d. kviðslitsaðgerð er dýrust eða ódýrust á Akureyri, Húsavík eða Borgarspítalanum, svo dæmi sé tekið. Þetta getur vérið býsna flók- ið dæmi (sjá Bandaríkin þar sem bestu menn þurftu 15 ár til að leysa dæmið fyrir sitt land) og hefír sennilega ekki tekist að leysa það enn á okkar landi svo óyggj- andi sé. Litlu sjúkrahúsin koma vel út Hins vegar er auðvelt að leiða líkur að því að Húsavík og lík sjúkrahús komi vel út í þessum verðsamanburði. Eins og áður var bent á er kostnaðurinn nauðalítill ef hann er reiknaður sem hluti af Minni sjúkrahús á landsbyggðinni eru, að mati Jóns Aðal- steinssonar, hagstæð í verðsamanburði. heildarútgjöldum til heilbrigðis- mála. Þar að auki næst mikil hag- kvæmni vegna samnýtingar á hjúkrun en það er hjúkrunin sem er meginuppistaða starfseminnar á dreifbýlissjúkrahúsum bæði að því er varðar magn vinnu og Íaunakostnað. Á litlu sjúkrahúsun- um er heldur enginn fastur kostn- aður vegna gjörgæsludeildar, en hann er hár. Hvaða áhrif hefir helmings niðurskurður á hjúkrun? Einn liður í tillögum gulu skýrsl- unnar var að framlög til héraðs- sjúkrahúsanna yrðu skert um kr. 800 milljónir. Þar af átti að skera niður á Húsavík ársframlag úr 253 millj. niður í 123 milljónir eða um 130 milljónir. Þar af 15 milljónir vegna skurðlækninga sem lagðar yrðu niður. Framlag til hjúkrunar yrði þá skert um kr. 115 milljónir. Eftir að hafa starfað á Húsavík í 18 ár get ég fullyrt að afleiðing- arnar yrðu þær að gamalt fólk og farlama færi að deyja í heimahús- um án þess að fá nægilega umönn- un, en þetta hefír ekki skeð í nokkra áratugi. Eitt atriði sem ekki er mikið fjallað um hvorki í gulu skýrslunni né á almennum vettvangi er að töluvert mikill hluti (4,5 milljarðar á ári) útgjalda til heilbrigðisþjónustu er fólginn í útgjöldum til hjúkrunar á fólki sem aldrei kemur aftur útí framleiðsl- una, m.ö.o. útilokað að peningarn- ir renti sig á nokkurn hátt. Ég hefi litið svo á að þetta væri okk- ar þjóð til sóma og við gætum borið höfuðið hátt af því að gam- alt og örvasa fólk losnar við þá áþján að hrekjast umhirðulaust og e.t.v. deyja úr næringarskorti og legusárum. (Fyrir áratugum var ég almennur læknir í dreifbýli og neyddist til að horfa uppá það að Jón Aðalsteinsson gamalt fólk dó heima úr blóðeitrun vegna legusára sem engin tök voru að hirða um.) Verði framlög skorin niður sem ofan greinir færist klukkan afturá- bak um fleiri áratugi. Ég þori varla að segja það, en í tali um spamað, hagræðingu og forgangs- röðun: hafa ráðamenn e.t.v. hugað að þessari hlið mála? Takmörkuð umhirða flýtir dauða farlama fólks og dauður maður kostar ekki pen- inga. Ég held ég afskrifi þennan möguleika og þessar þenkingar, þessi fyrirhugaði 7-800 milljóna niðurskurður er bara til kominn af fljótræði og takmarkaðri þekk- ingu á málum. Hvað er til ráða? Er þá allt gott og blessað eins og það er? Á þá bara að hjakka í sama farinu? Langt í frá. En lausn- ir og tillögur um áframhaldandi fyrirkomulag starfsemi þurfa að vinnast fyrir hveija einstaka stofn- un, og í samráði við heimamenn og starfsfólk. Þetta getur vissu- lega verið erfíð, seinleg og þreyt- andi aðferð en önnur leið er ekki til. Ég legg til að samráðsfundir verði látnir setja þróuninni ramma innan ákveðins svæðis og þar komi við sögu aðilar frá heilbrigðistofn- unum svæðisins, sveitarstjórnum og landlækni. Ég álít að skurð- lækningar á litlu sjúkrahúsunum séu það hagkvæmur kostur að í stað þess að leggja þær niður ætti fremur að þróa þá starfsemi og byggja hana upp innan þeirra marka sem aðstæður setja, og þar á ég fyrst og fremst við Ijarveru gjörgæsludeildar, en fræðilega séð eru engar aðrar skorður við því að á þessum stöðum mætti hafa fjölbreytilegt aðgerðaprógramm, þar á meðal kögunaraðgerðir en á því sviði hefir átt sér stað spenn- andi þróun. Lokaorð Ég vil að lokum segja við þá sem bera umhyggju fyrir málum velferðar og þá sérílagi heilbrigðis- þjónustu, sem talið hafa gulu skýrsluna nýtilega, að kynna sér plagg það af eigin raun en staldra síðan við og íhuga það, sem hér hefír verið bent á. Vafalaust má nýta betur þá fjármuni sem verða til í landinu en hvað varðar vannýtt fjármagn í dreifbýlinu er einungis um sparðatíning að ræða. Sjálfsagt er þó að gæta hagsýni þótt í smáu sé en umtalsverð skerðing á fram- lögum svo sem hér hefír verið boðuð leiðir til skertrar þjónustu. Svo einfalt er það. Höfundur er læknir. Aðalfundur Lyíjaverslunar íslands hf. Aðalfundur Lyjjaverslunar íslands hf. verður haldinn í Háskólabíói íReykjavík laugardaginn 29. apríl 1995 og hefst hann kl. ÍO.OO. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 14. gr. samþykkta félagsins. 2. Breytingar á samþykktum félagsins til samræmis við lög nr. 2/1995 um hlutafélög og niðurfelling ákvæðis um lágmarksmætingu á aðalfundi. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, þurfa að vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund. Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og reikningar félagsins, munu liggja frammi á skrifstofu félagsins 7 dögum fyrir aðalfunri. Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á skrifstofu félagsins, Borgartúni 7 á 2. hæð, dagana 24.-28. apríl kl. 9-12 og 13-16. Hluthöfum er vinsamlegast bent á að vitja fundargagna sinna fyrir kl. 16 fösludaginn 28. apríl. Stjórn Lyfjaverslunar íslands hf. Hættum að reykja Námskeið Heilsuverndar- stöðvarinnar gegn reykingum Takmarkaður fjöldi. Innritun stendur yfir á maí-námskeið. Upplýsingar í síma 22400 milli kl. 9-16 Heilsuverndarstöð Reykjavíkur v/Barónsstíg. Lungna- og berklavandadeild.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.