Morgunblaðið - 15.07.1995, Síða 40
iO LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
j§T J ÖR*T B í Ófenr
SEAN CONNERY ♦ RlCHARD GERE
)ULIA ORMOND
Frumsýning stórmyndarinnar
FREMSTUR RIDDARA
Stórleikararnir Sean
Connery, Richard Gere og
Julia Ormond í hreint
frábærri stórmynd leik-
stjórans Jerry Zucker
(Ghost). Goðsögnin um
Artús konung, riddarann
Lancelot og ástina þeirra,
Guinevere, er komin í
stórkostlegan nýjan bún-
ing. Myndin var heims-
frumsýnd föstudaginn
7. júlí í Bandaríkjunum
og Bretlandi.
Aðalhlutverk: Sean
Connery, Richard Gere,
Julia Ormond, Ben Cross
og Alec Guinness.
Leikstjóri: Jerry Zucker.
Sýnd kl. 5, 9 og 11.25.
Bönnuð innan 12 ára.
Prófið „First Knight"
pizzuna frá Hróa hetti.
Bíómiðinn veitir 300 kr.
afslátt af „First Knight"
tilboðinu.
IMMORTAL
BELOVED
Sýnd kl. 4.45.
LITLAR KONUR
Sýnd kl. 6.55.
★★★ Morgunp.
í GWNNRinOF
Hvað er smá moTÖ á
milli vina?
Sýnd kl. 7.20 í A sal. B.i. 16.
ÆÐRI MENNTUN
Nýjasta kvikmynd
leikstjórans
Johns Singleton
18.000 NEMENDUR
32 ÞJÓÐERNI
6 KYNÞÆTTIR
2 KYN
1 HÁSKÓLI
ÞAÐ HLÝTUR AÐ
SJÓÐA UPP ÚR!!!
Aðalhlutverk: Jennifer
Connelly, Kristy Swanson,
Laurence Fishburne, lce Cube,
Omar Epps, Michael Rapaport
og Tyra Banks.
Leikstjóri John Singleton.
Miðinn gildir sem 300 kr. af-
sláttur af geislaplötunni Æðri
menntun
(„Higher Learning") frá Músík
og myndum.
Sýnd kl. 9 og 11.25.
Bönnuð innan 14 ára.
STJÖRNUBIOLINAN
Sími 904 1065.
A4MBIÓIII! SAMUÍÓiU
TOMMV LEE
\lONE5
VAL
KILMER
FIMMTUD. 20/7 - KL. 9 BIOBORGIN
FÖSTUD. 21/7 - KL.11 BÍÓBORGIN
LAUGARD. 22/7 - KL. 9 BÍÓBORGIN
SUNNUD. 23/7 - KL. 6.45 BÍÓHÖLLIN
SUNNUD. 23/7 - KL. 11.15 SAGABÍÓ
Morgunblaðið/Ernilía
HÉR er Filippus ásamt Pétri
Einarssyni, fyrrverandi flug'-
málastjóra.
Morgunblaðið/RAX
FILIPPUS ásamt fyrrverandi
flugmálastjóra, Agnari Ko-
foed Hansen.
Kaffi
og rjóma-
pönnukökur
►í NÝLEGU tölublaði dagblaðs-
ins Financial Times birtist grein
eftir Farrol S. Kahn, sem þekkt-
ur er fyrir skrif sín um ferða-
mál. Þar minnist hann á uppgötv-
un sína á hentugleika þess að
miliilenda á íslandi á leiðinni
yfir Atlantshafið.
Hann segist þó ekki hafa verið
fyrstur til að fá þá hugdettu.
Filippus prins hafi það fyrir sið
að lenda hér á leið sinni yfir
Atlantshafið. Hann kalli þá á
flugmálasljóra og þeir drekki
saman kaffi og borði pönnukök-
ur með rjóma. Þess má geta að
Karl sonur hans þekkir einnig
til pönnsunnar, þar sem hann
hefur verið tíður gestur hér á
landi í gegn um árin á laxveiði-
ferðum sínum.
Sátt og
samlyndi hjá
Næss og Ross
►SÖNGKONAN þeldökka,
Díana Ross, sést hér yfirgefa
veitingastað í Lundúnum ásamt
eiginmanni sínum, Norðmannin-
um Arne Næss. Orðrómur hefur
verið uppi um samskiptaörðug-
leika þeirra hjóna, en umboðs-
maður Díönu hefur neitað honum
harðlega. Hjónin eiga tvo syni,
Ross sjö ára og Evan sex ára.
Díana á einnig þrjár dætur úr
fyrra hjónabandi, en hún hefur
verið gift Næss í næstum áratug.
Woodie
vísað út
LEIKARANUM fræga, Wo-
odie Harrelson, sem lék meðal
annars í myndinni Hvítir menn
geta ekki troðið, var fleygt út
af sýningu á Shakespeareleik-
ritinu Hamlet fyrir skömmu.
Ekki var það þó vegna óláta,
heldur þótti leikhússstjóranum
tveggja ára dóttir leikarans,
Denni Montana, of ung til að
horfa á slíkt bókmenntastór-
virki. Hér sést Woodie halda
á brott með grislinginn í örm-
um sér.
Afmælisveisla hjá Jerry Hall
► JERRY Hall, eiginkona Mick
Jaggers, varð 39 ára nýlega. í
tilefni af því heimsótti hún
eiginmann sinn til Parísar, þar
sem hann var staddur í Voodoo
Lounge-tónleikaför hljómsveit-
ar sinnar. Þar hélt Jagger konu
sinni að sjálfsögðu veislu.
Meðal gesta voru félagar hans
í Stones, Charlie Watts tromm-
ari og Ronnie Wood gítarleik-
ari. Einnig mætti gamli úlfur-
inn Jack Nicholson á staðinn.
Mick og Jerry, sem hafa verið
saman í 18 ár, eiga þrjú börn;
Elísabetu, sem er 11 ára, James
9 ára og Georgíu, sem er
þriggja ára.