Morgunblaðið - 15.09.1995, Síða 37

Morgunblaðið - 15.09.1995, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995 37 MINNINGAR GUÐBJORN MAR HJÁLMARSSON + Guðbjörn Már Hjálmarsson fæddist í Reykjavík 26. september 1982. Hann lést á Barnaspítala Hringsins 10. sept- ember síðastliðinn. Foreldrar hans eru Hjálmar Kristins- son og Halldóra Stefánsdóttir. Bræður hans eru Stefán, f. 4.7. 1979, og Smári, f. 30.5. 1966. Guðbjörn fluttist á vistheim- ilið að Einibergi 29 sumarið 1992. Hann var á daginn á Lyngási og í Safamýrarskóla. Útför Guðbjörns fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Jarðsett verður í Útskála- kirkjugarði. í DAG kveðjum við vin okkar Guð- björn Má, sem við kynntumst fyrst á leikskólanum Víðivöllum, en síðar á Vistheimilinu Einibergi er leiðir okkar lágu aftur saman fyrir u.þ.b. þremur árum. Minningu um fallegan dreng munum við ávallt geyma í hjarta okkar. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífs- ins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjðf, sem gleym- ist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynn- ast þér. (Ingibj. Sig.) Elsku Dóra, Hjálmar og Stefán, við vottum ykkur okkar innilegustu samúð. Megi Guð gefa ykkur styrk í sorg ykkar. Anna Marín Krisljánsdóttir, Guðrún Margrét Sigurðardóttir. Ég man þig sem lítinn snáða með stór brún augu. Ég man þig með íbygginn svip og alvarlegan. Ég man þig hlæjandi dillandi hlátri. Ég man þig sofandi værum blundi eða hijótandi hátt. Ég man þig á morgnana, þreyttan pilt. Ég man þig einnig spjallandi um drauma næturinnar, sem sumir rættust, aðrir ekki. Ég man þig. Elsku Dóra, Hjálmar og Stefán, minningarnar og ykkar innri styrk- ur munu hjálpa ykkur að takast á við komandi tíma. Agla Sigríður Björnsdóttir. Þau ljós sem skærast lýsa, þau ljós sem skína glaðast, þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið logaskæra sem skamma stund oss gladdi, sem kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi. Þó burt úr heimi hörðum nú hverfi ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (Friðrik G. Þórleifsson) Ég þakka Guðbirni fyrir sam- fylgdina. Minningarnar um hann eru margar og góðar. Þær munu lifa með mér um ókom- in ár. Guð blessi Guð- bjöm Má. Elsku Dóra, Hjálm- ar og Stefán, ég sendi ykkur mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. María Hildiþórsdóttir. Við kveðjum í dag Guðbjöm Má Hjálm- arsson. Á þessum tímamótum leita á huga okkar allar þær góðu minningar sem við eigum um Guðbjöm. Hann var einstaklega fallegur drengur með stór flauelsbrún augu sem sögðu svo margt. Vegna fötlunar sinnar talaði hann ekki á hefðbundinn hátt, en tjáði sig með merkjum sem við síðan smám saman lærðum að lesa úr. Guðbjöm var hógvær og iítillátur og gerði ekki miklar kröfur til umhverfísins. Á sinn hljóðláta hátt laðaði hann fólk að sér og við nán- ari kynni fór ekki á milli mála hversu sterkur persónuleiki hans var. Eiginleikar hans komu skýrt fram í daglega lífinu. Baráttuþrek, hugarró og styrkur vora hans að- alsmerki og hann þurfti svo sannar- lega oft á þessum eiginleikum að halda í baráttu sinni fyrir lífinu. En Guðbjörn var ekki einn á ferð, að baki honum stóðu foreldrar hans. Við starfsfólkið í Deild 1, sem höfum átt því láni að fagna að vera í þjónustu Guðbjöms og fjöl- skyldu hans, eram ríkari eftir. Við höfum fengið að kynnast þeirri samstöðu og gagnkvæmu virðingu sem einkennir fjölskylduna. Elsku Halldóra, Hjálmar og íjöl- skylda, við og bömin biðjum algóð- an Guð að styrkja ykkur öll í sorg- inni. Myndir og minningar um Guðbjöm Má era okkur dýrmætur fjársjóður um ókomin ár. Vemdi þig englar, elskan mín, þá augun fögra lykjast þín; líði þeir kringum hvílu hljótt á hvítum vængjum um miðja nótt (Steingr. Thorst.) Starfsfólk Deildar 1 í Lyngási og Safamýrarskóla. Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka, og böm, skólagöngu og störf og loks hvaðah útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletr- aður, en ekki í greinunum sjálf- um. Viltu sj á fleiri alvarlegar tölur? 135,8%* Hlutabréf Flugleiða hf -50,8%*1 Hlutabréf frá Tævan 88,4%* Hlutabréf Eimskips hf. 61> 7%* 1y,ó% Sjóður 6, íslensk hlutabréf ■ íþcu'ifi/iú'id/ii %/;mjó<U til 0 ( ’tnt ' Nafnávöxtun sl. 90 daga m.v. l.september 1995. en er það ekki svolítið broslegt að setja fram árangur við ávöxtun langtíma spariíjár... .. .yfir aðeins 90 daga ? Við hjá VÍB teljum að það gefi ekki rétta mynd af árangri við ávöxtun sparifjár að skoða stutt tímabil í senn. Mestu máli skiptir fyrir sparifjáreigendur að ávöxtun sé stöðug og góð yfir lengri tímabil. Því getur verið varasamt að byggja ákvörðun um ávöxtun peninga á upplýsingum um árangur til mjög skamms tíma. Jafnframt er mikilvægt að gera greinarmun á nafnávöxtun og raunávöxtun, sérstaklega eins og nú þegar verðbólga mælist meiri en verið hefur um urt skeið. no Hlutverk VÍB er að vaka yfir fjármunum viðskiptavina sinna og veita þeim bestu þjónustu sem völ er á. VÍB leitast við að rækta hlutverk sitt sem best meðal annars með eftirfarandi hætti: • Að ná bestu ávöxtun til lengri tíma • Að veita bestu upplýsingar um ávöxtun og eignir • Að vera i fararbroaai með fjármálaþjónustu sem bcetir hag viðskiptavina FORYSTA I FJARMALUM! VlB VERDBRÉFAMARKAÐUR (SL.ANDSBANKA HF. • AMIi að Veróbréjajnngi Islands • Ármúla 13a, 155 Rcykjavík. Símí 560-8900.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.