Morgunblaðið - 20.10.1995, Síða 1
RAKSTUR
4
MILLI 80 og 90
manns hafa látið
skrá sig á bið-
lista í fjórðu ferð
Samvinnuferða-
Landsýnar til
Bahamaeyja,
sem hugsanlega
verður farin 19.
nóvember næst-
komandi. Fyrsta
sex daga ferðin
þangað seldist
upp á örskömm-
um tíma og var
tveimur ferðum
því bætt við, 2.
og 12. nóvem-
ber Verð á þess- Morgynblaðið/Kjartan Magnússon
um ferðumer KÁTIR íslendingar á
tæplega 40 þús- Bahamaeyjum.
und krónur með gistingu í fimm nætur, flugvallas-
köttum og fararstjóm og er nú uppselt í þær.
Helgi Jóhannsson, framkvæmdastjóri Samvinnu-
ferða-Landsýnar segir að verið sé að undirbúa
flórðu ferðina 19. nóvember og kanna grundvöll
fyrir þeirri fímmtu, sem yrði yfír jól og áramót.
„Áhugi fólks á þessum ferðum fer ekki milli
mála, en þegar líða fer að jólum eykst ferða-
mannastraumur ti! Bahamaeyja og verð á gist-
ingu hækkar í samræmi við það. Við erum því
að leita að hagstæðu verði á gistingu fyrir far-
þega okkar, en óvíst er hvort tekst að fá gisti-
rými fyrir allan þennan fjölda í nóvember.“
Helgi kveðst gera ráð fyrir að 12-13 daga ferð
til Bahamaeyja um jól og áramót verði á svipuðu
verði og jóla- og áramótaferðir til Kanaríeyja,
en algengt verð á tveggja vikna ferð þangað á
þessum árstíma er á bilinu 70-95 þúsund krónur.
kynntir á tannlæknaþingi í síð-
ustu viku. Án baks kostar stóll-
inn tæpar 37 þús. krónur, en
með baki tæpar 45 þús. krónur.
Þeir eru á hjólum og hægt er
að hækka og lækka setuna og
stilla bakið eftir þörfum.
Þótt stólarnir bjóði ekki upp
á að konur sitji í sérstaklega
„dömulegum" stellingum við
vinnu sína segir Sigríður Ólafs-
dóttir, hjúkrunarfræðingur hjá
Dentalíu hf., að mikilvægara sé
að taka heilsuna fram yfir slík-
an hégóma. „í hnakkstól verður
meiri hreyfing á líkamanum og
blóðflæði til fótanna eðlilegra
en ella. Stóllinn tryggir einnig
að hryggsúlan er í ákjósanlegri
stöðu og því er minni hætta á
bakverkjum, en slíka verki má
oft rekja til óhentugra vinnu-
stellinga." ■
I
hnakkstól
við vinnuna
BAKVERKI, blóðrásartruflanir og alls
konar kvilla má efalítið rekja til óhent-
ugra stóla, sem þorri fólks situr á lung-
ann úr deginum. Hannaðar hafa verið
ýmsar gerðir stóla, sem eru stillanlegir
á ýmsa vegu og eiga að koma í veg fyrir
hvers kyns líkamleg óþægindi.
Ein nýjasta gerðin er áströlsk að upp-
runa og er sætið hannað eins og hnakkur.
Sérfræðingar í heilbrigðisstéttum komust
að raun um að margir fatlaðir, sem ekki
gátu setið óstuddir á venjulegum stólum,
voru mun stöðugri á hestbaki. I kjöl-
farið hóf dr. A.C Mandal
viðamiklar rannsókn-
ir á hvernig stólar
væru hentugastir.
Rannsóknin var m.a.
gerð á bókasöfnum,
þar sem starfsfólk og
gestir vinna jafnan
sitjandi. Til að sanna
kenninguna um að
seta í hnakk sé góð
líkamsstelling voru
gerðar tilraunir und-
ir handleiðslu
tveggJa iðjuþjálfara,
sjúkraþjálfara og
verkfræðings.
Afrakstur rann-
sóknanna var The
Bamback Saddle
Seat, sem kom á
markað í fyrra.
Umboðs- og dreif-
ingaraðili er Den-
talía hf. og voru
stólarnir fyrst
Enn íleiri til
Bahamaeyja
Kaupauki, tilboð
og afsláttur lokka og laða
TILBOÐ, afsláttur og kaupauki
virðast vera verslunarmáti nú-
tímans ef marka má fjölda aug-
lýsinga með slíkum boðum í
Morgunblaðinu í gær. Til-
boðsbæklingar frá verslunum og
veitingahúsum, sem koma í
stríðum straumum inn um bréf-
alúgur heimilanna, segja líka
sína sögu.
Neytendur virðast hafa úr
ýmsu að moða þessa dagana; eitt
hundrað vörutegundir á 100 kr.
stykkið í Nóatúnsbúðunum,
snyrtitaska með ýmsum snyrti-
vörum fæst í kaupbæti ef keypt
eru tiltekin krem í nokkrum snyr-
tivöruverslunum, 20% afsláttur
af þvottavélum í Fönix, sami af-
sláttur á sokkabuxum og mögu-
leikar á ferð fyrir tvo til Mexíkó
ef keypt er Marínó kaffi í Hag-
kaup að ógleymdu fjögurra daga
tilboðsverði á ýmsum vörum í
verslunum Kringlunnar.
Hugað að jólagjöfum?
Að sögn kaupmanna hafa við-
brögðin verið fádæma góð. Sem
dæmi segir Einar Halldórsson,
framkvæmdastjóri Kringlunnar,
að á miðvikudaginn, sem var
fyrsti dagur Kringlukastsins,
hefðu nítján til tuttugu þúsund
manns komið í Kringluna, en
venjulega kæmu tíu til ellefu
þúsund á venjulegum miðviku-
degi á sama árstíma. Einar telur
líklegt að margir séu þegar farn-
ir að huga að jólagjöfum.
En tilboðin eru víða annars
staðar en í Kringlunni. Versl-
unarmenn, sem Daglegt líf ræddi
við, sögðu einskæra tilviljun að
slík boð væru í gangi á sama tíma
og Kringlukastið. Flestir sögðu
að nýtt visakortatímabil réði
mikiu um tímasetningu. Einar
Jónsson, framkvæmdastjóri Nó-
atúnsbúðanna, var sammála því,
en hann sagði jafnframt að sú
staðreynd að kjötsala væri frem-
ur dræm á þessum árstíma vegna
mikils framboðs á heimaslátruðu
hefði haft sitt að segja..
„Það sem af er hefur aldrei
verið eins mikil sala á tilboðsvör-
um, en þetta er í fjórða sinn sem
við bjóðum ákveðnar vörur á 100
kr. stykkið. Nokkuð ber á að
smásalar komi og kaupi gjafa-
vöru í stórum stíl. Líklega ætla
þeir að selja hana dýrar þegar
nær dregur jólum,“ segir Einar
Jónsson að lokum. ■