Morgunblaðið - 20.10.1995, Page 8
8 B FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
Verkefni sveitarfélaye á hfifuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum
Gönguleið í óbyggðum bar
sem byggðin er béttust
NÚ ER ástæða fyrir göngugarpa
og áhugafólk um óbyggðaferðir
að kætast því þess er ekki langt
að bíða að ný og falleg, stikuð
gönguleið steinsnar frá höfuð-
borginni verði opnuð til útivistar.
Fáar eða engin höfuðborg í heim-
inum geta státað af sömu nánd
við stikaða óbyggðaleið sam-
kvæmt því sem kom fram á frétta-
mannafundi sem haldinn var í
Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn
13. október á vegum fram-
kvæmdanefndar um gerð göngu-
leiðar frá Þingvöllum að Reykja-
nesvita.
Hugmyndin að gerð göngu-
leiðarinnar var fyrst lögð fram í
stjóm Ferðamálasamtaka höfuð-
borgarsvæðisins af Ara Trausta
Guðmundssyni, jarðeðlisfræðingi.
Sagðist hann, á fundinum, vera
afar ánægður með hversu góðar
undirtektir hugmyndin hefði feng-
ið og hann hefði ekki órað fyrir
að hún yrði að veruleika á svo
skömmum tíma.
Bláar stikur og rauöar
Pétur Rafnsson, formaður ferða-
málasamtakanna, sagði að þörfín
fyrir merktar gönguleiðir væri mikil
og að það hefði háð göngumönnum
að geta ekki gengið þær merktu
leiðir sem til væru fyrr en nokkuð
væri liðið á sumarið. Nýja gönguleið-
in frá Þingvöllum að Reykjanestá
ætti að bæta úr þessu.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarstjóri, sagði að stefnt væri
að því að koma upp hvíldar- og
hreinlætisaðstöðu með reglulegu
millibili á leiðinni.
Sveitarfélög innan Samtaka sveit-
arfélaga á höfuðborgarsvæðinu og
Samtaka sveitarfélaga á Suðumesj-
um standa sameiginlega að verkefn-
inu. Hafíst var handa í sumarbyrjun
og er stefnt að því að ganga geti
hafist næsta vor. Leiðin frá Þingvöll-
um um Nesjavelli í Sleggjubeins-
skarð var stikuð fyrir og er nú langt
komið að stika leiðina frá Sleggju-
beinsskarði í Bláfjöll. Um sex til
átta daga tekur að ganga leiðina
alla en einnig er hægt að skipta
henni í tvennt, vesturlegg og austur-
legg, um Kaldársel. Vesturleggurinn
er áætlaður flórar dagleiðir og aust-
urleggur þjjár dagleiðir. Gönguleiðin
verður merkt með bláum stikum en
einnig verða settar upp rauðar stik-
ur sem vísa mönnum veginn niður
í sveitarfélögin og að fallegum stöð-
um utan höfuðleiðarinnar.
Áætlað er að verkefnið muni
kosta um 17 milljónir króna. í þeim
kostnaði er falin stikun leiðarinnar,
gerð tjaldstæða, uppsetning salema
og aðstöðu fyrir rennandi vatn,
bygging skála og gerð kynningar-
efnis.
Gönguleiðinni hefur ekki verið
gefíð nafn en hún hefur verið kölluð
Reykjavegur. Einnig hefur verið
stungið upp á nafninu Reykjanes-
vegur. ■
Reykjavegur
frá Nesjavöllum
oð Reykjanestá >.
Tll vestur
1. Kaldársel
Djúpavatni
Keflavík
Reykjá-
nestá
4. Þotb örn a& 3. Sandfell
Reykjanestá aö Þorbirni
— 2. Bláfjalla-
austurs. skáli í Hamragil
1. Kaldársel í Bláfjallaskála
l2. Djúpvatn ab Sandfelli . 1° km,
Morgunblaðið/Sverrir
ARI Trausti Guðmundsson sýnir hvar gönguleiðin um óbyggðir
Reykjaness liggur.
TO EUROPE.
.an t* ->»>»■ *
Qg AUGLYSINGAR frá Flug-
™ leiðum hafa undan-
S farnar
JjJ vikur
^3 verið
áberandi í
-J bandarísk-
™ um dag-
blöðum og tíma-
ritum. Einar Sig-
urðsson, upplýs-
ingafulltrúi Flug-
leiða, segir ástæðuna
þá að félagið leggi
nú vaxandi áherslu á
ferðir utan háanna-
timans.
Aukin áhersla Flug-
leiða á Bandaríkjamark-
að hófst í fyrra í kjölfar
endurskipulagningar fé-
lagsins á markaðstarfinu þar.
Einar sagði að nú á haustmán-
uðum væri starfið að fara af
stað fyrir alvöru og þá með
áherslu á ferðir utan háanna-
tíma. „Þegar Bandaríkjamenn
kaupa ferð til Evrópu leggjum
við sérstaka áherslu á tenging-
una um ísland og reynum að
nota það sem aðdráttarafl. Þá
seljum við helgarferðir til ís-
lands þar sem áhersla er lögð
Aukin áhersla
á Bandaríkin
á ævintýraþáttinn og stuttar
sérferðir af ýmsu tagi.“
Einar nefndi sem dæmi að í
nóvember væru væntanlegir um
300 Bandaríkjamenn yfir Þakk-
argjörðarhátíðina. Um áramót-
in er gert ráð fyrir
að á annað hundrað
manns verði hér frá
Bandaríkjunum og í
febrúar verður sér-
stök ferð í tengslum
við Valentínusardag-
inn. „Þá má nefna inn-
kaupaferðir fyrir jólin,
sérstaklega stUaðar á
ömmur og afa með
barnabörnin og snjó-
sleðaferðir þegar líða
tekur á veturinn.“
Einar segir að því sé
spáð að fjölgun erlendra
ferðamanna á Islandi á
næstu árum verði mest
meðal bandarískra ferða-
manna. Þeim eigi að geta
fjölgað um 10-13% árlega á
meðan ferðamönnum almennt
til landsins fjölgi um 5-6%.
Frá áramótum til september
sl. komu til íslands 23 þúsund
ferðamenn frá Bandaríkjunum.
Um er að ræða 14,2% af heildar-
fjölda útlendinga sem komu til
landsins. Á sama timabili í fyrra
komu til landsins rúmlega 16
þúsund Bandaríkjamenn eða
10,5% af heildarfjölda útlend-
inga sem hingað kom. ■
FERÐIR
UM HELGINA
Ferðafélag íslands
Sunnudaginn 22. október verða tvær
dagsferðir hjá Ferðafélaginu. Brott-
för í þær báðar er kl. 13 frá BSÍ,
austanmegin og Mörkinni 6. Annars
vegar er ganga á Keili og hins vegar
auðveldari ganga
að Sogaselsgíg
og Selsvöllum.
Miðvikudaginn
25. október verð-
ur fyrsta kvöld-
vaka vetrarins að
Mörkinni 6, stóra
sal. Kvöldvakan er tileinkuð kvæði
Jóns Helgasonar Áfangar og hefst
kl. 20.30.
Útivist
Sunnudaginn 22. október efnir Úti-
vist til dagsferðar fyrir alla fjölskyld-
una og verður lagt af stað kl. 10.30
frá BSÍ, bensínsölu. Gengið verður
niður í Húshólma, gömlu Krísuvík
og sérstæðar minjar um byggð í
Ögmundarhrauni skoðaðar. Þær fóru
undir hraun á síðari hluta tólftu ald-
ar að því er talið er.
Nokkrar tölulegar
upplýsingar um rekstur
Ferðamálaráðs 1994
Inneign hjá Seðlabanka íslands 01.01.1994 329.774
TEKJUR GJÖLD
Framlag Ríkissjóðs á árinu 94.765.040
Laun og almennur rekstur skrifstofu í Reykjavík og á Akureyri 20.796.984
Rekstur skrifstofu í Frankfurt (hlutur Ferðamálaráðs) 16.706.561
Rekstur skrifstofu í New York (hlutur Ferðamálaráðs) 13.481.751
Rekstur skrifstofu í Japan (hlutur Ferðamálaráðs) 3.909.183
Ráðstefnuskrifstofa íslands 7.551.649
Rekstur Upplýsingamiðstöðvar í Reykjavík (hlutur Ferðamálaráðs) Þátttaka í Nordisk Turistrad og European Travel Commission 4.000.000 1.378.776
Þátttaka í ferðasýningum 2.791.264
Til Ferðamálasamtaka landshlutanna 4.000.000
Önnur verkefni, þ.m.t. fundir og ráðstefnur 1.615.309
Ýmis landkynningarverkefni þ.m.t. kostnaðurvegna fslandsbæklings 11.709.940
Ýmis verkefni í umhverfismálum á Norður- og Austurlandi 4.040.029
Vest Norden samstarfið 2.452.046
Alls tekjur og gjöld Inneign 31.12.1994 95.094.814 94.433.492 661.322
Samtals 95.094.814 95.094.814
Hvað ef hótelið er yfirbðkað?
í Travel Holiday er að fínna ráð-
leggingar fyrir þá sem lenda í
því að hótelið sem þeir hafa bók-
að gistingu í, reynist yfirbókað
þegar þeir mæta á staðinn.
Athugaðu hvað þér er boðið.
Engin lög eða neytendareglu-
gerðir skylda hótelið til þess að
virða pöntun þína. Flest hótel
munu þó gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að útvega þér
gistingu í nágrenninu, koma þér
þangað án viðbótarkostnaðar og
veita þér ókeypis langlínusímtal.
Haltu ró þinni. „Þrátt fyrir að
þú sért að springa úr reiði vegna
stöðii mála er best að halda ró-
seminni og sýna þolinmæði, hef-
ur Travel Holiday eftir Ken Hine,
yfírmanni Samtaka bandarískra
hótela og gististaða. „Ef nauðsyn
krefur, sýndu óánægju þína og
farðu fram á betri þjónustu á
yfirvegaðan hátt án þess að
hækka róminn.“
Farðu samningsleiðina. Ekki
hika við að gera nokkrar sann-
gjarnar kröfur aukalega, svo sem
um stærra og betra herbergi,
ókeypis máltíð, eða jafnvel fría
helgargistingu einhvern tíma
síðar. Hótelið hefur þrátt fyrir
allt valdið þér óþægindum með
mistökum sínum. Það er hins
vegar ólíklegt beinar peninga-
greiðslur verði samþykktar. ■