Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996 D 19 Fræðslu- miðstöð um kristna trú Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir OLAF Engsbráten skólastjóri Biblíuskólans á Eyjólfsstöðum og Fanney Hauksdóttir starfsmaður skólans. Egilsstöðum - Á Eyjólfsstöðum, um 10 km frá Egilsstöðum, er starfræktur biblíuskóli og fræðslumiðstöð um kristna trú. Byijað var að byggja skólann 1979 og haldin voru stutt nám- skeið í háifkláruðu húsnæði í um 10 ár en 1989 var skólinn tekinn formlega í notkun og hefur starf- að síðan. Starfið er rekið af leikmanna- hreyfingu innan þjóðkirkjunnar sem nefnist Ungt fólk með hlut- verk. Sú hreyfing er meðlimur í alþjóðlegum samtökum, Youth with a Mission, og byggist, fræðslustarf skólans á fyrirmynd frá þessum alþjóðlegu samtök- um. Starfsmenn skólans eru að meðaltali 6-8 og eru það bæði Islendingar og útlendingar sem koma þá í gegnum alþjóðasam- tökin til starfa. Skólastjóri Bibi- íuskólans á Eyjólfsstöðum er 01- af Engsbráten. Biblíu- og boðunarstarf Aðalstarf skólans er námskeið sem stendur frá hausti og fram á vor. Það nefnist Biblíu- og boð- unarnámskeið og inniheldur fræðslu m.a. um hjálpræðisverk Jesú Krists, kraft fyrirgefning- arinnar, kristniboð, bænalífið o.fl. Kennarar eru bæði íslenskir og erlendir en á nýloknu nám- skeiði voru þrír erlendir fyrirles- arar, þeir Andy Glover og lan Peters frá YWAM í Skotlandi og Eyvind Fröen fjölskylduráðgjafi frá Noregi. Einn liður í nám- skeiðinu er svokallað boðunar- tímabil þar sem nemendur fá þjálfun í boðun fagnaðarerindis- ins. Þá fara þeir og taka þátt í safnaðarstarfi í kirkjum, barna- starfi, heimsóknum í skóla, barnaheimili og sjúkrahús svo eitthvað sé nefnt. Ennfremur eru nemendur með hugleiðingar og segja frá eigin reynslu af Guði, svo er leikræn tjáning og söng- ur. Nýlokið er einu slíku nám- skeiði hjá skólanum og var m.a. farið í 3ja vikna boðunarferð til Færeyja. Olaf segir námið byggjast á því að sama efni er kennt eina viku í senn og fengnir eru sér- hæfðir kennarar. Nemendur geta fengið persónulega ráðgjöf ef þeir óska. Fólki er leiðbeint með t.d. bænaiðkun og því hjálp- að að upplifa bænina. Höfð er til hliðsjónar hugmyndafræði Jesú þar sem hann kenndi lærisvein- um sinum og þeir voru með hon- um og upplifðu. Olaf segir að þjóðfélagsleg þróun í hinum vest- ræna heimi hafi gert kristna trú að bóklegum lærdómi, en mikil- vægt sé að lærdómurinn og reynslan fái að haldast í hendur. Námskeið Biblíuskólans hafa gagnast fjölmörgu fólki af ýmsu þjóðerni. Skráning er þegar haf- in á næsta námskeið sem hefst í september. Ungt fólk með hlut- verk tekur þátt í barna- og ungl- ingastarfi á Egilsstöðum og margt fólk hefur fengið þjálfun hjá þeim til þess að starfa í kristi- legum sumarbúðum. Önnur starfsemi fer einnig fram á Ey- jólfsstöðum, s.s. samkomur á hveijum sunnudegi, haldnar eru fjölskylduvikur á hverju sumri og svo eru 3ja daga mót um versl- unarmannahelgar. Aðilar að Ferðaþjónustu bænda og Héraðsskógum Biblíuskólinn rekur gistiþjón- ustu á sumrin og er aðili að sam- tökum Ferðaþjónustu bænda. Skólinn hefur góða aðstöðu og getur vel tekið á móti hópum. Ennfremur er skólinn aðili að Héraðsskógum og rækta starfs- menn skóg i landi skólans en landið er stórt og af nógu að taka. JÓGASTÖÐIN HEIMSLJÓS - OPIÐ HUS! Verið velkomin í ókeypis Kripalújóga, umbreytingardans og á námskeiðskynningar laugardaginn 13. apríl Jógatímar: Kl. 7,30,10.30,14.30 og 16.00. Umbreytingardans: Kl. 9.00,13.00 og 17.00. Kynningar: Kl. 12.00 Ölduvinna, vinna með tilfinningar. Kl. 13.00 Grunnnámskeið og Bikramjóga. Kl. 14.00 Listin að lifa í gleði og heilbrigði. Listin að lifa í gleði og heilbrigði 18. apríl-6. júní, fim. kl. 20-22. Námskeið um þig og lífið, samskipti, streitu, slökun mataræði, leik og gleði, líkamann og hugleiðslu. Leiðbeinandi: Nanna Mjöll Atladóttir. Helgarnámskeið með Dayashakti (Söndru Scherer) 10.-12. maí. Undir öruggri handleiðslu Dayashakti lærum við að vinna úr tilfinningum og að upplifa lífið til fulls. Næstu grunnnámskeið: 30. aprll-16. maí þri./fim. kl. 20-22 og 6.-22. maí mán./mið. kl. 20-22. Tilboð á 3ja mán. kortum kr. 9.000 og 4ra mán.kortum kr. 11.000 til 15. maí. JÓGASTÖÐItS HEIMSLJOS Ármúla, 2. haeð Sími 588 4200 kl. 1 5 Næstu námskeið: Grunnnámskeið 15. apríl-1. maí T sjSJ mán./mið. kl. 20-22. Undirstöðuæfingar Kripalújóga, öndun og slökun. Él''5! M Leiðbeinandi: Áslaug Höskuldsdóttir. Vellíðunarnámskeið 16.-26. apríi. jUi Þrið./fim. kl. 20-22. Vöðvabólga, höfuðverkir og orkuleysi. Kanntu að lesa úr skilaboðum líkamans? Leiðbeinandi: Kristín Norland. 17 Pósthólf: Heimilisfang:. lystaukandi glös fyrir lítið? Þú kaupir uppáhaldstegundirnar þínar af ljúffengu Göteborgs-kexi, sendir Qj strikamerki af þeim ásamt 399 krónum - og glasið er þitt. Þú getur valið úr fjölmörgum gerðum af Ritzenhoff glösum með myndskreytingum eftir heimsfræga listamenn þ.á.m. Erró. Fáðu þér bækling í næstu matvöruverslun. Njóttu vel! Sendist til: GÖTEBOGRS-KEX, Pósthólf 4132, 124 Reykjavík Ég sendi hcr með 6 strikamerki og 399 krónur. Innan 3ja vikna fæ ég sent kort frá Casa jiar sem mér verður boðið að koma í verslunina og velja mér glas, eða að láta senda mér, að kostnaðarlausu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.