Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 32
32 D FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ Hjartans þakkir til þeirra fjölmörgu, sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum ogskeyt- um á áttrœöisafmœlinu mínu. Sérstakar þakkir til barna minna og tengda- barna. Guð blessi ykkur öll. Guðmunda Þorbjörg Jónsdóttir frá Kjörvogi, Furugerði 1, Reykjavík. Innilegar þakkir vil ég fœra öllum þeim góðu frœndum og vinum, sem heimsóttu mig að Fremristekk 9 á sjötugsafmœli mínu með dýrð- legum gjöfum, blómum og veigum, bókum og sveigum, Ijóðum og hlýju hugarfari þann 28. mars síðastliðinn. Þið gerðuð mér þennan dag svo Ijúfan og góð- an að aldrei gleymist. Heill og hamingja fylgi ykkur. Gunnar Gunnarsson, Syðra- Vallholti. Amerísku heilsudýnumar Listhúsinu Laugardal Simi: 5 8 1 - 2 2 3 3 Veist þú hver kveikti í versluninni 17? Laugavegssamtökin heita 100 þús. króna verðlaunum fyrir upplýsingar sem leiða til handtöku þeirra er kveiktu í sorptunnum við verslunina 17, Laugavegi 91. Hafið samband við Rannsóknarlögreglu ríkisins, RLR, sími 554 4000. Fullum trúnaði heitið. 4- AÐSENDAR GREINAR Brottfall stúlkna úr íþróttum A SIÐUSTU árum hafa margar kannanir verið gerðar um hagi ungs fólks. Ein slík var gerð í þeim tilgangi að kanna hvort brottfall stúlkna úr íþróttum á unglingsaldri væri meira en pilta. Könnun þessi var unnin " fyrir tilstuðlan Umbótanefndar um kvennaíþróttir á vegum ÍSÍ og var leitað til Rannsóknastofnunar uppeldis- og mennta- málum (RUM) til'að sjá um framkvæmd könnunarinnar. Til nán- ari upplýsinga má geta þess að vísbending þessa efnis hafði komið fram í annarri könnun, sem unnin var af RUM. Könnunin var lögð fyrir í apríl 1994 í 11 grunnskólum í Reykjavík, Garðabæ, Keflavík og Akureyri. Það var 841 nemandi sem svaraði spum- ingunum, nokkuð jafnskipt milli kynja. Könnuninni er skipt í íjóra megin kafla: - íþróttaþátttaka - íþróttir og stuðn- ingur - íþróttir og umhverfi - íþrótta- félög, þátttaka og brottfall. í ijórum greinum verður fjallað um þessa þætti og i lokin skýrt frá verk- efni sem komið hefur verið af stað í þeirri von að hægt verði að gera stúlk- um eftirsóknarverðara að halda áfram sinni íþróttaástundun. Verkefnið hef- ur verið styrkt af menntamálaráðu- nejúinu, íþróttabandalagi Reykjavík- ur, íþrótta; og tómstundaráði Garða- bæjar og ISI. Um íþróttaþátttöku stúlkna Eins og fram kom í inngangi fékkst staðfestur sá grunur að stúlkur hætta mun fyrr og í meira mæli íþróttaiðkun, en piltar. Hér á eftir eru niðurstöður sem fram komu í svömm ungling- anna í könnuninni. Með öðrum orðum, piltar voru alltaf í mikl- um meirihluta í þeim hópi sem iðkaði íþróttir ijórum sinnum eða oftar í viku, en stúlkur í þeim hópi sem iðkar íþróttir einu sinni eða sjaldnar. í spurningum um hvort þau sæki íþrótta- tíma í skóla utan skyldu- tíma, í formi fijálsra mætinga, eru piltarnir í miklum meiri hluta. Þá vaknar sú spurning hvort átt er við keppnistíma. En í niðurstöðum könn- unarinnar kemur fram að stúlkur hafa ekki eins mikinn áhuga fyrir keppni og piltar. Einnig var í þessum hluta könn- unarinnar spurt um getu í íþróttum og hvemig líkamsþjálfun þeirra væri. Enn hallar verulega á stúlkumar, þær em í meirihluta í hópnum „í meðal- lagi“ og þar neðar, en piltarnir segj- ast fremur vera „frekar góðir og mjög góðir“. Það er ekki svo auðvelt að segja til um hvar orsakanna er að leita því ástæðurnar geta verið marg- ar. Erfitt er að trúa því að stúlkur séu ekki til þess fallnar að stunda íþróttir af sama kappi og piltar. Það kemur m.a. fram að stúlkur eru fáar í þeim hópi sem stundar íþróttir mjög oft í viku - allt að því daglega. Eg legg áherslu á það í þessu samhengi að það er ekki endilega markmið að iðka íþróttir sem oftast, heldur að tilboð séu við hæfí sem flestra og að hreyfing skipi sess í lífs- stíl allra, við hlið annarra áhugamála. Það er tvennt sem hafa þarf í huga Með mjúkri keppni, seg- ir Ingveldur Braga- dóttir, má takast á við að sigra og tapa. við skipulagningu iþróttastarfs, þ.e. íþróttir til þátttöku í keppni og svo íþróttaiðkun sér til heilsubótar. Flestar íþróttagreinar em þess eðl- is að erfitt er að stunda þær án ein- hvers konar keppni, því í keppninni reynir á leik og reglur íþróttarinnar. En keppni getur verið svo margs konar. Það er eðlilegur hlutur að íþróttafélögin vilji hafa sem besta keppnishópa innan sinna raða, en þar við hlið þyrfti að bjóða uppá annars- konar keppni þar sem ekki er eins mikið lagt uppúr „sigri“. Sem dæmi má nefna að haldin væru „skemmti- mót“. í slíku móti væri ákveðinn ijöldi iðkenda (þeir leikjahæstu) útilokaður frá þátttöku. Það færi eftir íþrótta- grein hver fjöldinn væri. Með þessu móti væri aukinn áhugi á að æfa íþróttina. Fleiri úr hópnum fengju tækifæri til þátttöku í „keppni", og ánægjan af spilinu fengi notið sín. Að vissu marki er keppni þroskandi og tel ég að með „rnjúkri" keppni megi læra að takast á við að sigra og tapa á jákvæðan hátt. Höfundur er verkefnisstjóri ISI um „Brottfall stúlkna úr íþrótt- um“. Ingveldur Bragadóttir Iþróttaíðkun pilta og stúlkna. U.þ.b.lx U.þ.b.2- u.þ.b.4- Svo til á í viku 3x í viku 5x í viku hverjum eða degi. sialdnar, Stór-sýning í Perlunni Fróðleg og spennandi sýning um þœr hei íslensk/dönsku boranir í Grœnlandsjökli. Leyndardömar íssins: Nöttúruviðburðir fortíðarinna eldgos og skógareldar. Kvikmyndasýning frö Grœntandi á klukkutíma fresti Sýningin er opin daglega frá kl. 1 um helgar frá kl. 11-18. Miðaverð 200 kr., ókeypis fyrir börn Indir 12 ára aldri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.