Morgunblaðið - 04.06.1996, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 1996 B 5
Morgunblaðið/Bjami Eiríksson
jafnaði
nstri fæti, utanfótarsnúningi. Knötturinn hafnaði í hægra horninu.
mfína
augardal
ur leikmaður. Hann lék sem hægri bak-
vörður. Miðverðirnir Ólafur Adolfsson
og Guðni Bergsson náðu sér aldrei veru-
lega á strik, hafa leikið betur. Birkir
Kristinsson stóð fyrir sínu í markinu,
varði nokkrum sinnum vel.
Illilega vantaði fljóta leikmenn eins
og Eyjólf Sverrisson og Arnar Gunn-
laugsson til að brjóta upp leik íslenska
liðsins, hleypa lífi í hann með hraða
sínum og krafti. Hreyfanleiki verður
að vera meiri á miðjunni, einstaklings-
framtak, hraða- og stöðubreytingar
verða að krydda Ieikinn og langar send-
ingar kantanna á milli. Þegar hreyfan-
leiki er á miðjunni er hægt að bjóða
upp á hættulegar sóknir og mörk.
Að ná ekki nema jafntefli gegn
Makedóníu á heimavelli, er ekki ásætt-
anlegt - sérstaklega þar sem lið Make-
dóníu er ekki sterkt og að öllu eðlilegu
á Island að fagna sigri, hvort sem er
á heimavelli eða útivelli.
Nedzmedin Memedi
aukaspyrnu sem dæmd var á Sigurð
Jónsson fimm metrum fyrir utan
vítateig. Memedi spymti knettinum
fram þjá fjögurra manna varnar-
vegg, Arnóri Guðjohnsen, Þórði Guð-
jónssyni, Rúnari Kristinssyni og Arn-
ari Grétarssyni. Knötturinn hafnaði
út við stöng án þess að Birkir Krist-
insson kæmi vömum við á 63. mín.
1a 4| Guðni Bergsson sendi
■ I knöttinn frá endamörk-
um inn í vitateig (65. mín.), þar sem
Rúnar Kristinsson tók við knettinum
og renndi honum til vinstri á Arnór
Guðjohnsen, sem var við markteigs-
horn. Hann spyrnti knettinum með
vinstri fæti, utanfótarsnúningi —
knötturinn hafnaði í hliðarnetinu
fjær.
iðeins of seint
sigra. Við vorum mun betri aðilinn í
upphafí, síðan datt þetta aðeins niður
hjá okkur. í seinni hálfleiknum fengum
við færi en í augnablikinu man ég ekki
eftir neinu dauðafæri sem þeir fengu.“
Lárus Orri sagðist þokkalega sáttur
með sinn hlut. „Ég er þokkalega sátt-
ur með sjálfan mig. Þetta var fyrsti
stórleikur minn og ég verð að viður-
kenna að ég var dálítið taugatrekktur
fram að þjóðsöngnum. Ef maður er
ekki aðeins á taugum fyrir leiki þá
er eitthvað að. Taugarnar komust í lag
um leið og þjóðsöngurinn hljómaði,
þá náði þjóðarstoltið yfirhöndinni.“
Þórður Guðjónsson fékk högg á lærið
í síðari hálfleiknum og varð að fara
útaf. ;,Ég er alls ekki sáttur við eitt
stig. Ég er að ná mér á strik eftir að
hafa verið í lægð vegna meiðsla og
nú er ég að vona að ég sé að komast
upp á hæðina. Það vantaði herslumun-
inn hjá okkur í fyrri hálfleiknum. Þeir
léku mjög þétta vörn sem gerði lítið
af mistökum og þeir náðu alltaf að
stoppa okkur áður en við komust alveg
í færi. Þeir spiluðu greinilega uppá
eitt stig, byijuðu að tefja strax í upp-
hafi og stíluðu uppá skyndisóknir. Það
fór auðvitað um okkur þegar við lent-
um undir, en við sýndum styrk með
því að jafna,“ sagði Þórður.
KNATTSPYRNA
Sterkt íslenskt landslið leikmanna 21 árs og yngri
Frábær byrjun
hjá strákunum
Morgunblaðið/Bjarni
Gult og svo rautt spjald
MAKEDÓNÍUMAÐURINN Goran Hristovski fékk sitt annað
gula spjald fyrir að hanga aftan í Bjarna Guðjónssyni. ís-
lenska liðið lék vel og vann sannfærandi sigur.
ISLENSKA landsliðið í knatt-
spyrnu, skipað leikmönnum 21
árs og yngri, sigraði jafnaidra
sína frá Makedóníu á Kapla-
krikavelli á laugardaginn. ís-
lenska iiðið var sterkara og
gerði tvö mörk úr vítaspyrnum
en gestirnir náðu ekki að svara
fyrir sig. Þetta var fyrsti leikur
liðsins í undankeppni Evrópu-
keppninnar þannig að óhætt er
að segja að byrjunin lofi góðu.
Íslendingar hófu leikinn af miklum
krafti og áhorfendur, sem voru
allt of fáir, höfðu mjög gaman af
því strákarnir léku
Skúli Unnar hratt og fengu mörg
Sveinsson ágæt færi. Markið lét
skrifar heldur ekki á sér
standa því á 6. mín-
útu skoraði Bjarnólfur Lárusson úr
vítaspyrnu sem dæmd var þegar
Þorbjörn Atli Sveinsson var felldur
í teiginum.
Þorbjörn Atli var aftur á ferðinni
síðar á sömu mínútu, komst þá óvænt
einn á móti markverði en lék beint
í fangið á honum. Frekar klaufalegt
hjá honum. Mínútu síðar áttu Make-
dóníumenn gott skot sem Árni Gaut-
ur yarði vel.
Áfram hélt fjörið, mikill hraði og
alltaf nóg um að vera þó svo færin
létu á sér standa. Gestirnir komu nú
meira inn í leikinn og réðu gangi
hans síðustu 25 mínúturnar. íslenska
vörnin gaf þó engin færi á sér og
miðjumennirnir voru duglegir að
hjálpa til. Menn voru þolinmóðir og
það kom ekki oft fyrir að varnar-
menn lentu einn á móti einum, alltaf
var einhver til aðstoðar. Svæðum var
lokað af kostgæfni og þrátt fyrir
skemmtilegan og stuttan samleik
gestanna komust þeir hvergi, enda
reyndu þeir helst að leika alveg upp
að marklínu. Islendingar skutust
snöggt í sóknina öðru hveiju og vörn
Makedóníu var óörugg, sérstaklega
þegar sóknarmennirnir pressuðu
stíft. Þorbjörn Atli gerði gestunum
oft lífíð leitt með dugnaði sínum.
Síðari hálfleikur hafði aðeins stað-
ið i fímm mínútur þegar Valur Fann-
ar komst inn fyrir vöm gestanna og
skaut í varnarmann og yfir, en hefði
hæglega getað rennt boltanum fyrir
markið á samheija. Þremur mínútum
síðar kom besta færi leiksins, og
færin gerast ekki betri. Andri Sig-
þórsson komst í gegn á miðjuhringn-
um, lék í átt að marki með samheija
sér til hvorrar handar, en markvörð-
ur gestanna náði boltanum af Andra
rétt innan vítateigs. Svona færi verð-
ur að nýta.
Einn leikmanna Makedóníu var
rekinn af velli á 69. mínútu og eftir
það sóttu íslendingar nær stans-
laust. Atli Eðvaldsson þjálfari setti
Skagamennina Bjarna Þórðarson og
Jóhannes Harðarson inná þegar hálf-
tími var eftir og þann þriðja, Stefán
Þórðarson, þegar stundarfjórðungur
var eftir. Stefán átti eftir að koma
mikið við sögu. Hann var felldur inn-
an vítateigs á 85. mínútu og skoraði
sjálfur úr vítaspymunni og á síðustu
sekúndu leiksins átti hann fastan
skalia í þverslána.
Allt íslenska liðið lék vel og það
er langt síðan menn hafa skemmt
sér eins vel á landsleik yngri lands-
liða okkar. Svo virðist sem Atla Eð-
valdssyni sé að takast að búa til
mjög gott lið í þessum aldursflokki.
í liðinu á laugardaginn voru sex leik-
menn sem ekki hafa leikið landsieik
í þessum flokki og aðrir sex höfðu
leikið einn leik. Skynsemin réð ríkjum
hjá strákunum og þó svo ekki gengi
að skora úr öllum þeim færum sem
liðið skapaði sér sýndu leikmenn
þolinmæði og héldu áfram. Brynjar
Gunnarsson átti stórleik í vörninni
og hinn miðvörðurinn, Guðni Helga-
son, var einnig mjög góður. Á miðj-
unni stjórnaði Valur Fannar og á
vængjunum áttu Sigurvin og Ólafur
góðan dag. Þorbjörn Atli var spræk-
ur frammi, en var samt ansi oft rang-
stæður. Besti maður vallarins var
samt fyrirliði Makedóníu, Blaze
Gorgioski (nr. 10), hann var allt í
öllu á miðjunni.
íslensku stúlkum-
ar töpuðu stórt
Kvennalandslið íslands átti ekki
möguleika gegn Frökkum og
tapaði 0:3 í undanriðli Evrópumóts
landsliða í knattspyrnu í Frakklandi
á laugardag.
Þa_ð var aðeins fyrstu mínúturnar
sem Islendingar léku eðlilega en eftir
fímm mínútur tóku Frakkarnir völdin
og yfírspiluðu íslensku stúlkumar
nánast það sem eftir var. Þær spiluðu
mjög fast, voru fljótari og leiknari
og sigur þeirra var því mjög sann-
gjam. Islenska liðið náði aldrei að
spila almennilega saman, nýtti kant-
ana illa og saknaði greinilega Guð-
laugar Jónsdóttur og Hjördísar Sím-
onardóttur sem verið hafa á köntun-
um.
Fyrsta mark Frakkanna kom eftir
tæplega hálftíma; eftir spil upp hægri
kantinn myndaðist þvaga í teignum
og Marinette Pichon skoraði af stuttu
færi. Markið var frekar ódýrt og hálf-
klaufalegt. Annað markið kom fljót-
lega í seinni hálfleik, á 54. mín., er
Emanuelle Sykora fékk nógan tíma
til að athafna sig yst í vítateignum
og skora með þrumuskoti. Þriðja
markið kom svo aðeins sex mín. síð-
ar, Sigfríður markvörður sió boltann
frá eftir fyrirgjöf en Pichon náði hon-
um og gerði annað mark sitt. Hún
lagði knöttinn reyndar greinilega fyr-
ir sig með hendinni áður en hún skor-
aði en annars ágætur belgískur dóm-
ari sá það ekki.
Inga Dóra Magnúsdóttir - sem
valinn var í landsliðshópinn á síðustu
stundu fýrir Guðlaugu Jónsdóttur sem
meiddist - kom inn á sem varamaður
fyrir Kristbjörgu Ingadóttur er nokkr-
ar mín. voru liðnar af síðari hálfleik.
Á sama tíma kom Ingibjörg Ólafsdótt-
ir inn fyrir Erlu Hendriksdóttur.
Þarna lét Kristinn þjálfari Margréti
og Ásthildi fara í fremstu víglínu,
spilið batnaði við breytingamar og
ísland komst meira inn í leikinn, án
þess þó að skapa sér nein tækifæri.
Inga Dóra stóð sig mjög vel í fyrsta
landsieiknum, Sigfríður var örugg í
markinu, Sigrún Óttarsdóttir átti
mjög góða spretti i bakvarðarstöðunni
og skapaði usla í frönsku vörninni,
og Vanda, Guðrún og Ragna Lóa
voru baráttuglaðar að vanda en máttu
ekki við margnum.
í heildina lék íslenska liðið illa og
búist var við mun meiru eftir ágætis
undirbúning. Liðið lék t.d. ágætlega í
æfingaferð til Portúgals í apríl og níu
leikmenn Breiðabliks, sem em í hópn-
um, léku á móti í Danmörku í vor.
Næsti leikur er á morgun í Holiandi.
Síðasti leikur Islands er svo við Rússa
úti 17. ágúst og þurfa íslensku stúlk-
umar að sigra í báðum leikjunum til
að eiga möguleika á að komast áfram.
Gat varla
verið betra
„ÉG er mjög ánægður með
strákana og þetta gat varla
verið betra,“ sagði Atli Eð-
valdsson, þjálfari landsliðs-
ins, sem skipað er leikmönn-
um 21 árs og yngri, eftir sig-
urinn í Hafnarfirði.
„Strákarnir spiluðu mjög
vel. Við komumst í gegnum
vörnina fjórum til fimm sinn-
um og hefðum átt að skora
fleiri mörk. Þetta er nýtt lið
sem ég er með og þetta var
fyrsti leikurinn, þannig að
maður getur ekki heimtað
allt. Makedóníumenn komust
inn í leikinn síðari hluta fyrri
hálfleiks, en það er eðlilegt.
Við vorum yfir og strákarnir
höfðu leikið af miklum krafti
og þá er oft hætt við að
menn gefi aðeins eftir.
Ég hef þá trú að þetta sé
bara fyrsti sigurinn þjá okk-
ur því það verður stígandi í
leik okkar í keppninni. Þetla
eru toppstrákar og þeir léku
mjög vel, bæði agað og af
mikilli skynsemi,“ sagði Atli.