Morgunblaðið - 01.12.1996, Page 11

Morgunblaðið - 01.12.1996, Page 11
HVlTA HÚSIÐ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1996 E 11 Nú fjórum árum eftir úfgáfu Tröllakirkju sendir Ólafur Gunnarsson frá sér Blóðakur, magnaða og spennandi sögu hlaðna stór- viðburðum. Reykjavík logar í óeirðum - atburður sem endur- speglar fræg átök sem hér urðu á þriðja áratugnum og það sem þar gerðist á bak við tjöldin. „...bráðskemmtileg og spennandi...sjaldgæft að íslenskar skáldsögur takist jafn óhikað á við jafn „stór“ viðfangs- efni...í andrúmslofti þessarar bókar ganga jafnvel hinir æsilegustu atburðir algjörlega upp...Ef ég væri í stjörnu- gjafarbransanum myndi ég gefa henni nokkur sólkerfi." Helgarpósturinn/lllugi Jökulsson „Mögnuð og spennandi" Helgarpósturinn/lllugi Jökulsson 0 FORLAGIÐ „Þjóðsögur Jóns Múla eru 1jallskemmtilegar“ Helgarpósturinn/Oddgeir Eysteinsson Jón Múli Árnason, einhver vinsælasti útvarpsmaður þjóðarinnar, hefur skráð endurminningar sínar. Þetta er bókin um það sem bar fyrir augu og eyru þjóðsagnaþularins þegar hljóðneminn heyrði ekki til. Hér má lesa bæði kímilegar og dularfullar útvarps- sögur frá liðinni tíð, ævintýri af tónlistarmönnum, sögur úr síldinni, minningar um Árna frá Múla og Rönku í Brennu og þeirra samferðafólk og frásagnir af því þegar enn var slegist um pólitík. Jón Múli Árnason kann þá dýrmætu list að gæða frásögnina leiftrandi húmor og hjartahlýju. Enginn unnandi góðra endur- minningabóka ætti að láta þetta verk framhjá sér fara. Laugavegi 18 • Sími: 552 4240 Síöumúla 7-9 • Sími: 568 8577

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.