Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ 2 B MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997 ÍÞRÓTTIR Að loknu 57. Skíðamóti íslands á Ólafsfirði/Dalvík um páskana Frá 1938 hafa þessir oftast orðið íslandsmeistarar í alpagreinunum, svigi og stórsvigi z * 3 d Svig kvenna E> Jakobína Jakobsdóttir, ísaf., (1954-62) ~^k ~^k ~^k Ó Ásta S. Halldórsdóttir, ísafiröi, (1989-95]T <3f : •:> Árdís Þórðardóttir, Siglufirði, (1964-68) Svig karla l|> Stórsvig kvenna l|> <3 5 Kristinn Benediktsson, ísaf., (1960-65) <% 4" Eysteinn Þórðarson, Reykjav., (1955-58) | ♦ t Jakobína Jakobsdóttir, ísafirði, (1953-56) Stórsvig karla l|> C Kristín Þorgeirsdóttir, Siglufirði, (1960-63) 5 Krislinn Björnsson, Ólafsfirði, (1991-97) < # ■ Árdís Þórðardóttir, Siglufirði, (1964-68) VEysteinn Þórðarson, Reykjavík, (1955-60) <3 W\ Nanna Leitsdóttir, Akureyri, (1981-84) j <... fxV? Kristinn Benediktsson, ísaf., (1961-67) <3 Ásta S. Halldórsdóttir, ísafirði, (1991-95) j ■ RÚNAR Kristinsson, landsliðs- maður í knattspyrnu^ var með mikla sýningu, þegar Órgryte vann norska liðið Lilleström í æfingaieik um helgina, 5:3. Rúnar skoraði fyrsta mark leiksins fyrir sænska liðið og lagði upp tvö mörk. ■ KRISTJÁN Jónsson fékk mjög góða dóma í leik með Elfsborg - var einn af bestu mönnum vallarins er liðið vann Heslenholm 1:0. ■ ÞRENNIR feðgar tóku þátt í Skíðamóti íslands og er það fátítt að feðgar keppi innbyrðis í sömu íþróttagreininni. Feðgarnir kepptu allir í göngu. Magnús Eiríksson og sonur hans, Ingólfur, Ingþór Bjarnason og sonur hans, Rögn- valdur og síðan Björn Þór Ólafs- son og sonur hans, Ólafur. Björn Þór á annan son, Kristin, sem sigr- aði í stórsvigi og risasvigi. ■ MIKIL uppbygging íþróttamann- virkja hefur átt sér stað á Ólafs- firði síðustu árin. Þorsteinn Ás- geirsson, forseti bæjarstjórnar Ól- afsfjarðar, sagði í ræðu sinni við verðlaunaafhendingu á páskadag að uppbyggingin í bænum síðustu átta árin væri sambærileg við það að Reykvíkingar hefðu sett 20 milljarða í íþróttamannvirki á síðustu átta árum ef miðað er við íbúaij'ölda! _ ■ EIN stúlkan í liði nýkrýndra ís- faém FOLK landsmeistara Grindavíkur í körfu- knattleik, Hekia M. Sigurðardóttir var fermd í Grindavík kl. 14 á skír- dag, skaust heim eftir athöfnina og bað gestina að gjöra svo vel og rauk síðan til Reykjavíkur í úrslitaleikinn gegn KR. Sannarlega eftirminnileg- ur fermingardagur hjá henni. ■ GRINDVÍKINGAR fjölmenntu til að fylgjast með sínum stúlkum og meðal áhorfenda var Frirðik Ingi Rúnarsson þjálfari karlaliðs- ins. Hann faðmaði Ellert þjálfara stúlknanna að sér eftir leikinn og fagnaði innilega en Ellert benti hon- um á að nú væri komið að honum að halda í meistaratitil karla. ■ MICHAEL Moorer frá Banda- ríkjunum hélt heimsmeistaratitli IBF sambandsins í þungavigt hnefaleika á laugardag með því að sigra Vaughn Bean á stigum í Las Veg- as. Meistarinn þótti sýna lítil tilþrif og bauluðu áhorfendur á hann að bardaganum loknum. ■ MARTINA Hingis frá Sviss komst í efsta sæti heimslistans í tennis eftir sigur á móti í Bandaríkj- unum um helgina, þar sem hún sigr- aði Monicu Seles í úrslitaleik 6:2, 6:1 á aðeins 44 mínútum. Hingis er aðeins 16 ára og yngsti tennisleik- ari sögunnar sem kemst í toppsæti listans. ■ STEFFI Graf hefur lengi verið í efsta sæti heimslistans í tennis. Hún var ekki með á mótinu um helg- ina oger nú í öðru sæti heimslistans. ■ PALL Ketilsson, kylfingur og ritstjóri Víkurfrétta tók þátt í at- vinnumanna-/áhugamannamóti á Kanaríeyjum í síðustu viku, daginn áður en aðalmótið hófst, mót sem var í evrópsku mótaröðinni. Páll var í liði með Jarmo Sandelin frá Sví- þjóð og stóðu þeir sig bærilega. Páll var í boði spænska ferðamála- ráðsins á mótinu og notaði tækifær- ið til að vinna fyrir Stöð 2, en þar sér hann um golf. ■ GUNNHILDUR Hinriksdóttir fijálsíþróttakona úr HSÞ sigraði í 400 m grindahlaupi á háskólamóti í Flórída um helgina. Gunnhildur sem keppir fyrir Georgíuháskólann í Athens fékk tímann 60,11 sekúnd- ur. LANDSMÓT Skíðamót íslands, hið 57. í _ röðinni, fór fram á Dalvík og Ólafsfirði um páskahelgina og þótti takast vel. Skipulagn- ing var til fyrirmyndar og að- stæður allar eins og best verður á kosið og veður- guðirnir hliðhollir móts- höldurum. Ólafsfirðingar unnu fiest gullverðlaun á mótinu, eða níu alls. Meira var nú lagt upp úr umgjörð göngukeppninnar en áður. Á Dalvík fór göngu- keppnin fram í miðbænum á knattspymuvelli bæjarins og minnti umgjörðin á mótahald í útlöndum. A Ólafsfirði var sama umgjörð á tjöminni í miðbænum og hefur undirritaður sjaldan séð eins marga áhorfendur á göngukeppni og komu til að sjá boðgönguna á fostudaginn. Norðlendingar hafa stigið skrefí framar en aðrir og fært keppn- ina til fólksins og er það vel. Keppnin í alpagreinum var ekki eins skemmtileg á að horfa. Ástæðan var sú að Skíðamót íslands var einnig liður í alþjóð- legri mótaröð Skíðasambands- ins og að mínu mati fer þetta tvennt ekki saman. Á meðan íslensku skíðamennirnir reyndu allt hvað þeir gátu til að ná sem bestum tíma, komu erlendu keppendurnir niður brautina í hægagangi og námu nánast staðar til þess eins að vera ekki of langt á undan íslendingun- um. Þetta var eins og skrípaleik- ur og margir áhorfendur skildu hvorki upp né niður í þessu. Ástæðan fyrir þessari uppá- komu var sú að erlendu kepp- endurnir vom sérstakiega keyptir til landsins til að gefa ísiensku skíðamönnunum kost á að ná sér í betri punkta (Alþjóð- leg styrkstig - FlS-stig) sem gefur þeim tækifæri til að kom- ast ofar á styrkleikalista Al- þjóða skíðasambandsins. Austurrísku skíðamennirnir Kilian Albrecht og Hermann Schiestl höfðu mikla yfirburði í stórsviginu enda eru þeir í kringum 30 á heimslistanum. Þeir opnuðu hliðið í rásmarkinu og settu þannig klukkuna í gang nokkru áður en þeir lögðu af stað og síðan stóðu þeir upp þegar þeir áttu tvö til þijú hlið eftir svona rétt til að hægja á sér áður en þeir komu í markið. Þrátt fyrir þennan gjöming voru þeir með bestu tímana. Þetta er mikil niðurlæging fyrir ís- lensku keppenduma sem reyndu allt hvað þeir gátu. „ís- lensku keppendurnir fá að minnsta kosti góða punkta,“ sagði einn þeirra sem stóðu að mótinu og fannst þetta allt í lagi. „Við vitum að þetta tíðkast á Norðurlöndunum, en heima i Austurríki þekkist þetta ekki því við erum með svo sterka skíða- menn. Þar þurfa keppendur að hafa fyrir því að ná árangri,“ sagði Hermann Schiestl, annar austurrísku skíðamannanna. Hann viðurkenndi að það væri ekki gaman fyrir áhorfendur að horfa upp á þetta sjónarspil. Skíðamót Islands, sem á að vera hápunktur íslenskrar skíðamenningar, er ekki til þess fallið að hafa að leiksoppi. Valur Benedikt Jónatansson „íslensku keppend- urnir fá að minnsta kosti góða punkta“ Hvererþessi PAGNÝ LIIMPA KRISTJÁNSPÓTTIR skíðakona frá Akureyri? Ævintýri lík- ast að sigra DAGNÝ Linda Kristjánsdóttir stal senunni á Skíðamóti íslands sem haldið var á Ólafsfirði og Dalvík um páskana. Þessi 16 ára stúlka frá Akureyri varð tvöfaldur íslandsmeistari, sigraði í svigi og alpatvíkeppni og varð þriðja í stórsvigi og risasvigi. Hún hefur unnið flest bikarmót Skíðasambandsins í vetur og var á sunnudag krýnd bikarmeistari SKÍ1997. Dagný Linda er dóttir Kristjáns Vilhelmssonar, varaformanns Skíðasam- bands íslands og eiginkonu hans, Kolbrúnar Ingólfsdóttur. Dagný Linda er á fyrsta ári í Verkmenntaskólanum á Ak- ureyri og hefur þegar sótt um inn- göngu í skíða- Eftir menntaskóla í Nor- Val B. egi næsta vetur. Jónatansson J>ó hún sé ung að árum hefur árang- ur hennar í fullorðinsflokki í vetur vakið mikla athyglj. En átti hún von á því að verða Islandsmeistari í svigi á fyrsta ári sínu í kvenna- flokki? „Nei, alis ekki. Ég vissi það fyrirfram að Brynja [Þorsteins- dóttir] og Theodóra [Mathiesen] væru betri en ég og því bjóst ég ekki við neinu.“ Brynja keyrði út úr í fyrri um- ferð í sviginu og þá varst þú í öðru sæti, hvað hugsaðir þú áður en þú fórst niður í síðari umferðina? „Ég tók enga áhættu vegna þess að skíðafærið í brautinni var slæmt. Ég hugsaði fyrst og fremst um það að komast niður brautina." Hvernig er það fyrir 16 ára stúiku að verða Islandsmeistari? „Það er mjög gaman og nánast ævintýri líkast. Ég hefði hins vegar aldrei unnið ef Brynja og Theodóra hefðu komist niður. Það má því segja að ég hafi verið heppin. En það er hluti af keppninni að kom- ast niður og klára og mér tókst það.“ Þú varst þriðja í risasviginu og stórsviginu, ertu ánægð með það? „Já, ég get ekki annað. Ég átti góðar ferðir í stórsviginu og var ekki svo langt á eftir þeim. Þær eru búnar að æfa á fullu erlendis og eru eldri og reyndari." Hefur þú ekkert æft erlendis í vetur? „Jú, ég fór í æfingaferð til Lille- hammer í Noregi með Skíðaráði Morgunblaðið/Uolli DAGNÝ Llnda Kristjánsdóttir frá Akureyri er hér með upp- skeruna eftir skíðalandsmótið um páskana. Akureyrar milli jóla og nýárs. Svo keppti ég á ólympíumóti æskunnar í Sundsvall í Svíþjóð í febrúar. Það gekk ágætlega hjá mér í stórsvig- inu þar en ekki í sviginu." Eru krakkar á þínum aldri á Norðurlöndunum betri en þú? „Já, ég held það. Þeir búa við miklu betri aðstæður til æfinga en við hér heima. En þeir eru ekki það miklu betri að ég geti ekki náð þeim ef ég fæ tækifæri til að æfa við sömu aðstæður. En við eigum enga möguleika ef við æfum eingöngu hér á íslandi." Stefnir þú að því að fara utan til æfinga? „Já, ég er þegar búin að sækja um inngöngu í skíðamenntaskól- ann ! Geilo í Noregi. Það verður svo bara að koma í ljós hvort ég kemst inn í skólann eða ekki.“ Hvaða markmið setur þú þér á skíðunum? „Ég er ákveðin í að halda áfram að æfa á fullu og auðvitað er stefn- an að komast alla leið á Ólympíu- leika - það er toppurinn." Þú hefur verið sigursæi á mótum hér heima í vetur. Hvað áttu marga gullpeninga eftir veturinn? „Ætli þeir séu ekki orðnir tutt- ugu. Það er nú líka vegna þess að ég hef verið að keppa bæði í unglinga- og fullorðinsflokki." Hvernig gengur að samræma námið og skíðin? „Það gengur ekkert of vel. Ég hef ekki haft rosalegan áhuga á náminu að undanförnu. En nú eft- ir landsmótið get ég farið að ein- beita mér að námsbókunum fram á vorið.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.