Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ SKÍÐAMÓT ÍSLANDS MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997 B 5 Lísbet þrefald urmeistari Lísbet Hauksdóttir, Ólafsfírði, varð þrefaldur meistari í göngu kvenna. Hún sigraði í 5 km, 7,5 km og göngutvíkeppni. Hún varð einnig bikarmeistari SKÍ 1997. Lísbet var fimm mínútunum á undan Hönnu Dögg Maronsdóttur, Ólafsfirði, í 5 km göngunni á Dal- vík á skírdag. Lína Gunnarsdóttir frá Dalvík varð þriðja og vann þar með fyrstu verðlaun Dalvíkinga í skíðagöngu kvenna. „Fimm kílómetra gangan var nokkuð erfíð, sérstaklega vegna þess að ég fékk hlaupasting og því voru síðustu metramir erfiðir," sagði Lís- bet sem féll í snjóinn er hún kom í markið og það tók nokkrar mínútur að koma henni aftur á fætur. í 10 km göngunni sem fram fór á Ólafsfirði kom hún í mark á 29,42 mínútum og var mínútu á undan stöllu sinni, Hönnu Dögg. Hólmfríð- ur Vala Svavarsdóttir, Ólafsfirði, varð þriðja, en hún keppti ekki í 5 km göngunni. Sænska stúlkan Laila Nilson, sem er gönguþjálfari Ólafsfirðinga, keppti sem gestur og náði besta tímanum í báðum göngunum. NOKKRIR íslandsmeistarar fyrri ára tóku þátt í Skíðalandsmótinu og kepptu í sérstökum flokki, 35 ára og eldri, í göngu. Þarna mátti sjá gamlar kempur eins og Trausta Sveinsson og Magnús Eiríksson, sem kepptu á sínum tíma fyrir Fljótamenn, Björn Þór Ólafsson, Ólafsfirði og ísfirðinginn Kristján Rafn Guðmundsson, sem varð ís- landsmeistari í 15 km göngu árið 1965, eða fyrir 32 árum. Þessir kappar sýndu að lengi lifir í göml- um glæðum. Þeir hafa greinilega haldið sér vel við og eru í góðri líkamlegri æfingu. Magnús sigraði í 30 km göngu Magnús Eiríksson, sem keppti fyrir Siglufjörð og varð margfaldur íslandsmeistari á áttunda áratugn- um, sigraði í 30 km göngu í flokki 35 ára og eldri. ísfirðingarnir Kristján Rafn og Sigurður Gunnars- son urðu í öðru og þriðja sæti. í 15 km göngunni sigraði hins vegar Ingþór Bjarnason, Fljót- um, Magnús Ei- ríksson varð annar og Björn Þór Ólafs- son, Ólafsfirði, þriðji en hann vai fyrst íslandsmeii ari í stökki 1965 Daníel Jakobsson hefurunnið 15 íslandsmeistaratitla: Frekar létt Daníel Jakobsson frá Ólafsfirði hafði mikla yfirburði í skíða- göngunni á Skíðalandsmótinu sem fram fór á Ólafsfirði , D og Dalvík um pásk- Valur B. ö TT v lónatansson ana. Hann vann skrifar fern gullverðlaun, sigraði í 15 og 30 km göngu og um leið í göngutví- keppni og var í sigursveit Ölafs- fjarðar í boðgöngu. „Það er alltaf garnan að koma heim og keppa á landsmóti,“ sagði Daníel, sem hefur nú unnið 15 ís- landsmeist- aratitla frá 1992. Daníel, sem var að keppa í fyrsta sinn hér heima í ýetur, byijaði jgJþví að vinna ■15 km gönguna með frjálsri aðferð á skír- dag. Hann fór næstsíðastur af stað af 21 keppanda og kom fyrstur í mark. Hann var rúmum þremur mínútum á undan Ólafi Björnssyni frá Ólafsfirði sem varð annar og fjórum mínútum á undan Einari Ólafssyni, fyrrum íslandsmeistara, sem keppir fyrir Akureyri. „Ég var mjög sprækur í 15 kíló- metra göngunni. Það voru engar erfiðar brekkur en ég varð að halda taktinum alla leiðina. Ég vissi það flótlega að ég var með forystu og þá var bara að halda henni. Þetta var frekar létt ganga fyrir mig og ég þurfti ekki að taka út síðasta „túrbóið" eins og _oft í erfiðum göngum erlendis. Ég er í mjög góðri æfingu og því kannski eðli- legt að ég sigri því ég hef æft mun meira en keppinautarnir," sagði Daníel. I 30 km göngunni voru yfirburð- irnir enn meiri. Daníel gekk 30 km á 1.24,48 klst. og var tæpum sex mínútum á undan Rögnvaldi Ing- þórssyni, sem keppir fyrir Fljóta- menn. Einar Ólafsson varð þriðji, aðeins sjö sekúndum á eftir Rögn- valdi. Þetta var fimmta árið í röð sem Daníel sigrar í 30 km göngu á Skíðamóti íslands. „Ég er mjög léttur núna og það voru góðar aðstæður hér á Olafs- firði í 30 km göngunni. Þetta hef- ur verið ánægjulegt mót og skipu- lagningin til fyrirmyndar. Eg held að það sé uppgangur í göngunni hér heima. Það er langt síðan svo margir keppendur hafa tekið þátt í landsmóti. Ungu strákarnir eru líka sterkari en áður og framtíðin ætti því að vera nokkuð björt,“ sagði íslandsmeistarinn. Jón Garðar Steingrímsson þrefaldur meistari Skemmtileg boðganga BOÐGANGAN fór fram á Ólafs- firði á föstudag og tóku níu sveitir þátt í henni og hafa aldr- ei verið fleiri. Gangan var spennandi í byrj- un. Akureyringar tóku fljótlega forystu og B-sveit þeirra var í öðru sæti. Ólafsfirðingar, sem hafa unnið boðgönguna síðustu tvö ár fóru rólega af stað og voru í fimmta sæti eftir fyrsta sprett, voru þá þremur mínút- um á eftir Akureyringum og farið aðfara um heimamenn. Þá tók Ólafur Björnsson við af Árna Gunnarssyni fyrir Ólafs- fjörð. Ólafur náði að minnka muninn niður í tvær mínútur áður en Daníel tók síðasta sprettinn. Daníel náði Þoroddi Ingvarssyni, sem gekk síðasta sprett fyrir Akureyri, þegar fimm kílómetrar voru eftir. Hann lét síðan forystuna ekki af hendi eftir það og kom í mark einni og hálfri minútu á undan Þoroddi og tryggði Ól- afsfirðingum íslandsmeistara- titilinn þriðja árið í röð. Boðgangan fór fram í miðbæ Ólafsfjarðar og voru áhorfend- ur um 200 og mikil stemmning meðal þeirra. Umgjörðin var öll sú glæsilegasta og sýnir að hægt er að gera boðgöngu mjög áhorfendavæna. Morgunblaðið/Golli JÓN Garöar Steingrímsson frá SiglufirAi tók vel á og var greinilega þreyttur eftlr 10 km gönguna. Hann vann þrenn gullverðlaun í flokki pilta 17-19 ára. eyringnum Gísla Harðarsyni, sem varð annar. Ingólfur Magnússon frá Sigiufirði, sem er aðeins 16 ára og var með undanþágu til að keppa í þessum flokki, varð þriðji. Það var meiri keppni um gull- verðlaunin í 15 km göngunni sem fram fór á páskadag. Jón Garðar kom þá í mark aðeins 18 sekúndum á undan Þóroddi Ingvarssyni frá Akureyri sem hékk í Jóni Garðari alla gönguna. Ingólfur nældi í bronsið eins og í 10 km göngunni, var hálfri mínútu á eftir Þoroddi. „Ég var mun hressari en ég bjóst við á mótinu. Brautin var frekar flöt í 10 kílómetra göngunni sem fram fór á Dalvík og lítið um brekk- ur en það var þó mikil vinna í henni. En 15 kílómetra gangan á Ólafs- firði var meira spennandi og erfið- ari,“ sagði Jón Garðar. „Það hefur gengið mjög vel hjá mér í vetur. Eg hef unnið öll bikarmótin nema eitt. Ég átti ekkert frekar von á svona góðum árangri hér. Ég var mjög sterkur í fyrstu göngunum í vetur og bjóst jafnvel við að ég hafi „toppað" fyrr og væri því ekki í toppæfingu núna. En ég hef náð að halda mér á toppnum og þakka það miklum æfingum í vetur.“ Jón Garðar er við nám í MA á Akureyri og hefur því æft með Akureyringum. „Ég er búinn að æfa mjög vel í vetur undir hand- leiðslu Einars Ólafssonar. Við höf- um verið svona sjö til átta manna kjarni sem hefur æft saman. Ég er mjög ánægður með árangurinn og hann er framar vonum.“ Morgunblaðið/Golli Konungur skíðagöngunnar DAIMÍEL Jakobsson hafðl mlkla yflrburði í skíðagöngunni. Hann var sigursælastl keppandi mótsins, vann fern gullverð- laun og hafði því ástæðu til að fagna. Jón Garðar Steingrímsson frá Siglufirði varð þrefaldur ís- landsmeistari í flokki pilta 17 til 19 ára í göngu. Hann sigraði með yfirburðum í 10 km göngunni, var tveimur mínútum á undan Akur- Framar vonum Lengi lifir í gömlum . .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.