Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 6
6 B MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ SKIÐAMOT ISLANDS Dagný Linda sló þeim eldri og reyndari við DAGNÝ Linda Kristjánsdóttir, sem er aðeins 16 ára Akur- eyrarmær, sló þeim eldri og reyndari við og varð íslands- meistari ísvigi og aipatví- keppni og þriðja í risasvigi. Hún sigraði einnig f alþjóða- mótinu í stórsvigi á Dalvík á páskadag. Dagný Linda, sem hefur haft mikla yfirburði á mótum hér heima í vetur og _er bikarmeistari SKÍ, sýndi hversu Valur B. öflug hún er með því lónatansson að verða tvöfaldur skrifar meistari og stela þannig senunni. Það leit þó ekki út fyrir sigur Dagnýjar Lindu eftir fyrri umferð- ina í sviginu því Theodóra Mathie- sen úr KR hafði þá tveggja sek- úndna forystu. En sú stutta sýndi öryggi í síðari umferðinni þrátt fyr- ir að margir keppinautar hennar höfðu fallið úr keppni vegna erfiðra brautarskilyrða. Hún var með besta tímann þegar Theodóra fór síðust niður brautina. Theodóra virtist hafa sigurinn í hendi sér en féll þegar hún átti þrjú hlið eftir og hætti keppni. Kolbrún Jóhanna Rúnarsdóttir frá Seyðisfirði varð önnur og Helga K. Halldórsdóttir, Armanni, þriðja. „Það er ótrú- legt að vera orðin íslandsmeistari. Ætli það sé bara ekki heppni. Þessar bestu fóru allar út úr og því var sigurinn óvæntur. Eg átti ÍSLA Nös hún besta tím- ann í fyrri um- ferð, en gerði smá mistök í síð- ari umferðinni sem kostuðu hana sigurinn. Theodora hefur verið í skíða- menntaskóla í Bandaríkjunum og sagðist mjög ánægð með að- stæður þar. „Ég ætla að vera í alls ekki von á þessu. Þetta er frábær endir á vetr- inum sem er búinn að vera eins og ævintýri fyrir mig,“ sagði Dagný Linda sigurbrosandi eftir keppnina. Theodóra var ekki eins kát eftir svigið. _,,Þetta er hámark óheppn- innar. Ég keyrði af öryggi í síðari umferðinni því forskotið var það mikið eftir fyrri umferð. Ég skil ekki enn hvernig ég fór að því að krækja fyrir hlið og detta. Það var að vísu mjög erfitt skíðafæri en það er engin afsökun," sagði hún. Hún varð einnig af gullverðlaun- unum í stórsviginu því þar hafði DAGNÝ Linda Kristjánsdóttir frá Akureyri vann flest verð- laun í alpagreinum kvenna þó hún sé aðeins 16 ára. Bandaríkjunum í eitt ár í viðbót og sjá svo til. Það er gott að geta nýtt sér skíðin til að fá frí skóla- gjöld. Það kitlar að komast á Olympíuleikana í Nagano og ég stefni að því.“ Theodóra fór því heim með tvenn silfurverðlaun þar sem hún varð einnig í öðru sæti á eftir Brynju Þorsteinsdóttur í risasviginu á mánudag. : ' 'f Brynja Þorsteinsdóttir tvöfaldur meistari Allt eða ekkert BRYNJA Þorsteinsdóttir frá Akureyri varð tvöfaldur meistari. Hún sigraði í stórsvigi á föstudag og í risasvigi á Dalvík á mánudag en féll hins vegar í fyrri umferð svigsins sem fram fór á Ólafsfirði á laugardag og misst þar með af möguleikunum á sigri í alpa- tvíkeppninni. Árangur hennar í risa- sviginu var sérlega glæsilegur enda náði hún fimmta besta brautartíman- um í karlaflokki. |eð sigrinum fetaði Brynja í fótspor Vilhelms bróður síns sem varð ís- landsmeistari í stórsvigi 1993. Hún var með næst besta tímann í fyrri umferð stórsvigsins, 0,17 sekúndum á eftir Theó- dóru Mathiesen úr KR. „Ég hugsaði um það eitt fyrir síðari umferðina að taka áhættu. Annað hvort allt eða ekkert. Ég fann mig vel í brautinni og það var frá- bært að sigra,“ sagði Brynja sem var að- eins 0,08 sekúndum á undan Theódóru samanlagt. Stefanía Steinsdóttir frá Akur- eyri varð þriðja, tveimur sekúndum á eftir Brynju. Theodóra og Brynja hafa verið mjög jafnar í vetur og því var þetta hálfgert uppgjör þeirra í milji. „Við höfum alltaf verið mjög jafnar. Ég er búin að vera í skíðamenntaskóla og við æfingar í Noregi í vetur og hef bætt mig verulega. Ég er betri í stórsvigi og því kom sigurinn kannski ekki á óvart. Ég stefni að því að halda áfram að æfa næsta vetur og það er markmiðið að keppa á Ólympíuleikunum í Nagano á næsta ári. Annars fer það líka eftir því hvað Skíðasambandið gerir. Ég hef ekki fengið mikla aðstoð frá því hing- að til,“ sagði Brynja sem hélt upp átvítugs- afmælið sitt á laugardaginn. Brynja sigraði einnig í risasviginu á mánudag og aftur varð Theodóra að sætta sig við annað sætið. Dagný Linda Kristj- ánsdóttir frá Akureyri varð þriðja. Svigmei HAUKUR Arnórsson úr Armanni, sem er bikarmefstari SKI 1991 í vetur en þaö kom ekki í veg fyrir að hann slægi öllum v Biðin á end Haukur Arnórsson úr Ármanni varð íslandsmeistari í svigi og kom sigur hans nokkuð á óvart. Hann hefur æft hér heima í vetur á meðan margir keppinauta hans hafa verið við stífar æfingar erlend- is. Hann sýndi það hins vegar að það er ýmislegt hægt þó svo að aðstæður til æfinga séu ekki upp á það allra besta. Haukur, sem er bikarmeistari SKÍ 1997, fór fyrri umferðina í sviginu mjög vel og var þá aðeins 0,05 sekúndum _ á eftir Arnóri Gunnarssyni frá ísafirði sem náði besta tímanum. Kristinn Björnsson datt hins vegar í fyrri umferð og náði fimmta besta tímanum. Hauk- ur var ræstur af stað næstur á undan Arnóri í síðari umferðinni og þá hafði Kristinn náð besta tím- anum. Reyndar voru efasemdir uppi um að Kristinn hefði sleppt hliði í síðari umferðinni. Haukur var ekkert á því að gefa neitt eftir og kom í mark tæplega sekúndu á eftir Kristni og tók við það forystu. Arnór keyrði vel, en honum urðu á mistök í neðri hluta brautarinnar sem kostuðu hann gullið og Hauk- ur fagnaði fyrsta íslandsmeistara- titli sínum. Kristinn fékk silfrið og Arnór bronsið. Haukur sagðist hafa verið búinn að bíða lengi eftir sigri á íslands- móti. „Ég er búinn að bíða eftir titli allt of lengi og það var kominn tími til að standa á efsta þrepinu. Það hefur gengið vel hjá mér í vetur og ég hef unnið öll bikarmót- in. Ég hef verið öruggari með að standa niður núna í vetur, en und- anfarin ár. Ég hugsa að ég hafí verið jafn hraður í fyrra en þá gekk mér illa að komast niður. Það var engin pressa á mér í þessu Kristinn og Brynja best í risasvigi RISASVIG var síðasta keppnis- greinin á Skíðamóti Islands á annan í páskum og var þetta í fyrsta sinn sem keppt er í þess- ari grein á landsmóti. Kristinn Björnsson sigraði í karlaflokki og Brynja Þorsteinsdóttir í kvennaflokki. Kristinn fékk harða keppni frá Jóhanni Hauki Hafstein úr Ár- manni sem varð annar. Aðeins 0,26 sekúndubrot skijdu þá að. Haukur Arnórsson, Ármanni, varð þriðji og var rúmlega einni og hálfri sekúndu á eftir Jóhanni Hauki. Brynja Þorsteinsdóttir, Akur- eyri, vann önnur gullverðlaun sín á mótinu með því að ná besta tímanum í kvennaflokki. Hún var með fádæma yfir- burði. Stúlkurnar fóru sömu braut og karlarnir og hefði tími Brynju nægt til fimmta sætis í karlaflokki og segir það alit um frammistöðu hennar. Hún var rúmlega fimm sekúndum á und- an Theodóru Matthisen sem varð önnur, Dagný Linda Kristjándóttir hafnaði í þriðja sæti og varð þar með skíða- drottning mótsins, vann tvenn gullverðlaun og ein bronsverð- laun. 4-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.