Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 8
HANDKNATTLEIKUR O 5T roo r jicjcj a o ona a rrr 8 B MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ Sigurður Gunnarsson, þjálfari Hauka Lögðum þetta upp í hendumar á þeim Haukar köstuðu sigrinum frá sér og voru að vonum sárir. „Við vorum með leikinn í höndunum en lögðum þetta upp í hendurnar á þeim,“ sagði Sigurður Gunnarsson, þjálfari Hauka, við Morgunblaðið. „Ég óska KA-mönn- um til hamingju með sigurinn en það var tölu- vert afrek að tapa þessu svona niður. Heppni er ekki til í handbolta en röð tilviljana gerði þetta að verkum. Við spiluðum skínandi vel í seinni hálfleik og þá var vörnin eins og hún átti að vera fyrir hlé en KA-menn nýttu sér mistök okkar undir lokin. Við töpuðum leiknum fyrst og fremst á eigin klaufaskap.“ Sigurður var ekki sáttur við dómgæsluna í miðleiknum en sagði að dómaramir hefðu stað- ið sig vel á laugardag. „Reyndar vildi ég fá aukakast þegar við misstum boltann og tíminn rann út. Brotið var á Halldóri og því var send- ingin út í hornið slæm en ekki er þar með sagt að tíminn sem eftir var hefði nægt til að skora.“ Bikarmeistarar Hauka urðu í öðru sæti í deildarkeppninni og sagðist Sigurður, sem tók við liðinu fyrir tímabilið og gerði þá samning til tveggja ára, vera mjög sáttur við veturinn. „Lykilmenn hafa verið fjarverandi vegna meiðsla en við höfum seiglast í gegnum þetta og liðið á hrós skilið fyrir seinni hálfleikinn í þessum síðasta leik okkar. Það var sundurspil- að í fyrri hálfleik og var heppið að vera að- eins fjórum mörkum undir en sýndi sterkan „karakter“ eftir hlé. Það er synd að annað liðið þurfti að detta úr keppninni en KA sigr- aði og við því er ekkert að segja.“ Alfreð Gíslason fagnaði í Hafnarfirði HéKadþetta Morgunblaðið/Golli Duranona kominn á ferðina JULIAN Róbert Duranona er komlnn á ferðlna, skoraði tíu mörk í báðum lelkjunum gegn Haukum. Hann hefur skorað flest mörk í úrslitakeppn- Innl, alls 43/12. Daði Hafþórsson, Fram, kemur næstur á blaði með 37/11 mörk. Rúnar Sigtryggsson, Haukum, er þriðji með 30 mörk. Dæmdu dag eftir dag SIGURGEIR Sveinsson og Gunnar Viðarsson dæmdu ieik KA og Hauka á Akureyri sl. fimmtudagskvöld og gegndu sama hlutverki í viðureign Aft- ureldingar og Fram að Varmá daginn eftir. I úrslitakeppninni leika lið aldrei tvo daga í röð og reyndar ekki heldur í deildarkeppninni eða bikar en tæplega 17 tímar liðu frá því umræddir dómarar flautuðu leikinn af á Akureyri þar til þeir blésu til leiks að Varmá. Guðjón með Rögnvald ATHYGLI vakti að Guðjón L. Sigurðsson dæmdi með Rögn- vald Erlingssyni þegar Haukar og KA mættust í oddaleiknum í Hafnarfirði sl. laugardag. Rögnvald og Stefán Amalds- son, dómarapar númer eitt, hafa dæmt saman um árabil en Guðjón hefur verið með Ólafi Haraldssyni í dómgæsl- unni og verður svo áfram. Alfreð hand- arbrotinn ALFREÐ Gíslason, þjálfari og leikmaður KA, handarbrotnaði í leik KA og Hauka á Akureyri sl. fimmtudag þegar hann fylgdi skoti sínu eftir í hraða- upphlaupi og ienti á höfði Bjarna Frostasonar, mark- manns Hauka, en það aftraði honum ekki frá því að halda saman vörninni í leik liðanna í Hafnarfirði um helgina. Eðii- lega gat hann ekki beitt sér að vild en engu að síður var hann sem klettur og sem fyrr áttu mótherjarnir í erfiðleik- um með að komast framhjá honum. Bjarni meiddist líka við fyrrnefnt samstuð og háði það honum á iaugardag. Bikarmeistarar Hauka hafa leik- ið einna best í vetur og þó þeir hafí lent í mótbyr hefur þeim oftar en ekki tekist Steinþór að snúa 'eiknum sér Guðbjartsson í vil áður en flautað skrifar hefur verið til leiks- loka. Sama virtist ætla að verða upp á teningnum í oddaleiknum við KA í undanúrslit- um úrslitakeppni íslandsmótsins í Hafnarfirði á laugardag. Liðið var fjórum mörkum undir, 15:11, í hálf- leik, og þegar 20 mínútur voru til leiksloka var sami munur, 18:14. En þá tóku Hafnfirðingar við sér svo um munaði og eftir 55 mínútna leik voru þeir þremur mörkum yfir, 26:23. Á umræddum kafla fóru Haukar á kostum, markvarsla Bjarna var örugg þó að hann gengi ekki heill til skógar eftir leikinn á Akureyri, varnarleikurinn frábær og sóknarleikurinn markviss. „í þessari stöðu var ég mjög svart- sýnn,“ sagði Alfreð Gíslason, þjálf- ari og varnarmaður KA, við Morg- unblaðið. „Ég hélt að þetta væri búið en sem betur fer náðum við að snúa vörn í sókn.“ KA gerði fjög- ur síðustu mörkin og leikur því til úrslita en Haukar sitja eftir með sárt ennið. KA hefur sennilega ekki leikið betri fyrri hálfleik í vetur en í um- ræddri viðureign. Guðmundur Arn- ar Jónsson varði vel, Alfreð stjórn- aði vörninni með ágætum í fyrri hálfleik og Sergei Ziza og Julian Róbert Duranona fóru á kostum í sókninni auk þess sem Björgvin Björgvinsson var mikilvægur. Erfitt er að eiga við liðið í slíkum ham og því er óskiljanlegt hvernig KA- mennirnir létu valta yfir sig á stund- arfjórðungi í seinni hálfleik en það segir ef til vill meira um styrk Hauka. „Þetta var ótrúleg sveifla," sagði Alfreð. „Við vorum með þetta í höndunum en hættum að sækja. Menn missa oft einbeitinguna á ein- hveijum kafla í hveijum leik en þessi doði gerði það að verkum að Haukarnir náðu að físka okkur. Minnstu munaði að þetta yrði okkur að falli en við tókum þetta á reynsl- unni í lokin.“ Engum dylst styrkur og breidd Hauka en liðið byijaði illa og lánið lék ekki við það í lokin - mistökin voru afdrifarík. Guðmundur Arnar varði á ögurstundu og Julian Ró- bert gerði sigurmark gestanna eftir hraðaupphlaup. Heimamenn, fyrst einum og síðan tveimur fleiri síð- ustu 14 sekúndurnar, fengu tæki- færi til að jafna en það átti ekki fyrir þeim að liggja. „Ég hafði stokkið upp án árangurs í síðustu skotum og þar sem þeir voru farnir að reyna að skjóta á milli fóta minna hugsaði ég aðeins um að setjast," sagði Guðmundur Arnar um mark- vörsluna sem skipti sköpum í lokin. Feðgar fagna Morgunblaðið/Ámi Sæberg LEÓ Örn Þorleifsson, leikmaður KA, hafði ærna ástæðu til að fagna eftir leik Hauka og KA sl. laugardag og Þorleifi Ananíassyni, föður hans, leiddlst heldur ekkl lífið. hám FOLK ■ AXEL Axelsson, aðstoðarþjálf- ari Einars Þorvarðarsonar hjá Aftureldingu, er fyrrum leikmaður Fram. Axel lék með Fram þegar liðið varð síðast íslandsmeistari, 1972. _ ■ ÞRÍR fyrrum leikmenn Fram leika með Aftureldingu - Gunnar Andrésson, Páll Þórólfsson og Jón Andri Finnsson. ■ KA og Afturelding hafa aldrei fagnað Islandsmeistaratitlinum. Tveir leikmenn Aftureldingar hafa orðið meistarar - Sigurður Sveins- son og Bergsveinn Bergsveins- son, með FH. ■ ÞJÁLFARAR Aftureldingar hafa orðið meistarar, Axel með Fram og Einar með Val. Þannig vörðu þeir AKUREYRI: Guðmundur Arnar Jónsson, KA, 22 (9): 15(6) langskot, 3(2) eftir hraðaupphlaup, 2 vítaköst, 1 úr homi, 1(1) eftir gegnumbrot. Bjarni Frostason, Haukum, 21 (7): 11(4) langskot, 3 úr horni, 2(2) eftir hraðaupphlaup, 2(1) af línu, 2 eftir gegnumbrot, 1 vfti. MOSFELLSBÆR: Bergsveinn Bergsveinsson, UMFA, 12/1 (7/1): 8(4) lanpkot, 2(2) eftir hraðaupphlaup, eitt úr horni, 1(1) víti. Sebastian Alexandersson, UMFA, 2(2): 2(2) langskot. Reynir Þór Reynisson, Fram, 11 (2): 6(1) langskot, 2 úr horni, 2(1) eftir gegnumbrot, eitt af línu. HAFNARFIRÐI: Magnús Sigmundsson, Haukum, 5 (2); 2 eftir hraðaupphlaup, 2(1) lang- skot, 1(1) eftir gegnumbrot. Bjarni Frostason, Haukum, 9 (2): 5(1) langskot, 2 úr horni, eitt eftir hraðaupphlaup, 1(1) eftir gegnum- brot. Guðmundur Arnar Jónsson, KA, 14 (3): 7(1) langskot, 3(1) af línu, 2 úr horni, 2(1) eftir hraðaupphlaup.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.