Morgunblaðið - 08.05.1998, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1998 17
A LÞJÓÐADAGUR RAUÐA KROSSINS 8.MAÍ |
8.
0
8. maí er fæðingardagur Svisslendingsins
Henry Dunant, frumkvöðuls að stofnun
Rauða krossins. Starf hreyfingarinnar
hefur frá upphafi verið byggt á
störfum sjálfboðaliða og milljónir
manna um allan heim starfa nú f
samræmi við grundvallarmarkmið
hreyfingarinnar um mannúð, óhlutdrægni,
hlutleysi, sjálfstæði, sjálfboðna þjónustu,
einingu og atheimshreyfingu.
Hreyfingin reynir að koma í veg fyrir og
létta þjáningar fólks sama hvar það er
statt. Tilgangur hreyfingarinnar er að
vernda líf og heilsu og tryggja virðingu
fyrir mannlegu lífi.
Efnt verður til Ijósmyndamaraþons í tilefni alþjóða-
dags Rauða krossins á morgun, laugardag.
Lj Ó SMYN DAMARAÞON
UM HUGSJÓNIR
RAUÐA KROSSINS
Filmur og þátttöku-
regiur verða afhentar
hjá U1,
á eftirfarandi stöðum:
Akranesi, ísafirði, Blönduósi, Sauðárkróki, Akureyri,
Egilsstöðum, Vestmannaeyjum, Keflavík og Grindavík.
Á höfuðborgarsvæðinu fer afhending fram í sjálfboða-
miðstöð Reykjavíkurdeildar, Hverfisgötu 105.
í Vík í Mýrdal er afhending hjá Sigurði
Hjálmarssyni, Sigtúni 3.
Filmur verða afhentar kl. 10-11 að morgni
9. maí og skita ber áteknum filmum kl. 17-18 sama dag.
öllum opið — þátttökugjald 400 kr. Vegleg verðlaun.
Sjálfboðamiðstöð Reykjavíkurdeildar Rauða kross íslands að Hverfisgötu
105 verður formlega opnuð í dag, 8. maí. Á morgun kl. 13-17 býður
deildin almenningi að skoða miðstöðina og kynna sér sjálfboðið starf.
Sérstök dagskrá verður fyrir tombólubörn Rauða krossins kl. 14-15. Allir velkomir!
OPIÐ HÚS f
SJÁLFBOÐAMIÐSTÖÐ
REYKJAVÍKURDEI LDAR
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
www.redcross.is
óftBtíNAÐARBANKÍ
'Q'ÍSLANDS
tók þátt f kostnaði við birtingu auglýsingarinnar.