Morgunblaðið - 08.08.1998, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 08.08.1998, Blaðsíða 53
I MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1998 58 *' MYNDBÖND Máttur miðlanna Afþreyingarvopn (Weapons of Mass Distraction) Satfra ★ ★‘/2 Framleiðsla: Larry Gelbart og Sean Ryerson. Leikstjórn: Stephen Suijik. Handrit: Larry Gelbart. Kvikmynda- taka: Alar Kivilo. Tónlist: Don Davis. Aðalhlutverk: Gabriel Byrne, Ben Kingsley, Mimi Rogers, Jeffrey Tam- bor, Illeana Douglas, Chris Mulkey og Jerry Pasco. Bandarísk. Sam- myndbönd, júlí 1998. Leyfð öllum aldurshópum. LIONEL Powers (Byrne) og Julian Messenger (Kingsley) stjórna hvor sínu fjölmiðlastórveld- inu. Þeir eru sammála um að íþróttir séu leið- in að fjöldanum og lenda í átök- um þegar þeir vilja báðir eign- ast sama ruðn- Báðir VVT.APONS OI-MASS DISTRflCTIOn ingsliðið. eru mennirnir voldugir og vanir að fá það sem þeir vilja, auk þess sem þeim er persónulega heldur illa hvorum við annan. Smám saman vinda átökin milli þeirra upp á sig og fyrr en varir eru þeir komnir í stríð, með fjölmiðlana að vopni. Inn í söguna fléttast svo frásagnir af ýmsu fólki sem verður fyrir barðinu á stríði þessara voldugu manna. „Afþreyingarvopn" er háðsádeila sem beinist gegn fjölmiðlaheimin- um í Bandaríkjunum. Margt af því sem myndin hefur fram að færa fer því fyrir ofan garð og neðan hér uppi á íslandi, þvi enn erum við ekki alveg fallin inn í afþreyingar- vél bandariskrar menningar. En þó erum við komin nógu nærri, því þessi saga af stríðandi afþreyingar: jöfrum hljómar kunnuglega. I myndinni sést hvernig hægt er að beita sjónvarpi og dagblöðum í per- sónulegum tilgangi en viðhalda jafnframt yfirbragði hlutleysis. Gagnrýni á þróun fjölmiðla hefur komið úr ólíkum áttum og margar útgáfur fá hér birtingarmynd. Yms- ar tegundir sjónvarpsþátta og mis- munandi prentmiðla eru tekin fyrir sérstaklega og stólpagrín gert að öllu saman. Þetta er mynd sem varpar fram alvarlegum spurning- um og getur eflaust vakið fólk til umhugsunar. Eitt vil ég þó taka fram og finna myndinni til foráttu. Þýðingin var svo herfileg að ómögulegt hefði verið að skilja hana með því einu að lesa textann. Titillin var þýddur sem „Vopn gereyðingar" og var það fyrsta alvarlega villan af ákaflega mörgum í þýðingunni. Þótt Islend- ingar séu upp til hópa nokkuð sleip- ir í ensku, m.a. vegna samruna við bandaríska afþreyingarmenningu, þykir enn ástæða til að texta kvik- myndir. Það er leitt að ekki skuli vera metnaður til að skila þessari vinnu sómasamlega, því allt of mik- ið er um herfilega þýddar myndir. Guðmundur Ásgeirsson Nýr klapp- stýrubún- ingur? ÞAÐ væsti ekki um leikaranp Robert Vaughn sem leikur aðal- hlutverkið í myndinni „BASEket- ball“ þegar hann stillti sér upp með fyrirsætum frá Frederick’s- undirfatafyrirtækinu. í myndinni, sem er af léttara taginu, koma fram klappstýrur sem klæðast Frederick’s-undir- fötum í stað hefðbundins klapp- stýrubúnings. Myndin var frumsýnd í Banda- rikjunum um síðustu helgi. Sigrún Eva og Stefán Jökulsson halda uppi fjörinu með léttri sveiflu á Mímisbar. -þín saga! leik UP tiinn ápleqi stópdansleikup MILLJÓMAMÆRIMGAriMA ásamf Bjarna Arasyni ', Páli Ósl<ari, P agnan Ujarnasqm og Uogomi IFont FORSALA AÐGONGUMIÐA fimmtudag og föstudag í Hljóðfæraverslun- inni Samspili, Laugavegi 168, sími 562 2710 Laugardag frá 13:00-19:00 í Broadway, sími 533-1100 SPARIKLÆÐNAÐUR MIÐAVERÐ KR. 1.500 HÚSIÐ OPNAÐ KL. 22:00 sa^SPIL ! V)S / VOOA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.