Morgunblaðið - 20.05.1999, Síða 14

Morgunblaðið - 20.05.1999, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Stjórnendur Sölumiðstöðvarinnar skýra frá lokun starfsstöðvar á Akureyri Fyrirtæki verða að laga sig að nýjum aðstæðum Morgunblaðið/Kristján GUNNAR Svavarsson, forstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, ræðir við þá Magnús Þór Magnússon, til vinstri, og Baldur Marinósson í starfsstöð SH á Akureyri í gær. Magnús hefur starfað hjá SH frá árinu 1996, en Baldur í samtals 17 ár, flutti með fyrirtækinu norður í upphafi og er sá eini sem enn er eftir af þeim starfsmönnum sem komu með Sölumiðstöðinni norður fyrir tæpum fjórum árum. Frekar þungt hljóð var í starfsfólki SH á Akureyri eftir að stjórnendur SH höfðu skýrt því frá breyting- um sem leiða til þess að starfsstöðin á Akur- eyri verður lögð niður. Forystumenn í bæjar- stjórn lýsa yfir von- brigðum sínum og fyrr- verandi bæjarstjóri segir ákvörðun SH hrein svik. Margrét Þóra Þórsdóttir ræddi við stjórnendur SH og starfsfólk og fyrrverandi og núver- andi forystumenn í bæjarstjórn. STJÓRNARFORMAÐUR og for- stjóri Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna hf. (SH) kynntu í gær starfsfólki á skrifstofum SH á Akureyri um endurskipulagningu á rekstri fyrirtækisins sem felur meðal annars í sér að starfsstöð SH á Akureyri verður lögð niður um næstu mánaðamót. Frekar þungt hljóð var í starfsfólkinu eftir að það fékk þessi tíðindi. Jakob Bjömsson, fyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri, sagði að ákvörðunin væri hrein svik við samkomulag það sem gert var um flutning starfa til Akureyrar fyrir tæpum fjórum árum. Aðrir forystumenn í bæjarstjórninni á þeim tíma, sem talað var við í gær, sögðu að ákvörðun um að fækka starfsfólki SH í bænum hefði komið á óvart og væri dapurleg en lögðu jafnframt áherslu á að SH hefði lagt mikið af mörkum til atvinnu- lífsins á erfiðum tímum. Róbert Guðflnnsson, formaður stjórnar SH, sagði ekki hægt að kalla það mistök að setja upp starfsemi á Akureyri á sínum tíma en lagði á það áherslu að fyrirtæki yrðu að laga sig að breyttum aðstæðum. Fækkar um nítján Stjórn Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna ákvað á fundi sínum f fyrradag að endurskipuleggja starfsemi þess sem og hjá dóttur- fyrirtæki sínu, Sæmarki. I endur- skipulagningunni felst að starfsstöð félagsins á Akureyri verður lögð niður, en nokkrir starfsmenn þar munu áfram starfa fyrir félagið. Þá verður þróunardeild SH í Reykja- vík lögð niður, en þróunarstarf hef- ur í auknum mæli flust til dóttur- fyrirtækja og framleiðenda. Einnig verður hagrætt í starfsemi SH og Sæmarks með fækkun og samnýt- ingu starfa í þjónustu, bókhaldi, skjalagerð og fjárreiðum. Stjórnin veitti einnig heimild til þess að selja þriðju hæð húsnæðis SH í Aðalstræti 6 í Reykjavík og verður starfseminni þjappað betur saman með bættri nýtingu húsnæð- is. Alls fækkar störfum um 19 við þessar aðgerðir, 8 á Akureyri og 11 í Reykjavík. Þeim starfsmönnum sem láta af starfi verður gert létt- ara að finna nýtt starf við hæfi með greiðslum út uppsagnafrest án þess að vinnuskylda fylgi. A síðasta ári voru starfsmenn SH 103 talsins en verða eftir breytingu 73. Starfsemin færð út til framleiðendanna Róbert Guðfinnsson, formaður stjórnar SH, og Gunnar Svavars- son forstjóri voru á Akureyri í gær og gerðu starfsfólki á starfstöð fyr- irtækisins þar grein fyrir stöðu mála. Róbert sagði að væntingar hefðu verið um að Sölumiðstöðin næði til sín meiri viðskiptum með því að setja upp starfsstöð á Akur- eyri. Þróunin hefði hins vegar orðið sú að fyrirtæki hefðu í ríkum mæli sameinast og þau stækkað þannig að þjónusta sem þurfti að veita á Norðurlandi minnkaði. „Við erum að færa hluta af starfsemi Sölumið- stöðvarinnar út til framleiðend- anna, þau fá aukin verkefni. Það sama má segja um dótturfélög okk- ar, þannig við erum að skapa beinni tengsl milli framleiðslufyrirtækj- anna og markaðsfyrirtækjanna,“ sagði Róbert. Starfsemi SH á Akureyri hófst síðla árs 1995 að undangengnum miklum átökum um sölumál Ut- gerðarfélags Akureyringa, en SH og Islenskar sjávarafurðir börðust um bitann. ÍS hugðist flytja höfuð- stöðvar sínar norður til Akureyrar fengi fyrirtækið forræði yfir sölu á afurðum ÚA. Bæjarstjórn Akur- eyrar samþykkti að sala á afurðum UA yrði áfram hjá SH gegn því að sölumiðstöðin legði atvinnulífi í bænum lið en forsvarsmenn SH gáfu fyrirheit um að skapa 80 störf í bænum, þar af um 30 á starfsstöð sinni. SH hefur veitt umtalsvert fé til þessarar uppbyggingar. Róbert sagði að ekki væri hægt að túlka þá atburðarás sem nú hef- ur orðið sem mistök. „I öllum rekstri verða fyrirtæki að laga sig að breyttum aðstæðum. Ef SH heldur uppi óhagkvæmum rekstri er nokkuð ljóst að við eigum engin tækifæri í framtíðinni. Það hefur orðið feikileg hagræðing í sjávarút- vegi á síðustu misserum. Inn í sjáv- arútveginn hefur komið betur menntað starfsfólk, fólk sem vill hafa meiri tengsl við markaðinn. Það tíðkast ekki lengur að halda úti rekstri bara til að halda honum uppi,“ sagði Róbert. Þörf fyrir sölumiðstöð af þessari stærð ekki sú sama og áður Hann sagði að á sínum tíma hefðu menn haft verulega trú á að hægt yrði að byggja starfsemina á Akureyri upp út frá þeim aðstæð- um sem uppi voru á þeim tíma sem ákvörðunin var tekin og full mein- ing hefði verið á bak við hana. „Þró- unin í fyrirtækjunum sem eiga að skipta við okkur hefur hins vegar orðið svo ör að þörf fyrir sölumið- stöð af þessari stærð er ekki sú sama og áður,“ sagði Róbert. Gunnar Svavarsson forstjóri sagði að verið væri að fækka störf- um hjá fyrirtækinu, hjá því hefði starfað mjög hæft starfsfólk sem ekki væri verið að segja upp vegna persónulegrar frammistöðu, heldur væri einfaldlega verið að fækka störfum þvert á fyrirtækið. „Við er- um ekki að draga saman seglin, heldur viljum við vinna betur úr málum með tilliti til breytts ástands. Það er meira um beint samband milli framleiðenda og markaðsfyrirtækjanna en það hef- ur í för með sér að við þurfum færra fólk,“ sagði Gunnar. Þeir Róbert og Gunnar voru sammála um að þrátt fyrir þessa ákvörðun mætti ekki vanmeta framlag SH til atvinnulífsins í bæn- um. Astandið hefði ekki verið ýkja gott þegar SH kom að málum á erf- iðum tíma. Nefndi Róbert m.a. Slippstöðina og ÚA sem dæmi um fyrirtæki sem byggju við gjör- breyttan rekstur eftir aðkomu SH. „Þau áhrif verða eftir í byggðarlag- inu og munu endast lengi. Sú vítamínsprauta mun vara um ókomna framtíð,“ sagði Róbert. Starfsstöðinni á Akureyri verður lokað 1. júní næstkomandi, en þrír eftirlitsmenn á vegum SH verða áfram að störfum fyrir fyrirtækið á Akureyri. Tengsl SH við Akureyri og Norðurland allt verða eftir sem áður góð, að sögn Róberts. Þungt yfir starfsfólki Fremur þungt var yfir starfsfólki SH á Akureyri þegar það gekk af fundi með stjórnendum í gærmorg- un þar sem tilkynnt var um upp- sagnir. Fram kom í samtölum að lokun starfsstöðvarinnar væri visst áfall, en starfsemin hefði á síðustu misserum farið minnkandi þannig að marga grunaði að svona gæti farið einhvern daginn. í fyrstu fluttu þónokkuð margir starfsmenn með fyrirtækinu úr Reykjavík norður, en þegar þeir létu af störf- um voru heimamenn ekki ráðnir í þeirra stað líkt og boðað hafði ver- ið. Nokkrir lýstu yfir áhyggjum yfir að fá ekki sambærilega atvinnu á Akureyri, en menn voru þó ekki svartsýnir og tóku fram að starfs- lokasamningar fyrirtækisins væru til fyrirmyndar. Hreinustu svik „Mér þykir þetta afar sárt og tel þetta í raun hreinustu svik miðað við það sem um var talað, þetta átti að vera uppbygging til fram- tíðar en ekki skammtímadúsa sem kippt yrði burt við fyrsta tæki- færi,“ sagði Jakob Björnsson sem var bæjarstjóri á Akureyri þegar samkomulag var gert um upp- byggingu SH í atvinnulífi bæjar- ins. Hann sagði að stærsti einstaki liðurinn í atvinnuuppbyggingunni hefði verið flutningur á hluta af starfsemi SH-skrifstofunnar norð- ur en nú tæpum fjórum árum eftir að starfsemin hófst ætti að loka henni, „og mér hlýtur að þykja það hið versta mál, því um annað var talað, þannig að í mínum huga eru þetta svik,“ sagði Jakob. Hann sagði að aldrei hefði verið gerður skriflegur samningur um málið, fulltrúar SH hefðu gengið fast eft- ir því að fá staðfestan samning um að fyrirtækið hefði sölu á afurðum ÚA til ákveðið langs tíma, en bæj- arstjórn ekki talið sér fært að gera slíkar skuldbindingar og á sama hátt hefði ekki verið unnt að krefja SH-menn um skriflegan samning um að þeir stæðu við sín loforð. Bæjarstjórn hefði þó í kjölfar þessa máls haldið sig til hlés í mál- efnum ÚA og þannig staðið við sinn hlut. Kom á óvart Gísli Bragi Hjartarson, bæjar- fulltrúi Alþýðuflokks, sat í meiri- hluta með Framsóknarflokki í bæj- arstjórn Akureyrar á þessum tíma. Hann sagði að lokun starfsstöðvar- innar á Akureyri kæmi sér á óvart. „Eg hélt hún myndi starfa hér lengur, þetta var einn liður í at- vinnuuppbyggingu SH hér í bæn- um,“ sagði Gísli Bragi. „SH kom að atvinnulífinu hér með margvísleg- um hætti og lét ýmislegt gott af sér leiða. Auðvitað átti maður kannski að segja sér sjálfur að ekki var hægt að festa þetta niður til fram- tíðar, landslagið í þessum málum er svo fljótt að breytast en á þeim tíma sem gengið var frá samkomu- laginu var ómögulegt að sjá þessa þróun fyrir.“ Gleymum ekki því sem SH gerði í atvinnulífinu Sigurður J. Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar Akureyrar, sagði að nýir stjórnendur væru að fækka starfsfólki og ekki undarlegt að hluti af því kæmi niður á starfsstöð- inni á Akureyri, „en auðvitað kem- ur það við mann,“ sagði hann. „Þó að það sé dapurlegt að horfa á eftir þessum störfum má ekki gleyma því að SH hefur gert mikið í at- vinnulífinu hér í bænum. Hvort sem mönnum líkar betur eða verr verða menn að þola þær breytingar sem hafa orðið í þessum rekstri. Hvorki þeir né við gerðum okkur á þessum tíma grein fyrir þeirri þróun sem varð,“ sagði Sigurður. Sigurður J. Sigurðsson sagði um- deilanlegt hvort hægt væri að full- yrða að verið væri að ganga á bak gefnum fyrirheitum. Nýir stjórn- endur Sölumiðstöðvarinnar yrðu að meta hvaða skuldbindingum þeir teldu sig bundna af þegai- horft væri til rekstrarins. „Til allrar hamingju er atvinnuástandið allt annað nú en var á þessum tíma, en það sem gert var hjálpaði vonandi í þeirri uppbyggingu sem átt hefur sér stað á síðustu áram,“ sagði Sig- urður. Kristján Þór Júlíusson, núver- andi bæjarstjóri á Akureyri, sagð- ist ekki þeklqja þær forsendur sem lágu að baki þegar ákvörðunin var tekin. „Eg þekki ekki aðdraganda þessa máls og get því ekki tjáð mig um þetta. Fyrir mér lítur málið út þannig að fyrirtækið er að hagræða í sínum rekstri og það kemur út með þessum hætti,“ sagði Kristján Þór. sumarbGbir skAta ÚLFUÚTSVATNI SUMARBUÐIR SKATA ULFLIOTSVATINI VIKU UTILIFS- OG ÆVINTYRANAMSKEID Innritun er hafin fyrir 6-16 ára í Skátahúsinu Snorrabraut 60 í síma 562 1390 IA O (O

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.