Morgunblaðið - 03.06.1999, Side 2

Morgunblaðið - 03.06.1999, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR 15 mánaða fang- elsi fyrir spark 1 liggjandi mann Morgunblaðið/Þorkell Hundsa tilmæli gatnamálastj óra TVÍTUGUR piltur var dæmdur í 15 mánaða fangelsi í gær, þar af 12 mánuði skilorðsbundið, fyrir að hafa veist að hálfþrítugum manni ásamt félaga sínum og sparkað í liggjandi manninn við Veltusund hinn 25. september í fyrra. Félagi árás- armannsins hlaut 60 þúsund króna sekt og hvor um sig var dæmdur til að greiða 110 þúsund krónur í málsvarnarlaun. Báðir sátu piltarn- ir í gæsluvarðhaldi frá 25. septem- ber til 13. október í fyrra vegna árásarinnar. Hlaut lífshættulega blæðingu Atburðurinn átti sér stað við Veltusund aðfaranótt 25. september sl. og hlaut hinn slasaði brot á höf- uðkúpubotni og mikla lífshættulega blæðingu milli beins og ystu heila- himnu vinstra megin og gekkst hann undir bráðaaðgerð um nóttina vegna áverkans og tókst þannig að bjarga lífí hans. í dómsniðurstöðu Hjördísar Há- konardóttur héraðsdómara kom fram að brotaþolinn hefði sjálfur átt nokkra sök á því að sú atburða- rás sem leiddi til hinna alvarlegu meiðsla hans hófst. Leggja yrði til Börnin hrifín af Selmu SELMA Björnsdóttir, fulltrúi ís- lands í rfyafstaðinni Eurovision- keppni í ísrael, nýtur greinilega vinsælda meðal yngstu kynslóð- arinnar, ef marka má viðtökurn- ar sem hún fékk í Kringlunni í gær. Þangað var Selma komin til að árita geisladisk með fram- lagi íslands í keppninni, og mynduðust langar raðir barna sem vildu ólm fá eiginhandará- ritun hennar á diskinn eða bréf- miða. grundvallar að hann hefði fyrst slegið í andlit annars hinna ákærðu eftir orðahnippingar. Sannað var að ákærði hefði hrint brotaþolanum aftur á bak á lágt handrið sem hann datt um. Þótti ákærði hafa mátt sjá að brotaþolinn myndi falla vegna grindverksins. Sannað var að báðir ákærðu hefðu fylgt brotaþolanum eftir og að þeir hefðu sparkað í hann liggjandi, en ekki þótti sannað að þeir hefðu sparkað oftar en einu sinni hvor. Ekki var upplýst að spark þess ákærða sem fékk mild- ari dóminn hefði lent í höfði manns- ins og ekki að hann hefði hrint hon- um. Við mat á refsingu var litið til þess að báðir ákærðu eru ungir að árum og hafa ekki áður gerst brot- legir við lög og einnig var litið til þess að þeir töldust ekki hafa átt upptökin að missætti því sem upp kom og leiddi til meiðsla brotaþol- ans. Hann hefur enn ekki náð fullum bata, en samkvæmt framburði læknis hans tókst aðgerð sú sem gerð var á honum við komu á sjúkrahús giftusamlega og eru góð- ar líkur á að hann nái sér. VINNUVEITENDASAMBAND Islands hefur hafíð undirbúning að rekstri skaðabótamáls á hendur verkalýðsfélaginu Baldri og Verka- lýðsfélagi Álftfírðinga svo og 7 fé- lagsmönnum þessara félaga sem hindruðu afgreiðslu þriggja vest- fírskra fiskiskipa í höfnum utan Vestfjarða í verkfalli félaganna í maí 1997. í frétt frá VSÍ segir að krafíst hafí verið greiðslu vegna þess tjóns sem hlutaðeigandi útgerðarfyrir- GUÐNI Hannesson, verkstjóri hjá hreinsunardeild Reykjavíkurborg- ar, var heldur óhress með íbúana við Óðinsgötu í gærmorgun þegar til stóð að hreinsa götuna eftir veturinn. „Nánast enginn bfleig- andi sem þarna býr varð við þeim tilmælum að leggja bflnum hinum megin við götuna svo að hægt væri að komast að með götusóp- inn og þvottabflinn,“ sagði hann. Skiltið með tilmælum til íbúanna hafði verið sett upp kvöldið áður tæki urðu fyrir af þessum sökum og verði þær ekki inntar af hendi verði mál höfðuð síðar í þessum mánuði. Tjón fyrirtækjanna vegna þessara aðgerða sé samkvæmt mati tæpar 5,9 milljónir kr. og sé krafist endur- greiðslu á þeirri fjárhæð auk vaxta. Þá segir: „Málið snýst í raun um það hver bera eigi tjón af völdum ólögmætra aðgerða í vinnudeilum. VSI varaði stéttarfélögin og félags- menn þeirra ítrekað við því að að- gerðir þeirra, sem miðuðu að því að en þegar að var komið kl. 8 að morgni gátu hreinsunarmenn ekki athafnað sig. „Eg er búinn að taka öll Þingholtin frá Sóleyjargötu og það hefur gengið ágætlega en þeir hundsa þetta algerlega við Óðins- götuna og ég vissi það svo sem að þannig færi. Þeir hafa alltaf verið erfíðir," sagði Guðni. Hreinsun gatnanna hefst yfirleitt kl. 4 að nóttu og er þá áhersla lögð á mið- borgina og stærri götur en al- menn hreinsun hefst kl. 7.30. stöðva afgreiðslu vestfírskra skipa í öðrum landsfjórðungum, væru ólög- mætar. Jafnframt að þeir sem tjóni yllu með slíkum aðgerðum yrðu krafðir um bætur. Talsmenn félag- anna töldu hins vegar að umræddar aðgerðir væru eðlilegar og lögmæt- ar og höfnuðu öllum tilmælum um að láta af aðgerðum. Deilur af þessum toga um hvað má og hvað ekki má í kjaradeilum koma sífellt upp og því er afar brýnt að fá úr því skorið fyrir dómstólum hvar Eyrarbakki Tveir drengir brenndust TVEIR drengir, 10 og 11 ára, brenndust talsvert þegar þeir voru að leik á Eyrarbakka um klukkan 18 í gær. Líklegt er talið að þeir hafí sjálfir kveikt eldinn. Drengirnir eru ekki taldir í lífshættu. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Selfossi voru drengirnir að leik inni í kapalkefli og kveiktu þeir eld inni í keflinu. Talið er að þeir hafi haft bensín meðferðis og slettist logandi bensín á þá báða. Drengirnir komust með naumind- um út úr keflinu og gátu leitað sér aðstoðar. Tafarlaust var óskað eftir aðstoð sjúkrabifreiðar og lögreglu, og voru drengirnir fluttir með tveimur sjúkrabflum til Reykjavík- ur, þar sem þeir gengust undir rannsókn á Landspítala. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítala voru báðir drengirnir brenndir á höndum og annar einnig í andliti. í öðru tilvikinu er um að ræða annars stigs bruna, sem telst ekki mjög alvarlegur, en djúpan annars stigs bruna í hinu tilvikinu sem kallar á húðflutning. Drengirn- ir teljast ekki í lífshættu. ------------- Fannst látinn á Kjalarnesi maðurinn sem fannst lát- inn aðfaranótt miðvikudags skammt frá reið- hjóli sínu rétt sunnan við Esju- grund á Kjalar- nesi hét Karl Skafti Thorlaci- us, til heimilis að Langholtsvegi 65 í Reykjavík. Hann var fæddur 26. apríl árið 1950 og lætur eftir sig fimm böm. Tildrög dauðsfallsins voru til rannsóknar hjá lögreglunni í Reykjavík og er rannsókninni lokið. Að sögn lögreglu eru tildrögin rakin til veikinda hins látna. mörkin liggja í þessu efni. Það er einnig mikilvægt að stéttarfélög og einstakir félagsmenn þeirra sem standa að ólögmætum aðgerðum geri sér Ijóst, að ekki sé eðlilegt að aðrir beri tjón af ólögmætum skaða- verkum sem unnin eru í verkfalli. Af þessum sökum telur VSÍ óhjá- kvæmilegt að fá skorið úr deilum um lögmæti svonefndrar verkfallsvörslu á borð við þá sem vestfírsku félögin og nokkrir félagsmenn þeirra héldu uppi utan Vestfjarða í maí 1997.“ Morgunblaðið/Þorkell Skaðabótamál vegna meintra ólögmætra aðgerða í verkfalli Sérblöð í dag Með Morg- unblaðinu I dag er dreift blaði frá Sjó- manna- dagsráði, „Sjómanna dags- blaðið“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.