Morgunblaðið - 22.07.1999, Síða 1
STOFNAÐ 1913
163. TBL. 87. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Átökin í Kasmír
Skæruliðar
hunsa sam-
komulag
Nýju Delí, Islamabad. Reuters, AFP.
TUGIR skæruliða hunsuðu í gær
samkomulag Indverja og Pakistana
um að hverfa frá vígstöðvum þeim
sem þeir höfðu náð tangarhaldi á inn-
an indversku markalínunnar í Kasm-
ír-héraði. Talið er að sextán manns
að minnsta kosti hafi fallið á yfirráða-
svæði Indverja í gær er skæruliðarn-
ir, sem berjast í nafni Pakistana,
gerðu árás á liðsmenn indverska
hersins.
Indversk hermálayfirvöld sögðu í
gær að barist væri á þremur stöðum
á Kargil-fjallshryggnum i norður-
hluta Kasmír og að um 100-150
skæruliðar hefðust þar enn við. Tals-
menn skæruliðasveitanna sögðu að
liðsmenn þeirra hefðu ekki og myndu
ekki hörfa og að hernaðaraðgerðum
yrði haldið til streitu þrátt fyrir sam-
komulag Indverja og Pakistana.
Fljótt flæmdir burt
Indverjar lýstu því yfir um helgina
að átökum í Kasmír væri svo gott
sem lokið eftir að stjórnvöld í Islama-
bad höfðu farið þess á leit við skæru-
liða að þeir drægju sig til baka frá yf-
irráðasvæði Indverja. í gær lýsti ind-
verski herinn því yfir að þeir skæru-
liðar sem enn héldu sig á óvinasvæði
yrðu fljótt flæmdir í burtu.
Sartaj Aziz, utanríkisráðherra
Pakistans, sagði í gær að alþjóðlegur
þrýstingur væri að aukast á Indverja
að taka á ný upp formlegar viðræður
til að leysa með varanlegum hætti
deilu landanna um Kasmír.
Bandaríkjamenn miðla málum milli Kína og Taivans
Taívanar
sefa reiði
Taípei, Peking. AP, AFP, Reuters.
STJORNVÖLD á Taívan hafa dregið
verulega í land með yfirlýsingar sín-
ar um „tvö kínversk ríki“. Hafa þær
farið mjög fyrir brjóstið á Peking-
stjórninni, sem hefur ítrekað haft í
hótunum um innrás í Taívan. Ákveð-
ið hefur verið, að háttsettir, banda-
rískir embættismenn reyni að miðla
málum í deilunni á næstu dögum.
Talsmaður taívönsku ríkisstjórn-
arinnar, Chen Chien-jen, sagði í
gær, að ekki stæði til að Taívan yrði
lýst sjálfstætt ríki og ekki væri fyrir-
hugað að breyta stjórnarskránni í þá
átt að um tvö kínversk ríki væri að
ræða. Sagði hann að fyrri yfirlýsing-
ar um „tvö ríki“, „tvö Kína“, „eitt
Kína, tvö ríki“ og fleiri í þessum dúr
væru nú ómerkar. Hann ítrekaði þó
þá afstöðu taívanskra stjómvalda að
„eitt Kína“ væri aðeins mögulegt
með lýðræðislegri sameiningu Taí-
reyna að
Kínverja
„eitt Kína“. Hann sagðist
sannfærður um að Kínverj-
ar og Taívanar myndu finna
friðsamlega lausn á deilu-
málum sínum.
Madeleine Albright, ut-
anríkisráðherra Bandaríkj-
anna, sagði í gær, að hátt-
settir bandarískir embætt-
ismenn yrðu sendir til við-
ræðna við ráðamenn í Kína
og Taívan um hugsanlega
lausn á deilu ríkjanna. Er
meðal annars ráðgert að Richard
Bush, yfirmaður Bandarísku stofn-
unarinnar í Taívan, sem sér um óop-
inber tengsl Bandaríkjastjórnar við
yfírvöld í Taívan, ræði í vikunni við
ráðamenn í Taívan en Stanley Roth,
aðstoðarutanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, fari til Peking til viðræðna
við ráðamenn þar.
vans og kínverska megin-
landsins.
„Við viljum ekki koma af
stað neinum misskilningi og
teljum að „sérstök milli-
ríkjatengsl“ segi það, sem
segja þarf,“ sagði Chen.
Hætta á hernaði
talin lítil
Stjórnvöld í Kína hafa
hótað að grípa til hernaðar
gegn Taívan láti yfirvöld þar
í landi ekki af hugmyndum sínum
um aðskilnað frá Kína en Kínverjar
segja Taívan tilheyra meginlandinu.
Fréttaskýrendur telja þó ólíklegt að
af hernaðaríhlutun verði, a.m.k. á
næstu tíu árum.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
sagði í gær að sér þætti affarasælast
að ekki yrði horfið frá stefnunni um
Lee Teng-hui,
forseti Taívans
AP
Neyðarað-
stoðar beðið
VEÐURFRÆÐINGAR vöruðu við
því í gær að líkur væru á afar
miklum flóðum í Bangladesh
vegna mikilla monsún-rigninga
að undanförnu. Þúsundir heimil-
islausra á flóðasvæðum landsins
bíða nú neyðaraðstoðar, þar á
meðal þetta fólk í Manikgonj-
sýslu, um 40 km norður af höfuð-
borginni Dhaka.
Leitin að flaki flugvélar Johns F. Kennedys yngra
011 þijú líkin fundin
Aquinnah (Massachusetts, Boston. AP, Reuters.
KAFARAR bandarísku strandgæzl-
unnar fundu í gær lík allra sem um
borð voru í einkaflugvél Johns F.
Kennedys yngra, sem fórst undan
strönd eyjarinnar Martha’s Vineyard
aðfaranótt laugardags að íslenzkum
tíma. Fyrst fannst lík Kennedys
sjálfs í braki úr vélinni á 30 m dýpi.
Síðar um daginn fundust jarðneskar
leifar eiginkonunnar Carolyn Bes-
sette Kennedy og systur hennar,
Lauren Bessette.
Líkin voru flutt í land í gærkvöldi í
fylgd öldungadeildarþingmannsins
Edward M. Kennedys, föðurbróður
hins látna, og tveggja sona hans, en
þeir höfðu fylgzt með leitaraðgerðum
í gær í stjórnstöð þeirra á flotaskip-
inu USS Grasp. Kryfja á líkin á
Bamstable County-sjúkrahúsinu í
Boume á Cape Cod í kvöld, undir
stjórn réttarlæknis. Talsmaður
bandaríska varnarmálaráðuneytisins
Minningarathöfn
á morgun
greindi frá því, að til athugunar væri
hvort til greina kæmi að láta útförina
fara fram á sjó, að beiðni Kennedy-
fjölskyldunnar.
Flak vélarinnar fannst í fyrrinótt
með hjálp fjarstýrðrar neðansjávar-
myndavélar, á um 30 m dýpi. Tölu-
verður straumur er í sjónum á þessu
svæði og mikill gróður á hafsbotnin-
um og því reyndist leitin erfið, enda
hefur brakið úr flugvélinni dreifzt
um allstórt svæði, um 12 km undan
suðvesturströnd Martha’s Vineyard.
Hrapið var mjög hratt
Nýjar ratsjárapplýsingar um að-
draganda þess að Piper Saratoga-vél
Kennedys steyptist í hafið hafa leitt í
ljós að hrapið síðustu sekúndurnar
var mun hraðara en áður virtist, eða
yfir 5000 fet (1.600 metrar) á mínútu.
Svo virðist sem eitthvað hafi byrj-
að að fara úrskeiðis þegar þremenn-
ingamir áttu um 30 km óflogna að
flugvellinum á Martha’s Vineyard.
Eftir að hafa verið í beinu flugi í
2.300 feta hæð virðist Kennedy hafa
sveigt til hægri, hækkað flugið um
300 fet, þá sveigt aftur til hægri og
byrjað að stefna skarpt niður á við.
Flugfróðir menn telja að af þessu
megi álykta að Kennedy hafi misst
stefnuskyn og haldið að hann væri að
hækka flugið þegar hann stefndi í
raun niður.
Kennedy-fjölskyldati tilkynnti í
gær að hún áformaði að halda minn-
ingarathöfn um Kennedy og eigin-
konu hans á föstudag, í kaþólsku St.
Thomas More-kirkjunni í New York.
Verða aðeins valdir gestir við athöfn-
ina, Clinton-hjónin þar á meðal.
Bonn
kvödd
GERHARD Schröder, kanzlari
Þýzkalands, afhjúpar hér vegg-
spjald með skilaboðunum „skiln-
aðarorð verða að vera stutt eins
og ástarjátningar", sem tekin eru
að láni hjá 18. aldar-skáldinu
Theodor Fontane og beint er til
Bonn-borgar, sem ríkisstjóm og
þing Þýzkalands eru þessa dag-
ana að yfirgefa eftir 48 ára far-
sælt starf í hinni friðsælu borg á
Rínarbökkum.
Schröder hafði áður - í hlut-
verki sínu sem flokksleiðtogi -
læst dyrum höfuðstöðva þýzka
Jafnaðarmannaflokksins SPD í
Bonn, en þær verða eins og aðrar
helztu stofnanir þýzkra sljórn-
mála fluttar til Berlinar i sumar.
Þýzka ríkisstjórnin tilkynnti
formlega í gær að frá og með
1. september yrði Þýzkalandi
stjórnað frá Berlín. Fram að
þessu hafði engin föst dagsetning
legið fyrir um það hvenær stjórn-
arsetursskiptin yrðu endanleg.
Húsmæðra-
verkfall
Mexfköborg. Reuters.
í DAG gætu karlar í Mexíkó
neyðst til að strauja sjálfir fotin
sín og elda handa sér mat,
nokkuð sem fáir þeirra hafa
vanist á að gera, efni þarlendar
húsmæður til verkfalls eins og
boðað hefur verið.
Nefnd sem starfar á vegum
Mexíkóborgar og sem ætlað er
að finna leiðir til að auka þátt-
töku kvenna í opinberu lífi, hef-
ur boðað sólarhrings vinnu-
stöðvun til að krefjast „viður-
kenningar á húsmæðrastörf-
um“. Er konum uppálagt að
koma ekki nálægt eldunarstörf-
um á meðan verkfallið varir, og
ekki heldur skuli þær strauja,
þrífa eða þvo.
,