Morgunblaðið - 22.07.1999, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1999 31
LISTIR
Formstúdíur
úr pappa og
bókverk
í GALLERÍI Ingólfsstræti 8 opnar í
dag sýning á verkum þriggja lista-
kvenna. I verkum þeirra Svövu
Björnsdóttur, Svövu Þórhallsdóttur
og Rúnu Þorkelsdóttur kennir tölu-
verðrar fjölbreytni, en Rúna sýnir
blómum skrýdd pappírsþrykk, Svava
Björnsdóttir skúlptúra úr
pappamassa og postulínsvasa eftir
ömmu sína, Svövu Þórhallsdóttur,
sem nú er látin.
Fortíðin íþyngir
ekki pappanum
Verk Svövu eru öll ný af nálinni,
þó að eitt þeirra sé skírskotun í eldri
verk. Um er að ræða formstúdíur
sem unnar eru án allra viðbótarefna,
s.s. litarefna. En Svava hefur oft
unnið með sterka liti og segir hún
sumarið vera ástæðu þess að verkin
eru hvít. „Ég vildi hafa þetta bjart
og skemmtilegt. Þegar birtan er
svona sterk eru andstæðurnar í
hvíta litnum svo skarpar. Þetta á
ekki hvað síst við vegna þessarar
miklu litadýrðar í salnum við hlið-
ina.“
„Mér fannst gaman að hverfa
svona til upphafsins," segir Svava,
en hún hefur unnið með pappír frá
1983 og var efniviðurinn á fyrstu
sýningu hennar einnig hvítur pappír.
„Ég rakst á þetta efni þegar ég var í
skóla. Ég kunni strax vel við það og
hreifst af þessu létta, sögulausa efni.
Það er engin hefð á bak við pappann
ANNAR postulinsvasa Svövu
Þórhallsdóttur.
og því engin saga sem íþyngir verk-
unum með fortíðinni."
Verkin eru mótuð í gifsformum og
segir Svava því í raun um hefð-
bundna höggmyndalist að ræða.
„Þetta er í rauninni ekkert írábrugð-
ið því sem Einar Jónsson gerði,
nema hann steypti sín verk í gifs.“
Á sýningunni er Svava einnig með
verk ömmu sinnar, Svövu Þórhalls-
dóttur. „Ég ólst upp við að amma mín
sæti öllum stundum og málaði postu-
lín og ég er viss um að það hefur haft
áhrif á að ég fór út á þessa braut,“
segir Svava og bætir við að aldamótin
hafi þó líka nokkuð með þessa
ákvörðun að gera. „Þá vill maður líta
svolítið til baka og skoða upprunann
og mér fannst kjörið tækifæri að vera
með þessa vasa á þessari sýningu,
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
SVAVA Björnsdóttir með eitt verka sinna.
sem er kannski í eina
skiptið sem ég fæ
tækifæri til þess.“
Svava Þórhallsdóttir
nam postulínsmálun
í Kaupmannahöfn
fyrst Islendinga og
starfaði við þá list-
grein í hartnær hálfa
öld. „Vasamir eru
málaðir upp úr 1960,
þegar við amma átt-
um okkar nánustu
samverustundir.“
Blómlegar
bókasíður á
veggjunum
BLÓMLEGT bókverk Rúnu Þorkelsdóttur.
Rúna Þorkels-
dóttir, sem einnig á
verk á sýningunni, er búsett í
Hollandi. Hún rekur þar bókagallerí
ásamt tveimur öðrum listamönnum
og selja þau eigin verk. Verk hennar
á sýningunni er bók sem hún kallar
„Paper ílowers" og hafa veggir gall-
erísins verið veggfóðraðir með síðum
bókarinnar. „Ég kalla þetta bókverk
og gef út í litlu upplagi, 100 eintök,
sem ég prenta sjálf,“ segir Rúna.
Hún hefur þó einnig boðið öðrum
listamönnum að taka þátt í gerð bók-
arinnar og eru því ekki allar síðum-
ar hennar verk. „Hún er þannig upp-
byggð að ég teikna beint á pappírs-
plötur og prenta síðan í offsetvél-
inni.“ Rúna þekur því næst veggi sal-
arins með síðum bókarinnar, ramm-
ar inn pppírsplöturnai' og hengir of-
an á blaðsíðurnar. Bókin fullgerð og
innbundin liggur einnig frammi á
sýningunni, en með því er ferlið frá
prentplötu til bókar kynnt.
Sýningunni lýkur 8. ágúst.
Þriðja tón-
leikahelgin í
Skálholti
VERK eftir tónskáldin Snorra Sig-
fús Birgisson, Svein Lúðvík
Björnsson og Hans-Henrik
Nordström verða frumflutt á
Sumartónleikum í Skálholtskirkju
um helgina.
Dagskráin hefst kl. 14 á laugar-
dag í Skálholtsskóla með erindi sr.
Sigurðar Sigurðarsonar vígslubisk-
ups um Skálholt í sögu og tíma.
Kl. 15 hefjast tónleikar í Skál-
holtskirkju, þar sem flutt verða
kammerverk eftir Snorra Sigfús
Birgisson,m.a. verður frumflutt
verk hans, Fegurð veraldar mun
hverfa, við samnefnt ljóð Hall-
gríms Péturssonar. Flytjendur
eru: Óskar Ingólfsson, klarinett,
Nora Kornblueh, selló, Þórann Ósk
Marinósdóttir, víóla, Herdís Jóns-
dóttir, víóla, Hávarður Tryggva-
son, kontrabassi, og Steef van
Oosterhout, slagverk. Einsöngvari
á tónleikunum er Hildigunnur
Rúnarsdóttir sópran og stjómandi
er Snorri Sigfús Birgisson.
Kl. 17 á laugardag flytja Kol-
beinn Bjamason flautuleikari og
Guðrún Öskarsdóttir semballeikari
verk fyrir flautu og sembal frá
ýmsum heimshornum. Meðal ann-
ars verða frumflutt verk eftir Svein
Lúðvík Björnsson og danska tón-
skáldið Hans-Henrik Nordström.
Ennfremur verða flutt verk eftir
Doina Rotara, Leif Þórarinsson og
Toshi Ichiyanagi.
Á sunnudag kl. 15 endurtaka þau
Kolbeinn og Guðrún dagskrá sína
frá laugardegi og kl. 16.40 hefst
tónlistarstund í Skálholtskirkju. Þá
verður endurflutt verk Snorra Sig-
fúsar Birgissonar, Fegurð veraldar
mun hverfa.