Morgunblaðið - 22.07.1999, Page 41

Morgunblaðið - 22.07.1999, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1999 4^ UMRÆÐAN Ef viljinn í verki er sýndur FYRIR síðustu alþingiskosningar voru málefni öryrkja allmikið til umræðu í samfélaginu og óhætt að segja að uppi voru af öllum fram- boðum ákveðin fyrirheit um bættan hag þessa fólks, ekki sízt þeirra lakast settu. Nýr stjórnarsáttmáli tæpir væg- ast sagt varlega á málefnum öryrkja en með velvild er þó unnt að lesa út úr orðanna hljóðan ákveðin vilyrði um úrbætur, bæði hvað varðar hin skörpu skerðingaákvæði og einnig kjör hinna verst settu. Ég fullyrði því að þama er ákveðin viðspyma, þótt vissulega mætti hún miklu betri vera, en auðvitað ráðast mál öll af því hversu að verður staðið. TO at- hugunar mætti það vera þeim sem málum ráða að hrein kaupmáttar- aukning er sögð verða 5,5 % á þessu ári, á meðan tryggingabætur al- mennt hækka uin álíka prósentu en þess þá að geta réttilega að verð- bólgan étur þar af rúman helming, þó ekki verði hún meiri en spáð er. Kaupmáttaraukning trygginga- bóta nær því ekki helmingi þess sem almennt er í prósentum og er því óralangt frá þeim krónutölum sem teljast þama meðaltal. Enn verður þessi hópur því alvarlega út- undan í góðærinu marglofaða. Öll getum við verið sammála um það að aðstæður og ástæður öryrkja em misjafnar, eðlilega eins og annarra í þjóðfélaginu. Vinnuframlag öryrkja og þar með vinnutekjur era blessunarlega um- talsverðar og koma bæði þeim sjálf- um og ekki síður samfélaginu að liði, þótt séð sé til þess með skerð- ingaákvæðum að aírakstur öryrkj- anna verði ekki of mikill. En einmitt vegna dugnaðar svo margra þeirra í atvinnulífínu, þrátt fyrir ótal þrösk- ulda, ætti að vera auðveldara fyrir stjórnvöld að koma til móts við eðli- legar þarfír þeirra sem lakasta hafa lífsaðstöðuna, eiga ekki annarra kosta völ til lífsframfæris en trygg- ingagreiðslumar. Lægstu laun á Is- landi í dag eru vægast sagt alltof lág, en menn eiga þess kost að auka við þau oft og tíðum, þótt ekki sé það eftirsóknarvert og aðalatriðið það að mjög fáir þurfa að svo litlu að lúta. Allir fjórir meginbótaflokk- ar trygginganna samanlagðh’ era veralega mikið undir sultarmörkum hinna lægstu og þó tekur steininn úr þegar kemur að tveim öryrkjum í hjónabandi eða sambúð eða þá ein- staklingum sem ekki era af TR taldir verðugir heimilisuppbóta. Pá eram við að tala um aðeins tæpa tvo þriðju af lágmarkslaunum og vill nokkur í raun hugsa þá hugsun til enda, hvemig unnt er af að lifa. Þetta era blákaldar staðreyndir sem hver og einn getur kynnt sér ef hann eða hún á annað borð vill og ekki ætla ég neinum þann vald- hroka að vilja ekki kunna rétt skil á kjöram þessa fólks sem ákvarðanir æðstu stjómvalda skammta að öllu eða mestu leyti sinn skerf. Nauðsynin að lyfta hinum al- menna kjaragranni öryrkja er svo ótvíræð að blaðagreinar eins og þessi ættu þarflausar með öllu að vera. Sú er nú því miður ekki raunin og því búa alltof margir öryrkjar við það að hafa í raun ekki í sig og á eins og gamla sígilda orðtakið segir til um. Það hljómar hins vegar kald- hæðnislega napurt þegar að þessum sjálfsögðu mannréttindum er vikið, þá er viðkvæðið um kostnað nær æv- inlega dregið í dagsljós fram, napurt segi ég þar sem þama er um sjálfan lífsréttinn að tefla, kaldhæðnislegt í þessu þjóðfélagi sukks og sóunar svo alltof margra svo alltof víða og þar draga fjárlögin okkar allnokkurt dám af. Kjör þessa lakast setta fólks þola hvergi nærri birtu góðærisins, þvílikur oíúrskuggi sem þar hvílir yfír alltof víða. Neyðarköll þein’a berast hingað til okkar daglega, þau berast einnig hvers konai- hjálpar- samtökum og þau hljóta einnig að óma landsmæðrum og feðram, ann- ars er firring þeirra meiri en svo að trúað verði. I blaðagrein Ingibjargar Pálma- dóttur tiyggingaráð- herra 24. apríl sl. tíund- aði ráðherrann ákveðn- ar lagfæringar í trygg- ingakerfinu sem forysta Öryrkjabandalagsins hafði knúið á um og hún hafði beitt sér fyrir að yrðu raunveruleiki og vissulega voru þær all- nokkrar. Okkar aðal- krafa þá sem nú var hins vegar um hækkun bótagreiðslna sem a.m.k. svaraði lág- markslaunum í samfé- laginu og sem allir fengju að njóta. Sú Helgi Seljan krafa svo lágmörkuð, sem hún þó er, stendur óhögguð sem fyrsta skref til úrbóta , hún bíður enn aðgerða ráð- herranna í ríkisstjóm Islands, því sameigin- legur vilji þeirra þarf til að koma. Þar bera flokksformenn og odd- vitar stjómarinnar mesta ábyrgð að sjálf- sögðu og á þá skorað að leggja nú tryggingaráð- herra verðugt lið svo duga megi til réttlátrar leiðréttingar. Það er vísað mjög Öryrkjar Nauðsynin að lyfta hin- um almenna kjara- grunni öryrkja er svo ótvíræð, segir Helgi Seljan, að blaðagreinar eins og þessi ættu að vera óþarfar. nú til lausra samninga á næstunni og að þá muni mál fyrst ráðast, en leiðrétting sem færði þeim lakast settu lágmarkskjör samninga í dag væri vissulega skref í rétta átt. Og vita skulu menn fjárlagafátæktar- innar sem oft er til gripið til, að ekki yrði þetta nein ofurapphæð, síður en svo, en fyrir einstaklingana sem' nytu yrði um veralega bót að ræða, sem fengi svo sína viðbótarleiðrétt- ingu við gerð kjarasamninganna. Það er nú einu sinni svo að þetta sama ríkisvald er einn aðalviðsemj- andi launþega á landi hér og varla finnst því sama ríkisvaldi í lagi að veita þessum lakast settu annan og ólíkt verri viðurgjörning en þeim sem afl verkfallsréttarins hafa. Orð era dýrmæt oft og tíðum, fá orð stjórnarsáttmála fá vonandi þá vigt í efndum að þau megi verða öryrkj- um dýrmæt. Sýnið því viljann L, verki. Höfundur er frumkvæmdastjóri ÖBÍ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.