Morgunblaðið - 22.07.1999, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 22.07.1999, Qupperneq 60
60 FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Stutt V Viagra fyrir plöntur ÍSRAELSKIR rannsóknarmenn segja líftíma plantna geta tvöfaldast sé þeim gefínn viss skammtur af ristruflanalyfinu viagra, en að það geti líka haft sínar neikvæðu afleið- ingar. „Plöntur eru ekki það ólíkar fólki, segir Yaacov Leshem, pró- fessor í plöntulíffræði við Bar-Ilan- ^ háskólann í Jerúsamlem, en hann hefur verið í forsvari fyrir rann- sókninni seinustu mánuði. „Viagra kemur í veg fyrir að plönturnar eld- ist og hjálpar þeim að viðhalda stinnleikanum." Leshem komst að því að tvö eða þrjú millígrömm af viagara blönduð í vatn sem notað er á afskorin blóm hægir á virkni etý- lens, gaskennds hormóns sem gerir það að verkum að ávextir, grænmeti og plöntur þroskast, eldast og mygla. Bar-Ilan-háskólinn og Newcastle-háskólinn í Astralíu hafa skráð einkaleyfi á þessari uppfinn- ingu sem þeir álíta að geti haft bylt- ingarkenndar afleiðingar í pökkun og geymslu uppskeru. y. „Einu ókostirnir," segir Leshem, „eru kostnaðurinn við ferlið, því vi- agra kostar um 1.300 krónur í smá- sölu hver tafla, og hugsanleg áhrif á neytendur viagra-ræktaðs græn- metis. „Þetta gæti vissulega haft já- kvæð áhrif á getuleysi fólks sem borðar það,“ segir Leshem, „en einnig haft neikvæð áhrif á gamalt fólk sem á við heilsuvandamál að stríða. Eins og málin standa í dag, ráðleggjum við einungis að viagra sé notað á afskorin blóm. „Fólk er ekki mjög gjamt á að borða rósir.“ Mission: Impossible II í vandræðum j MISSION: Impossible II með Tom Cruise í aðalhlutverki hefur verið mjög lengi á leiðinni undir leikstjórn hasarmyndasnillings- ins John Woo frá Hong Kong. Frumsýning myndarinnar hafði verið áætluð þann 26. desember nk., en framleiðendur myndar- innar, sem hafa lagt 80 milijónir bandaríkjadala í verkefnið, svitna víst þegar þeir heyra á það minnst. Tökum myndarinnar á að Ijúka í næsta mánuði í Sydn- ey í Astralíu, en enn hafa sum Iykilatriðin ekki verið tekin upp og má þar nefna mikinn bflaelt- ingaleik. Enginn staður í Sydney þykir nógu hentugur fyrir tök- J urnar, sem enda kannski í Fox- stúdíói í Hollywood. Vandræðin hófust þegar aðal- stjarnan, Tom Cruise, hafnaði handritinu í sinni upphaflegu mynd. Mánaðarbið varð á tökum þannig að margur starfsmaður- inn nennti ekki að bíða lengur og kaus að fara yfír til Malasíu þar sem Fox er að taka upp myndina Anna and the King. Þegar tökur loks hófust yfir- gaf tökumaðurinn, Andrew Lesnie, settið þar sem til útlits- legs ágreinings kom upp á milli hans og leikstjórans John Woo, sem hefur áreiðanlega mjög ákveðnar hugmyndir í þeim efn- um. En þegar nýi tökumaðurinn, Jeffrey Kimball, hafði síðan ný- lokið við uptökur á kvöldatriði í sundlaugarpartíi, var meira en helmingur leikaranna keyrður úpp á spitala með hitavellu. Ja, bara að fall reynist fararheill. FÓLK í FRÉTTUM Rokksveit framtíðarinnar JÁ, JÁ, já, jóa, jíbbí og jey; nýja Limp Bizkit-platan er komin í hús. Limp Bizkit er ein af þessum frá- bæru sveitum sem hafa verið að koma upp í rokkinu undanfarið og ganga undir skilgreiningunni „hiphop massive" eða „rapcore". Sveitin kom fyrst fram á sjónarsvið- ið árið 1996 með fyrstu breiðskífu sinni „3 Dollar Bill Yall“. Sú plata fékk misjafnar undirtektir í tímarit- um vestanhafs til að byrja með en það var nú einhvern veginn þannig að með tímanum - og sérstaklega nú á allra síðustu tímum eftir að Limp Bizkit-liðar voru búnir að fá alla tónleikagesti til að missa andlit- ið vegna æðisgenginnar sviðsfram- komu þeirra og kraft á tónleikum - fóru hinir amerísku hamborgara- rassar að tala um þá sem bjarg- vætta amerísks rokks og settu þá í flokk með sveitum eins og Deftones og Korn. Það hefur verið vægast sagt un- aður að fylgjast með Limb B stækka og stækka og er það ekki síst snilldarlegum vinnubrögðum Freds Dursts, söngvíira sveitarinn- ar, að þakka, en hann hefur verið óhræddur við alls konar samstarf við hina og þessa snillinga og nægir þar að nefna innkomur hans á plöt- ur Soulfly og Kom á síðasta ári. Nýja plata Limb Bizkit ber nafnið Significant Other. Ber hún mikinn keim af slíku samkrulli og er að finna næstum því tuttugu einstak- linga sem koma nálægt plötunni, al- veg frá mömmu Freds Dursts til Les Claypool, bassaleikara og aðal- sprautu Primusar, og sjálfan stór- glæpamanninn Method Man úr Wu- Tang-genginu. Significant Other er um margt öðruvísi en ftumraun sveitarinnar; gi-einilegt er að þeir eru búnir að slíta bamsskónum og orðnir alvöru rokksveit. Allar útsetningar em mun betri og lagasmíðar einnig þótt heyra megi langar leiðir að Limb- liðar em miklir Jane’s Addicton og Rage Against the Machine-aðdá- endur en það er að sjálfsögðu bara allt gott og blessað. Aðalhöfuðverk- ur plötunnar er sá sami og var í raun á þeirri fyrri, ekki fyndinn am- erískur gelgjuhúmor sem fyrir- finnst í nokkram textum á nýju plötunni. Þó kemur Fred Durst bæði söng og textum mjög vel tO skila og sýnir að hann er án efa einn allra skemmtilegasti söngvari í heiminum í dag og er gaman að heyra hann stinga upp í þann leiðin- lega rappara Eminem eða hvað það er nú aftur sem hann heitii'. Á plöt- unni er að finna eins og áður sagði samkrall Limparanna með Wu- Tang „gúrúinum“ Method Man og segir lagið „N 2 Gether Now“ allt um það hvað Limparamir eru góðir þegar þeir geta fengið hina leiðin- legu tónlist „hip hop“ til að hljóma bara annars ágætlega. Annars er það lag langlakasta lag plötunnar. Það er nú kannski ekki langt fyrir Limparana að sækja „hip hop“- áhrifin með DJ Lethal fyrram DJ House of Pain innan borðs, en hann má eiga það að hann er eini DJ-inn í öllum heiminum sem getur í raun kallað sig hljóðfæraleikara svo miklu er þetta blessaða Skratz að skila bandinu í fönkuðum hljóðum á nýju plötunni. Annað dapurlegt at- riði við þessa plötu er að lögin era alltof lengi að byrja og enda sem skilja nákvæmlega ekkert eftir sig og er í raun bara til eintómra leið- inda alla plötuna. Feitustu rokk- hitararnir á þessari plötu eru ann- ars án efa „Break Stuff1, útvarps- hitarinn „Nookie" og „Nobody Li- kes You“ en þai' njóta Limpararnh' aðstoðar Scott Weiland, söngvara Stone Temple Pilots. Platan Signi- ficant Other er annars stútfull að frábæru hopp-rokki og greinilegt að Limb Bizkit era komnir til að vera og stefna hraðbyri í það að verða stærri en Marilyn Manson og Kom, eitthvað sem Kom-liðum hefur ábyggilega ekki dottið í hug er þeir buðu tattúteiknaranum sínum að ferðast með sér. Fred Durst og fé- lögum í Limb hefur sem sagt tekist að gefa hamborgararössunum vest- anhafs er afskrifuðu sveitina í upp- hafi, löngutöng í loftið, þessi sveit er framtíðin, framtíðin er á morgun. Uppboð á leikmunum á Netinu KVIKMYNDAVER eiga mörg hver fullar vöruskemmur af leik- munum sem bíða þess eins að verða hent eða mölétnir. En nú verður breyting þar á því fyrir- tækin Universal og New Line verða fyrstu kvikmyndaverin sem munu bjóða upp leikmuni og hluti úr bíómyndum og þáttum á Net- inu. Hvern langar ekki að eiga stuttermabol úr kvikmyndinni Boogie Nights? Eða sundlaugar- vatn sem hin fagra Heather Locklear úr þáttunum Melrose Place hefur synt í? Hlutirnir verða boðnir upp á heimasíðum fyrirtækjanna á Netinu en hingað til hafa kvikmyndaver aðeins selt fjöldaframleidda minjagripi úr myndum sínum með þeim hætti. „Með þessu öðlast fólk tækifæri til að eignast hluta af eftirlætis myndum sínurn," sagði Jim Ros- enthal þjá New Line. „Það verður gaman fyrir einhvern að horfa á Austin Powers: Njósnarinn sem negldi mig og segja: „Eg á silfr- uðu fötin sem Mini Me er í.“„ Þau föt voru seld fyrir tæpar 400 þús- und krónur. Dýrasti hluturinn sem þegar hefur verið seldur var BILLINN úr Austin Powers: Njósnarinn sem negldi mig fór fyrir rúmar átta milljónir á uppboði. hins vegar Corvetta Felicity Shagwell úr sömu mynd en hún var seld hæstbjóðanda á rúmar átta milljónir króna. Hluti ágóð- ans af uppboðinu rennur til góðgerðar- mála að sögn kvikmyndaveranna en hann er smáræði miðað við þá fjármuni sem fást með sýningn myndanna um allan heim. En þetta er góð kynning fyrir myndirnar og það á eftir að skila enn meiri ágóða fyrir framleiðendurna. Fleiri kvikmyndaver eru að hugsa um að bætast í hópinn og opna uppboðssíðu á Netinu. „Þetta er leið til að fá fólk til að standa með rnanni," sagði talsmaður MGM kvikmyndafyrirtækisins sem íhugar nú al- varlega að skella sér og sínu dóti á Netið. Þeir sem hafa áhuga á að kíkja á síð- urnar er bent á slóðirnar www.auct- ion.newline.com og www.universalstudi- os.com/auction. BÚNINGURINN sem Wesley Snipes klæddist í Blade er á uppboðinu hjá New Line. MYNPBÖNP Að drepa tímann Klukkan tifar (Clockwatchers) Gamanmynd/drama ★★★ Framleiðandi: Gina Resnick. Leik- sljóri: Jill Sprecher. Handrit: Jill og Karen Sprecher. Kvikmyndataka: Jim Denault. Aðalhlutverk: Toni Collettc, Parker Posey, Lisa Kudrow og Alanna Ubach. (96 mín.) Banda- rísk. Skífan, júlí 1999. Öllum leyfð. í framraun sinni á sviði kvikmynda- gerðar hafa systurnar Jill og Karen Sprecher óhikað ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur og gert kvikmynd um hversdaginn í öll- um sínum grámygluleika. Segir þar frá fjór- um ungum konum sem starfa sem lausamanneskjur hjá stóru fjár- málafyrirtæki. Fyrir vikið era þær neðst í valdapíramíta skrifstofu- báknsins við vinnu sem er svo niður- drepandi að tíminn virðist varla líða. I allt að því ofurraunsæislegri framsetningu sinni á efniviðnum era Sprecher-systur ekkert að skafa of- an af ömurleika slíkra starfsað- stæðna, enda hefur því verið fleygt að þær hafi kynnst slíkum störfum af eigin raun. Aðalpersónurnar, sem leita huggunar hjá hver annarri, mega hafa sig allar við til að kikna ekki undan niðurbrjótandi áhrifum umhverfisins. Höfundar miðla þess- ari raunsæislegu sýn sinni fagmann- lega og hnitmiðað og ekki spillir næmur leikur úrvalsleikkvenna íyr- ir. Heiða Jóhannsdóttir Ekki alvond Skuldadagar (Pay Back Time)___________ Spennumynd ★ Leiksljóri: John Raffo. Aðalhlutverk: Peter Gallagher, Frances McDorm- and og John Lithglow. (94 mín.) Bandaríkin. Skifan, júní 1999. Bönn- uð innan 16 ára. JOHNNY er ljósmyndari hjá lög- reglunni sem þarf á degi hverjum að horfast í augu við hrylling hvers- dagsins í gegnum linsuna. Hann hef- ur því tamið sér tilfinningaleysi gagnvart starfinu sem smitað hefur alla hans tilvera. Það gerir Johnny jafnframt kleift að stunda öllu sið- lausara aukastarf sem felur m.a. í sér fjárkúgun. I byrjun lofar þessi sjónvarpsmynd nokkuð góðu, ef litið er fram hjá nokkrum áber- andi slæmum leikuram sem bregður fyrir í aukahlutverkum. Persónu- sköpun aðalpersónunnar er til dæm- is áhugaverð og tekst ágætlega að miðla þeirri einsemd og firringu sem einkennir ljósmyndarann. Frances McDormand gefur kvenpersónunni sömuleiðis karakter umfram það sem gengur og gerist í sjónvarps- myndum af þessu tagi. Dálitlir stíltilburðir í tónlist og fleira saka heldur ekki. En þegar að því kemur að leysa úr flækjum og skapa spennu fellur myndin í hjólför sömu gömlu leiðindaklisjunnar. Botninn dettur þá alveg úr tunninni og það litla innihald sem fyrir var sullast niður. Heiða Jóhannsdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.