Morgunblaðið - 26.08.1999, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 26.08.1999, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Nýjung í Lindaskóla Námskeið fyrir for- eldra barna í 1. bekk Morgunblaðið/Rax Gunnsteinn Sigurðsson skólastjóri og Guðrún Soffía Jónasdóttir, aðstoðarskólastjóri Lindaskóla. Morgunblaðið/Þorkell Kópavogur GUNNSTEINN Sigurðsson, skólastjóri Lindaskóla í Kópavogi, hefur boðað for- eldra þeirra sextíu 6 ára barna, sem hefja nám í 1. bekk í skólanum í haust, á námskeið. Lindaskóli er í nýju og barnmörgu hverfi og Gunnsteinn segir að margar fjölskyldur séu nú að senda sitt fyrsta barn í skóla; skól- inn sé alltaf að breytast og margt hafí breyst í starfinu og umhverfinu á síðustu ár- um. „TO þess að búa sem best í haginn fyrir bamið og fjölskylduna höfum við ákveðið að efna til þessa námskeiðs," segir Gunn- steinn. „Tilgangurinn er fyrst og fremst að kynna fyr- ir foreldrum skólaumhverfið, sem bíður bamsins. Einnig þekkir skólinn ekki alltaf þær væntingar sem foreldr- amir gera til skólans og for- eldramir ekki þær kröfur sem skólinn gerir til foreldra og heimila. Námskeiðið skap- ar því vettvang fyrir báða að- ila til að kynnast og koma sjónarmiðum sínum á fram- færi.“ Gunnsteinn sótti um styrk td skólanefndar bæjarins til að halda námskeiðið en fékk hann ekki. „Þetta er tilrauna- verkefni, sem hefur verið reynt á fleiri stöðum, og ég er ákveðinn í að halda þetta námskeið og afla fjár með öðrum hætti,“ segir hann um þau málalok. Hvað er það sem Gunn- steinn er að vísa til þegar hann segir að foreldrar og skólinn þekki ekki alltaf væntingar hvor annars til skólans? „Skólinn er alltaf að breytast og það er ekki alveg verið að fást við sömu hluti í dag og fyrir 10 áram. Það hefur verið reynt að undh'- búa nemendur fyrir það að hefja skólagönguna en á þeim stutta tíma sem ég hef verið skólastjóri hér hef ég fundið að foreldrarnir eru líka dálítið óöraggir. Það sem við ætlum okkur með þessu fyrst og fremst er að upplýsa fólk um hvað er í vændum og kynnast foreldranum per- sónulega. Það auðveldar öll samskipti." Gunnsteinn segir að óör- yggi foreldra geti t.d. átt rætur að rekja til spuminga um heimanám og heilsdags- skólann. „Við höfum lagt mikla áherslu á að standa sem allra best að heilsdags- skólanum, sem við köllum Dægradvöl, og það er þáttur sem við tökum fyrir og kynn- um á þessu námskeiði." Gunnsteinn segist hafa fengið góð viðbrögð við nám- skeiðinu. „Þeir sem hafa haft samband við mig fagna þessu,“ segir hann. „Ég er búinn að kynna þetta fyrir foreldraráði og þetta hefur spurst út. Það er búið að inn- rita í skólann 66 böra, sem verða í fjóram bekkjardeild- um og ég geri mér vonir um að hér verði kannski 100 for- eldrar á þessu námskeiði." Foreldram bamanna hefur verið sent bréf þar sem boðað er til námskeiðsins tvö kvöld í september með sameiginleg- um kvöldverði. Námskeiðið kallast I skólanum, í skólan- um er skemmtilegt að vera. Þar verður starfsemi skólans og skólaskrifstofu Kópavogs kynnt og einnig flutt erindi um þroska barna við upphaf skólagöngu, samskipti, sam- vinnu og líðan barna í skóla, misþroska, ofvirkrii og hegð- unarfrávik; kynning verður á heilsdagsskólanum og náms- efni, auk þess sem foreldrar fá upplýsingar um tilboð skól- ans um mánaðaráskrift að há- degisverði og morgunverði í skólanum. Einnig verður fjallað um tónmenntakennslu, læsi og greiningu á þroska- frávikum barna. F ákshús- unum fækkar Bústaðahverfi VERIÐ er að rífa helming hesthúsa Fáks við Bústaða- veg. Að sögn Helgu Bjarg- ar Helgadóttur, fram- kvæmdastjóra Hesta- mannafélagsins Fáks, hafa húsin aðeins verið nýtt að hluta undanfarið og verða jafnmargir hestar í þeim í vetur og verið hafa. Átta hesthús, hvert með plássum fyrir 28 hesta eru á svæðinu en nú verður helmingurinn rifinn. „Það hefur verið vinsælt að vera þarna. Þarna er bæði margt eldra fólk með hesta og eins unglingar; fólk sem þykir gott að þurfa ekki að fara alla leið upp í Víðidal til að hugsa um hestana sína,“ sagði Helga Björg. Reykjavíkurborg á lóð- ina sem hesthúsin standa á og eru húsin rifín sam- kvæmt samningi Fáks og borgarinnar. Sá samning- ur gerir ráð fyrir að Fák- ur haldi hesthúsunum sem eftir standa til ársins 2004. Námsmanna- íbúðir rísa við Háteigsveg Björn H. Jóhannesson Holt og Hlídar BYGGINGARFÉLAG náms- manna hefst handa við bygg- ingu námsmannaíbúða á Há- teigsvegi í næsta mánuði. Áætlað er að húsið verði full- búið í ágúst 2000 með 13 íbúðum og leikskóla. Lóðin þar sem náms- mannaíbúðimar munu rísa er við hom Háteigsvegar og Stakkahlíðar; þar er nú gras- blettur milli Sjómannaskólans og Háteigskirkju. Að Bygg- ingarfélagi námsmanna stendur Bandalag íslenskra sérskólanema og í næsta ná- grenni við Háteigsveginn era fjórir skólar sem félagsmenn BISN sækja; Kennaraháskól- inn, Stýrimannaskólinn, Tón- listarskólinn í Reykjavík og Myndlista- og handíðaskólinn. Leikskóli og íbúðir Að sögn Höllu Katrínar Svölu- og Amardóttur, fram- kvæmdastjóra Byggingafé- lags námsmanna, verður leik- skóli á fyrstu hæðinni og þrjár íbúðir en 10 íbúðir á annarri hæð, álls þrettán eins og tveggja herbergja íbúðir. A lóðinni er búið að auglýsa deiliskipulag sem gerir ráð fyrir tveimur húsum á vegum Byggingarfélags námsmanna. Halla Katrín segir að fram- kvæmdir við hitt húsið, þar sem verða 22 íbúðir, tveggja °g þriggja herbergja, hefjist væntanlega næsta sumar og er áætlað að taka það í notkun haustið 2001. Þá gerir deiliskipulag ráð fyrir að námsmenn fái lóð við Vatnsholt, austan við vatns- geymana, og geti byggt þar félagsmiðstöð fyrir sérskóla- nema, með félagsaðstöðu, bóksölu og fleiru. „Eg sé fyrir mér að framkvæmdir hefjist þar eftir 3-5 ár og það hús verði tilbúið í kringum 2005,“ segir Halla Katrín. Byggingarfélag náms- manna er 10 ára á þessu ári. Samtökin era viðurkenndur félagslegur byggingaraðili leiguíbúða, sem eignuðust sína fyrstu eign árið 1992, Hótel Höfða í Skipholti, sem er 36 herbergja hótel, sem er notað sem nemendagarður yf- ir vetrartímann en leigt undir hótelrekstur á sumrin. Bygg- ingarfélagið á einnig blokk við Gullengi í Grafarvogi þar sem sex tveggja og þriggja her- bergja íbúðir era leigðar námsmönnum árið um kring. Um þessar mundir er félagið að ljúka byggingu húss við Bólstaðarhlíð þar sem eru 42 eins, tveggja og þriggja her- bergja íbúðir. 180 m. kr. byggingarkostnaður Halla Katrín segir að áætl- aður byggingakostnaður við framkvæmdimar í haust sé 180 milljónir króna, 90 m. kr. vegna leikskólans og 90 m. kr. vegna íbúðanna. Félagið fær lán frá Ibúðalánasjóði til byggingar á félagslegu leigu- húsnæði en fjármagnar leik- skólann á almennum markaði en Leikskólar Reykjavíkur munu annast reksturinn. „Þetta er í fyrsta skipti sem aðili eins og við fer út í að fjármagna svona stóra fram- kvæmd á almennum markaði og leigja út til sveitarfélags. Þetta geram við vegna þjón- ustu við okkar nemendur. Okkur bauðst sá kostur frá Leikskólum Reykjavíkur að gera þetta í samstarfi við þá; við eram að hjálpast að, vitum að Leikskóla Reykjavíkur vantar leikskóla á þessu svæði og við viljum sjá til að okkar nemendur fái aðgang að leik- skóla á svæðinu," segir Halla Katrín Svölu- og Amardóttir. Arkitekt hússins er Björn H. Jóhannesson. Hann sagði í samtali við Morgunblaðsins að við hönnun hússins hefði annars vegar verið leitast við að ramma inn háskólasvæðið, sem er risið á holtinu, og hins vegar hefði hann lagt áherslu á að nýbyggingin yrði ekki til að draga úr því að hús Sjó- mannaskólans og Háteigs- kirkjan fengju notið sín. Bjöm sagði að húsið yrði í svipuðum stíl og námsmanna- garðarnii- við Bólstaðahlíð, sem Bjöm teiknaði einnig og ramma skólahverfið inn sunn- an frá. Húsið verður 1379 fer- metrar að stærð á, klætt að utan með lökkuðum álplötum og hitalagnir verða í stigum og stéttum hússins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.