Morgunblaðið - 26.08.1999, Síða 60

Morgunblaðið - 26.08.1999, Síða 60
MORGUNBLAÐIÐ •' 60 FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1999 í DAG Arnað heilla Ljósmyndastofa Péturs BRÚÐKAUP. Gef- in voru saman 8. ágúst1998 í Ingjaldshólskirkju af sr. Eðvarði Ing- ólfssyni Júniana Björg Óttarsdóttir og Jóhann Péturs- son. Heimili þeirra er að Bárðarási 9, Hellissandi. Með þeim á myndinni er dóttir þeirra Guð- iaug íris. Hlutavelta Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Þessi duglegi drengur, Gísli Sveins- son, safnaði með tombólu 1.538 kr.til styrktar Rauða krossi Islands. VELVAKANPI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Óagaðir ökumenn UM árabil hef ég daglega ekið mikið um götur Reykjavíkur og oft hefur mér biöskrað ökulag margra, en aldrei sem nú. Bílaflotinn stækkar og stækkar og löggæslu- mönnum virðist fækka og fækka, a.m.k. virðast þeir nær ósýnilegir. Þessa vik- una hefi ég mætt einum á mótorhjóli. Já, tæknivæð- ingin er í algleymingi. Myndavélar hafa verið settar upp, en þegar á reynir sést ekkert vegna trjágreina, hafa fjölmiðlar eftir lögreglunni. Þetta er ljótt ásand og úrbóta greinilega þörf. Umferðarráð hefur ný- lega gert glögga grein fyr- ir umferðarreglum hér í blaðinu, en ekkert virðist hrífa. Stefnuljós ber að nota þegar skipt er um akrein eða beygt af leið. Það yrði skrautlegt skjal sem kæmi frá Gallup, ef mönnum þar á bæ yrði faiið að kanna ástandið. Rautt ljós á gatnamót- um ber að virða skilyrðis- laust. Þama er mölbrotinn pottur, það er víst öllum ólitblindum Ijóst. I þessu efni er svo brenglaður hugsunarháttur hjá fjöl- mörgum að furðu gegnir. Á mesta annatíma við fjöl- förnustu gatnamót væri hægt að stórbæta ástandið með því að hafa þar sýni- lega lögregluþjóna. En enn meira þarf. Hugsunarhátt- ur ökumanna margra þarf að gjörbreytast, ef þetta ógnarástand á að breytast. Hvergi í nærliggjandi löndum viðgengst slíkt ófremdarástand. Nútíma talsíminn upp- tekur ófáa ökumenn. Það er beinlínis hallærislegt upp á að horfa. Jafnvei sjást ökumenn með sím- ann í annarri hendi og sí- garettuna í hinni og at- hyglina úti í hafsauga. Hve lengi á þetta svo til að ganga án alvöru að- gerða tii úrbóta? Spyr sá sem ekki veit. Til að byrja með væri a.m.k. gott ef leigubílstjórar og jafnvel lögreglubílar o.fl. atvinnu- menn myndu eftir stefnu- ljósunum og virtu að fullu umferðarljósin. Við svo bú- ið má ekki lengur standa. Mdðir. Tapað/fundið Hringur í óskilum HRINGUR fannst í Laug- ardalslaug 17. ágúst. Upp- lýsingar í síma 551 8248. Gleraugu týndust í Mjódd GLERAUGU týndust 17. ágúst í Nettó í Mjódd. Sá sem fann þau vinsamlega skili þeim í upplýsingabás- inn í Nettó. Barnahjól í óskilum BARNATVÍHJÓL er í óskilum við Viðarrima. Upplýsingar í síma 567 6154. Dýrahald Hvolpar fást gefins HVOLPAR fást gefíns. Upplýsingar í síma 657 8837. Læða týndist í Hveragerði LÍTIL læða 4-5 mábnaða, svört og gul með hvíta bringu og hvítar hosur, er búin að vera týnd síðan 10. júlí í Hveragerði. Gæti hafa farið með bíl til Reykjavíkur eða á Selfoss. Upplýsingar í síma 483 4607 eða 698 4707. Kettlingur týndist í Breiðholti GRÁBRÖNDÓTTUR kettlingur týndist sl. fóstu- dag frá Hraunbergi í Breiðholti. Hann er ómerktur. Þeir sem hafa orðið hans varir hafi sam- band í síma 587 8023. Páfagaukur í óskilum LJÓSBLÁR páfagaukur er í óskilum í Víðihlíð í Reykjavík síðan á laugar- dag. Upplýsingar í síma 553 9970. Læðu vantar heimili 10 MÁNAÐA þrílit læða óskar eftir heimili. Er há- fætt og tignarleg. Upplýs- ingar í síma 564 3919 eftir kl. 18. Vanda er týnd VANDA er brúnbröndótt læða, með ljósan kvið með brúnum blettum. Hún var með mosagræna ól með rauðu spjaldi. Vanda týnd- ist 16. ágúst frá Skeiðar- vogi. Nágrannar eru beðn- ir að athuga geymslur og skúra ef hún skyldi vera iokuð inni. Þeir sem hafa séð Vöndu eru beðnir að hafa samband í síma 553 3499 eða 695 0773. VIÐSKIPTAVINIR ATHUGIÐ B&L lokar kl.17 á morgun vegna starfsmannaferöar SKAK llmsjón Margeir Pétursson STAÐAN kom upp á heimsmeist- aramóti FIDE sem nú er að ljúka í Las Vegas í Bandaríkjunum. Alex- ander Khalifman (2625) hafði hvítt og átti leik gegn ungversku stúlkunni Júdit Polgar (2670) 32. Hxe5! - Hd8 33. Hed5 - Hxd6 34. Hxd6 - Hg6 35. Df4 - a4 36. bxa4 - Dxc4 37. Hd8 - Dc3 38. Kg2 - Db4 39. Ha8 - h5 40. Db8 - Dxe4+ 41. Kh2 - Hg5 42. Dh8+ - Kg6 43. Hg8+ - Kf5 44. Dh7+ og svartur gafst upp. Khalifman sló Júdit út og komst alla leið í úrslit móts- ins þar sem hann vann Ar- menann Akopjan í fyrstu ein- vígisskákinni. Þeir munu tefla sex skáka einvígi um heimsmeistaratitil FIDE. Hvítur leikur og vinnur. HÚSASMIÐJAN Sími 525 3000 • www.husa.is Víkverji sknfar... STAÐSETNING flugvallar í Vatnsmýrinni hefur lengi verið. umdeild, en umræður um framtíð hans hafa blossað upp að undan- förnu í tengslum við endurbætur á vellinum sem nú eru að hefjast. Áformað er að verja 1,5 milljörðum króna til endurbóta á flugvellinum á næstu árum. Þetta mál er þess eðlis að fólk hefur yfirleitt á því mjög afdráttarlausar skoðanir, annaðhvort vill það flugvöllinn burt eða ekki. Þetta er einnig eitt þeirra mála sem fólk myndar sér skoðun á þvert á allar pólitískar línur. Um ekkert mál var t.d. deilt jafnhart á landsfundi Sjálfstæðisflokksins sl. vetur eins og um framtíð Reykja- víkurflugvallar. Vegna þess hve staðsetning flug- vallarins er umdeild reyna stjórn- málamenn að vísa ábyrgð af málinu frá sér. Þegar skrifað var undir samninga um framkvæmdir við flugvöllinn sagði Sturla Böðvars- son samgönguráðherra að Reykjvíkurborg hefði með ákvörð- unum í borgarráði og nefndum borgarinnar ákveðið að flugvöllur- inn yrði í borginni og hlutverk samgönguráðherra væri ekki ann- að en að útvega fjármagn til endur- bóta á vellinum. í kjölfarið sendi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri frá sér yfirlýsingu þar sem bent er á að ríkið eigi og reki völl- inn og ráði því miklu um framtíð hans. Borgin hafi ekki tekið neinar ákvarðanir um framtíð hans nema þær sem koma fram í aðalskipulagi sem gildir til ársins 2016. XXX ABYRGÐIN í þessu máli liggur auðvitað bæði hjá samgöngu- ráðherra og borgaryfirvöldum. Staðsetning flugvallarins er form- lega séð mál Reykjavíkurborgar og samgönguráðherra og Alþingi hljóta að horfa til þess þegar ákvarðanir eru teknar um hve mikið fjármagn veita á til endur- bóta á flugvellinum. Ef mikil and- staða er meðal borgarbúa við flug- völlinn og stjórnendur Reykjavík- urborgar eru ekki afdráttarlausir í stuðningi við staðsetningu flugvall- arins hlýtur að vera álitamál hvort fara eigi í svo umfangsmikilar end- urbætur á flugvellinum eins og nú hefur verið ákveðið. Eðlilegast væri auðvitað að ráðamenn í borg- inni og samgönguráðuneytinu ræddu ítarlega saman um framtíð flugvallarins áður en framkvæmd- ir hæfust og næðu samkomulagi um hvernig ætti að halda á málum varðandi uppbyggingu flugvallar- ins næstu ár. Þegar rætt er um að leggja nið- ur flugvöll í Vatnsmýrinni benda margir á að eðlilegast sé að flytja flugið til Keflavíkur. Á það hefur verið bent að þessi flutningur myndi leiða til þess að stór hluti innanlandsflugsins yrði lagður nið- ur. Fólk myndi einfaldlega frekar velja bílinn frekar en flugið ef inn- anlandsfluginu fylgdi nærri tveggja klukkutíma akstur til og frá flugvellinum. Jafnframt liggur fyrir að öryggi farþega yrði ekki aukið við slíkan flutning ef vísa á allri þeirri miklu umferð sem fylg- ir innanlandsfluginu á Reykjanes- braut. Ekki er víst að endurbætur á Reykjanesbraut breyttu þeirri staðreynd. Minna má á að það hef- ur verið sýnt fram á það tölfræði- lega að hættulegasti hluti flugsins er ferðin út á flugvöll. Staðsetning flugvalla í heimin- um er með ýmsum hætti, en Vík- verji hefur ósjaldan upplifað það á ferðum erlendis að hafa í aðflugi að flugvöllum flogið yfir þéttbýlar borgir. Fyrsta upplifun Víkverja af viðkomandi borgum hefur því oft- ar en ekki verið að skoða hús og fylgjast með bílunum á jörðu niðri meðan flogið er yfir hraðbrautir. Víkverji hallast því að því að flug- vellir séu óhjákvæmilegur hluti af stórborgum. Það er hins vegar annað mál hvort flugvellir eiga beinlínis að vera staðsettir í borg- unum eða í útjaðri þeirra. Við þurfum því að velta fyrir okkur hvort hægt er að ná samstöðu um eitthvert annað svæði undir flug- völl en Vatnsmýrina og eins þurfa skattborgarar að spyrja sig hvort þeir eru tilbúnir til að kosta bygg- ingu nýs flugvallar við Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.