Morgunblaðið - 02.10.1999, Side 79

Morgunblaðið - 02.10.1999, Side 79
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999 7», FÓLK í FRÉTTUM Háskólabíó sýnir „Old Spice“ og „Lost Weekend" Tómleiki og æðri máttarvöld I „Lost Weekend" vaknar plötusnúður eftir Ianga drykkjunótt og hefur ekki hugmynd um hvar hann er staddur. Dagur Kári tekur smáatriði fram yfír at- burðarás, hengir ekki persónur upp á sögu- þráð og vill fyrst og fremst gera persónu- legar myndir. Hildur Loftsdóttir skráði. „Old Spice“ gerist á rakarastofu í Reykjavík þar sem fastakúnni held- ur tryggð við stofuna eftir dauðann. Hér eru Rúrik Haraldsson og Karl Guðmundsson í hlutverkum sínum. Dagur Kári skrifaði handritið að „Old Spice“ þegar hann sótti um inngöngu í kvikmyndaskóla í Kaupmannahöfn. DAG hefjast í Háskólabíói sýningar á tveimur stutt- myndum; Old Spice og Lost Weekendeftir Dag Kára Pét- ursson, sem unnu til verðlaun á heimilda- og stuttmyndahátíðinni Nordisk Panorama. Sýningamar verða fjórar; í dag og á morgun kl. 20 og á mánudag og þriðjudag kl. 22, og er miðaverð 400 krónur. Old Spice, sem Canal-t- veitti Degi Kára sérstök leikstjómar- verðlaun fyrir, gerist á rakarastofu hér í bæ þar sem framliðinn fastakúnni heldur áfram að koma í klippingu. Það em Rúrik Haralds- son og Karl Guðmundsson sem fara með aðalhlutverkin. Lost Weekend, sem var valin besta stuttmynd há- tíðarinnar, er hins vegar lokaverk- efni hans frá Danska kvikmynda- skólanum og segir frá plötusnúð sem vaknar upp eftir mikla drykkju og hefur ekki hugmynd um hvar hann er. Faldi sig á klósettinu „Eg hafði lengi haft áhuga á kvik- myndum, en það var á fyrsta ári í menntaskóla að það rann upp fyrir mér að kvikmyndaleikstjóm gæti verið samnefnari fyrir það sem ég var að grúska, eins og t.d. tónlist, skriftir og Ijósmyndadelluna sem ég var með á þessum tíma. Ég þyrfti ekki að einbeita mér að einu heldur gat ég frestað ákvörðuninni um hvað ég ætlaði verða þegar ég yrði stór. Svo á kvikmyndahátíð Listahá- tíðar 1988 datt ég alveg inn í þenn- an heim. Ég borgaði mig inn á þi'jú-sýningu, og faldi mig svo á klósettinu á milli sýninga og kom út eftir ellefu-sýningu. Ég sá í fyrsta skipti myndir eftir Jarmusch, Kaurismaki, Wenders og þær höfðuðu strax mjög sterkt til mín, þessar litlu ófullkomnu myndir sem beinast meira að smá- atriðum heldur en einhverjum stórum atburðarásum." Rakarinn hans afa „Old Spice er gerð eftir handriti sem ég skrifaði þegar ég sótti um í skólann. Ég ætlaði upphaflega að gera stuttmynd en fékk rangar upp- lýsingar um skilafrestinn, og vai’ð að láta handritið nægja. Ég bjóst ekki við að það yrði nokkurn tímann að mynd, en svo sendi ég það í Kvikmyndasjóð og fékk fram- leiðslustyrk og tókst að búa hana til. Kveikjan að sögunni er sú að afi minn hafði sama rakara í áratugi, og þegar hann lá á spítala þá fór rakar- inn líka þangað til að klippa hann. Þegar afi dó hélt rakarinn sambandi við fjölskylduna til að missa ekki al- veg þennan þátt úr sinni tilveru. Það var stór upplifun að vinna með Rúriki og Karli sem hafa fimm- tíu ára leikreynslu að baki og ég ekki einu sinni skriðinn úr skóla. En þeii’ létu mig aldrei finna fyrir því, heldur unnum við allan tímann á jöfnum grundvelli." Persónuleikinn byggist á göllunum - Þú hefur þá vent kvæði þínu í kross við það að fjalla um tilveru ungs fólks í „Lost Weekend“? „Já, það er stórkostlegur munur á þessum tveimur myndum og varla hægt að sjá að þær séu eftir sama leikstjóra, enda allt annað uppi á teningnum þá. Þessi lokamynd var búin að vofa yfir mér í ijögur ár, og fólk sagði að hún væri aðgöngumiði út í bransann. Ég hafði alltaf búist við að þegar að því kæmi yrði ég tilbúinn með sögu og allt, en það var ekki og ég lenti í dálítilli kreppu. En þá fengum við mjög góðan kennara sem fékk okkur til að hugsa um hvað okkur langaði til að sýna heiminum, hvað okkur lang- aði til að segja. Þetta reyndist ein- stakt tækifæri til þess að skilgreina fyrir sjálfum sér hvemig maðm- vill gera bíómyndii’. Margir hefðu eflaust reynt að gera bíómynd sem yrði hnökralaus og höfðaði til breiðs hóps svo allii’ gætu séð eitthvað gott í því, en við reyndum að fara í gagnstæða átt við það. Kennarinn kom líka með ákveðna kenningu um að myndii’ ættu fyrst og fremst að vera per- sónulegar, og að persónuleiki hvers og eins væri byggður á göllum við- komandi. I staðinn fyrir að vera endalaust að slípa alla vankanta, voru þeii’ allt í einu orðnir gulls ígildi. Það var mjög gaman að gera þessa mynd, og það losnaði um stíflu hjá okkur öll- um við það að beina verkefninu inn á þessa braut.“ Myndstíllinn úr tímaritum - Hvað vildir þú sýna heiminum? „Ég var þá mjög upptekinn af ákveðnum tómleika sem mér fannst vera í tilverunni. Og af þessari til- finningu sem maður hefur að ann- ars vegai’ séu æðri máttarvöld að stýra lífi manns, og á hinn bóginn að það sé ekki neitt. Þetta eru kannski dálítið hátíðleg efni, en fyrst og fremst vildi ég gera mynd sem yrði skemmtileg upplifun. Ég var líka mjög heillaður af lífs- stílsblöðum og tímaritum fyrir ungt fólk; ID, Dazed & Confused og Face. Myndstíllinn á sér fyrirmynd- ir í þessum blöðum sem eru mjög yfirborðskennd en ég vildi nota þessa fagurfræði án þess að vera yf- irborðskenndur; vera með þyngri undii'tón og meiri dýpt í sögunni." - Ertu meira þú en í Old Spice? „Já, ég held það mætti segja það.-r Old Spice var svolítið hliðai’spor. Lost Weekend er meira eftir þeim leiðum sem ég er að kanna núna.“ Þarf kvikmynd að righalda? „Mér finnst skemmtilegra að sýna hvemig fólk er, og hvemig fólk bregst við, heldur en að hengja per- sónumar upp á einhvem söguþráð sem maður verður svo að fylgja eins og hveiju öðm jámbrautarspori. Það er stór spuming hvort kvikmynd þurfi að ríghalda frá upphafi til enda. Hvort hún megi ekki vera meira eins og geisladiskur, þar sem eitt lag er frábært, annað ballaða, eitt svolítið misheppnað og eitt stuðlag." - Oghvert atriði er þá eins og eitt- lag? „Já, mér finnst það mjög skemmtileg hugmynd að taka hvert atriði eins og sjálfstæða mynd, eða reyna það. I staðinn fyrir að hver sena þurfí að þjóna sögufléttunni. Mér finnst að það megi aðeins losa um vissai’ formúlur í þessum heimi sem er orðinn ansi forsniðinn. En mér finnst það liggja í loftinu að það skapist bráðum meira svigrúm fyrir fólk til að sprengja þennan þrönga ramma svolítið utan af sér.“ - Ert þú plötusnúðurinn í „Lost Weekend"? +■ ,Jíð mörgu leyti og að mörgu leyti ekki. Maður á líklega alltaf ein- hvern hluta í öllum persónunum. Reyndar, þegar við vorum í tökum á myndinni héldum við tvö partí í stúdíóinu. Og í bæði skiptin vaknaði ég í sama rúmi og söguhetjan, í sama herbergi, og hafði ekki hug- mynd um hvar ég var staddur."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.