Morgunblaðið - 26.01.2000, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 26.01.2000, Qupperneq 60
Heimavörn & Sími: 580 7000 ffgtuMiifeife Drögum næst 10. febrúar HAPPDRÆTTI fcOft HÁSKÓLA ÍSL vænlegast til vinnini SLANDS MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVÍK, SÍMI6691100, SÍMBRÉFS691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIDSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.1S, AKUREYRI: KA UPANGSSTRÆTII MIÐYIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Hlegið dátt í ^ Kópavogi GLEÐIN réði svo sannarlega ríkj- um á samkomu Hláturklúbbsins í Gullsmára, félagsheimili eldri borgara í Kópavogi, í gærkvöldi. Klúbburinn, sem stofnaður var fyrir um ári og opinn er öllum eldri borgurum í Kópavogi, hittist ætíð siðasta þriðjudagskvöld í mánuði og er þá jafnan slegiö á létta strengi og hlegið dátt. Gærkvöldið var engin undan- tekning; gamanyrðin í formi sagna af kynlegum kvistum elleg- ar vfsna af ýmsu tagi fuku og allir skemmtu sér konunglega Sá er einmitt tilgangur félags- skaparins, því maður er manns ^gaman og óljúgfróðir menn hafa löngum sagt að hláturinn lengi lífið. Víst er að margir vildu þá Lilju kveðið hafa. I Gleði /31 Morgunblaðið/Sverrir Félög Verkamannasambandsins leggja fram kröfur í komandi viðræðum Krafa um að lágmarkslaun verði 90-110 þúsund krónur VERKAMANNASAMBANDIÐ og félög verkafólks á höfuðborgarsvæð- inu, sem mynda Flóabandalagið, lögðu fram kröfugerðir í komandi kjaraviðræðum í gær. VMSÍ krefst þess að laun hækki árlega um 15.000 kr. og lágmarkslaun verði 110 þúsund í lok samningstímabilsins. Flóa- bandalagið krefst þess að laun hækki um 5% og lágmarkslaun verði 91 þús- und í lok samningstímans. Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði að lokn- um samningafundum í gær að kröfur Verkamannasambandsins væru al- gerlega óraunhæfar. Þær byggðust á grunni sem ekki gæti leitt til niður- stöðu. Kröfur Flóabandalagsins sam- rýmdust heldur ekki þeim markmið- um sem vinnuveitendur hefðu sett sér, en þær væru hins vegar annars eðlis og myndu verða ræddar frekar á fundi hjá sáttasemjara nk. föstudag. Kreíjast hækkunar á greiðslum í lífeyrissjóð VMSÍ krefst þess að laun hækki árlega um 15.000 kr. Þar að auki krefst það þess að lífeyrisgjald vinnu- veitenda hækki úr 6% í 11,5% og vinnuveitendur greiði 0,30% í starfs- menntasjóð. Flóabandalagið krefst þess að lægstu laun hækki um 30% á samn- ingstímanum en almenn launahækk- un verði 15,76%. Bandalagið krefst 2% hækkunar á framlagi vinnuveit- enda í lífeyrissjóð og að greiðslur vinnuveitenda í starfsmannasjóð verði 0,25%. í báðum kröfugerðunum er farið fram á tryggingaákvæði í þeim til- gangi að laun verkafólks dragist ekki aftur úr öðrum launum. Báðir aðilar bjóðast til að gera samninga til þriggja ára. í kröfugerð Flóabanda- lagsins segir að bandalagið sé tilbúið að leggja sitt af mörkum, ef tryggt þykir að framlagið leiði til lækkunar verðbólgu. Reynsla síðustu þriggja ára sýni hins vegar að framlag verka- fólks dugi ekki, eitt og sér, til að halda niðri verðbólgu. Aðrir verði einnig að leggja sig fram eigi að takast að halda stöðugleika í efnahagsmálum. Formannafundur VMSÍ sam- þykkti í fyrradag að stofna aðgerða- hóp og er miðað við að hann grípi til aðgerða eigi síðar en 10. mars hafi samningar ekki tekist. Engin formleg samþykkt hefur verið gerð af hálfu Flóabandalagsins í þessa veru. Grunur um hitasótt í veturgömlum trippum GRUNUR leikur á um að hitasótt *sé komin upp í veturgömlum tripp- um á tveim bæjum í Arnessýslu. Ekki verður gripið til sértækra að- gerða ef grunurinn reynist réttur vegna þess að ekki er hægt að stöðva útbreiðslu hitasóttarinnar og ekki síður vegna þess að um er að ræða unghross og þar af leið- andi hefur sóttin ekki áhrif á hrossaútflutning. Að sögn Sigríðar Björnsdóttur, dýralæknis hrossasjúkdóma á Hól- um í Hjaltadal, vaknaði grunur um að um hitasótt væri að ræða þegar rannsóknir leiddu í ljós að útilokað . . f í 0 I) Í I |ll>W Lifandi morgunþáttur! • fjórir fréttatímar • opin dagskrá • virka daga kl. 7-9 væri að trippin hefðu veikst af salmonellu eða votheysveiki. Ein- kennin sem trippin sýna eru hiti og lystarleysi en ekkert smit hefur enn fundist að sögn Sigríðar. Hún segir að ekki sé ólíklegt að trippin hafi á sínum tíma fengið mótefni gegn hitasóttinni margnefndu með fyrstu móðurmjólkinni sem veitir tímabundið ónæmi en þegar það hafi gengið til þurrðar í líkama þeirra hafi þeim ekki tekist að mynda mótefni af sjálfsdáðum og því sé hugsanlegt að hitasóttin herji á þau nú. Ekkert fullorðið hross á bæjunum hefur sýnt sömu einkenni og trippin og segir Sigríð- ur að menn séu rólegir yfir fregn- unum. Hitasóttin margnefnda stakk sér niður á höfuðborgarsvæðinu í febr- úar árið 1998 og breiddist út um landið á næstu mánuðum með þeim afleiðingum að útflutningsbann var ítrekað sett á hross eftir því sem svæði landsins sýktust eitt af öðru. KennslumiðstQð sett á fót í HI STEFNT er að því að koma á fót kennslumiðstöð við Háskóla Islands nú á vormisseri. Hún hefur það hlut- verk að veita kennurum skólans fag- lega aðstoð við að sinna kennslunni sem best. Kom þetta fram á kennslu- málaráðstefnu HÍ þar sem kennsla, þverfaglegt nám og fjármál skólans voru til umræðu. Stofnun kennslumiðstöðvarinnar kemur til í kjölfar samnings milli menntamálaráðuneytisins og HÍ um kennslu en í samningum er tekið fram að skólinn muni tryggja gæði kennslu og náms. Hefur ráðuneytið veitt skólanum styrk til þess að efla þekkingu kennara sinna á upplýs- ingatækni og verður hann notaður til að koma kennslumiðstöðinni af stað. Kennslumiðstöðin mun heyra undir kennslusvið og gert er ráð fyrir að hún verði faglega tengd uppeldis- og menntunarfræði í félagsvísindadeild. Fram kom að fram til þessa hefði kennsluhlutverkið ekki haft sama vægi og rannsóknir til dæmis hvað varðaði möguleika á stöðuhækkun- um innan skólans. Sagði Guðrún Geirsdóttir lektor nauðsynlegt að breyta þessu viðhorfi. Þá kom fram að áhugi fyrir þverfaglegu nám færi vaxandi bæði meðal nemenda skól- ans og atvinnurekenda sem óskuðu í meira mæli en áður eftir starfsfólki með víðtæka og fjölbreytta mennt- I Aukinn áhugi/30 Landssíminn eykur afköst GSM-kerfísins LANDSSÍMI íslands hf. mun í dag tilkynna um stórfellda upp- byggingu á GSM-símakerfinu sem ráðist verður í á næstunni. Er þar bæði um að ræða aukna afkasta- getu og stækkun dreifisvæðisins. Samið hefur verið við sænska fyrirtækið Ericsson um kaup á margs konar búnaði vegna þess- arar uppbyggingar. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er verð hans nokkuð á annan milljarð króna. Framkvæmdir við uppbygging- una hefjast fljótlega en hún nær nánast um landið allt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.