Morgunblaðið - 01.02.2000, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 2000 29
ERLENT
Mannréttindabrotin á Austur-Tímor
Wiranto sagður
bera ábyrgð
Dili, Jakarta. AP.
OPINBER rannsóknarnefnd á veg-
um Indónesíustjómar sakaði í gær
Wiranto, ráðherra öryggismála, um
að bera ábyrgð á mannréttindabrot-
um sem framin vom á íbúum Austur-
Tímor. Niðurstaða nefndarinnar er
talin auka líkur á því að Wiranto, sem
notar aðeins eitt nafn, neyðist til að
láta af ráðherraembætti. Asakanim-
ar munu einnig án efa verða til að
auka spennu í samskiptum ríkis-
stjómarinnar, undir forystu Abdur-
ahman Wahid forseta og hersins.
Nefndin var sett á stofn til að
kanna hvað hæft væri í ásökunum
um að Indónesíuher hefði tekið þátt í
glæpum sem framdir vom á íbúum
A-Tímor eftir að meirihluti þeirra
greiddi atkvæði með sjálfstæði í alls-
herjaratkvæðagreiðslu 30. ágúst síð-
asthðinn. Hún skilaði í gær um 2000
blaðsíðna skýrslu þar sem 33 foringj-
ar innan hersins, þeirra á meðal Wir-
anto, em sakaðir um að hafa stutt
vígasveitir íbúa sem vom andvígir
aðskilnaði frá Indónesíu. A þriðja
hundrað manns vom myrtir og fjöldi
Wiranto hershöfðingi
pyntaður af vígasveitunum áður en
alþjóðlegt friðargæslulið, undir for-
ystu Ástrala, batt enda á grimmdar-
æðið.
Wiranto hershöfðingi var yfirmað-
ur hersins og vamarmálaráðherra á
þeim tíma er átökin á A-Tímor bmt-
ust út. Hann hefur áður neitað öllum
sakargiftum en tjáði sig ekki um
skýrslu nefndarinnar í gær.
Vaxandi spennu hefur gætt í sam-
skiptum ríkisstjórnar Indónesíu og
hersins á síðustu mánuðum. Yfir-
menn hersins hafa löngum gegnt
valdastöðum í landinu en núverandi
stjórnvöld hafa reynt að draga úr
áhrifum hersins á landstjómina.
Mannréttindasamtök hafa krafist
þess að alþjóðlegur dómstóll fjalli um
mannréttindabrotin á Austur-Tímor
en Wahid forseti hefur lýst sig and-
vígan því. Meðal þeirra sem tekið
hafa undir kröfur um alþjóðlegan
dómstól er Jose Ramos-Horta, sem
lengi barðist gegn yfirráðum Indón-
esa á A-Tímor og fékk af því tilefni
friðarverðlaun Nóbels árið 1996.
Eftir viðræður við fulltrúa stjóm-
valda í Jakarta fyrr í þessum mánuði
féllst Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, á sjónarmið
Indónesíustjómar um að innlendum
dómstólum yrði falið að tryggja
framgang réttvísinnar vegna glæp-
anna á Austur-Tímor.
Friðarviðræður fsraela og Palestínumanna
Málamiðlun um Jer-
úsalem hugsanleg
VERSLUNAR-
Hámarkið afrakstur með lágmörkun rýrnunar
C Sensormatic
hefur réttu lausnina!
Það er staðreynd að 1-2% af veltu verslana fer fram hjá kassa
ef ekkert er að gert. Fullkomið öryggiskerfi getur lágmarkað
þetta. Reiknaðu hvað 1% rýrnun kostar þig. Sensomatiac
vöruverndarkerfin eru þau fullkomnustu á sínu sviði!
Hafðu samband - við hðfum lausnina fyrir þig.
III'
Einar
Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28 g 562 2901 og 562 2900
Jerúsalem. AP, AFP.
YOSSI Beilin, dómsmálaráðherra
ísraels, hefur gefið til kynna að
málamiðlun um skiptingu Jerúsalem
sé hugsanleg. En samningamenn
Israela og Palestínumanna reyna nú
að ná samningum um drög að friðar-
samkomulagi sem liggja á fyrir 13.
febrúar.
Ymis erfið mál eru á dagskrá
samninganefndarinnar, m.a. landa-
mæri rílganna, Jerúsalem og málefni
palestínskra flóttamanna. Palestínu-
menn vilja að Israelar láti allan Vest-
urbakkann af hendi, Gaza-svæðið og
austurhluta Jerúsalemborgar. ísra-
elar hafa hins vegar sagst aldrei
munu láta Jerúsalem af hendi.
Beilin gaf engu að síður í skyn að
Israelar kynnu að vera reiðubúnir að
miðla málum varðandi Jerúsalem, en
hann hafði uppi svipaðar hugmyndir
í óformlegum viðræðum við
Mahmoud Abbas, aðstoðarmann
Yasser Arafats leiðtoga Palestínu-
manna, fyrir nokkrum árum. Þá
lagði Beilin til að sjálfstjómarsvæðin
í austurhluta Jerúsalem yrðu stækk-
uð þannig að þau næðu lengra inn á
Vesturbakkann og að Palestínum-
önnum yrði veitt stjóm yfir sumum
þessara svæða, m.a. úthverfinu Abu
Dis. Palestínsk yfirvöld hafa alltaf
hafnað þessari tillögu.
Beilin vakti máls á þessari hug-
mynd að nýju nú í vikunni ásamt
Ephraim Sneh, aðstoðarvamarmál-
aráðherra. Ekki liggur þó fyrir hvort
samninganefndin taki hana til um-
ræðu. „Deilan um Jerúsalem er ef til
vill sú erfiðasta sem við þurfum að
takast á við ... en kannski líka sú auð-
veldasta," sagði Beilin í gær og kvað
bæði ísraela og Palestínumenn þurfa
að miðla málum.
Erfitt er að henda reiður á fram-
gangi friðarviðræðanna og hafa bæði
Israelar og Palestínumenn sagt lík-
legt að drög að friðarferlinu liggi
ekki fyrir á tilsettum tíma. Ehud
Barak, forsætisráðherra ísraels, og
Arafat ræðast við á fimmtudag til að
reyna að hraða friðarviðræðunum.
Arafat sagði hins vegar í ræðu sinni á
Alþjóðaefnahagsráðstefnunni í Dav-
os í Sviss í gær að seinagangur Isra-
ela ógnaði friðarviðræðunum og
Saeb Erekat, einn aðal samninga-
maður Palestínumanna, sagði
jákvæða niðurstöðu velta á engum
nema Barak.
0 ÚTFARARÞJÓNUSTAN,,,,
10ára
'*** <** i
&
1990 - 2000
Persónuleg þjónusta
Aðstoðum við skrif minningarrgreina
Sími: 567 9110 & 893 8638
nrarar utfarir ic Rúnar Gcirmundsson Sigurður Rúnarsson
_______WWW.Ulianr.lb_________________útfararstjóri útfararstjóri
BVl]
iiC:-» J \Y ... Skemmuvegur
.. _ z
yjjjj 15 i : z~, ■ % / 1 /
a PU
SiwíSw
Wmmm
&
Skólavörubúðin
erjlutt
U|á okkur f aerito:
1 * Kennsluforrit • Ritföng
1 * Námsbækur • Skólatöflur
• Kennslutæki • Kortabrautakerfi
• Sérkennslugögn * Myndvarpa og segulbönd
* Tómstundavörur • Landakort
1 . Gjafavörur . Sýningartjöld
Skólavörubúðin opnaði stærri og betri
verslun þriðjudaginn 1, feb.
Með flutningnum vill búðin efla þjónustu
sína í þágu viðskiptavina.
Verið veikomin I nýja og giæsliega
Skóiavörubúð. Við hiökkum tii að
þjönusta ykkur.
Vid bfóðum einnig upp á sérpöntunarþjónustu
Skólavörubúðin
- ínámi, leik og starfi -
Utsalan er byrjuð í MIRU .... loksins loksins . . . .