Morgunblaðið - 07.03.2000, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.03.2000, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2000 B 3 KNATTSPYRNA L fi : *l I m 4 § 'r - fv*-; i. ím ,1...; ^ . 1 jpS / v'Míl Ljósmynd/Dagur Gunnarsson Hermann Hreiðarsson í faðmi fjölskyidunnar á heímili hennar í Godstone. Ragna Lóa Stefánsdóttir, eiginkona Hermanns, er lengst til hægri og sonur hennar, Stefán Kári er vinstra megin. í fangi Hermanns situr Thelma Lóa, nýfædd dóttir hans og Rögnu Lóu. Önnur dóttir Rögnu Lóu, Elsa Hrund, var á íslandi er myndin var tekin. Mér fannst það svo hrikalega ósanngjarnt, þvi mér fannst ég hafa verið einn þeirra sem höfðu staðið sig best á keppn- istímabilinu. Ég var alveg hundóánægður með að vera ekki í liðinu þegar ég var búinn að vinna fyrir sæti. leikir voru eftir af keppnistímabilinu var Lombardo látinn hætta og einn af aðstoðarþjálfurunum tók við. Her- mann var í byrjunarliði Crystal Pal- ace fram til ioka leiktíðarinnar. Hon- um féll þungt að vera ekki valinn í byrjunarliðið í stjórnartíð Italans. „Mér fannst það svo hrikalega ósanngjarnt, því mér fannst ég hafa verið einn þeirra sem höfðu staðið sig best á keppnistímabilinu. Ég var alveg hundóánægður með að vera ekki í liðinu þegar ég var búinn að vinna fyrir sæti. Maður skilur það ef maður spilar illa, en ekki þegar mað- ur spilar vel, betur en næsti maður og sá hinn sami kemst í liðið. En þetta var gott ár. Ég hafði bara spil- að á Islandi áður og kom beint inn í eina af þremur eða fjórum sterkustu deildunum í Evrópu. Það var alveg meiriháttar. Það var frábær reynsla að koma út og spila yfir þrjátíu leiki í úrvalsdeildinni." Upphaf hnignunarskeiðs hjá Crystal Palace Orlög Crystal Palace voru á sömu leið og flestir höfðu spáð, fall beint aftur í fyrstu deild. „Þetta voru hrikalegvonbrigði, en mér fannst við vera með sterkt lið og ég var bjartsýnn - hugsaði sem svo að við færum beint upp aftur,“ segir Her- mann. Þessi bjartsýni hans leiddi síðar til frekari vonbrigða. Eigendaskipti urðu hjá félaginu. Ævintýramaður- inn Mark Goldberg keypti félagið af Ron Noades eftir að hafa staðið lengi í stappi við að finna fjármagn til kaupanna. Goldberg réð nýjan knattspymustjóra, Terry Venables, sem hélt áður um stjórnartaumana hjá enska landsliðinu. „Ég var alltaf í liðinu hjá honum, en síðan var ég kallaður á fund með Mark Goldberg. Hann sagði mér að Venables ætlaði sér að selja einhverja tólf til fjórtán leikmenn. Þá var hann búinn að selja Neil Shipperley, Mark Edworthy og fleiri. Hann sagði að í framtíðar- áformum félagsins væru kaup á þremur miðvörðum." Hermann segir að þá hefði Noad- es, sem keypti 3. deildarliðið Brent- ford í vesturhluta Lundúna og gerði sjálfan sig að knattspyrnustjóra þess, spurt forráðamenn Crystal Palace hvort Hermann hefði áhuga á að fara þangað. „Ég var alveg ákveð- inn í að fara ekki, sagðist ekki taka þátt í þeirri umræðu. Ég sagðist ætla að halda áfram að berjast fyrir sæti mínu í liðinu.“ Vikurnar liðu og Goldberg vatt sér aftur að Hermanni, sagði að um- ræddu vamarmennirnir væm á næsta leiti. „Mér var sagt að ég væri ekki hluti af framtíðaráformum fé- lagsins. Ég settist bara niður og hugsaði málið vel og vandlega," segir Hermann. Að mörgu var að huga; fjölskylda hans, Ragna Lóa og böm hennar, vom í þann mund að flytja til stórborgarinnar. Hann hafði verið einn fyrsta veturinn. „Óvissan var því alger," segir hann. Vogun vinnur, vogun tapar En Hermann komst að lokum að niðurstöðu - hann gekk til liðs við Brentford. „Þetta var hrikalega erfið ákvörðun. Ég hafði spilað í úrvals- deild og féll niður í þá fyrstu og það- an beint niður í þriðju deild. Þetta kom mörgum á óvart og fólk velti því fyrir sér hvað ég væri að hugsa. Er hann bara búinn? - eitthvað á þá leið.“ Hermann segir að þriðja deildin hafi verið annar reynsluheimur og veru hans þar sagði hann lærdóms- ríka. „Með því að fara þangað niður sá ég hvað úrvalsdeildin er stór í raun og vem, hversu mikils hún er metin hjá strákunum sem spila í neðri deildum. Allir berjast fyrir því að komast í úrvalsdeildina. Það var virkilega gott að fá að kynnast þessu og reynslan sem ég fékk af því að spila hefur nýst mér mjög vel. Leik- irnir vom hrikalega margir... og erf- iðir. Baráttan var mikil og hraðinn gífurlegur. Þetta var góð reynsla og gekk upp,“ segir Hermann. Hafi hann nokkru sinni verið efins um réttmæti ákvörðunar sinnar, varð hann fullviss um að hún hefði verið skref í rétta átt er slæmar fregnir bámst úr herbúðum Ciystal Palace. „Tveimur vikum eftir að ég fór varð ég ennþá sannfærðari um að ég hefði gert rétt, því þá hafði félagið ekki einu sinni efni á að borga mönn- um launin sín. Leikmennirnir fengu bara hluta af laununum og félagið skuldar mörgum enn. Þá varð ég enn sannfærðari, fannst gott að vera laus við þetta vesen. Ég gat einbeitt mér inni á vellinum og þurfti ekki að hafa áhyggjur af því hvort ég fengi launin mín greidd." Hermann segir að hann hafi ekki viljað hætta á að lenda úti í kuldan- um hjá Crystal Palace og missa þannig tækifæri á að vekja athygli stærri liða, nokkuð sem varð honum kappsmál næsta árið hjá Brentford. „Þegar ég var hjá Palace spurðust nokkur lið fyrir um mig, en félagið vildi fá meiri pening en liðin vom til- búin að borga. Ég hugsaði þá með mér að það væri ef til vill betra að fara, vera í aðalliðinu í þriðju deild. Liðin gátu komið og horft á mig þar. Ég ætlaði mér ekki að vera í varalið- inu í fyrstu deild hjá Palace, þ.e.a.s. ef það hefði orðið hlutskipti mitt. Ég taldi hina lausnina betri.“ Þótt ævintýri Hermanns hjá fyrsta félagi sínu í atvinnumennsku hafi fengið miður skemmtilegan endi, segist hann hugsa með hlýhug til vem sinnar hjá Crystal Palace. „Satt best að segja ber ég mjög góð- ar tilfinningar til félagsins. Ég naut hverrar mínútu þarna. Ahorfendurn- ii- vom alveg meiriháttar í minn garð, tóku mér strax vel. Það er mjög mikilvægt að vera í náðinni hjá áhorfendum sem leikmaður. Þeir stóðu við bakið á okkur allt tímabilið, þótt við ynnum varla leik. Ég ber hlýhug til Palace." Noades gerði gæfumuninn Hermann ber Ron Noades, eig- anda og knattspyrnustjóra Brent- ford, vel söguna. „Ég hefði aldrei farið í neitt félag í annarri eða þriðju deild ef Ron Noades hefði ekki verið þar. Ég þekkti Ron vel og hann reyndist mér ótrúlega vel,“ segir Hermann. Báðir högnuðust þeir af samstarfi sínu hjá félaginu. Brent- ford keypti hann af Crystal Palace á um 90 milljónir króna, þá metupp- hæð fyrir íslenskan knattspymu- mann. Um Ieið varð Hermann dýr- asti leikmaður í sögu Brentford og dýrasti leikmaður í sögu þriðju deildar. Hann lék 33 leiki með Brent- ford og skoraði fjögur mörk. Hann var valinn besti leikmaður 2. deildar ágúst og september í íyrra og var síðan seldur hinn 11. október fyrir um 290 milljónir til Wimbledon. Það var þá einnig metugphæð fyrir knattspyrnumann frá íslandi. „Við gerðum samkomulag um að við myndum vinna saman í því að koma mér aftur upp í úrvalsdeild. Hann hjálpaði mér stöðugt svo ég fengi at- hygli - reyndist mér alveg frábær- lega,“ segir Hermann um vin sinn Noades. Hermann og Noades ræðast reglulega við og hafa haldið sam- bandi síðan Hermann gekk til liðs við Wimbledon. „Við höfum orðið ágætis vinir og alltaf haldið góðu sambandi. Hann spyr mig oft um ís- lenska leikmenn. Hann reyndist mér vel og þess vegna reyni ég að hjálpa honum líka.“ Vinskapur þeirra tveggja hefur orðið til þess að nokkr- ir Islendingar hafa klæðst búningi Brentford síðustu misseri. Ivar Ingi- marsson, fyrrum leikmaður ÍBV og Vals, er fastamaður í liðinu og Gunn- ar Einarsson er þai' í láni frá hol- lenska liðinu Roda. Auk þeirra hafa aðrir íslenskir leikmenn fengið að reyna sig á æfingum félagsins. Eins og áður segir, vöknuðu efa- semdarraddir við söluna á Hermanni frá Crystal Palace til Brentford. Sjálfur segist hann þó aldrei hafa ef- ast um að hann fengi aftur tækifæri á meðal þeiira bestu - í efstu deild Englands. „Ég hafði alltaf fulla trú á sjálfum mér. Ég vissi alveg hvað ég gat. Ég hafði spilað í úrvalsdeild og gekk mjög vel og hafði líka spilað með fullt af strákum sem voru seldir til stóru félaganna. Ég vissi alveg að ég hefði getu til að vera í úrvalsdeild- inni. Ég var mjög jákvæður á þetta skref.“ Hjá Brentford kynntist Hermann nýrri hlið í atvinnuknattspyrnu, sig- urtilfinningunni. Með Hermann inn- anborðs var Brentford ósigrandi á köflum. „Brentford var lítið félag, en var á mikilli siglingu. Við unnum deildina og lékum 26 leiki í röð án þess að tapa, sextán leiki í þriðju deild og tíu leiki í annarri. Ég fékk það á tilfinninguna að við gætum ekki tapað. Sjálfstraustið var því mikið. Við vörðumst vel og fengum fá mörk á okkur. Það var virkilega skemmtilegt að taka þátt í því og það er alltaf gaman að vera í sigurliði. Það var gott að kynnast því líka. Hjá Palace unnum við ekki marga leiki, áttum alltaf í erfiðleikum. I Brent- ford fórum við í hvem leik til að vinna. Það var það eina sem komst að. Það var gott að kynnast þeirri hlið auk þess sem mér gekk vel pers- ónulega og vakti athygli. Þetta gekk upp. Ég er kominn aftur í úrvals- deild.“ Langþráðstund Ekki leið á löngu þar til úrvals- deildarlið sýndu Hermanni áhuga - og skal engan undra. Brentford vakti mikla athygli fyrir langa röð leikja án taps, sleitulaust í þriðju deild og síðar þeirri annarri, auk þess sem Hermann hafði verið kjörinn besti leikmaður annarrar deildar tvo mán- uði í röð, sem er harla óvenjulegt þegar vamarmaður á í hlut. „Eg man að ég kom mjög ferskur inn eft- ir sumarfrí og okkur gekk rosalega vel hjá Brentford í öllum leikjunum sem ég spilaði með liðinu. Ég fékk nokkra athygli þess vegna og vissi að

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.